Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1992, Blaðsíða 4
24
FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 1992.
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7, sími 673577
Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk, grafík
og myndir. Opiö virka daga kl. 12-18. Aðrir
tímar eftir samkomulagi.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74, sími 13644
Safn Ásgríms Jónssonar er opið á laugar-
dögum og sunnudögum kl. 13.30-16.00.
Hópar og einstaklingar, sem vilja koma á
öðrum tímum, geta haft samband viö safn-
vörð.
I vetur er sýnina á ævintýra- og þjóðsagna-
myndum eftir Asgrím Jónsson í safni hans
að Bergstaðastræti 74 í Reykjavík. Nánari
upplýsingar veitir Þorgeir Ólafsson í síma
13644/621000.
Ásmundarsafn
Sigtúni, sími 32155
Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina
Bókmenntirnar í list Ásmundar Sveinssonar.
Jafnframt hefur verið tekin í notkun ný við-
bygging við Ásmundarsafn. Safnið er opið
frá kl. 10-16 alla daga.
Café Mílanó
Björg Atla sýnir verk sín í Café Mílanó. Hún
hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekiö
þátt í samsýningum. Sýningin er opin virka
daga kl. 9-19, laugárdaga og sunnudaga
kl. 9-18.
Café Splitt
Tita Heydecker sýnir málverk. Öll verkin á
sýningunni eru máluð á þessu ári. Verk Titu
hafa verið sýnd víða í Þýskalandi bæði á
einka- og samsýningum frá árinu 1981.
Sýningin stendur til 17. mal.
Á sýningunni er margt merkra muna úr sögu Skálholts og kirkjunnar.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9, simi 24211
Jóhannes Jóhannesson sýnir olíu-
myndir. Á sýningunni eru um 20 verk
sem flest eru ný. Öli verkin eru til
sölu. Sýningin er opin frá kl. 14-18
alla daga vikunnar. Sýningunni lýk-
ur 28. apríl.
Þjóðminjasafnið:
Dýrgripir úr Skálholti
Sýningar
ISIýlistasafnið
Vatnsstíg 3b
Kess Visser sýnir verk sín í Nýlistasafninu.
Sýningin er opin daglega kl. 14-18. Henni
lýkur 3. maí.
Norræna húsið
Þar stendur yfir sýning á myndvefnaði eftir
Þorbjörgu Þóröardóttur veflistarkonu. Þetta
er fyrsta einkasýning Þorbjargar en hún
hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hér
heima, á Noröurlöndum og í Bandaríkjun-
um. Á sýningunni eru 15 verk unnin á síð-
ustu þremur árum, þau eru öll ofin úr ull,
hör og handspunnu hrosshári. Sýningin
stendurtil 26. apríl. í anddyri hússinsstend-
ur yfir sýning um fornar íþróttir og leiki.
Sýningarnar eru opnar daglega kl. 14-19.
Katel
Laugavegi 20b, sími 18610
(Klapparstígsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og erlenda
listamenn, málverk, grafík og leirmunir.
Listasafn alþýðu
v/Grensásveg
Félag frímerkjasafnara verður 35 ára 11. júní
nk. Þessa tilefnis minnist félagið með frí-
merkjasýningu dagana 24-26. apríl. Nokkur
fjöldi nýrra safna íslenskra safnara verða
sýnd ásamt söfnum frá öðrum Norðurlönd-
um og Eistlandi. Pósthús verður opið á sýn-
ingarstað alla sýningardaga og sérstimpill
dag hvern. Öll íslensk frímerki útgefin
1873-1992 er að finna á sýningunni. Sýn-
ingin verður opin í dag kl. 17-21, laugardag
kl. 10-21 og sunnudag kl. 13-19. Aðgang-
ur á sýninguna er ókeypis.
Listasafn
Einars Jónssonar
Njarðargötu. sími 13797
Opið laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-16.
Gallerí 15
Skólavörðustíg 15, sími 11505
Páskasýning Félags íslenskra teikn-
ara stendur þar yfir. Á sýningunni
eru dagblaðaauglýsingar, unnar sér-
staklega fyrir þessa sýningu þar sem
trúin og kirkjan eru viðfangsefnin.
Sýningin stendur til 30. apríl.
Gallerí List
Skipholti, sími 814020
Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn.
Opið daglega kl. 10.30-18.
Gallerí Port
Kolaportinu
Opið laugard. kl. 11-17 og sunnud. kl.
10-16.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9,
Auður Ólafsdóttir opnar myndlistarsýningu
í dag. Sýningin stendur til 22. maí og er
opin á verslunartíma, á virkum dögum kl.
10-18 og á laugardögum kl. 10-16.
Gallerí Úmbra (Torfan)
Amtmannsstíg 1, sími 28889
Galleríið er opiö þriðjudaga til föstud. kl.
12- 18 og laugard. kl. 12-15.
Hótel Lind
Rauðarárstíg 18
Kristmundur Þórarinn Gíslason sýnir mál-
verk á Hótel Lind. Þetta er 12. sýning Krist-
mundar hér heima og erlendis. Á sýning-
unni eru sýnd rúmlega 40 smámálverk unn-
in í akríl á vatnslitapappír, auk nokkura ann-
arra verka og eru þau öll frá þessu ári. Sýn-
ingunni lýkur þann 11. mal.
J. Hinriksson
Maritime Museum
Súðarvogi 4, sími 814677
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er opið
frá kl. 13-17 þriðjud.-laugard.
„Kaffi Geröi"
Gerðubergi
Ásta Erlingsdóttir myndlistarmaður
sýnir í veitingabúð Gerðubergs,
„Kaffl Gerði“. Asta vinnur öll sín
verk með jurtalitum sem hún hefur
sjálf þróað úr lífríki náttúrunnar.
Sýningin stendur til 29. aprfl og er
opin mánud.-fimmtud. kl. 10.30-21,
fóstud. kl. 10.30-16 og laugard. kl.
13- 16. Ámi Sigurðsson sýnir einnig í
Gerðubergi málverk á tré, teikningar
og litógraflur. Sýning Áma stendur
til 19. maí. Sýningin er opin mánu-
daga tfl fimmtudaga kl. 10-22 og
fóstud. og laugard. kl. 13-16. Einnig
em sýnd verk í eigu Reykjavíkur-
borgar í Gerðubergi.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Á morgun verða opnaðar eftirtaldar sýning-
ar: í Vestursal verður opnuð sýning á jap-
anskri grafík. Í austursal verður opnuö sýn-
ing á teikningum úr Kjarvalssafni. í Austur-
forsal veröur opnuð síðasta Ijóöasýningin á
bessum vetri, á Ijóðum Kristjáns Karlssonar.
I Vesturforsal opnar MargrétZóphanlasdótt-
ir sýningu á glerverkum.
Mokkakaffi
Skólavörðustíg
Þar stendur yfir sýning á Ijósmyndum úr
Ljósmyndasafni Reykjavíkurborgar. Mynd-
irnar sýna bæjarbúa við margvísleg störf.
Fáeinar upplýsingar fylgja hverri mynd. Sýn-
ingin stendur út mánuðinn og er opiö alla
daga kl. 9.30-23.30 nema sunnudaga kl.
14- 23.30.
Nú stendur yflr sýning í Bogasal
Þjóðminjasafnsins á dýrgripum úr
Skálholti. Þar getur að líta forna
kirkjugripi og skrúða sem varðveist
hafa frá dómkirkjunni í Skálholti,
svo sem „kaleikinn góða“ sem talinn
er vera frá því um 1300, minnishorn
úr kaþólskri tíð, messuklæði samsett
úr fornum skrúðum og merk altaris-
klæði. Einnig eru á sýningunni grip-
ir sem fundust við fornleifarann-
sóknir í Skálholti á árunum 1954-
1958, þar á meöal bagall Páls biskups
Jónssonar frá því um 1200 og háls-
men Þórðar biskups Jónssonar, d.
1697. Flestir sýningargripimir eru í
eigu og umsjá Þjóðminjasafnsihs en
altari Brynjólfs biskups Sveinssonar
var fengið að láni úr Skálholti og ber
það nú hinn foma altarisstein, eins
og Brynjólfur lét ganga frá honum í
Skálholtsdómkirkju árið 1673.
Sýningin verður opin kl. 12-16
þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga
og sunnudaga.
Myndvefnað-
ur í Norræna
Nú er síðasta tækifæriö tii að skoða
sýningu í Norræna húsinu á mynd-
vefnaði eftir Þorbjörgu Þórðardóttur
veflistarkonu. Þetta er fyrsta einka-
sýning hennar en hún hefur tekið
þátt í fjölda samsýninga. Þorbjörg er
einn stofnenda Gallerís Sólon ísland-
us og Gallerís Langbrókar. Á sýn-
ingu Þorbjargar em 15 verk unnin á
síðustu þremur árum. Þau eru öll
ofin úr ull, hör og handspunnu
hrosshári.
Sýningin er opin daglega kl. 14-19
og lýkur sunnudaginn 26. apríl.
Auður Ólafsdóttir.
Gallerí Sævars Karls:
Ný sýning
Auður Ólafsdóttir opnar myndhst-
arsýningu í Gallerí Sævars Karls,
Bankastræti 9, þann 24. apríl. Sýn-
ingin stendur til 22. maí og er opin á
verslunartíma, á virkum dögum kl.
10-18 og á laugardögum kl. 10-16.
Auður er fædd árið 1960. Hún nam
við Myndlistaskólann í Reykjavík og
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1981-1986. Auöur hefur haldið einka-
sýningu í verslunarhúsnæði Bygg-
ingarþjónustunnar 1985 og tók þátt í
IBM-sýningunni á Kjarvalsstöðum
1987.
Margrét viö eitt verka sinna. DV-mynd Hanna
Glermálverk á Kjarvalsstöðum
Laugardaginn 25. apríl opnar Mar-
grét Zóphóníasdóttir sýningu á verk-
um sínum í vesturforsal Kjarvals-
staða. Þetta em glermálverk sem
unnin eru á verkstæði Frese og
Sönner í Kaupmannahöfn. Sýningin
stendur til 10. maí.
Margrét stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands og
Myndlistaskólann í Reykjavík árin
1974-1976 og Skolen for Brugskunst
í Kaupmannahöfn 1977-1981. Hún
var kennari við Myndlista- og hand-
íðaskólann frá árinu 1982 og Mynd-
listaskólann í Reykjavík frá árinu
1990.
Akureyri:
Guðmundur Ármann sýnir á
grafí kverkstæði Grámanns
Guðmundur Ármann Sigurjónsson
sýnir um þessar mundir á grafík-
verkstæði Grámanns í Grófargili,
Kaupvangsstræti 14 á Akureyri.
Á sýningunni eru 32 grafíkmyndir,
dúkristur og einþrykk, allar unnar á
árinu 1991 og þessu ári. Dúkristur
em skornar með þar til geröu skurð-
aijámi og þrykktar í takmörkuöu
upplagi í 4, 5 og 6 litum.
Einþry'kksmyndirnar eru unnar á
málmplötu. í þeim er liturinn pensl-
aður á plötuna og þrykktur á pappír.
Þar sem ekkert mót er gert í plötuna
er ekki hægt að endurtaka þrykkið,
í því felst sérstaða einþrykksins í
grafíklistinni.
Guðmundur Ármann mynlistarmað-
ur.
Sýningin er opin frá klukkan 14.00
til 19.00 og lýkur henni sunnudaginn
26. apríl.
Listinn
gallerí - innrömmun
Síðumúla 32, sími 679025
Uppsetningar eftir þekkta, fslenska málara.
Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl.
10-18 og sunnudaga kl. 14-18.
Listasafn
Háskóla íslands
í Odda, sími 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl.
14- 18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Frtkirkjuvegi 7, simi 621000
Þar stendur yfir sýning á höggmynd-
um í eigu safnsins eftir Nínu Sæ-
mundsson. Á sýningunni er auk þess
greint frá lífi og list Nínu í máli og
myndum. Sýningin stendur til 17.
maí.
Listasafn Sigurjóns
Laugarnesi, sími 32906
Farandsýningin Sigurjón Ólafsson - Dan-
mörk - ísléind 1991 - stendur yfir í listasafn-
inu. Hér er um að ræða yfirlitssýningu. Sýn-
ingin er opin um helgar kl. 14-17.
Listhúsið Snegla
Grettisgötu 7. sími 620426
Þar eru listmunir til sýnis og sölu, unnir af
15 listakonum sem vinna í textíl, keramik
og skúlptúr. Opið mánudaga til föstudaga
kl. 12-18 og laugardaga kl. 10-14.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði, sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Póst-
og símaminjasafnið
Austurgötu 11, sími 54321
Opið á sunnudógum og þriðjudögum kl.
15- 18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu 59. sími 23218
Þar eru til sýnis og sölu postullnslágmynd-
ir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á
verslunartíma þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga og á laugardög-
um kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
sími 28888
Á þriðju hæð stendur yfir sýning á tónlistar-
iðkun á islandi í fyrri tíð, Sönglíf í heimahús-
um. i Bogasal stendur yfir sýning á dýrgrip-
um úr Skálholti. Þar gefur að líta forna
kirkjugripi og skrúða. Sýningin er opin
þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga kl. 12-16.
Myndlistarsýning
í Spron, Álfabakka
Sýning á verkum eftir Mattheu Jónsdóttur
myndlistarkonu. Sýningin mun standa yfir
til 30. apríl nk. og veröur opin frá kl. 9.15-16,
þ.e. á afgreiðslutíma útibúsins.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, sími 24162
Opið daglega kl. 11-17. Þar stendur yfir
sýning á mannamyndum Hallgríms Einars-
sonar Ijósmyndara. Möppur með Ijósmynd-
um liggja frammi og einnig eru til sýnis
munir og áhöld af Ijósmyndastofu Hallgríms.