Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 98. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						MANUDAGUR 2. MAI 1994

Fréttír

Bauð 50 milljónir

fyrir Krossanes-

verksmiðjuna

„Þaö sem mig undrar mest er að

fyrstu viöbrögð við tilboði í bæjarfyr-

irtæki skuli vera þau að blaðamaður

hringi í mig og leiti upplýsinga um

tilboðið. Mér finnst það með eindæm-

um en hefði frekar reiknað með að

áöur væri ég búinn að sitja fundi

með fulltrúum bæjarins þar sem til-

boðið hefði verið rætt og kannað

hvort samningsgrundvöllur væri

fyrir hendi. En það hefur ekkert

heyrst frá bæjaryfirvöldum þótt ég

hafi sent þetta tilboð inn í desemb-

er," segir Þórarinn Kristjánsson,

framkvæmdastjóri Gúmmívinnsl-

unnar hf. á Akureyri, um kauptilboð

sem hann hefur gert Akureyrarbæ í

fiskimjölsverksmiðjuna í Krossa-

nesi.

Nokkuð er um liðið síðan þetta til-

boð var rætt í bæjarráði en þar var

það kynnt á „glæru", engin gögn af-

hent um málið og fjallað um tilboðið

sem trúnaðarmál. Samkvæmt heim-

ildum DV hljóðaði tilboðið upp á 50

milljónir króna sem skyldu greiðast

á 10 árum og engar tryggingar

fylgdu. Þórarinn sagði það eitt um

þessar upplýsingar að auðvitað legðu

menn fram tryggingar þegar og ef

svona viðskipti færu fram. Hann seg-

ir að tilboð sitt sé hærra en SR-

verksmiðjurnar voru seldar á og að

á bak við sig standi menn sem hann

vill ekki gefa upp hverjir eru. Þess

má geta að Krossanesverksmiðjan

skilaði 9 miUjóna króna hagnaði á

sl. ári eftir um 50 milljóna króna af-

skriftir og um 60 milljóna króna fjár-

magnskostnað.

„Einhvers staðar verða menn að

byrja," sagði Þórarinn þegar hann

var spurður að því hvort það væri

ekki beinlínis móðgandi að leggja

fram kauptilboð með þessari upp-

hæð. „Ég vil líka gjarnan að það komi

Kvennalistinn:

Vill breyta

lögum um

fæðingarorlof

KvennaUstinn hefur lagt fram á

Alþingi frumvörp til breytinga á lög-

um um fæðingaorlof og lögum um

almannatryggingar sem lúta að

greiðslum í fæðingarorlofi. Frum-

vörpin voru áður flutt veturinn 1990

til 1991.

Meðal þeirra breytinga sem

kvennalistakonur leggja til er að

fæðingaorlof verði lengt í áföngum

um þrjá mánuði eftir fæðingu þannig

að það verði 9 mánuðir árið 1996.

Lagt er til að öllum mæðrum sé

tryggður réttur til hvíldartíma í

mánuð eftir fæðingu og fleirbura-

mæðrum einn mánuður til viöbótar.

Auk þessa leggur Kvennalistinn til

að fæðingarorlof til ættleiðandi for-

eldra, uppeldis- eða fósturforeldra,

verði lengt í áfóngum til jafns við

fæðingarorlof annarra foreldra og að

foreldrum verði heimilt að dreifa

greiðslum fæðingarorlofs eftir þrjá

mánuði og lengja þannig orlofstím-

ann.

Stöðvarfjörður:

Framboð

Stöðvarfjarðarframboö hefur kom-

ið fram til sveitarstjórnarkosninga

28. maí í Stöðvarhreppi. Efstu sætin

á framboðslistanum eru skipuð þess-

um: 1. Björgvin Valur Guðmundsson.

2. Þorgeir Magni Eiríksson. 3. Jón

Jónasson.

fram að ég er á móti því að bærinn

reki fyrirtæki og virki sem félags-

málastofnun fyrir fyrirtæki. Megin-

reglan á að vera sú að bærinn sjái

fyrirtækjunum fyrir rekstrarskil-

yrðum en sé ekki í atvinnurekstri

nema í undantekningartilfellum,"

sagði Þórarinn.

'¦¦¦"      "

Sól,

hitiog             -rs

vellíðan með

HAWAIIAN TROPIC

Sóiarvaran sem fæst eingöngu í apótekum!

Linda Pétursdóttir leggur sig alla fram hvort sem þaö er fyrir framan myndavélar

Ijósmyndaranna eöa í keppni viö happdrættisvélar Gullnámunnar. Hún setur aö sjálfsögöu

stefnuna á Silfurpottinn eöa Gullpottinn og þó svo aö hún            oY^\  í HPöa

hljóti ekki alltaf sigur, þáveithún að málefnið ergott.                  ^jC"                                 ™f/

í Gullnámunni reynir á heppni hvers og eins.

ÆáÉF\ MRÍ    1_.._8bJ.j a §

Stundum vinnur þú - stundum vinna allir, því í hvert

sinn sem spilaö er nýtur Háskóli íslands góös af.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48