Alþýðublaðið - 21.03.1967, Blaðsíða 1
ÞriSjudagur 21. marz 1967 - 48. árg. 67. tbl. - VERÐ 7 KR,
Fyrsti árangur af baráttu
Alþýðuflokksins fyrir
lækkun kosningaaldursins
RÍKISSTJÓRNIN lagði í gær fram á Alþingi frum
varp um breytingu á stjórnarskrá lýðveldisins þess
efnis, að kosningaaldur lækki úr 21 ári í 20 ár. Má
gera ráð fyrir, að frumvarpið verði samþykkt á þessu
þingi, en breytingin öðlast ekki gildi fyrr en Alþingi
hefur samþykkt hana aftur að afstöðnum kosningum.
Er því líklegt að 20 ára kosningaaldur gildi frá og
með öðrum kosningum héreftir, ekki síðar en vorið
1971.
| Allianœ
| leysíupp
| Reykjavík — KB.
| í nýútkomnu Lögbirtingar-
| blaði er skýrt frá því, að á
= hluthafafundi í Ffc^kvelða-
| hlutafélaginu Aliiance ný-
1 lega hafi verið samþykkt að
| slíta félaginu. Hættir þar
| elzta togaraútgerð á íslandi
| starfrækslu sinni, en Alli-
| ance var stofnaö utan um
1 fyrsta togarann, sein til
I landsinsi var keyptur, Jón
| forseta, en hann kom hingað
| árið 1907 og var nýlega
= minnzt 60 ára afmælis þess
| atburðar. Síðan í maí í fyrra
| liefur Alliance ekki gert út
| neinn togara, en þá var Jón
| forseti, nýsköpunartogari er
1 bar nafn fyrsta skipsins,
I seldur úr landi.
■ IMMMMMIMIIMMMIMMMMMIMMIMMMU
Þetta stjórnarfrumvarp er fyrsti
árangurinn af báráttu Alþýðu-
flokksins fyrir 18 ára kosninga-
aldri. Var það gert að stefnumáli
flokksins fyrir fáum árum, og
fluttu nokkrir alþingismenn
flokksins því tillögu á síðasta
þingi um kosningu milliþinga-
nefndar til að athuga lækkun
kosningaaldurs. Nefndin var sam-
mála um lækkun kosningaaldur,
en kom sér ekki saman um, hve
mikið skyldi lækka hann. Vildu
sumir lækka í 18 ár, aðrir í
minna.
Ríkisstjórnin ákvað í samræmi
við álit nefndarinnar að flytja
frumvarp um lækkun í 20 ár. Þótti
Alþýðuflokknum það spor í rétta
átt, að þessi áfangi skyldi nást.
Frumvarp rikisstjórnarinnar
gerir ráð fyrir, að 33. gr. stjórn-
arsknárinnar verði á þessa lund:
„Kosningarétt við kosningar til
Alþingis hafa allir, karlar sem
konur, sem eru 20 ára eða eldri,
þegar kosning fer fram og hafa
ríkisborgararétt hér á landi. Þó
getur enginn átt kosningarétt,
nema liann liafi óflekkað mannorð
Framhald á 13. síðu.
Þorkcll Máni að draga Litlafell til hafnar (Ljósmynd: Sjónvarpið).
Litlafell stjórnlaust
á réki á Breiðafirói
Rvík, SJÓ.
Litlcijell, olíuski p SÍS, var
hætt koviiö á Breiðafirði í morg-
un, er það rak stjórnlaust Jyrir
stormi í stórsjó, vegna bihniar í
stýrisbiinaði.
Var skipið statt 10 mílur frá
Skor á Breiðafirði, er þetta gerð-
ist í 9—11 vindstigum og stórsjó.
Var vindur á vest-suð-vestan og
Veðurofsi uiu helgina
Rvík — ABK.
Mikið óveður hejur verið hér
á landi undanjarna daga og um
helgina sérstaklega. Aðjaranótt
sunnudags mældust hér í Reykja-
vík 10 vindstig, en veðurhæðin,
komst allt upp 12 vindstig, á Stór-
höfða. Á Hvcravöllum mældust 11
vindstig kl. 8 á sunnudagsmorg-
uninn og var þar þá 8 stiga frost.
Miklar lægðir hafa gengið yfir
landiö undanjarið og orsakað ó-
veðrið og ein lægðin enn er á
leiðinni og samkvæmt upplýsing-
um Veðurstofunnar fer sú lægð
rétt suður af Idndinu eða um sunn
anvert landið og búast má við
Framhald á bls. 14.
um tíma var óttazt, að það kynni
að reka upp í grynningarnar á
Breiðafirði.
Neyðarkall barst frá skipinu kl.
7,15 í gærmorgun. Voru tveir
brezkir togarar staddir á þessum
slóðum og héldu þeir þegar til
móts við Litlafell. Einnig var tog-
arinn Þorkell máni staddur á
Breiðafirði og barst sú tilkynning
frá honum, að hann mundi verða
kominn að skipinu um hádegis-
bilið. Einnig voru nokkrir bátar,
er staddir voru á Rifshöfn beðnir
um aðstoð, ef á þyrfti að halda.
Blaðið náði sambandi við skip-
stjórann á Litlafelli, Ásmund
Guðmundsson, og kvað hann að
eitthvað hefði brotnað í stýrisút-
búnaðinum, en málið væri ekki
fullrannsakað að svo stöddu.
Sagði hann að þetta hafi gerzt
um kl. 7 um morgunimi og voru
þegar gerðar ráðstafanir til að
senda út neyðarkall og höfðu þeir
samband við Reykjavíkurradíó.
Rak skipið inn fjörðinn, en Ás-
mundur sagði, að þeir hefðu ekki
verið í neinni verulegri hættu, þó
stórsjór væri og vindur hefði kom-
izt upp í 11—12 stig.
Um hádegisbilið komu svo
Þorkell máni og annar '.'ezku tog-
aranna að Litlafelli og \ar skipið
þá statt um 7—8 sjóioílur rétt-
vísandi frá Höskuldse . sem er
sunnarlega á firðinum en Skor
er aftur á móti við > orðvestur-
enda fjarðarins.
Er togararnir komu að skipinu
voru þegar gerðar ráðstafanir
Framhald á 13. síðu.