Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1993, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1993, Blaðsíða 1
Lopez var rekinn - ævintýralegur sigur Snæfells í Grindavík og Damon Lopez rekinn í kjölfarið Bandaríski körfuknattleiksmaö- urinn Damon Lopez var í gær rek- inn frá úrvalsdeildarliði Snæfells frá Stykkishólmi. Hann lék fimm leiki með Snæfellingum og fjórum sinnum hrósaði Snæfell sigri. Nýr bandarískur leikmaður er kominn til Snæfellinga. „Damon Lopez var tilkynnt það í dag (í gær) að hann myndi ekki leika meira með okkur. Hann féll engan veginn inn í leik liðsins, gat að því er virtist ekki lært leikkerfi og hann féll illa að öðru leyti inn í hópinn. Það var þvi ekki um annað að ræða en að láta hann fara,“ sagði Ríkharður Hrafnkelsson, liðsstjóri Snæfells, í samtali við DV í gær. „Það er alltaf leiðinlegt að þurfa að standa í þessum leikmanna- skiptum en við væntum mikils af nýja leikmanninum og vonandi gengur okkur jafnvel í næstu leikj- um og undanfarið," sagði Ríkharð- ur ennfremur. Hávaxinn blökkumaður leysir Lopez af hólmi Nýi leikmaðurinn hjá Snæfelli er að sjálfsögðu miðheiji, heitir Shawn Jamison, svartur á hörund og er 2,04 metrar á hæö. Jamison hefur meðal annars leikið í CBA- deildinni bandarísku og einnig í Mexíkó og á að vera sterkur leik- maður. Damon Lopez féll hins vegar afar illa inn í leikmannahópinn hjá Snæfelli og tók til að mynda lítinn þátt í fagnaðarlátunum sem brut- ust út eftir ótrúlegan sigur Snæfell- inga í Grindavík í úrvalsdeildinni á laugardag. Nánar er íjallað um leiki helgarinnar í úrvalsdeildinni á bls. 24-25. -SK Hástökk: Næstbesti árangur íslendings Einar Kristjánsson hástökkvari náði næstbesta árangri íslend- ings á innanhússmóti í Jones- borough í Bandaríkjunum um helgina þegar hann stökk 2,13 metra. Hann átti síðan góða til- raun við 2,18 metra. Finnbogi Gylfason keppti á sama móti í 800 metra hlaupi og fékk tímann 1.54,74 mínútur. -JKS Fijálsaríþróttir: Flosi bætti fimmtán ára gamalt met Fimmtán ára gamalt met Gústafs Agnarssonar í langstökki innanhúss án atrennu féll um helgina. Gústaf setti metið í sjón- varpssal árið 1978 og stökk þá 3,44 metra. Flosi Jónsson, gullsmiður á Akureyri, bætti þetta gamla met um helgina á íslandsmótinu í atrennulausum stökkum og stökk 3,45 metra. Þorsteinn Þórsson, Tindastóli, sigraöi í hástökki án atrennu, stökk 1,66 metra og íris Grön- feldt, UMSB, vann hástökk kvenna, stökk 1,30 metra. Snjó- laug Vilhelmsdóttir, UMSE, sigr- aði í langstökki kvenna með 2,72 metra og einnig í þrístökki, stökk 8,01 metra. í þrí- stökki karla sigraði Eggert Sigurðs- son, HSK, stökk 9,56 metra. -SK Flosi Jónsson. Hvar er linsan mín? Lárus Ámason, KR-ingur, ieitaði ekki aðeins ailra leíða ásamt (élögum sínum til að sigra Skallagrtm í úrvatsdelldinni i gærkvöldi heidur þurfti hann að hafa nokkuð fyrir því að leita að linsu sem datt úr auga hans í miðjum leik. Allt fór vel að lokum, KR vann leikinn og Lárus fann linsuna. Sjá nánar á bls. 25. DV-mynd GS Héðinn úr leik - leikur ekki á Lotto Cup og HM í Svíþjóð í hættu Héðinn Gilsson leikur ekki með íslenska landsliðinu á Lotto Cup í Noregi. Héðinn fann fyrir eymslum í hné á æfingu með Dusseldorf á fimmtudag 1 síðustu viku. Við læknisrannsókn kom í ljós að sin undir hnéskel er sködduð og þarf Héðinn að taka það rólega á næst- unni. „Læknir, sem skoðaði mig, sagði að áhættan yrði mikil að fara til Noregs og keppa þar tjórum sinn- um. Eg taldi því skynsamlegast að hvíla mig vel og mun ekki mæta á æfingar hjá Dusseldorf þessa vik- una. Ef heppnin verður með mér ætti hvíldin að duga en í þessari stöðu er ekkert annaö aö gera en að vona það besta,“ sagði Héðinn Gilsson í samtali við DV í gær- kvöldi en hann stefnir á heimkomu 8. febrúar. Héðinn lék með Dusseldorf um helgina og skoraði sex mörk í jafn- teflisleik, 17-17, gegn Fredenbeck. -JKS Héðinn Gilsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.