Alþýðublaðið - 01.09.1967, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 01.09.1967, Blaðsíða 3
I Eyrbyggju sögu segir: „í þann tíma kom lit Geirríð- ur, systir Geirröðar á Eyri og gaf hann henni bústað í Borgar- dal fyrir innan Álftafjörð. Hún lét setja skála sinn á þjóðbraut þvera og skyldu allir menn ríða þar í gegnum. Þar stóðu jafnan borð og matur á’, gefinn hverj- um er hafa vildi af slíku þótti hún hið mesta göfugkvendi“. Á veitingahúsinu Röðli ræðut ríkjum Helga Marteinsdóttir veitingakona. Helga gengur alltaf um á íslenzkum búningi og minnir að mörgu á Geirríði í Eybyggju sögu. Hún hefur vér- ið við veitingastörf mestan Iiluta ævi sinnar og ailtaf viljað gera allt fyrir gesti sína. — Hvenær fékkst þú veitinga- leyfi, Helga? — Það mim hafa verið árið 1934 og ég hef alltaí verið með veitingar síðan. Ég seldi fæði áður en ég kom suður til Reykja víkur. Á Kleppjárnsreykjum var ég ráðskona í eitt og hálft ár en þá fór ég aftur til Reykjavíkur og rak þar matsölu. Það var gaman að vinna við mötuneyti safnaðanna, en þar var ég frá 1932 til 1933. Gísli Sigurbjörns- son í Ási var forstöðumaður fyi’- ' ir mötuneytinu. Það var í fran- ska spítalanum og þar borðuðu oft á fjórða hundrað manns á dag Þá skrældum við 2 og Vz poka af kartöflum, Já, það var skemmtilegt. Nú svo fór ég að Eiði og rak þar skemmtistað fyr- ir sjálfstæðismenn. Þá sótti ég um veitingaleyfi og fékk það ár- ið 1934. Um haustið 1934 setti ég upp matsölu, þar sem verzl- unin Hamborg var til húsa á Laugaveginum. Ég seldi þar mat og kaffi. 1944 til 1946 var ég með Hótel Norðurland. Þar var mest að gera á sumrin, en við höfðum allar árshátíðarnar á veturna, enda var veitingasalurinn stór og vistlcgur. —Er ekki gjörólíkt að reka hótel og skemmtistað? —Jú, það er ólíkt. Allt annað að hafa gestina allan sólarhring inn eða bara part úr degi. —Hvað gerðirðu, þegar þú komst til Reykjavíkur. Helga? —Ég sá um rekstur á "Skeif- unni„ og svo var ég seinna með matsölu, sem hét „Bjarg" á Laugaveginum, þar sem Hús gagnaverzlun Guðmundar Guð- frú Helga Martcinsdóttir á heimili sínu. mundssonar er núna. Þar var gott að vera. Þeir komu allir til mín blessaðir piltarnir úr Sjómannaskólanum. Þeir eru góðir drengir. Svo tók ég við Vetrargarðin- um. Það var vínlaust hús eins og Þórskaffi og ég rak það í nokkur ár. Ég seldi innréttingarnar þar þegar ég keypti Röðul. —Hvaða ár var það, Helga? —Það var árið 1959. Þá keypti ég innréttingarna hér. Ég hafði Röðul fyrst á leigu, en fyrir fjór um árum vildi Ingimar Jónsson selja hann og ég keypti húsið ásamt Ragnari tengdasyni mín- um. —Hafði hann verið við veit- ingahúsarekstur áður? —Nei, ég fékk hann vist út í þetta, góða mín. Hann er dugn- aðarmaður, hann Ragnar. —Þið hafið mikið verið með skemmtikrafta Helga. Ég sé hér á veggjunum 58 myndir af mis- munandi skemmtikröftum. -Hafa þeir allir verið hér? —Já. ég sé eftir því að ég fór ekki að safna þessum myndum fyrr. Þeir liafa verið fleiri en þetta. Það er umboðsmaður okk ar í Kaupmannahöfn sem ræður þá í samróði við hann Ragnar. Við erum að fá nýjan skemmti. kraft núna 7. september. Söng- konu, sem ku vera afbragðs góð. Fólk vill hafa skemmtikrafta. Við höfum ekki verið með neina í mánuð og alltaf er verið að spyrja: „Hvenær koma skemmti- kraftar aftur?“ —Er ekki gífurlegur viðhalds- kostnaður á svona stað? —Jú, það má nú segja. Við verðum að halda öllu vel við hér og hreinsa mikið. Fólk vill hafa staðina snyrtilega og hreina. Fyrst er é£ kom hingað, náði salurinn alveg inn í horn. Mér fannst hann of langur og ég lét þilja af þar bar. — Hann Skúli Norðdahl sá um útlitið. Sjáðu þessa skemmtilegu lampa. Þetta eru koníaksflöskur sem botninn' er tekirtn úr. Mér þykir vænt um hrafnana á veggn- um. Á hinum barnum okkar er sjónvarp. Það er vinsælt enda hafa fleiri staðir fengið sér sjón varp síðan. Hérna er danssalur- inn okkar og þarna er hljóm- sveitin. Núna er hljómsveit Hrafns Pálssonar. Hún er mjög vinsæl. 1. október kemur svo aftur hljómsveit Magnúsar Ingi- marssonar. Með henni eru tveh’ söngvarar, Þuríður Sigurðardótt ir og Vilhjálmur Vilhjálmsson. Hljómsveit Magnúsar er afskap- lega vinsæl. Ég vildi fá að hafa opið á hverju kvöldi til klukkan 1. Ég hef alltaf verið fylgjandi frelsinu og á móti bönnum og höftum. Þessar reglugerðir eru bara til að brjóta þau. —Sækir ungt fólk mikið Röðul? —Bæði ungt og gamalt. Við hleypum engum inn, sem ekki er 21 árs. Ég hef alltaf lagt mikla áherzlu á það. Röðull er afskaplega vinsæll staður, stund um of vinsæll liggur mér við að segja. Það er takmarkað hvað er hægt að hleypa mörgum inn. Hingað kemur gott fólk. Unga fólkið er yndislegt, afar elsku- legt og gott. Við höfurn alltáf fengið gott fólk til okkar. —Hvaða matur er vinsælastur lijá ykkur, Helga? —Það er Röðuls special. Röð- Viðtal við Helgu Marteinsdóttir uls special er brauðsn'eið með ferns konar áleggi. Humar, rækj um, skinku og salati, nautasteik með lauk og spældu eggi. Við kaupum brauð, sem er sérstak- lega bakað fyrir okkur. Mjög stór brauð, því þessi sneið er risastór. Þetta er heil máltíð. —Hafið þið mikið árshátíðar hér? Fyrst þegar ég kom var mik- ið beðið um að fá húsið á leigu. Ég tók þá ákvörðun að leigja • það ekki út. Ég ætlaði að hafa alltaf opið fyrir mína gesti og mér virðist það vinsælt. —Hverju þakkar þú, að rekst- urínn géngur SVöha vel? —Því að ég hef alltaf verið heppin með fólk. Ég hef gott starfsfólk, sem leggur sig fram og vill allt fyrir mig gera. Sumir hafa veriö hjá’ mér allt frá byrjun, en flestir í mörg ár. — Þú ert héma alltaf á kvöld. in? —Já, ég kem hingað um þrjú Ieytið og fer ekki fyrr en síðust. Ég gíeti aldrei farið og skilið fólk eftir inni. Ég borga lika út reikninga og starfsfólkinu, svo panta ég inn mat og tóbak. —Ertu þá ekki þreytt á kvöld- in? —-Ég? Nei, ég hef alltaf vcrið heilsuhraust. Guðsgjöfin er nð vera frískur. !

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.