Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1991, Blaðsíða 44
F R ÉTT A S K O T I Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrifí - Dreifing: Sími 27022 Banaslys í Hafnarfirði: Rútaog . fólksbifreið skullu saman - þrír á slysadeild úr rútunni Banaslys varð á gatnamótum Flatahrauns og Reykjanesbrautar um klukkan hálfþrjú aðfaranótt sunnudagsins þegar rúta og fólksbif- reið skullu saman. Fólksbifreiðin var að fara af Flata- hrauninu inn á Reykjanesbrautina til norðurs við blikkandi umferðar- ljós þegar rútan, sem ók eftir Reykja- nesbrautinni til norðurs, skall á hlið bifreiðarinnar. Fjórar konur voru farþegar í fólks- bifreiðinni og sú sem lést sat í aftur- sætinu. Farþegi í framsæti slasaðist alvarlega. Fjórtán farþegar voru í rútunni og voru þrír þeirra strax fluttir á slysa- deild. Konan sem lést var úr Reykjavík og lætur eftir sig eiginmann og þrjú uppkomin börn. -ingo Harður árekst- uráHöfní Hornafirði Harður árekstur varð á gatnamót- um Hafnarbrautar og Vesturbrautar á Höfn í Hornafirði um klukkan hálf- átta á laugardagskvöldið þegar tvær fólksbifreiðar skullu saman. Kona um sextugt, ökumaöur ann- arrar bifreiðarinnar, slasaðist alvar- lega og var flutt til Reykjavíkur. Konan ætlaði að beygja af Hafnar- brautinni yfir á Vesturbraut og ók þá í veg fyrir bifreið sem kom efir Hafnarbrautinni. Mikil rigning var þegar slysið átti sér staö og skyggni slæmt. Tvö ungmenni í bílnum sem kom á móti meiddust eitthvað en þó ekki alvarlega. Ekkert þeirra var í bíl- belti. -mgo ísaijörður: Hoppaði í höf nina Karlmaður hoppaði í sjóinn í ísa- fjaröarhöfn í fyrrinótt. Skipverjar á fiutningaskipinu Öskju sáu til mannsins og komu honum til bjarg- ar. Manninum varð ekki meint af. Eftir því sem DV kemst næst munu kvennamál hafa orðið tii þess að hann fékk sér kælingu. -ÓTT LOKI Svona slokkva þeir ástgr- eldinn fyrir vestao! Frjalst, ohaÖ dagblað NOVEMBER 1991 MANUDAGUR 25 Samstaða um þyrlukaup núþegar þyrla veröi leigð á meðan beðið verður eftir nýrri Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Fram kom mikil og almenn sam- staða um að þyrlukaupum verði hrundið af stað hið fyrsta á lokuð- um fundi sem boðað var tii í gær. Á fundmum voru fulltrúar alira stjórnmálaflokka, björgunarsveit- armenn og bæjarfulltrúar frá Grindavík en fundurinn var hald- irrn í Sjómannastofunní Vör í Grindavík. Meðal fundarmanna voru Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Ingi Björn Albertsson, þmgmaður Sjálfstæð- ísflokks, sem lengi befur barist fyr- ir þyrlukaupum. Sjómanna- og véjstjórafélag Grindavíkur boðaði til fundarins en Sævar Gunnarsson er formaður þess. „Fundurinn var mjög mál- efnalegur og góður og samstaða var um það að fast yrði fyjgt eftir þyrlu- kaupum. Fram kom á fundinum að biðtími eftir þyrlum, eftir að pöntun hefur faríð fram, væri á bilinu eitt og bálft til tvö ár. Páll Halidórsson hjá Landhelgis- gæslunni upplýstí að ekkert væri því til fyrirstöðu að leigja þ^TÍu í millitíðinni. I>að verður strax farið í þetta mál en það tekur ef til vill nokkrar vikur að fá þyrluna. Eg sé fyrir mér þyrlu ekki seinna en í janúar á næsta ári. Það kom fram mikii samstaða um þyrlukaupin á fundinum og greinilegur vilji full- trúa allra flokka. í dag verður flutt frumvarp til laga ura þessi mál á Alþingi og viðbrögðin hijóta að verða jákvæð þar. Þyriukaup hafa lengi verið á dagskrá og hefur ver- ið dreift um allar jarðir og allar nefndir en lítið hefur hreyfst í þeim málum hingað til. En ég hef trú á þvi að á þessum fundi hafi verið tekin ákvörðun sem verður fram- kvæmd,“ sagði Sævar. -ÍS „Útvarp Matthíldur" er það fyrsta sem mörgum dettur í hug þegar þeir sjá þessa þrjá heiðursmenn saman- komna. Það er ekki nema von þvi það voru einmitt Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður, Þórarinn Eld- járn rithöfundur og Davíð Oddsson forsætisráðherra sem stjórnuðu á árum áður geysivinsælum þætti undir þessu nafni. Nú um helgina hittust þeir á Kjarvalsstöðum við opnun Ijóðasýningar Þórarins. - DV-mynd JAK Veðrið á morgun: Hæg norð- vestanátt Á morgun verður hæg norðvest- anátt með smáéljum vestanlands en úrkomulaust verður í öðrum landshlutum. Hití frá frostmarki niöur í -6 stig. Olvaður ökumaður: Á ofsahraða frá Ártúnsbrekku að Laxá í Kjós W og velti j - réðstþaraðlögreglu Ölvaður ökumaður fólksbíls slas- aðist er hann ók á ofsahraða út veginum við Laxá í Kjós eftir að haf< reynt að stinga lögregluna af, allt frá! því í Ártúnsbrekkunni, í fyrrinótt. Lögreglan' í Reykjavík mældi bíl mannsins á 95 kílómetra hraða e: honum var ekið upp Ártúnsbrekk- una um klukkan þijú í fyrrinótt., Maðurinn sinntí ekki stöðvunar- merkjum og ók á miklum hraða að Mosfellsbæ. Lögreglan fylgdi á eftir. Maðurinn var kominn á ofsahraða á Vesturlandsveginum, vel á annað hundrað kílómetra hraða, og var ákveðið að hætta stífri eftírfór. Við Tíðaskarð á Kjalarnesi tóku lögreglumenn flutningabílstjóra tah sem var að koma úr Hvalfirðinum Kvaðst hann nýlega hafa séð bíl koma á mótí sér á ofsahraða. Lög- reglan ók áleiðis inn Hvalfjöröinn. Þegar komið var inn að Laxá í Kjós kom bíllinn í ljós þar sem hann hafði oltið út fyrir veg. Ökumaðurinn var ennþá inni í bílnum. Þegar lögreglan fór að huga að manninum brást hann hinn versti við. Reyndi hann að sparka til lögreglumannanna. Eftir talsvert stapp var maðurinn fluttur í sjúkrabíl í bæinn. Hann reyndist ekki alvarlega slasaður en var grun aður um ölvun við akstur. Mál hans verðurtekiðfyrirhjádómara. -ÓTT as- jét afV frá' , Ú err 0 0 0 í í Keflavík og Njarövík: Mikiðtjón unnið á fjórurn innbrotsstöðum m Brotist var inn á fjóra staði á Suð- urnesjum í fyrrinótt og miklar skemmdir unnar. Farið var inn í rad- íóvérslunina Frístund í Keflavík og þaðan stolið htlum peningakássa af skrifstofu með 40 þúsund krónum i auk 6 þúsund króna skiptimyntar í öðrum peningakassa. Einnig var brotist inn í verslunina Hornið við Hringbraut í Keflavík. Þar var stolið 2 þúsund krónum, sígarettum og sælgæti. Á hárgreiðslustofu við Tún götu var rúða brotin og þar hurfu 4-5 hundruð krónur í peningum. Á þess- um stöðum voru rúður brotnar. Miklar skemmdir voru auk þess unnar í sumarbústaðnum Garðbæ viö Innri-Njarðvík. Þar var gamalt orgel stórskemmt, klukka og myndir brotnar. Málið er í rannsókn hjá lög- reglunniíKeflavík. -ÓTT 4 4 4 4 4 Laugardaga 10-17 Sunnudaga 14-17 TMHUSGÖGN SIÐUMULA 30 SIMI 686822 4 4 4 4 4 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.