Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1992, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1992, Blaðsíða 4
24 FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1992. Sýningar Art-Hún Stangarhyl 7, sími 673577 Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk, grafík og myndir. Opiö virka daga kl. 12-18. Aðrir tímar eftir samkomulagi. Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74, sími 13644 Safn Ásgríms Jónssonar er opið á laugar- dögum og sunnudögum kl. 13.30-16.00. Hópar og einstaklingar, sem vilja koma á öðrum tímum, geta haft samband viö safn- vörð. I vetur er sýnina á ævintýra- og þjóðsagna- myndum eftir Asgrím Jónsson í safni hans að Bergstaðastræti 74 í Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Þorgeir Ólafsson í síma 13644/621000. Ásmundarsafn Sigtúni, sími 32155 Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina Bókmenntirnar í list Ásmundar Sveinssonar. Jafnframt hefur verið tekin í notkun ný við- bygging við Ásmundarsafn. Safnið er opið frá kl. 10-16 alla daga. Café Mílanó Björg Atla sýnir verk sín í Café Mílanó. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekiö þátt í samsýningum. Sýningin er opin virka daga kl. 9-19, laugárdaga og sunnudaga kl. 9-18. Café Splitt Tita Heydecker sýnir málverk. Öll verkin á sýningunni eru máluð á þessu ári. Verk Titu hafa verið sýnd víða í Þýskalandi bæði á einka- og samsýningum frá árinu 1981. Sýningin stendur til 17. mal. Á sýningunni er margt merkra muna úr sögu Skálholts og kirkjunnar. Gallerí Borg Pósthússtræti 9, simi 24211 Jóhannes Jóhannesson sýnir olíu- myndir. Á sýningunni eru um 20 verk sem flest eru ný. Öli verkin eru til sölu. Sýningin er opin frá kl. 14-18 alla daga vikunnar. Sýningunni lýk- ur 28. apríl. Þjóðminjasafnið: Dýrgripir úr Skálholti Sýningar ISIýlistasafnið Vatnsstíg 3b Kess Visser sýnir verk sín í Nýlistasafninu. Sýningin er opin daglega kl. 14-18. Henni lýkur 3. maí. Norræna húsið Þar stendur yfir sýning á myndvefnaði eftir Þorbjörgu Þóröardóttur veflistarkonu. Þetta er fyrsta einkasýning Þorbjargar en hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima, á Noröurlöndum og í Bandaríkjun- um. Á sýningunni eru 15 verk unnin á síð- ustu þremur árum, þau eru öll ofin úr ull, hör og handspunnu hrosshári. Sýningin stendurtil 26. apríl. í anddyri hússinsstend- ur yfir sýning um fornar íþróttir og leiki. Sýningarnar eru opnar daglega kl. 14-19. Katel Laugavegi 20b, sími 18610 (Klapparstígsmegin) Til sölu eru verk eftir innlenda og erlenda listamenn, málverk, grafík og leirmunir. Listasafn alþýðu v/Grensásveg Félag frímerkjasafnara verður 35 ára 11. júní nk. Þessa tilefnis minnist félagið með frí- merkjasýningu dagana 24-26. apríl. Nokkur fjöldi nýrra safna íslenskra safnara verða sýnd ásamt söfnum frá öðrum Norðurlönd- um og Eistlandi. Pósthús verður opið á sýn- ingarstað alla sýningardaga og sérstimpill dag hvern. Öll íslensk frímerki útgefin 1873-1992 er að finna á sýningunni. Sýn- ingin verður opin í dag kl. 17-21, laugardag kl. 10-21 og sunnudag kl. 13-19. Aðgang- ur á sýninguna er ókeypis. Listasafn Einars Jónssonar Njarðargötu. sími 13797 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-16. Gallerí 15 Skólavörðustíg 15, sími 11505 Páskasýning Félags íslenskra teikn- ara stendur þar yfir. Á sýningunni eru dagblaðaauglýsingar, unnar sér- staklega fyrir þessa sýningu þar sem trúin og kirkjan eru viðfangsefnin. Sýningin stendur til 30. apríl. Gallerí List Skipholti, sími 814020 Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn. Opið daglega kl. 10.30-18. Gallerí Port Kolaportinu Opið laugard. kl. 11-17 og sunnud. kl. 10-16. Gallerí Sævars Karls Bankastræti 9, Auður Ólafsdóttir opnar myndlistarsýningu í dag. Sýningin stendur til 22. maí og er opin á verslunartíma, á virkum dögum kl. 10-18 og á laugardögum kl. 10-16. Gallerí Úmbra (Torfan) Amtmannsstíg 1, sími 28889 Galleríið er opiö þriðjudaga til föstud. kl. 12- 18 og laugard. kl. 12-15. Hótel Lind Rauðarárstíg 18 Kristmundur Þórarinn Gíslason sýnir mál- verk á Hótel Lind. Þetta er 12. sýning Krist- mundar hér heima og erlendis. Á sýning- unni eru sýnd rúmlega 40 smámálverk unn- in í akríl á vatnslitapappír, auk nokkura ann- arra verka og eru þau öll frá þessu ári. Sýn- ingunni lýkur þann 11. mal. J. Hinriksson Maritime Museum Súðarvogi 4, sími 814677 Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er opið frá kl. 13-17 þriðjud.-laugard. „Kaffi Geröi" Gerðubergi Ásta Erlingsdóttir myndlistarmaður sýnir í veitingabúð Gerðubergs, „Kaffl Gerði“. Asta vinnur öll sín verk með jurtalitum sem hún hefur sjálf þróað úr lífríki náttúrunnar. Sýningin stendur til 29. aprfl og er opin mánud.-fimmtud. kl. 10.30-21, fóstud. kl. 10.30-16 og laugard. kl. 13- 16. Ámi Sigurðsson sýnir einnig í Gerðubergi málverk á tré, teikningar og litógraflur. Sýning Áma stendur til 19. maí. Sýningin er opin mánu- daga tfl fimmtudaga kl. 10-22 og fóstud. og laugard. kl. 13-16. Einnig em sýnd verk í eigu Reykjavíkur- borgar í Gerðubergi. Kjarvalsstaðir við Miklatún Á morgun verða opnaðar eftirtaldar sýning- ar: í Vestursal verður opnuð sýning á jap- anskri grafík. Í austursal verður opnuö sýn- ing á teikningum úr Kjarvalssafni. í Austur- forsal veröur opnuð síðasta Ijóöasýningin á bessum vetri, á Ijóðum Kristjáns Karlssonar. I Vesturforsal opnar MargrétZóphanlasdótt- ir sýningu á glerverkum. Mokkakaffi Skólavörðustíg Þar stendur yfir sýning á Ijósmyndum úr Ljósmyndasafni Reykjavíkurborgar. Mynd- irnar sýna bæjarbúa við margvísleg störf. Fáeinar upplýsingar fylgja hverri mynd. Sýn- ingin stendur út mánuðinn og er opiö alla daga kl. 9.30-23.30 nema sunnudaga kl. 14- 23.30. Nú stendur yflr sýning í Bogasal Þjóðminjasafnsins á dýrgripum úr Skálholti. Þar getur að líta forna kirkjugripi og skrúða sem varðveist hafa frá dómkirkjunni í Skálholti, svo sem „kaleikinn góða“ sem talinn er vera frá því um 1300, minnishorn úr kaþólskri tíð, messuklæði samsett úr fornum skrúðum og merk altaris- klæði. Einnig eru á sýningunni grip- ir sem fundust við fornleifarann- sóknir í Skálholti á árunum 1954- 1958, þar á meöal bagall Páls biskups Jónssonar frá því um 1200 og háls- men Þórðar biskups Jónssonar, d. 1697. Flestir sýningargripimir eru í eigu og umsjá Þjóðminjasafnsihs en altari Brynjólfs biskups Sveinssonar var fengið að láni úr Skálholti og ber það nú hinn foma altarisstein, eins og Brynjólfur lét ganga frá honum í Skálholtsdómkirkju árið 1673. Sýningin verður opin kl. 12-16 þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga. Myndvefnað- ur í Norræna Nú er síðasta tækifæriö tii að skoða sýningu í Norræna húsinu á mynd- vefnaði eftir Þorbjörgu Þórðardóttur veflistarkonu. Þetta er fyrsta einka- sýning hennar en hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga. Þorbjörg er einn stofnenda Gallerís Sólon ísland- us og Gallerís Langbrókar. Á sýn- ingu Þorbjargar em 15 verk unnin á síðustu þremur árum. Þau eru öll ofin úr ull, hör og handspunnu hrosshári. Sýningin er opin daglega kl. 14-19 og lýkur sunnudaginn 26. apríl. Auður Ólafsdóttir. Gallerí Sævars Karls: Ný sýning Auður Ólafsdóttir opnar myndhst- arsýningu í Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9, þann 24. apríl. Sýn- ingin stendur til 22. maí og er opin á verslunartíma, á virkum dögum kl. 10-18 og á laugardögum kl. 10-16. Auður er fædd árið 1960. Hún nam við Myndlistaskólann í Reykjavík og Myndlista- og handíðaskóla íslands 1981-1986. Auöur hefur haldið einka- sýningu í verslunarhúsnæði Bygg- ingarþjónustunnar 1985 og tók þátt í IBM-sýningunni á Kjarvalsstöðum 1987. Margrét viö eitt verka sinna. DV-mynd Hanna Glermálverk á Kjarvalsstöðum Laugardaginn 25. apríl opnar Mar- grét Zóphóníasdóttir sýningu á verk- um sínum í vesturforsal Kjarvals- staða. Þetta em glermálverk sem unnin eru á verkstæði Frese og Sönner í Kaupmannahöfn. Sýningin stendur til 10. maí. Margrét stundaði nám við Mynd- lista- og handíðaskóla íslands og Myndlistaskólann í Reykjavík árin 1974-1976 og Skolen for Brugskunst í Kaupmannahöfn 1977-1981. Hún var kennari við Myndlista- og hand- íðaskólann frá árinu 1982 og Mynd- listaskólann í Reykjavík frá árinu 1990. Akureyri: Guðmundur Ármann sýnir á grafí kverkstæði Grámanns Guðmundur Ármann Sigurjónsson sýnir um þessar mundir á grafík- verkstæði Grámanns í Grófargili, Kaupvangsstræti 14 á Akureyri. Á sýningunni eru 32 grafíkmyndir, dúkristur og einþrykk, allar unnar á árinu 1991 og þessu ári. Dúkristur em skornar með þar til geröu skurð- aijámi og þrykktar í takmörkuöu upplagi í 4, 5 og 6 litum. Einþry'kksmyndirnar eru unnar á málmplötu. í þeim er liturinn pensl- aður á plötuna og þrykktur á pappír. Þar sem ekkert mót er gert í plötuna er ekki hægt að endurtaka þrykkið, í því felst sérstaða einþrykksins í grafíklistinni. Guðmundur Ármann mynlistarmað- ur. Sýningin er opin frá klukkan 14.00 til 19.00 og lýkur henni sunnudaginn 26. apríl. Listinn gallerí - innrömmun Síðumúla 32, sími 679025 Uppsetningar eftir þekkta, fslenska málara. Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 14-18. Listasafn Háskóla íslands í Odda, sími 26806 Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14- 18. Aðgangur að safninu er ókeypis. Listasafn íslands Frtkirkjuvegi 7, simi 621000 Þar stendur yfir sýning á höggmynd- um í eigu safnsins eftir Nínu Sæ- mundsson. Á sýningunni er auk þess greint frá lífi og list Nínu í máli og myndum. Sýningin stendur til 17. maí. Listasafn Sigurjóns Laugarnesi, sími 32906 Farandsýningin Sigurjón Ólafsson - Dan- mörk - ísléind 1991 - stendur yfir í listasafn- inu. Hér er um að ræða yfirlitssýningu. Sýn- ingin er opin um helgar kl. 14-17. Listhúsið Snegla Grettisgötu 7. sími 620426 Þar eru listmunir til sýnis og sölu, unnir af 15 listakonum sem vinna í textíl, keramik og skúlptúr. Opið mánudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl. 10-14. Sjóminjasafn íslands Vesturgötu 8 Hafnarfirði, sími 52502 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11, sími 54321 Opið á sunnudógum og þriðjudögum kl. 15- 18. Aðgangur ókeypis. Vinnustofa Ríkeyjar Hverfisgötu 59. sími 23218 Þar eru til sýnis og sölu postullnslágmynd- ir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslunartíma þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á laugardög- um kl. 10-16. Þjóðminjasafnið sími 28888 Á þriðju hæð stendur yfir sýning á tónlistar- iðkun á islandi í fyrri tíð, Sönglíf í heimahús- um. i Bogasal stendur yfir sýning á dýrgrip- um úr Skálholti. Þar gefur að líta forna kirkjugripi og skrúða. Sýningin er opin þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 12-16. Myndlistarsýning í Spron, Álfabakka Sýning á verkum eftir Mattheu Jónsdóttur myndlistarkonu. Sýningin mun standa yfir til 30. apríl nk. og veröur opin frá kl. 9.15-16, þ.e. á afgreiðslutíma útibúsins. Minjasafnið á Akureyri Aðalstræti 58, sími 24162 Opið daglega kl. 11-17. Þar stendur yfir sýning á mannamyndum Hallgríms Einars- sonar Ijósmyndara. Möppur með Ijósmynd- um liggja frammi og einnig eru til sýnis munir og áhöld af Ijósmyndastofu Hallgríms.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.