Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagblašiš Vķsir - DV

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 98. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagblašiš Vķsir - DV

						MÁNUDAGUR 2. MAÍ 1994

39

Menning

Eygló Haröardóttir í Nýlistasafrdnu:

Kortlagning og

sköpunargleði

Leynt eöa ljóst enim við alltaf að kortleggja tilveru

okkar, umhverfi, framtíð og fortíð. Við mörkum okkur

sporbrautir um lífið og dönsum blindandi línudans í

fjölleikahúsi samfélagsins til að geta síðan kortlagt

tilvist okkar. Eygló Harðardóttir, sem nú sýnir í efri

sölum Nýlistasafnsins, lætur kortlagningaráráttuna

vera útgangspunkt listar sinnar og vitnar því til stað-

festingar í sýningarskrá í „Blekspegilinn" eftir Jorge

Luis Borges í þýðingu Sigfúsar Bjartmarssonar þar

sem segir af keisaradæmi einu þar sem kortagerðar-

listin náði slíkri fullkomnun að uppdrátturinn af rík-

inu var jafn mikill og það var víðlent. Síðari kynslóð-

ir skildu hins vegar ekki þessa list og létu uppdráttinn

drabbast niður uns ekkert var eftir nema fáein shtur.

Sýning Eyglóar minnir um margt á þess konar sUtur,

en fremur í þá veru að þau sé veriö að draga fram til

varðveislu en aö láta þau hverfa í glatkistuna.

Hin hráa grind raunveruleikans

Ofangreint á raunar fyrst og fremst við um þann

hluta sýningarinnar sem er í SÚM-sal. Þar er um inn-

setningu að ræða er samanstendur af blekteikningum

í svörtu og rauðu á pappír, ljósmyndum, svörtum og

rauðum límböndum, járnstatívum og pappírsbrautum

á gólfi. Teikningarnar eru í svipuðum anda og Eygló

sýndi í Hafnarborg á hðnu hausti utan hvað nú hefur

rauður Utur bæst inn á flötinn. ÖU innsetningin virk-

ar ennfremur sem framlenging teikningarinnar og

sömuleiðis svarthvítar ljósmyndirnar. í ljósmyndun-

um bregður fyrir shtrum af þeirri „hráu grind raun-

veruleikans" sem Ustakonan getur svo spaklega um í

sýningarskrá. Vafalaust má hugsa sér margar myndir

af þeirri grind en hér má sjá m.a. kræklóttar greinar

trés, gatnaskipulag og fótspor í snjó, svo nokkuð sé

nefnt. Útfærslan er hrá og slitrótt og er það ugglaust

ætlun Eyglóar að koma þannig til skila því viðhorfi

að kortlagningartílraunir mannanna hljóti alltaf að

vera ófullkomin eftirmynd raunveruleikans. Fróðlegt

hefði þó verið að fá meira á prenti um þær hugmynd-

ir listakonunnar og ef ætlunin er að fanga fótspor á

pappírinn á gólfinu hefði mátt útfæra þá hugmynd á

markvissari hátt.

Leiftur af sköpunargleði

Á pallinum hefur Eygló komið fyrir fimmtán litljós-

myndum af augnsvip jafn margra kvenna er hafa rétt

Myndlist

Olafur J. Engilbertsson

nýlokið við að fæða. Undir hverri mynd er bókstafur

og saman mynda bókstafirnir setninguna „Þær hafa

rétt fætt". Hér er væntanlega ætlun Eyglóar að skrá-

setja leiftur af hamingjunni og/eða sköpunargleðinni.

Tufinninguna aö fæða barn má e.t.v. sltílgreina sem

dýpstu skópunargleðina í ævi konunnar. I nokkrum

mynda Eyglóar kemst þýðing þessa augnabliks ágæt-

lega til skila, en í sumum ekki. Hér hefði mátt grisja

meira og skýrari svarthvítar myndir hefðu sennilega

komið tilfinningunni betur til slula. Hugmyndin er

hins vegar afar áhugaverð og af heimspekUegri toga

en gengur og gerist á myndUstarsýningum um þessar

mundir. Sýning Eyglóar Harðardóttur í NýUstasafninu

stendur til 15. maí.

Quarteto de Marimba

Á efri hæð veitingahússins Fógetans við Aðalstræti

hefur um nokkurt skeið verið boðið upp á djasstónUst

á fimmtudagskvöldum. Húsakymun eru smekkleg og

hljómburður með ágætum og er sjáUsagt aö mæla með

staðnum fyrir djassþyrsta borgarbúa og raunar aUa

þá sem kunna að meta góða músík sem ekki er of

hávær. Síðastiiðið fímmtudagskvóld var þar við leik

og störf Quarteto de Marimba sem er hljómsveit skip-

uð íslendingum að mestu þrátt fyrir nafngUtina. Reyn-

ir Sigurðsson leikur á marimbu og á það til að grípa

Djass

Ingvi Þór Kormáksson

í dragspU, Þórður Árnason á gítar, Einar Sigurðsson

á bassa, en útlendingurinn í hópnum leikur á conga-

tíommur, snerU og maracas.

Efnisskráin er að mestu samsett af suður-amerískum

lögum eða lögum í þeim stíl.

„Corcovado", „Insensasetz" og fieiri eftir meistara

Antonio Carlos Jobm voru þarna á ferðinni og auk

þeirra „Watch What happens" og lagið „Anna" sem

er víst upprunanlega úr gamaUi ítalskri bíómynd með

Soffiu Loren. Með nikkuna í fararbroddi bijómuðu

m.a. lag úr Bleika pardusnum og annað sem Edith

Piaf gerði frægt. Svo það var frönsk stemning líka.

Þetta var aUt saman afar ljúft og nokkrir glæsUegU

einleikskaflar hjá Reyni og Þórði. DáUtið tómlegt

stundum að hafa slagverkið svona nett og fyrirferðar-

Utið, en sveUlan var vissulega til staðar og auðheyrt

að Steef var Oosterhout kann sitt fag. Einar er nýkom-

in úr klassískum bassaleik og á greUulega ekki í vand-

ræðum með að spUa aðra músík líka, eins og fyrr á

árum.

Það var sem sé gaman að hlýða á Marimbakvartett-

inn, jafnvel þegar engm var marimban. En þótt Reyn-

ir sé lunkinn með nikkuna jafnast það ekki á við leikni

hans með kjuðana.

Ódýru íþróttaskórnir frá ASI komnir

Stærðir: 22 til 35, 36 til 46

Dreifing: íslenska verzlunarfélagið

Skútuvogi 12c, sími 687550

SAFÍR

1500 cc 5 gíra

Lada Safír er ódýrasti fólksbíllinn á markaðnum. Hann er mjög

rúmgóður og sparneytinn

með1500ccvél

og 5 gírum.

558.000

SKUTBILL

1SOO cc

5 gíra lux

Lada skutbíllinn hentar vel bændum, iðnaðarmönnum og

raunar öllum sem þurfa rúmgóðan, traustan og sparneytinn bíl.

Hann er einnig ákjósanlegur

til lengri sem skemmri

ferðalaga.

SAMARA

647.000

1SOO cc 5 gfra

Sífellt fleiri eru komnir á þá skoðun að það vegi þyngst að aka

um á rúmgóðum, sparneytnum og ódýrum bíl þótt eitthvað

vanti á þann íburð sem

einkennir marga bíla, en

kemur akstrinum ekkert við.

SPORT

694.000

1BOO cc S gfra

Lada Sport er afar góður kostur. I bílnum fara saman mjög miklir

notkunarmöguleikar og

ótrúlega hagstætt verð.

798.000

Hafið samband við sölumenn okkar eða umboðsmenn um land allt.

Innifalið í verði er ryðvörn með 6 ára ábyrgð.

Auk þess útvarp, segulband og hátalarar.

Po

,*»*

tí, uada þeg3/.                             *pP

«P

«*

ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48