Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1994, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Askríft - Dreifing: Sími 632700 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1994. LOKI Fara Frakkaraldrei úrfrökkun- um? Lögreglumenn færa bruggarann inn í bíl eftir að landi fannst í bifreið hans. Landabruggari tekinn í umferð- areftirliti Landi fannst í bifreiö hjá marg- HÍæmdum bruggara viö Stekkjar- bakka á móts við Staldriö í Breið- holti í gær. Áfengið fannst eftir leit í bíl mannsins sem hafði verið stöðv- aður í umferðareftirliti lögreglunn- ar. Lögreglumenn héldu á heimili mannsins og síðan í bílskúr sem hann hefur til umráða. Þar fundust tæki með um eitt hundrað lítrum af landa í suðu. Einnig fundust um tíu lítrar af eimuðum landa hjá mannin- um. Málið er talið upplýst. Fréttastofa Stöövar 2; Styðja Elínu „Við viljum taka skýrt fram að Elín Hirst fréttastjóri nýtur fyllsta trausts okkar og við ítrekum mikilvægi þess að standa þurfi vörð um sjálfstæði fréttastofunnar. Það er grundvallar- atriði sem ekki má vikja frá, að skýr skil séu milli stjómar fyrirtækisins og fréttastofunnar," segir í yfirlýs- ingu sem starfsfólk á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar hefur sent frá sér vegna ýmissa yfirlýsinga varðandi skipun Eggerts Skúlasonar fréttamanns í stjóm íslenska út- varpsfélagsins. Loðnuveiðin: Þykkartorfur við Kolbeinsey „Það var reytingur í nótt og þegar við vomm lagðir af stað í land í nótt keyrðum við yfir stórar, þykkar torf- ur á Kolbeinseyjarsvæðinu,“ sagði Rúnar Þór Gunnarsson, stýrimaður á loðnuskipinu Höfrangi. Höfmngur var þá á leið í land með um 900 tonn og Rúnar Þór sagði að skipin hefðu verið að fylla sig í nótt. „Við fórum til Vestmannaeyja og "■Þangað er tæplega 40 tíma sigling. Við verðum að láta okkur hafa það,“ Greinargerð Hagstofu um launabreytingar Launavísitalan virðist þokkalegur mælikvarði á þróun launa í heild sinni, segir í greinargerð Hagstofu íslands sem send hefur verið Alþýðu- sambandi íslands. Um er að ræða svar Hagstofunnar við fyrirspurn frá ASÍ. Lagt er til aö gögn að baki launa- vísitölunni verði bætt og að vogir hennar verði endurmetnar. Fram kemur í greinargerðinni að samkvæmt gögnum launavísi- tölunnar hafi laun opinberra starfs- manna og bankamanna hækkað um 3 prósent umfram laun á almennum vinnumarkaði frá því í ársbyrjun 1990 til jafnlengdar 1994. Rannsóknvegna fótbrotsGýmis Veðriö á morgun: 20stig Hæg, breytileg átt. Léttskýjað með köflum inn til landsins en þokubakkar við strendumar. Hiti á biiinu 8 til 20 stig yfir daginn. Veðrið í dag er á bls. 28 Þeir voru frekar hressir skipverjarnir á Sigurði VE þegar þeir komu með um 1400 tonn af loðnu til Krossanesverk- smiðjunnar á Akureyri í gærkvöldi. Andrés Sigurðsson, Hólmgeir Jóhannsson og Þorvaldur Ásgeirsson stilltu sér upp fyrir framan sneisafulla lest skipsins og voru kátir. Þetta var annar farmur skipsins frá því vertiðin hófst sl. föstudag, en Sigurður landaði 1200 tonnum á Krossanesi um helgina. DV-simamynd gk Félag tamningamanna hefur farið fram á rannsókn vegna fótbrots gæð- ingsins Gýmis á landsmóti hesta- manna. „Viö höfum farið fram á rannsókn vegna orðróms um að hest- urinn hafi verið meiddur. Hinrik Bragason, eigandi Gýmis, er okkar félagsmaður og rannsóknin er til aö sanna að þama hafi orðið eðlilegt slys,“ segir Trausti Þór Guðmunds- son, formaður Félags tamninga- manna. L6TT6 alltaf á Miövikudögiun Ertu búinn að panta? ^24 P dagar tii þjóðhátíðar FLUGLEIDIR Innanlandssími 690200 lipll Frakkar sAttir í fnr* ■ I CHnmlmCll vdlll I I Cll hann eftir hótelsvik IVMl ■ 11 w I mum 11W VCrI w VIlm Héraðsdómari í Reykjavík úr- skurðaði tvo Fi'akka, 27 og 28 ára, í farbann í gær eftir að þeir viöur- kenndu að hafa farið undir fölsku flaggi um landið og svikist um að greiða fyrir gistingu í Reykjavík, á Höfn og á Akureyri á síðastliðnum níu dögum. Mennirnir dveþast nú á gistiheimiii í höfuðborginni og bíöa eftir að ríkissaksóknaraemb- ættiö ákvarði um framhald á máli þeirra. Á sunnudag fyrír rúmri viku hringdu mennirnir til Ólafs Skúla- sonar í gistihúsið á Laugavegi 101. Þeir vom þá í París og hugðust koma til íslands daginn eftir. Mennimir pöntuðu gistingu í þrjár nætur. „Þessir menn voru mjög penir þegar þeir komu, klæddir í Burberrysfrakka, Þeir iitu út fyrir að hægt væri að treysta þeim,“ sagði Ólafur við DV í morgun, „Eftir tvær nætur snerist þeim hugur um að verða lengur en tvær nætur og sögðust ætla að gera upp. Annar mannanna sagðist ekki vera með íslenska peninga og spuröi hvort hann mætti ekki fara út í banka ogskipta.Éggekk niðurmeð honum og benti honum á hvar bankinn væri. Síöan sá ég bil mannanna renna i burtu en ég náði : númerinu," sagði Ólafur. Eftir þetta héldu mennirnir til Hafnar í Hornafirði þar sem sami leikurinn var endurtekiim. Tvær nætur vpru pantaðai- en mennimir létu sig hverfa eftir eina nótt. Sama gerðist á Akureyri. Eftir að Ólafur kærði á föstudag var farið að svip- ast um eftir Frökkunum. Á sunnu- dag kom athugull rannsóknarlög- reglumaður auga á bflinn í Reykja- vik. Annar Frakkinn var í bílnum en félagi hans reyndist sofa á Hótel- herbergi á Hótel íslandi. Mennimir vom handteknir og viðurkenndu þeir svikin sem höföu staðið yfir í eina viku. Kins og áður segir bíða mennirnir, sem eru frá París, eftir ákvöröun ríkissaksókn- ara um framhaid máls. Frakkarnir ferðuðust á bílaleigubíl um landið. Samkvæmt upplýsingum RLR í morgun var ekki um svik að ræða hvað þau víðskipti varðaði hjá mönnunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.