Alþýðublaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 01.06.1967, Blaðsíða 11
t=RiísÝ8órTÖrn Eidsson^^^^ j Jafntefli íslendinga og Spán- veria 1:1 í slökum landsleik ISLAND og Spánn léku fyrri leik sinn í undankeppni Ólympíu- leikanna á Laugardalsvellinum í gærkvöldi í mjög góðu keppnis veðri. Mikill fjöldi áhorfenda var viðstaddur þessa viðureign. Fyrir fram var lítið vitað um getu Spán verjanna, en þeir taldir allsterk ir. Hins vegar var vitað að ís_ lenzka liðið var illa undir leik inn búið hvað viðvíkur æfingu, því fáir leikir hafa farið fram hér ennþá. Leikurinn í gærkvöldi var vægast sagt lélegur, honum lauk með jafntefli 1-1 og voru bæði mörkin skoruð þegar 2 mín útur voru til leiksloka, en hinar 88 mínútu. leiksins voru til- þrifalausar og voru íslendingar lengst af í vörn, en það má vöm in íslenzka eiga að hún varðist vel og svo verður að geta þess að skot Spánverjanna voru hörmu lega léleg. Trúað gæti ég að ís- /jb róttablaðið er nýkomið út lenzka liðið verði að taka mikl- um framfömm til að hafa mögu leika á að sigra Spán þar suður frá, en það er svo önnur saga. ★ Fyrri hálfleikur 0:0. Spánverjarnir byrja með knött inn, en eftir nokkurt þóf á miðju vallarins, ná íslendingar sókn og hætta skapast við mark Spánverj- anna, en hættunni er bægt frá. Skömmu síðar á Jón Jóhannsson hörku gott skot að marki Spán- verjanna, en markverðinum tekst að bjarga með naumindum. Jón varð svo að yfirgefa völlinn seint í hálfleiknum og í hans stað kom Kári Ámason frá Akureyri. Spán- verjar sóttu nær látlaust í fyrri hálfleik, en eins og fyrr segir, voru skot þeirra léleg og svo var bezti leikmaður íslands í mark- inu, en það var Guðmundur Pét- ursson, sem varði oft mjög fall- ega. Undir lok hálfleiksins er ís- lenzk sókn, en henni er hmndið í horn. Úr hornspyrnunni er pressa lá Spánarmarkið, en enda- lok þeirrar presu varð himinhátt skot frá Hermanni. <4wWíiwii: íslenzka landsliðið skorar. Aprílhefti íþróttablaðsins er komið út fjölbreytt að efni ogr prýtt fjölda mynda. Af efni blaös ins má nefna minning'argrein um Benedikþ Jafnoiba(sin, frágö^n af landsleik Dana og íslendinga í körfuknattleik, viðtal við Pál Ei- ríksson uin för FH til Búdapest, þátturinn í ljósopinu, sem að þessu sinni er helgaður ÍR 60 ára. Grein er um Landsmót skíða- manna, Meistaramót íslands inn- anhúss, Landsflokkagiímuna, í- þréttaannáll o.fl. Ritstjóri íþrótta blaðsins er Þórður B. Sigurðsson. ★ Síðari hálfleikur 1:1 Fyrstu 30 mínútur hálfleiksins fer leikúrinn að mestu fram á vall arhelmingi íslendinga sem verjast vel, en tekst' ekki að byggja upp sókn. Það er ekki fyrr en á 35 mín. að gott tækifæri skapast. Kári er með knöttinn og gefur aftur til Elmars, sem gefur stungu bolta til Eileifs, sem er í færi, en bjargað er í horn, sem svo ekk- ert varð úr. Þegar tvær mínútur eru til leiksloka eru Spánverjar í sókn og miðherjinn þeirra COST- AS fær knöttinn í vítateig og skor ar með lausu skoti, sem hafnaði út við stöng óverjandi fyrir Guð- mund. Fögnuður Spánverja var geysilegur, en hinn spænski Adam var ekki lengi í Paradís. íslend- ingar hefja leikinn og dæmd auka spyrna á' miðjum vallarhelmingi Spánar. Árni Njálsson framkvæm- ir spyrnuna, en skot hans fer í varnarvegg Spánar og hrekkur þaðan til Magnúsar Torfasonar, sem gefur sér tíma og skorar með þrumuskoti og jafnar við geysi- legan fögnuð áhorfenda. Og þann- ig lauk þessum landsleik með jafn tefli og verða það að teljast mjög hagkvæm úrslit fyrir okkur. ★ Liðin Lið Spánar var létt leikandi og lék oft skemmtilega úti á vellin- um en brást bogalistin þegar kom ið var að endalinútnum. Liðið var skipað jöfnum leikmönnum, sem voru leiknir og fljótir. Beztu menn liðsins voru miðvörðurinn ALFONSO og innherjinn SI« ERRA. íslenzka liðið átti ekki góðan dag sem heild. En vörnin lék yfir- Jeitt mjög vel og reyndi að forð- ast alla tvísýnu. Beztur varnar- manna var eins og áður er get- ið Guðmundur markvörður, en ÍBK leikmennirnir Sigurður og Högni voru einnig mjög góðir. Árni Njálsson lék af sínu alkunna keppnisskapi. Nýliðinn Jóhannes Atlason átti yfirleitt góðan leik. Tengiliðirnir Eileifur og Magnús áttu hvergi nærri góðan leik og í framlínunni var Elmar sá eini sem eitthvað vit var í. Kári sýndi þó allgóð tilþrif. Danski dómarinn Gunnar MICHAELSEN dæmdi' þokkalega og línuverðir voru Einar Hjartar- son og Hreiðar Ársælsson. I.V. Sveinamót Reykja- víkur í kvöld I kvöld fer fram Svoinamót Reykjavíkur á Melavellinum, en þátttökurétt eiga piltar fæddir 1951 eða síðar. Keppt verður í 11. greinum, en hægt er að skrá sig á Melavellinum í síðasta lagi fyrir kl. 7. ; 1. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ^

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.