Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ1994 Fólk í fréttum Jafet S. Ólafsson Jafet Sigurður Ólafsson, útibús- stjóri íslandsbanka við Lækjargötu, til heimiiis að Langagerði 26, Reykjavík, hefur verið ráðinn út- varps- og sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 ogBylgjunnar. Starfsferili Jafet fæddist í Reykjavík 29.4.1951 og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- pröfi frá VÍ1973 og viðskiptafræði- próflfráHÍ 1977. Hann starfaði hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur 1974-77, hjá Loðnu- nefnd hluta úr ári 1976 og 1977, varð fulltrúi hjá iðnaðarráðuneytinu 1977 og deildarstjóri þar 1979, for- stöðumaður fatadeildar verslunar- deildar SÍS frá 1984, starfaði fyrir Þróunarfélag íslands frá 1986 og hefur verið útibússtjóri Iðnaðar- bankans og síðar íslandsbanka frá 1988. Jafet sat í stjórn Félags viðskipta- fræðinema 1974-75, var skipaöur endurskoðandi Iðnlánasjóðs 1979, hefur setið í stjórn Steinullarverk- smiðjunnar hf., í stjóm Þörunga- vinnslunnar hf. 1982-84, var vara- formaður Vals um skeið, í stjóm badmintondeildar Vals, formaður landshðsnefndar í badminton 1979-83, varamaður í stjóm BHM, aðalmaður í framkvæmdastjóm BHM og í orlofsnefnd BHM auk þess sem hann hefur setið ífjölda opin- berranefnda. Fjölskylda Jafet kvæntist 15.6.1975 Hildi Her- móðsdóttur, f. 25.7.1950, kennara, BA frá HÍ og ritstjóra hjá Máli og menningu. Hún er dóttir Hermóðs Guðmundssonar, b. í Ámesi í Að- aldal, og Jóhönnu Álfheiðar Stein- grímsdóttur, húsfreyju þar. Böm Jafets og Hildar era Jóhanna Sigurborg, f. 12.3.1975, nemi; Ari Hermóður, f. 16.4.1982, og Sigríður Þóra,f. 20.1.1991. Bróðir Jafets er Magnús Olafsson, f. 1944, forstjóri Emmess-ísgerðar- innar, kvæntur Eddu Ámadóttur hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvö börn. Foreldrar Jafets vora Ólafur Magnús Magnússon, f. 22.9.1920, d. 18.6.1991, húsgagnasmíðameistari og bankastarfsmaður í Reykjavík, og Sigríður Jafetsdóttir, f. 5.11.1916, d. 27.12.1980, húsmóðir. Ætt Ólafur Magnús var bróðir Jóns, föður Bjama listmálara. Ólafur var sonur Magnúsar, b. í Ási í Stykkis- hólmi, Jónssonar, hreppstjóra í Stykkishólmi, bróður Kristínar, móður Magnúsar Jónssonar, spari- sjóðsstjóra í Borgamesi, föður Hjartar lögskráningarstjóra, föður Jóhanns stórmeistara, en systir Hjartar er Sesselja, móðir Magnús- ar Hreggviðssonar hjá Frjálsu fram- taki. Jón var sonur Magnúsar, b. á Amarbæli á Fellsströnd, Magnús- sonar, og Guðrúnar Jónsdóttur frá Ásgarði, systur Sigurðar, langafa Bjöms Hermannssonar tollstjóra. Móðir Ólafs var Valgerður, dóttir Kristjáns, b. í Grannasundsnesi í Stykkishólmi, og Sigurborgar, syst- ur Valgerðar, móður Lára sem Þór- bergur skrifaði bréfln en bróðir Lára var Ragnar konsúll, afi Gunn- ars Ragnars hjá Shppnum á Akur- eyri og langafi Kjartans Magnús- sonar, formanns HeimdaUar. Val- gerður var einnig móðir Péturs, for- stjóra Síldareinkasölu ríkisins, og Jóns, föður Höskuldar, aðalbókara Landsbankans. Bróðir Sigurborgar var Valentínus, langafi Erlu, móður Þórunnar Valdimarsdóttur sagn- fræðings. Sigurborgvar dóttir Narfa, hreppstjóra á Kóngsbakka Þorleifssonar og Valgerðar Einars- dóttur. Sigríður var dóttir Jafets, skip- stjóra í Reykjavík, bróður Nikkól- Jafet Sigurður Ólafsson. ínu Hildar, móður Guðna, rektors MR, föður Ólafs þýðanda, en bróðir Jafets var Sigurður í Þorsteinsbúð, faðir Sigurðar, fyrrv. íþróttafrétta- manns. Jafet var sonur Sigurðar, útvegsb. í Seh, Einarssonar, b. í Bollagörðum, bróður Guðmundar í Nesi, af Bollagarðaætt. Móðir Jafets var Sigríður Jafetsdóttir, b. í Pálsbæ á Seltjamamesi, bróður Ingibjarg- ar, konu Jóns forseta. Jafet var son- ur Einars, kaupmanns í Reykjavík, Jónssonar, bróður Sigurðar, prests á Rafnseyri, föður Jóns forseta. Móðir Sigríðar var Guðrún Krist- insdóttir. Afmæli Guðjón A. Kristjánsson Guðjón Amar Kristjánsson, skip- stjóri og forseti Farmanna- og fiski- mannasambands íslands, Engjavegi 28, ísafirði, er fimmtugur í dag. Starfsferill Guðjón fæddist á ísafirði og ólst þar upp. Hann stundaði gagnfræða- skólanám á ísafirði, lauk hinu minna fiskimannaprófi á ísafirði 1965 og fiskimannaprófi hinu meira við Sjómannaskólann í Reykjavík 1966. Guðjón stundaði ungur fisk- vinnslustörf og vann hjá Rafveitu ísafjarðar en hefur að mestu stund- að sjómennsku frá fimmtán ára aldri á bátum og toguram frá ísafirði og Hnífsdal. Hann hefur stundað ahar veiðar, verið háseti, vélstjóri, matsveinn og stýrimaður en skipstjóri eftir 1968. Guðjón varð formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Bylgjunnar 1975, var kosinn í stjórn Farmanna- og fiskimannasambandsins 1979 og varð forseti þess 1983. Hann hefur setið í stjóm Fiskveiðasjóðs, í Verð- lagsráði sjávarútvegsins, í stjóm Fiskifélags íslands, í ráðgjafamefnd Hafrannsóknastofnunar, í ráðgjaf- amefnd um stjóm fiskveiða og í Fiskmatsráði, í stjórn Rannsóknar- stofnana fiskiönaðarins, nefnd um atvinnuréttindi skipstjómarmanna, verið varafiskimálastjóri og form- aður ritnefndar sjómannahlaðsins Víkings. Hann er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum frá 1991 og situr í sjávarútvegsnefnd Sjálfstæðisflokksins. Fjölskylda Guðjón á tvær dætur frá þvi fyrir hjónaband. Þær era Guðrún Ásta, f. 1963, húsmóðir í Hafnarfirði, og Ingibjörg Guðrún, f. 1966, nemi í Frakklandi. Fyrri kona Guðjóns var Björg Hauksdóttir og eignuðust þau þrjá syni. Synir þeirra era Kristján Andri, f. 1967, sjómaður í Reykjavík; Kol- beinn Már, f. 1971, starfsmaður hjá Plastos í Reykjavík; Amar Bergur, f. 1979, grannskólanemi. Kona Guðjóns er Mariana Bar- bara Kristjánsson frá Póhandi. Börn hennar og fósturböm Guð- jóns era Margarieta, f. 1979, og Ju- rek, f. 1981. Guðjón á átta systkini. Þau era: Jóna Valgerður, f. 1935, alþingis- maður á Isafirði, gift Guðmundi H. Ingólfssyni og eiga þau fimm böm: Þrúður, f. 1938, skólastjóri í Búðar- dal, gift Sturlu Þórðarsyni og eiga þau fjögur böm; Fjóla Guðrún, f. 1939, skrifstofumaður í Reykjavik, gift Valdimar Nielsen og eiga þau fjögur böm: Laufey Erla, f. 1940, húsmóðir í Reykjavík, var gift Sím- oni Melsted, sem lést 1983, en þau eignuðust fimm böm. Sambýhs- maður Laufeyjar Erlu er Pálmi Stef- ánsson: Freyja, f. 1942, verslunar- stjóri í Danmörku, gift Keld Nör- gaard og eiga þau þrjá syni: Matt- hildur Herborg, f. 1946, skrifstofu- maður í Reykjavík, gift Guðmundi Kr. Kristjánssyni og eiga þau íjögur böm: Jakob Kristján, f. 1952, lífefna- fræðingur í Reykjavík, kvæntur Þorgerði Hahdórsdóttur og eiga þau tvær dætur; Anna Karen, f. 1957, húsmóðir á ísafirði, gift Einari Hreinssyni og eiga þau fimm böm. Foreldar Guðjóns: Kristján Sig- mundur Guðjónsson, f. 17.11.1911, d. 22.12.1989, trésmíðameistari, og kona hans, Jóhanna Jakohsdóttir, f. 16.10.1913, húsmóðir. Ætt Krisfján var sonur Guðjóns, b. í Skjaldarbjamarvík við Geirólfs- gnúp, Kristjánssonar, lausamanns í Litlu-Ávík, Loftssonar, b. í Litlu-- Ávík, Bjamasonar, b. í Munaðar- nesi, Bjamasonar. Móðir Bjarna var Hallfr íður Jónsdóttir. Móðir Lofts var Jóhanna Guðmundsdóttir. Móð- ir Kristjáns var Þórunn Einarsdótt- ir, b. á Bæ, Guðmundssonar, prests Guðjón Arnar Kristjánsson. í Árnesi, Bjamasonar, b. í Fjósakoti í Flatey, Brandssonar. Móðir Guð- jóns í Skjaldarbjamarvík var Ólína Sigurðardóttir frá Eyri. Móðir Kristjáns var Anna Jónas- dóttir, b. á Þóroddsstöðum í Hrúta- firði, Eiríkssonar. Foreldrar Jóhönnu vora Jakob, b. í Reykjarfirði, Kristjánsson, og Matthildur Benediktsdóttir. Guðjón tekur á móti gestum á veit- ingastaðnum Ásláki í Mosfellshæ í dagkl. 18.00-21.00. Sviðsljós DV-mynd Páll Pétursson Starfsfólk Búnaðarbankans í Vík. Þjóðlegir bankamenn Starfsfólk Búnaðarbankans í Vík skartaði þjóðbúningum í vinnumii 16. júní í tilefni af 50 ára afmæh lýð- veldisins. Konurnar vora klæddar í upphlut eða peysuföt en það eina sem vantaði var hinn nýi þjóðbúningur karla. Bankinn var skreyttur blöðr- um og fánum og viðskiptavinum og gestum var boðið upp á kaffi og klein- ur. Þessi uppákoma var hluti af skipulagðri dagskrá dagana 11.-19. júní í Mýrdalshreppi þar sem fyrir- tæki og stofnanir buðu upp á ýmiss konar afþreyingu og skemmtun. 20.00ídag. Ragnar Jóhann Lárusson, Borgarholtsbraut 45, Kópavogi. OddgeirPétursson, Kirkjuvegi 11,Keflavík. 60 3T3 Jón Jósteinsson, Jón Þórir Jónsson, Réttarholtsvegi 33, Reykj V/WV» avik. 70ára KristínPálsdóttir, Brekkugötu 5, Ó: Kristjana Þórðardóttir fráVÍÖey, Vegghömrum 8, Reykjavík. Kristjanatekur ámótigestumí HúsiFélágs- starfs aldraðra, Hraunbæ 105, Rí Ægir H. Ferdinandsson, Undralandi 6, Reykjavík. Ingiber Marinó Ólafsson, Hátúni31,Keflavík. Hörður I. Magnússon, Hverfisgötu 102 A.Reykjavík. ;: Sigrún Stefánsdóttir, Tjarnarlundi 6D, Akureyri. Aðalheiður Sigurðardóttir, Miðstræti8 A, ReyKjavík. Guðrún J. Hansen, Móasíðu 2 B, Akureyri. Margrét Benediktsdóttir, Laugartúnil6, Svalbarðsstrandar- hreppi. Baldur Magnússon, Bjarkargrund 10, Akranesi. Rögnvaldur Ólafsson, Hhðargötu 22, Fáskrúðsfirði, Guðjón Gunnarsson, Helhsbraut 18, Reykhólahreppi. 40 ára BjörgvinBjami Skarðhéðinsson, Framnesvegi 16, Keflavík. Ásthildur V. Jónsdóttir, Súlunesi 13, Garðabæ. Ólafur Atli Jónsson, Brekkubæ2, Reykjavík. Guðrún Einarsdóttir, Sigtúni 43, Reykjavík. Sigríður H. Hjörleifsdóttir, Bólstaðarhlíð 56, Reykjavík. MargrétL Hafsteinsdóttir, Krummahólum 2, Reykjavík, Jón Reynir Sigurjónsson, Hraunbergi, Mývatnssveit. Helga Halldórsdóttir, Skíðabraut5,Dalvík. Jónatan Úlfarsson, Kaldárbakka, Kolbeinsstaða-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.