MÁNUDAGUR 2. MAI 1994 17 Fréttir Greiðslustöðvun framlengd hjá Þorgeiri og Ellert: Enginn lokað dyrum á okkur enn sem komið er segir Haraldur L. Haraldsson framkvæmdastjóri Viðbrögð lánardrottna hafa verið jákvæð tíl þessa. Það hefur enginn lokað dyrum á okkur enn sem komið er. Yið erum að vinna að því að tryggja áframhaldandi rekstur og erum sæmilega bjartsýn á að það takist," segir Haraldur L. Haralds- son, framkvæmdastjóri Þorgeirs og Ellerts á Akranesi. Skipasmíðastöðin rær nú lífróður við að tryggja áframhaldandi rekst- ur. Greiðslustöðvun frá 24. janúar var í síðustu viku framlengd til 27. júní. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa farið fram á það við helstu kröfuhafa að þeir falli frá 80 prósent- um af kröfum. Að auki er nú leitað að 30 milljónum króna í aukið hluta- fé. Skuldir fyrirtækisins eru nú um 380 milljónir króna. Meðal stærstu kröfuhafa eru Landsbankinn með rúmar 100 milljónir, Iðnlánasjóður og Iðnþróunarsjóður með tæplega 80 milljónir og Byggðasjóður með um 50 milljónir. Fyrir liggur samþykki Byggðasjóðs fyrir niðurfellingu skulda á við aðra kröfuhafa. Ekki hefur þó verið gerð krafa um að Iðn- lánasjóður og Iðnþróunarsjóður felli niður sínar kröfur sem eru með veð í húsnæði fyrirtækisins. Að sögn Haralds er verkefnastaða skipasmíðastöðvarinnar góð. Nýlega hafi til dæmis fengist staðfesting á sölu tveggja flæðilína til Noregs og einnar til Færeyja. Að auki sé unnið að gerð vinnslulínu fyrir Guðbjörg- ina frá ísafirði, stýrishúsi fyrir aðila á Hellissandi og farþegasalar í gömlu Breiðafjarðarferjuna Baldur. Þessi verkefni ættu að duga okkur til að halda uppi fullri starfsemi út júní fyrir þá 70 starfsmenn sem nú eru í vinnu hjá okkur. Síðan erum við í viðræðum um fleiri verkefni. Það ríkir því meiri bjartsýni varð- andi framtíðina en verið hefur." Steinar Ragnarsson afhendir Óla Jóni Gunnarssyni seinni greiðslu klúbbs- ins upp í íbúð í fjölbýlishúsi fyrir aldraða. DV-mynd Olgeir Helgi Lionsmenn í Borgarnesi: Kaupa íbúð fyrir aldraða Olgeir Helgi Ragnaisson, DV, Borgamesi: Lionsklúbbur Borgarness afhenti á dögunum byggingarnefnd fjölbýlis- húss fyrir aldraða seinni greiöslu upp í íbúð í húsinu sem félagið fjár- magnar byggingu á. fbúðinni á að úthluta til einhvers sem á henni þarf að halda. Fjölmenni var við afhend- inguna og notuðu félagar Lions- -klúbbsins tækifærið til að skoða bygginguna um leið. Steinar Ragnarsson afhenti greiðsluna fyrir hönd félagsins en Óli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri Borgamess, veitti henni viðtöku fyr- ir hönd byggingarnefndar. Hann sagði að það skýrðist fljótlega hver fengi íbúðina. Jafnframt vildi hann koma á framfæri þakklæti bygging- arnefndarinnar til Lionsklúbbsins fyrir þennan höfðinglega styrk. Selfoss: Karlakórinn sló í gegn Regína Thorarensen, DV, Selfossi: Karlakór Selfoss sló heldur betur í gegn á tónleikum í Selfosskirkju að kvöldi sumardagsins fyrsta. Á annað hundrað manns sóttu tónleikana og hrifning áheyrenda var mikil og mik- ið klappað. Elstu kórfélagarnir eru 77 ára - þeir yngstu 20 ára. Á næsta ári verður kórinn 30 ára og verður þess minnst á veglegan hátt. Söngstjóri er Ólafur Sigurjóns- son en undirleikari Stefán Jónsson. Áheyrendur ljómuðu af gleði þegar þeir gengu úr kirkjunni sinni eftir tónleikana. Selfosskirkja er afar vinalegt guðshús. Loftræsting mætti þó vera betri og altaristaflan tU- komumeiri. Að þessu þyrfti að huga þegar fjárhagur leyflr. í samvinnu við evrópska hjólarisann PELLETIER bjóðum við hin þekktu VELO fjallahjól á verði sem á sér vart hliðstæðu hérlendis. VEL0 hjólin hafa verið seld á íslandi um árabil og er reynslan af þeim frábær! 18 GIRA FJALLAHJ0L 26". SHIMAN0-SYS gírar Bretti jj Dínamór og Ijós að framan og aftan Bögglaberi Pumpa Standari Keðjuhllf. Verð aðeins^^. J^, ,: 18GÍRAFJALLAHJ0L26" 15GIRAKVENHJOL24" Verð aðeins 5GIRAFJALLAHJÓL20" BMXHJOL20". Þetta eru eflaust bestu hjólakaupin í dag! Opið mánud.-föstud. 9-18 og laugard. 10-14 OLU LUNIN Faxafeni 9, sími 677332 Bemdorm í allt sumar Laus sæti: 10. maí, 22. júní, 13« júlí, 27« júlí Bjóðum vel staðsetta og góða gistístaöi ferðaskrifstofa Pajtaa^ í síjjja ^ REYKJAVIKUR OZ*X4 7V \l^^ Aðalstræti 16 - simi 62-14-90 ^reirdid lmjá okkur