Alþýðublaðið - 06.06.1967, Blaðsíða 1
Þriðjudagur B. júní 1987 48. árg, 131, tbl, -- VERÐ 7 KR,
Styrjjöld hófst í gærmorgun mllli Israels og Arabaríkjanna.
Bardagar hófust á landamærum Israels og Egyptalands, að
því er bezt er vítaó, en önnur Arabaríki gengu þegar til líðs
viö Egypta. í Jerúsalem hafa harðir bardagar átt sér stað
miili israelsmanna og Jórdaníumanna. Á Gaza-svæðinu hafa
israelsmenn umkringt hersveitir Egypta og náð borginni
Khan Younis á sitt vald, og sækja fram tH Ghaza.
Tel Aviv, — Kairó. (ntb-reuter).
5. júní.
í birtingu í morgun hófst styrj-
öld milli ísraels og Arabaríkj-
anna fyrir botni Miðjarðarhafs.
Hvor aðilinn kennir öðrum um
upptökin. Levi Eshkol, forsætis-
ráðherra, skoraði á allar friðelsk-
andi þjóðir að sitja ekki aðgerða-
lausar héldur senda ísraelsmönn-
um hjá’lp.
A því er Kairóútvarpið sagði í
morgun hófst' styrjöldin með loft
árásum ísraelsmanna á Kairó. —
Tilkynnt var i útvarpinu, að á
landið hefði veriö ráðist og eg-
ypzkir hermenn hefðu snúizt til
varnar. Egyptar báðu Jórdana og
Sýrlendinga að hrinda árás ísra-
elsmanna og meðan loftorrusta
var háð í Kairó var tilkynnt, að
sýrlenzkar, jórdanskar, líbanískar
og ísraelskar fluglhersveitir ættu í
bardögum við ísraelsmenn ann-
ars staðar í landssvæði Araba. —
Síðar í dag tilkynnti Kairóútvarp
ið, að ísraelsmenn hefðu gert á-
rásir á hersveitir Egypta á Sínaí
skaga, en þeim hefði ekki tekizt
að brjóta vörn Egypta á bak aft-
ur. Egyptar halda því fram, að
ísraelsmenn hafi orðið fyrir
miklu tjóni í bardögum. M. a.
hafi þeir misst meiri hluta þeirra
30 skriðdreka, sem beitt var í
bardögum á' Gazasvæðinu. Kairó
útvarpið segir, að ísraelsmenn
hafi neyðzt til að hörfa eftir
harða bardaga. Egyptar segja, að
ísraelskar flugvélar hafi ráðizt á
flugvelli í Kairó og á Súezsvæð-
inu. í útvarpsfrétt frá Kairó seg-
ir, að 86 ísraelskar flugvélar hafi
verið skotnar niður og 14 ísra-
elskir flugmenn verið teknir til
fanga við skurðinn. Egyptar og
Sýrlendingar halda þvi fram, að
þeir hafi samanlagt eyðilagt yfir
150 ísraelskar flugvélar. Egypt-
ar segjast' hafa misst tvær flug-
vélar, en flugmönnunum. hafi tek-
izt að koma sér undan með því
að kasta sér niður í fallhlífum.
Egypzkar heimildir halda því
fram, að amerískt olíuskip hafi
reynt að loka Súezskurðinum, og
að ísraelskar flugvélar hafi ætl-
að að ráðast gegn frönsku skipi,
sem var á leið í gegnum skurð-
inn. Opinberir aðilar í Washing-
ton og París hafa tilkynnt, að
þeir hafi ekki fengið neinar stað-
festingar á þessum fullyrðingum
Egypta og bendir ekkert til þess
að þær eigi við rök að styðjast.
Fólk í Kairó fékk fyrsta hug-
boð um það, sem í aðsigi var,
þegar það var á leið í vinnu í
morgun og heyrði í loftvarna-
byssunum. Það hélt í fyrstu að
þetta væri markleysa, en þegar
það heyrði bergmáiið af vélbyss-
unum, skildi það, að liér var al-
vara á ferðum.
í dag sögðu áreiðanlegar heim-
ildir, að flugvöllurinn væri lok-
aður, en ekki fékkst nein opin-
ber staðfesting á því.
Það var spennt ástand i Ka-
iró í dag, segja blaðamenn frá
Vesturlöndum, sem eru þar. —
Fólk gekk um götumar með út-
varp í höndum og uiigir menh
hrópuðu slagorð svo sem: „Við
skulum drepa ísrael” — og „Við
skulum vinna aftur landið okk-
ar.”
Arabalöndin létu ekki standa
á aðstoð sinni við Egyptaland.
Sýrlendingar tilkynntu, að sýr-
lenzkar flugvélar hefðu ráðizt á
ísraelsk þorp, og seinna sögðu
Sýrlendingar, að þeir hef'ðu
varpað sprengjum á olíustöð í
Framhald á 15. síðu.
Meira um ófriðinn bls. 2 o
ALÞÝÐUFLOKKURINN VILL
Um næstu aldamót verða íslendingar
orðnir 400.000. Augljóst er, að koma þarf
traustum fótum undir nýjar atvinnu-
greinar til þess að tryggjiafjölgandilands
búum örugga atvinnu. Alþýðuflokkurinn
telur, 'að stórefla eigi íslenzkan iðnað í
þessu skyni.
Nokkur tollyernd er íslenzkum iðnaði nauösyn-
leg og eðlileg. En innflutningshöft og háir toll-
múrar eru iðnaðinum skaðleg til lengdar, eins og
öllum öðrunt atvinnugreinum. Hins vegar þarf að
aðstoða iðnaðinn við að laga sig að breyttnm aS-
stæðum, það þarf að styðja nýja iðnðarframleiðslu
til útflutnings og hjálpa iðnfyrirtækjum til mark-
aðskönnunar erlendis.
í þessu skyni telur Alþýðuflokkurinn a3 koma
eigi á fót aölögunarsjóði fyrir iðnaSinn.
Við fslendingar eigum mlklar auðlindir, þar sem
er orkan í fossum okkar og hverum. Mikil fram-
tíð er í ýmis konar léttri málmvinnslu, þar sem
nota þarf mikla raforku. Álbræðsla er þegar ákveð-
in. T.d. sjóefnaverksmiðja er athugunarverð.
Uppbygging nýrra iðngreina er eitt mikiívægasta
verkefnið í íslenzku atvinnulífi. Alþýðublaðið viH
nefna nokkur verkefni á þessu sviði:
1) Salt- og kalívinnsla með notkun gufu á F.eykja-
nestá.
2) Ullarvinnsla, sem íslenzkir og norskir verkfræS-
ingar hafa verið að athuga.
3) Sútunarverksmiðja eða verksmiðjur, þar sem
allar íslenzkar gærur yrðu sútaðar til útflutn-
ings.
4) Þaravinnsla á Reykhólum.
5) Stálsklnasmíði og uppbygging dráttarbraaita.
Þetta er raunhæf stefna í málefnum iðnaðarins.
Þannig er stefna Alþýðuflokksins.