Alþýðublaðið - 31.05.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 31.05.1967, Blaðsíða 3
llllllllllllll■lll■l■l■ll miiiiiiiiiiiiiimniiiiiiimiiiiiiiM ll•lll■l•llllllllll■lllllllll iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii EMIL EGGERT JON ARMANN RAGNAR STEFAN SUÐURNESJAMENN Alþýðuflokkurinn heldur almennan kjósendafund fyrirSuSurnesjamenn fimmtudaginn 1. júní í félags- hcimilinu Stapa í Njarðvíkum. Fundurinn hefst kl. 20.30. Ræður flytja ráðherrarnir Emil Jónsson og Eggert G. Þorsteinsson, Jón Ármann Héðinsson, viðskiptafræð- ingur, Ragnar Guðleifsson kennari og Stefán Júlíusson rithöfundur. Síðan verða frjálsar umræður. Allir velkomnir, meðan húsrúm leyfir. lll•l•lllll••l•llllllllll•ll■lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll■l■lllllll iiiiin111111111111111111111111111111111111iii Hampiðjan ætlar í mál við skipstjóra Mótmæla enn hægriakstri Hampiðjan hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna áskorunar 19 togaraskipstjóra, sem birtist í blöðunum laust fyrir síðustu lielgi, þar sem þeir fóru fram á að engar takmarkanir yrðu lagðar á innflutning veiðarfæra fra Portúgal. í yfirlýsingu Hampiðjunnar segir að ummæli togaraskipstjóranna um veiðarfæri Hampiðjunnar séu algerlega óréttmæt, og hafi stjórn fyrirtækisins ákveðið að leita réttar síns fyrir dómstólum út af þessum ummælum. Yfirlýs. ingunni fylgja vottorð þriggja manna um Hampiðjunetin, tveggja sem hafa notað þau, en hinn þriðja, sem er einn skipstjóranna 19, lýsir því yfir að hann hafi ekki notað þau net. Fara yfirlýsing Hampiðjunnar og vottorðin þrjú hér á eftir: Dagana 18. og 19. maí sl. birtist í dagblöðunum áskorun, sem 19 togaraskipstjórar höfðu sent sjáv- arútvegsmálaráðherra varðandi innflutning á veiðarfærum til tog- aranna þar sem segir m.a.: „Reynslan hefur sýnt, að Hamp- iðjunetin hafa ekki líkt því sama styrkleika í notkun og portúgölsk net, sem togararnir hafa almennt notað undanfarið". Framangreind staðhæfing er al- gerlega óréttmæt eins og saman- burðarrannsóknir Rannsóknar stofnunar iðnaðarins á gæðum innlendra og erlendra neta hafa sannað, en er auk þess til þess fallin að spilla viðskiptum og á- liti Hampiðjunnar og hnekkja starfsemi hennar. Við athugun á því, hverjir hefðu haft forgöngu um að safna und- irskriftum togaraskipstjóranna undir umrætt plagg, hafa böndin borizt að skipstjórum á togurum, sein engin net hafa notað frá Hampiðjunni. Þess má geta, að á 4 togaranna höfðu engin Hamp- Bridgespilarar Fimmtudaginn 1. júní kl. 8, hefst Tvímenningskeppni í Iæknahúsinu við Egilsgötu. Öllum heimil þátttaka. Ákveðiff er að spila þar á fimmtudögum í sumar. Bridgesamband íslands. iðjunet verið notuð allt árið 1966 og fram til 1. maí á þessu ári og á 5 togurum höfðu á sama tíma einungis einstök stykki í net frá Hampiðjunni verið notuð. Hinir togararnir hafa, að því er bezt er vitað, tekið mestöll net og efni frá Hampiðjunni sl. 12 mánuði, en engin kvörtun hefir borizt frá skipstjórum þeirra né óskir um aðra gerð eða gildara garn í netin. Liggur þegar fyrir frá útgerð fjögurra þessara togara yfirlýsing um, að ending og verð Hampiðju- netanna hafi ekki gefið tilefni til, að viðskiptum við Hampiðjuna yrði hætt. Af framansögðu virðist ljóst, að undirskriftir skorti alger- lega skilyrði til samanburðar á gæðum portúgalskra neta og neta frá Hampiðjunni, enda hefir kom- ið fram, að samþykkt þessi var flausturslega afgreidd og hafa sumir skipstjóranna sem til hefir náðst, láti'ð það í ljós, að þeir hafi undirritað hana í fljótræði og þyki það miður. Þar sem vikið er að veiðarfæra kostnaði í umræddu plaggi má geta þess, að samkvæmt vottorði Bæjarútgerðar Reykjavíkur var kostnaður bv. Ingólfs Arnarsonar, sem eingöngu hefir notað veiðar- færi frá Hampiðjunni, í netum, bætingarvinnu og tógum á tíma- bilinu frá 1. janúar til 10. maí Framhald á 14. síðu. Félag íslenzkra vegfarenda, ný- stnfnuff samtök til aff vinna aff bættri umferffarmenningTi, sem hafa sett afnám hægriaksturslag- anna efst á stefnuskrá sína og at- vinmsbifreiffastjórar standa eink- um aff, hafa sent Alþýffublaðinu fréttatilkynningu, þar sem segir, aff mótmæli viff hægriaksturslögin hafi borizt frá ýmsum stöffum á landinu. Frá Strandasýslu hafa borizt mótmæli 220 kjósenda, sem óska eftir því að þjóðaratkvæðagreiðsla verði látin fara fram áður en lögin verði framkvæmd. Sams konar mótmæli hafa 97 kjósendur á ísa- firði sent. Úr Árnessýslu liafa bor izt mótmæli 670 kjósenda og á aðalfundi Mjólkurbús Flóamanna voru samþykkt mótmæli gegn lög- unum af 600 fundarmönnum gegn 3. Á fundi á vegum Klúbbsins Ör- uggur akstur á Selfossi mótmæltu 320-330 manns lögunum með því að rísa úr sætum, en tillaga fékkst ekki borin upp þar. Þá voru nýlega send mótmæli frá Seyðisfirði gegn lögunum, og þúsundir Reykvíkinga hafa skrif- að undir mótmæli gegn þeim, seg- ir í fréttatilkynningunni. Áður en lögin voru samþykkt á sínum tíma höfðu Alþingi einnig borizt mót- mæli frá Akranesi, Akureyri, Borg arfirði, Hafnarfirði, Hreyfli í R- vík, Seyðisfirði, Skagaströnd og Þrótti í Rvík. Félag íslenzkra vegfarenda vill einnig geta þess, að það hefur skrifað frambjóðendum allra flokka bréf og farið fram á, að þeir beiti sér fyrir því að fram- kvæmd laganna um hægri akstur verði frestað þar til þ.ióðaratkv.- greiðsla bafi farið fram um lögin. Tilboð í há- spennulínu opnuð í gær í dag voru opnuð tilboð í efni og uppsetningu háspennulíunnar frá Búrfelli til Rej'kjavíkur og Straumsvíkur, en samkvæmt úti boðslýsingúnni á því verki að Ijúka vorið 1969. Tilboð bárust frá 6 firmum í 5 löndum, og var tilboðsupphæð hvers firma þessi, þegar miðað er við samanburðar- grundvöll útboðslýsingarinnar: Canadian Hoosier Engineering Company Ltd., Kanada kr. 147.603.853,— Starkstromanlagen-Gemeins- chaft, V.-Þýzkalandi kr. 122.865,— 733,— Garczynski & Traploir ásamt' þrem örum frönskum firmum kr. 114281.115,— Compagnie Generale d’Entre- prises Eletriques, Frakklandi kr. 163.397.950,— Transelectric AB, Svíþjóð kr. 151.531.022,— Societa Anonima Elettrificazi- Framhald á 14. síðu. Tveir nýir gæzluvellir Tveir smábarnagæzluvellir taka til starfa 1. júní, eru þeir á skóla lóðcm Vesturbæjarskólans viff Öldugötu og Höfffaskólans viff Sig- tún (Félagsheimili Ármanns). — Leikvellir þessir eru ætlaðii; börn um á aldrinum 2 — 5 ára. Þeir verða starfræktir alla virka daga frá kl. 9 — 12 árdegis og 2 — 5 síff- degis nema laugardaga frá kl. 9 — 12 árdegis. Báðir þessir smábarnagæzlu- vellir verffa opnir mánuðina júní, júlí cg ágúst effa þar til barnaskól- arnir hefjast aff nýju. Hussein og Nasser gera með sér varnarsamning Beirut 30/5 (NTB-Reuter) — Hussein Jórdaníukonungur og Nasser Egyptalandsjorseti hafa undirritað varnarsáttmála milli landanna. Kaíróútvarpið tiikynnti þetta í dag. Þessi tvö lönd eru sammála um, að árás á annað þeirra jafngildi árás á hitt. Hvort um sig er þess albúið að veita hinu hverja þá að- stoð, sem nauðsynleg væri, ef til hernaðar kæmi. Þessi sáttmáli gildir í 5 ár, en þá er unnt að framlengja liann, ef þurfa þykir. Nasser sagði í útvarpsræðu, sem hann hélt við þetta tækifæri: „Við stöndum andspænis miklum vanda, — vera má, að við verðurn ekki aðeins að berjast við ísrael heldur einnig þá, sem styðja við bakið á ísraelsmönnum, — Banda- ríkin og Stóra-Bretland. Nasser sagði, að koma Husseins til Egyptalands og undirritun sátt- málans sýndi, að Arabaríkin gætu gleymt erjum sín á milli, þegar um að ræða sameiginleg örlög. hætta steðjaði að, — en þá væri Egyptar, sýrlenzkar og jórdanskar herdeildir eru á verði við landa- mæri ísrales viðbúnar, ef til á- taka kemur. — Nú er við hæfi að vera með yfirlýsingar, hve góðar, sem þær annars eru, sagði Nass- er. Það, sem við gerum skiptir öllu máli. Það, sem um er að ræða er ekki Akabaflói heldur öll Palestína, sagði hann. Kaffifundur | Félag ungra jafnaffarmanna efnir til kaffifundar í Súlnasfil | Hót.il Sögu sunnudaginn 4. júní kl. 3 e. h. Á fundinum verffa haldin stutt ávörp. Ómar Ragnarsson § flytur nýjan gamanþátt. Éinar Jónsson leikur einleik á píanó. = Ungir kjósendur eru hvattir til að koma og kynnast skoí- I unum unga fólksins í Alþýðuflokknum. i | iiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!mnniiiiniiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiii»mniiiimiiniun«i»in«i»niiii!iiM'»i! 31. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.