Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994 Fréttir Er íslenski hundurinn að úrkynjast: Hundaræktarfélagið vill flylja inn sæði frá útlöndum - hundurinn orðinn of smár og léttbyggður, segir formaður félagsins „Við höfum áhyggjur af því hversu léttbyggður íslenski hundurinn er orðinn og beinabyggingin ekki nógu kröftug, við þurfum að fá kröftuga vel byggða hunda inn í stofninn. Við höfum lengi rætt það að flytja inn hunda eða sæði erlendis frá til að bæta stofninn hér heima. Bestu hundamir erlendis eru ekki til sölu þannig að sæði er að okkar mati betri kostur. Þeir hundar sem eru góðir þar þykir okkur vera mjög góður kostur til aö bæta okkar stofn en það eru auðvitað hundar sem hafa ís- lenskt blóð á bak við sig,“ segir Guð- rún Guðjohnsen, formaður Hunda- ræktarfélags íslands. íslenski flárhundurinn hefur verið skipulega ræktaður frá 1969 þegar Hundaræktarfélag íslands var stofn- að. Hófst þá skráning á þeim hundum sem falla undir þá skilgreiningu sem er að baki þessari tegund hunda. Áður höíðu einstaklingar staðið að ræktun upp á eigin spýtur, svo sem Sigríður Pétursdóttir á Ólafsvöllum sem unnið hefur að ræktun í rúm 30 ár. Tvö félög standa að íslenska fjár- hundinum, Hundaræktarfélag ís- lands og Fjári sem er félagsskapur sem klofnaði frá Hundaræktarfélag- inu. Tahð er að um 350 hreinræktaðir hundar séu til á landinu en auk þess er fjöldi hunda erlendis. Sökum þess hversu fáir hundarnir eru hafa þess- ar hugmyndir komið upp að kynbæta stofninn með innflutningi á dýrum eða sæði. Með því móti yrði jafnframt minni líkur á skyldleikaræktun „Rjóminn af stofhinum var fluttur út, m.a. til Danmerkur Svíþjóðar og Noregs. Það sem við viljum er að fá eitthvað af þessu blóði til baka. Við gátum fengið að flytja inn sæði með þeim skilyrðum að setja tíkumar í einangrun eftir sæðingu en það er útilokað að fallast á það,“ sagði Guð- rún Guðjohnsen. Gjaldþrot Haf arn arins blasir við Bæjarráð Akraness hefur álykt- aö að það geti ekki tekiö þátt í upp- fyllingu skilyrða nauðasamninga Hafamarins hf. en forráöamenn fyrirtækisins hafa verið að leita leiða til þess. Bærinn á 40% hlut f Hafeminum og ljóst er aö bæjaryf- irvöld bafá það í hendi sér hvort hægt er að uppfylla skilyrði nauða- samninga. Fátt blasir þvi annað við en gjaldþrot. Að sögn Gísla Gíslasonar bæjar- stjóra hefur bæjairáð komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt að aðhafast frekar í málefnum Haf- amarins. Bæjaryfirvöldum þykir ljóst að stjómendum Hafamarins hafi ekki tekist að afla nægra tekna upp í nauðasamninga. Liklegt þykir því að fyrirtækið Krossvík, sem stofnað var í byrjun árs í kringum rekstur togara Haf- amarins, muni fyrst í stað leigja frystihúsið af þrotabúi. Krossvík, sem er í eigu Akraneskaupstaðar, leysti til sín arman togarann, Höfðavfk, í byijun árs og Kirkju- sandur, fyrir hönd Landsbankans, togarann Sæfara. Krossvík ræður yfir kvóta beggja skipa. Rekstur Hafamarins hefur geng- ið mjög illa síðustu ár. Skuldir fyr- irtækisins voru orðnar um 900 milljónir áður en skipin tvö voru seld en þær era nú á bilinu tvö til þrjú hundrað milöónir. íslenskur fjárhundur: Þarf hann að fá aðstoð erlendis frá til að ættlegg hans hnigni ekki. í dag mælir Dagfari Guðmundur segist hæfur Guðmundur Árni Stefánsson ber það til baka í DV í gær að hann sé ekki hæfur til að gegna ráðherra- embætti. Fullyrðir að fréttir þess efnis séu staðlausir stafir og hreint rugl. Dagfara létti mikiö við þessa yfirlýsingu ráðherrans. Ámi M. Mathiesen, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins og sveitungi Guðmundar Áma; hélt því nefnilega fram í Ein- taki í síðustu viku að Guðmundur væri ekki starfi sínu vaxinn sem heilbrigðisráðherra. Þingmaðurr inn sagði að Guðmundur hefði þurft sem heilbrigðisráðherra að bakka með röð af málum á Alþingi og gárangamir hefðu verið famir að kalla hann Bakkmann. Þing- maðurinn sagði að Guðmundi væri ekki lagið að fara með fjármuni almennings og heilbrigðismálin færa milijarð fram úr fjárlögum. Þessar fullyrðingar stóðu athuga- semdalaust dögum saman. Sumir sögðu að Guðmundur Ámi hlyti að vera í útlöndum og gæti því ekki komiö mótmælum á framfæri. Aðr- ir sögðu að svona bull væri ekki svaravert. Þeir illgjömustu full- yrtu að Guðmundur Árni hefði íhugað að fara í meiðyrðamál við Áma Mathiesen en verið ráðið frá því þar sem verulegar líkur væra á að málið tapaðist. Nú er Guö- mundur Ámi orðinn félagsmála- ráöherra og segir það staðlausa stafi að Guðmundur Árni heil- brigðisráðherra hafi ekki staðið sig í stykkinu. Það hlýtur að vera óhætt að trúa þessu því hver ætti að vera dómbærari á verk Guð- mundar Áma heilbrigðisráðherra en hann sjálfur? Enda sér hann ýmis kraftaverk eftir sig í starfi sem aðrir koma ekki auga á. Raun- ar segir ráðherrann í DV í gær að hann sé alveg hissa á stjómarþing- manni að koma fram með svona ásakanir á hendur sér. Hitt sé svo annað mál aö hann sé ýmsu vanur frá Árna Matt og fjölskyldu hans í Hafnarfirði. Nú má vel vera að Guðmundi Áma hafi ekki unnist tími til að gera allt sem hann ætlaði að gera sem heilbrigðisráðherra. Hann ætlaði til dæmis að loka Gunnars- holti og koma vistmönnum fyrir á elliheimilum. Hann ætlaði að gefa út heilsukort og láta þá sem ekki væra með kort borga sjúkrahús- dvöl úr eigin vasa. Guðmundur Ámi heilbrigðisráöherra ætlaði líka að láta drykkjumenn og dóp- ista borga fyrir afvötnun á Vogi. Það var ýmislegt fleira sem hann ætlaði að gera til að draga úr út- gjöldum og auka tekjur ríkissjóðs. Sem betur fer kom hins vegar í ljós að þessar ráðstafanir vora óþarfar því allt stefndi í svo mikinn spam- að í heilbrigðiskerfinu að þar var hreinlega ekki á bætandi. Rétt áður en Guðmundur hætti sem heilbrigðisráðherra og ein- henti sér í félagsmálin bárast þau tíðindi að heilbrigðisráðuneytið stefndi í að fara milljarð fram úr fjárlögum á þessu ári. Þetta grípur Ámi Matt á lofti og notar sem átyllu til aö halda því fram að Guð- mundur sé óhæfur sem ráðherra. En eins og ráðherrann bendir sjálf- ur á eru þetta staðlausir staflr. Aö visu fara útgjöld heilbrigðisráðu- neytisins fram úr áætlun. En þar er ekki við ráðherrann að sakast. Það var ríkisstjómin sem ákvað að ausa út peningum til öryrkja og gamalmenna, sjúkiinga og þurfa- manna með þeim afleiðingum að áætlanir röskuðust. En þrátt fyrir þessa óráðsíu ríkisstjómarinnar, sem heilbrigðisráðherra kom auð- vitað ekki nálægt, verður heil- brigðisráðuneytið innan ramma fjárlaga þegar árið er hðið í ald- anna skaut. Við þetta er svo sem ekki miklu að bæta. Guðmundur hefur rækilega stungið upp í Áma Matt og hans fjölskyldu. Nú eru allir með það á hreinu að Guð- mundur Árni er ekki síður hæfur til að vera ráðherra en bæjarstjóri í Hafnarfirði. Þar hófust stórkost- legar framkvæmdir undir hans stjórn en familien Mathiesen, sem heldur að það sé einhver kúnst að reka vesælan sparisjóð, fylltist öf- und og afbrýði. Það er bara von- andi aö Sighvatur spilli ekki þeim sparnaði sem Guðmundur náði í heilbrigðismálunum. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.