38 MÁNUDAGUR 2. MAÍ 1994 Fréttir Deilurnar um sjávarútvegsfrumvarpið: Næstu kjarasamningar síðasta vopn okkar - segir Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambandsins Okkur sýnist, eins og viö höfum haldiö fram, aö þessar girðingar sem þarna eru reistar gegn kvótabraski séu það miklar að þær geti virkað öfugt við það sem ætlast er til, það er að segja að þær geti leitt til aukins fiskútfiutnings og sjóvinnslu. Ég vil taka það fram að ég er ekki að mála þetta jafn sterkum litum og þeir sem kalla sig Atvinnumenn. En hvar sem borið er niður og rætt við menn, sem hafa vit á þessum hlutum, virðist það samdóma skoðun þeirra að sjávarút- vegsfrumvarið hafi þessi áhrif verði það samþykkt óbreytt," sagði Björn Grétar Sveinsson, formaður Verka- mannasambandsins, við DV. Verkamannasambandið hefur verið svipaðrar skoðunar og þeir fisk- vinnslumenn sem kalla sig Atvinnu- menn um sjávarútvegsfrumvarpið sem er að koma til 2. umræðu á AlþingL Björn bendir á að VMSÍ sé með í höndunum bréf frá Samtökum fisk- vinnslustöðva þar sem þau segjast ekki treysta sér til að framlengja kauptryggmgasamninginn, sem nú er í gildi, óbreyttan. Þess vegna hljóti VMSÍ að mótmæla öllum þeim að- gerðum sem auka á þrengingar fisk- vinnslufólks. Við styðjum sjómenn í að koma í veg fyrir kvótabraskið sem við telj- um felast í því að útgerðarmenn selji frá sér kvóta en kaupi hann svo aftur og láti sjómenninga þá taka þátt í kaupunum. Þetta er kvótabrask. Við höfum hins vegar séð jákvæða þætti í tonn á móti tonni viðskiptum. Það er fyrst og fremst að minna hefur verið flutt út af dýrari fiski eftir að þau komust á. Á móti er svo auðvitað það neikvæða sem er lægra verö fyr- ir fiskinn til sjómanna. Það mál má hins vegar leysa ef vilji er fyrir hendi. En nú er svo komið að frum- varpið er til lokaafgreiðslu á Al- þingj. Meirihluti sjávarútvegsnefnd- ar er ekki til viðræðu um þær breýt- ingar.á frumvarpinu sem við teljum nauðsynlegar. Ég vil þá benda mönn- um á að kjarasamningar okkar eru lausir um næstu áramót og gætu orðið okkar síðasta vopn. Málefni fiskvinnslufólks verða eitt af aðal- málum í næstu kjarasamningum og þar af leiðandi þessi atriði öll sem nú er deilt um og snerta atvinnu verkafólks í landi," segir Björn Grét- ar Sveinsson. EfUr leiðinlegt tiöarfar á Norðurlandi að undanfömu brá mjög til betri tiðar um helgina. í Hliðarfjalli við Akureyri var haldinn einn hluti íslandsmóts vélsleðamanna og þar var margt um manninn sem fylgdist með. í sólinni og bliðunni gátu menn fækkað f ötum, og sumir fóru eins og brenndir snúðar heim". DV-símamynd gk EUiðavatn opnað í gær: Ágæt veiði í slæmu veðri Ég man ekki eftir öðru eins veðri í byrjun hérna við Elliðavatnið, jú kannski einu sinni í október. En maður lætur sig hafa það, þótt fiugan komist ekki langt út í," sagði Kol- beinn Ingólfsson er við hittum hann 7 - ::*^BH BlHðsN^k. '^fj^fjfl ¦^v^í e^atfeja^^jBBM^ M H y Þeir voru vel klæddir við Elliðavatnið í gær, þeir Bjarni Hákonarsson og Slgurjón Ingvarsson með 5 urriða. Á minni myndinni eru þeir Ragnar Jóns- son og Kolbeinn Ingólfsson með urriða. DV-mynd G. Bender við Elhðavatnið í gærdag. Veiðin hafði verið róleg hjá honum og Ragn- ari Jónssyni sem með honum var. Það er ekki stætt hérna við vatnið en það eru margir að veiða og þeir fyrstu mættu um hálfsjöleytið. Það hefur bara veiðst ágætlega miðað við veðurfarið," sagði Kolbeinn enn- fremur. Það hafa veiðst á milli 30 og 40 fiskar Elliðavatnsmegin, sá stærsti var rétt 2 pund," sagði kappklæddur veiðimaður með fiugustöngina úti í vatni. Ég er búinn að veiða einn urriða, punds fisk á maðkinn, ég byrjaði klukkan átta. Þaö er frekar kalt," sagði Reynir Guðjósson og hélt áfram að veiða. Þetta er orðið gott. Við höfum fengið 6 urriða," sögðu þeir Sigurjón Ingvarsson og Bjarni Hákonarsson sem voru vel dúðaðir við vatnið og höfðu reynt í tvo klukkutíma. Laxahrognin voru að gefa vel seinni partinn í gær, sérstaklega á Þingnesinu. . Steingrímur Hermannsson tók sem kunnugt er við starfi bankastjóra Seðla- banka islands 1. mai. í föstudag baðst hann lausnar sem alþingismaður og hélt af því tilefni stutta kveðjuræðu á Alþingi. Að henni lokinni stóð Davíð Oddsson forsætisráðherra upp og þakkaði Steingrimi unnin störf sém þingmaður og ráðherra. Steingrímur hefur verið forsætisráðherra landsins lengur en nokkur núlifandi íslendingur. Davíð sagöi að við viðgerðir á ráð- herrabústaðnum við Tjarnargötu fyrir skömmu hefðu fundist nokkrír tindát- ar eins ög börn léku sér að hér áður fyrr. Hann taldi ekki óliklegt að Stein- grímur hefði átt þá enda áttJ hann heima i þessu húsi á þeim árum þegar strákar leika sér að leikföngum á borð við tindáta. Davið hafði þegar er hann flutti ræðuna fært Steingrimi tindátana að gjöf sem hann er með hér á myndinni. DV-mynd BG Hér bilaði gömul vatnsæð sem er búin að þjóna sínu hlutverki i 30-40 ár. Hún brotnaði án sérstaks tilefnis. Það flæddi hér um og vatnið lyftJ götumalbikinu. Það eru greinilega klappir þarna undir og hafi ekki verið nógu þykkt sandlag í kringum lagnirnar í upphafi er liklegt að jarðsvegs- hreyfing eða titringur út af umferð hafi valdið brotinu í leiðsiunni," sagði Sigmar Ingason, verkstjóri hjá Vatnsveitu Suðurnesja, í samtali við DV. 20 hús við Borgarveg í Njarðvík uróu kaldavatnslaus í rúmar átta klukkustund- ir á laugardag þegar gert var við vatnsleiðslu sem sprakk skyndilega. DV mynd Ægir Már Kárason