Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1993, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1993, Blaðsíða 8
32 MÁNUDAGUR 26. APRÍL1993 Urslitin að ráðast Jóhannes Sveinbjörnsson er hér að tryggja sér sigur í Íslandsglímunni með þvi að leggja Eyþór Pétursson að velli I úrslita- glímunni að Varmá á laugardaginn. DV-mynd GS Jóhannes glímu- kóngur íslands - sigraði alla sína andstæðinga í í slandsglimunni og hlaut Grettisbeltið Mikiðaf mörkum Akranes, Keflavík og FH tryggðu sér í gær sigur í riðlum litlu bikarkeppninnar í knatt- spymu en auk þeirra komust Grindavik, ÍBV, Breiðablik, HK og Stjaman í 8 liða úrslit keppn- innar. Skagamenn skelltu Stjörnu- mönnum, 1-6, á gervigrasinu aö Ásvöllum í HafnarfirðL Haraldur Hinriksson skoraði 2 mörk og þeir Ólafur Þórðarson, Luca Kostic, Þóröur Guðónsson og Sturlaugur Haraldsson eitt mark hver. Haukur Pálmason svaraði fyrir Stjörnuna. Grindavík vann Hauka, 3-0. PáU Bjömsson skoraði tvö mörk og eitt var sjálfsmark. Lokastað- an í A-riðli varð þessi: Akranes...3 3 0 0 12-2 6 Grindavík.3 2 0 1 6-4 4 Stjarnan..3 1 0 2 5-8 2 Haukar....3 0 0 3 0-9 0 Keflavík vann HK, 6-0, i úrslita- leik B-riðils. Kjartan Einarsson, Ingvar Á. Guðmundsson og Óli Þór Magnússon skomðu mörkin, tvö hver. ÍBV komst áfram meö 2-6 sigri á Selfossi. Bjami Sveinbjömsson skoraði 3 mörk fyrir Eyjamenn, Tryggvi Guðmundsson 2 og Sindri Grétarsson eitt en Grétar Þórsson og Gylfi Sigurjónsson gerðu mörk heimamanna. Lokastaðan í B-riðli: Keflavík..3 2 10 12-1 5 ÍBV.......3 1116-33 HK........3 1 1 1 5-10 3 Selfoss...3 0 1 2 7-16 1 Breiðablik vann stórsigur á Gróttu, 7-0, eftír að staðan í hálf- leik var 1-0. Grétar Steindórsson skoraði 3 mörk, Sverrir Hákonar- son 2 og þeir Arnar Grétarsson og Willum Þór Þórsson sitt mark- ið hvor. FH-ingar unnu 0-2 sigur á Víði í Garði. Hörður Magnússon og Andri Marteinsson skomðu mörk Hafnarfjarðarliðsins. Lokastaðan í C-riðli: FH........3 3 0 0 9-0 6 UBK.......3 2 0 1 10-3 4 Grótta....3 1 0 2 2-11 2 Víðir.....3 0 0 3 0-7 0 í 8 liða úrslitunum mætast Akranes og ÍBV, Breiðablik og Kefiavík, Stjaraan og FH og Grindavík og HK. -SH/ÆMK/GH/VS Stjarnaní toppsætinu Stjaman er efst að lokinní fyrri umferðinni í litlu bikarkeppni kvenna í knattspyrau eftir 1-7 sigur á Haukum i gærkvöldi. Guðný Guðnadóttir 3, Laufey Sig- urðardóttir 2, Gréta Guðnadóttir og Jakobína Jónsdóttir skomðu fyrir Sijömuna en Bergþóra Laxdal fýrir Hauka. Stjaman er með 5 stig, Breiða- blik 4, Akranes 3 en Haukar ekk- ert. -ih Elfasvanná afmælismótinu Elias Helgason, GK, sigraði á afinælismóti Keilis, fyrsta opna golfmóti ársins hjá Golfklúbbn- um Keili í Hafnarfiröi sem fram fór í gær. Hann fékk 39 punkta samkvæmt Stableford-kerfi. Jens Karlsson, GK, varð annar, Guð- laugur Einarsson, GR, þriðji og Sigurður Aðalsteinsson, GK, fiórði en allir fengu þeir 37 punkta. Gísli A. Gunnarsson, GR, og Stefán Haraldsson, GB, fengu aukaverðlaun fyrir aö vera næst- ir holu í upphafshöggi á 16. og 18. holu. -VS Jóhannes Sveinbjömsson úr HSK er glímukóngur íslands annað árið í röð en hann sigraði í Íslandsglím- unni sem fram fór í íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ á laugardag- inn. Jóhannes lagði alla sína andstæð- inga að velli, flesta nokkuð auðveld- lega, og fékk að launum Grettisbeltið sem fyrst var keppt um árið 1906 og er elsti verðlaunagripur á íslandi. Síðasta glíma mótsins var viðureign Jóhannesar og gömlu kempunnar Eyþórs Péturssonar, HSÞ, sem tvisv- ar hefur sigrað í Islandsglímunni. Þetta var hrein úrslitaglíma þar sem þeir voru báðir taplausir fyrir loka- slaginn. Jóhannes sýndi hvers hann er megnugur og innbyrti frekar auð- veldan sigur þó svo að Eyþór sýndi góð tilþrif. Jóhannes ekki lengi að afgreiða andstæðinga sína Jóhannes er 23 ára gamall og er eng- in smásmíði. Hann er 1,94 metrar á hæð og vegur 110 kg svo að andstæð- ingar hans áttu svo sannarlega við ramman reip að draga. Glímukóng- urinn var ekkert að tvínóna viö hlut- ina. í fimm glímum af sjö gerði hann út um leikinn á innan við hálfri mín- útu og aðeins Orri Björasson, KR, og Eyþór Pétursson náðu að standa lengur í Jóhannesi. Var pressa á mér „Auðvitað stefndi maður að því að vinna keppnina en ég átti alveg von á harðri keppni. Tvær síðustu glím- urnar voru einna erfiðastar og ég þurfti að hafa fyrir þeim. Glíman gegn Orra var mikil átök og það er alltaf erfitt að mæta Eyþóri. Þegar maður á titil að verja er pressa á manni og allir búast viö að maður vinni og allir vilja leggja meistarann. Það gerir þetta erfiðara," sagði Jó- hannes Sveinbjömsson í sámtali við DV eftir mótið. Jóhannes hefur unnið öll einstakl- ingsmót vetrarins en hann og félagar hans í HSK urðu að lúta í lægra haldi fyrir Þingeyingum í sveitaglímunni en þar vann sveit HSÞ14. árið í röð. Breiddin að aukast „Það er uppgangur í glímunni, það er engin spuming. Hér áður fyrr var fyrirfram vitað hverjir yrðu í efstu sætunum á hveiju móti en nú er keppnin jafnari og margir ungir og efhilegir glímumenn eru að koma fram. Breiddin er því að aukast. Þetta var síðasta mót vetrarins. Við höfum gert það undanfarin ár að fara til Skotlands yfir sumartímann og keppa í fangbrögðum og í ár er ætl- unin að æfa í sumar og fara út í ág- úst. Ég ætla ekki að hvíla of lengi eftir þetta keppnistímabil heldur æfa vel í sumar og koma betur undirbú- inn til leiks fyrir næsta keppnis- tímabil," sagði Jóhannes. Ingibergur gekk úr keppninni Átta glímumenn hófu keppni í ís- landsglímunni en um miðbik móts- ins ákvað Ármenningurinn Ingi- bergur Sigurðsson að ganga úr keppni eftir glímu sína við Orra Björnsson. Hann var óánægður með dómar- ana og kvaðst vera að mótmæla tveimur úrskurðum dómara. Hörkukeppni um 3. sætið Hörð keppni var um þriðja sætið. Þrír glímumenn, Orri Bjömsson, KR, Tryggvi Héðinsson, HSÞ, og Amgeir Friðriksson, HSÞ, urðu jafnir í þriðja sæti og þurftu því að glíma innbyrð- is til að skera úr um hver hreppti verðlaunasætið. Eftir eina umferð voru þeir enn jafnir með einn vinn- ing hver og þurftu því að glíma aðra umferð. Þar tókst Tryggva Héðins- syni að leggja bæði Orra og Arngeir að velli og tryggja sér þriðja sætið en jafnglími varð hjá Orra og Am- geiri. Úrslit í Íslandsglímunni urðu því þannig: Jóhannes Sveinbjörnsson, HSK, hlaut 6 vinninga. Eyþór Péturs- son, HSÞ, hlaut 5 vinninga í 2. sæti. Tryggvi Heimisson varð þriðji með 3 vinninga í aðalkeppni og 3 vinninga í aukakeppninni. Orri Björnsson, KR, og Arngeir Friöriksson, HSÞ, urðu jafnir með 3 vinninga og 1 'A í aukakeppninni. Arngrímur Jónsson, HSÞ, varð í sjötta sæti með einn vinning og Ármenningurinn Sigurð- ur Nikulásson rak lestina með engan vinning. -GH Þór með góða stöðu Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyit Þórsarar þurfa nú aðeins jafntefli í síðasta leik sínum í JMJ mótinu í knattspyrnu á Akureyri til að tryggja sér sigurinn. Þeir unnu Leiftur, 3-1, um helgina og KA- menn unnu Tindastól, 2-0. Þeir Gísli Gunnarsson, Lárus Orri Sigurðsson og Þórir Áskelsson skoruðu mörk Þórs en Pétur Mar- teinsson mark Leifturs. í leik KA og Tindastóls skoruðu ívar Bjark- lind og Brynjólfur Sveinsson mörk KA. Staðan í mótinu: Þór............2 2 0 0 6-1 4 Leiftur........2 1 0 1 6-4 2 KA.............2 10 12-32 TindastóU......2 0 0 2 1-7 0 Mótinu lýkur nk. sunnudag en þá leika KA og Leiftur á KA-velli kl. 13 og Þór og Tindastóll á Þórs- velli á sama tíma. Níu mörk KR-inga KR tryggði sér sæti í undanúr- hvorum riðli í ár ná því marki. slitumReykjavíkurmótsinsíknatt- Ragnar Baldursson skoraði fyrir spymu _á laugardaginn með 9-1 Leikni í fyrri hálfleik en Róbert sigri á Ármanni. Ómar Berndtsen Arnþórsson, Kristinn Hafliöason 2, Siguröur R. Eyjólfsson 2, Rúnar og Sigurður Sighvatsson fyrir Vík- Kristinsson, Einar Daníelsson, ing í þeim síðari, Staðan í A-riðli: Óskar H. Þorvaldsson, Gunnar Fram.....3 3 0 o 18-1 8 Skúlason og Tómas Ingi Tómasson KR-.•••••3 3 0 0 17-2 8 skoruðu fyrir KR en Magnús Jóns- Víkíngur.4 2 0 2 5-5 5 son fyrir Ármann. ^,knir...» » » » ^ o Víkingur tryggði sér sæti í L deild Armann.3 0 0 3 2“20« mótsins næsta vor með 3-1 sigri á "v® Leikni í gærkvöldi en þrjú efstu í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.