Alþýðublaðið - 11.02.1968, Blaðsíða 2
Nýlega var stjórn Listasafns Alþýðusambands íslands fært að gjöf málverk „Tröllin á Kilí’’
eftir Ágúst F, Petersen, listmálara. Listamaðurinn gaf myndina. Mynd þessa málaði liann í Kjal-
hrauni sumarið 1966 og hefur hún verið til sýn'is á tveim málverkasýningum listamannsins í
Bogasal Þjóðminjasafnsins og í Vestmannaeyjum. Hér birtist ljósmynd af málverkinu, sem er
144 x 119 cm. stór olíumynd.
2 11. febrúar 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Stúdentafélag Háskóla íslands
hélf síðastHðinn laugardag, 3.
febrúar ráðstefnu á Loftleiðahó
telinu í Reykjavík um málefnið
„ísland og þróunarríkin“. Frum
mælendur voru þeir Ólafur
Björnsson, prófessor og Sigurður
Guðmundsson, skrifstofustjóri,
en margir aðrir tóku til máls og
urðu umræður fjörugar og gagn
miklar.
Ólafur Björnsson tók fyrstur
til máls og gerði grein fyrir
störfum nefndar, sem skipuð var
af Alþingi til athugunar á skilyrð
um íslenöinga til aðstoðar við
vanþróuð ríki. Hefur nefndin
■lagt til, að komið verði á fót sér
Tíu sækja um
lektorsstarf
Lokið er umsðknarfresti um
þrjár lektorsstöður í heimspeki-
deild Háskóla íslands. Um lektors-
starf í sagnfræði sækja: Berg-
steinn Jónsson, menntaskólakenn-
ari, Björn Þorsteinsson, mennta-
skólakennari, Jón Guðnason, kenn
ari, Jón R. Hjálmarsson, skóla-
stjóri, Loftur Guttormsson, kenn-
ari, og Odd Didriksen, sendikcnn-
ari.
Um lektorsstarf í málfræði
sækir Helgi Guðmundsson cand.
mag.
Um lektorsstarf í bókmenntum
sækja Davíð ErlJjngsson, cand.
mag., Jón Böðvarsson, mennta-
skólakennari, og Óskar Halldórs
son, kennaraskólakennari.
Auglýst hefur verið annað lekt-
orsstarf í bókmenntum í heim-
spekideild, og er umsóknarfrestur
til 22. febrúar 1963.
Frétt frá menntamálaráðuneyt
inu.
SÍÐASTA SÝNING
Barnaleikritið „Galdrakarlinn í
Oz“ verður sýnt í 32. sinn í Þjóð-
leikhúsinu í dag —sunnudag kl.
15.—og er það síðasta sýningin
á þessu vinsæla barnaleikriti.
í æfingu er nú nýtt barnaleik-
rit „Bangsímon", sem sýnt verður
innan skamms í Þjóðleikhúsinu.
Leikritið Bangsímon er byggt
á samnefndri barnasögu sem les-
tn var í barnatíma útvarpsins
fyrir nokkrum árum og naut mik-
illa vinsælda hjá börnunum.
Fyrirlestur um
Þjóðhildarkirkju
Knud J. Krogh, arkitekt og
safnvörðu,r við Þjóðminjasafnið!
í Kaupmannahöfn flytur fyrirlest
ur um rannsóknir á Þjóðhildar
kirkju í Brattahlíð á Grænlandi
í 1. kennslustofu Háskólans kl.
8.30 á mánudagskvöld.
Öllum er heimjH aðgangur.
stakri stofnun, sem fjallj um
mál þróunarlandanna, en sú til
laga hefur ekki enn n'áð fram að
ganga á Alþingi. Þá skýrði Ólaf
ur frá starfsemi Sameinuðu þjóð
anna í þessum efnum.
Lágmarks-
verð á loðnu
Á Fundi yfirnefndar Verðlags
ráðs sjávarútvegsins í dag var á
kveðið, að lágmarksverð á loðnu
í bræðslu á loðnuvertíð 1968
skuli vera 42 aurar kg hvert auk
5 aurar pr. kg. í flutningsgjald
frá skipshlið í verksmiðjuþró.
Verðið er byggt á þcirri for
sendu að fellt verði niður út
flutningsgjald af loðnuafurðum
á komandi loðnuvertíð.
Verðákvörðun þessj var gerð
með atkvæðum oddamanns og
fulltrúa kaupenda gegn atkvæð |
um fulltrúa seljenda í nefndinni.
í nefndinni áttu sæti Bjarni
Jónsson, sem var oddamaður
nefndarinnar, Guðmundur Kr.
Jónsson og Ólafur Jónsson til
nefndir af fulltrúum kaupenda í
Verðlagsráði og Guðmundur Jör
undsson og Jón Sigurðsson, til
nefndir af fulltrúum seljenda í
Verðlagsráði.
Reykjavík, 8. febrúar 1968.
Verðlagsráð sjávarútvegsins.
Síðari frummælandi, Sigurður
Guðmundsson, ræddi um starf
semi Alþjóðaheilbrigðismálastofn
unarinnar og lýsti því tillagi,
sem samband íslenzkra kristni
boðsfclaga í Eþíópíu og Herferð
gegn bungri hafa lagt fram fyrir
hönd íslendinga til aðstoðar
þróunarríkjunum. Enn fremur
fjallaði Sigurðuy um mikla að
stoð íslendinga frá öðrum ríkj
um og hve skammt væri í raun og
veru, síðan ísland taldist vanþró
að land.
Einróma var samþykkt, að ráð
stefnan sendi frá sér eftirfarandi
ályktun:
' Ráðstefna Stúdentafélags Há-
skóla íslands að Hótel Loftieið-
um hinn 3. febrúar 1968 bendir
á það, að framtíð mannkyns staf-
ar nú hvað mest hætta af þeim
mikla mismun, sem er á efnahag
og afkomu hinna efnaðri ríkja
og hinna fátækari. Ráðstefnan
vekur athygli á því, að fólks-
fjölgun er nú hlutfallslega mun
meiri en aukning matvælafram-
leiðslu. Ráðstefnan bendir og á
mismun menntunaraðstöðu í hin-
um ýmsu löndum ,heims, sern
hlýtur að valda geysilegum að-
stöðumun varðandi menningar-
lega og efnahagslega framþróun.
Að þessu athuguðu getur engin
menningarþjóð skorazt undan því
að veita efnaminni ríkjum. opin-
bera aðstoð. Telur Ráðstefnan, að
skilyrði til þess hér á landi séu
fyrir hendi, og bendir í því sam-
bandi á mjög góðar undirtektir
við Herferð gegn hungri.
Ráðstefnan skorar því á' AI-
þingi og rikisstjórn að setja hið
fyrsta löggjöf um opinbera að-
stoð íslendinga við þróunarlöndin.
Bandaríkjamenn og Norður
Kóreumenn héldu fimmta
fund sinn í dag vegna Pueblo.
Talið er aS Bandaríkjamenn
muni viðurkenna að skjpið
hafi verið innan landhelgj
Norður Kóreu.
Keflavík
Aðalfundur fulltrúaráðs Alþýðuflakksins í Keflauík verður haldinn næst-
komandi mánudagskvöld í Æskulýðsheimilinu kl. 8,30.
DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf. Fjárhagsáætlun Keflavíkurbæjar,
framsögu hefur Sveinn Jónsson, bæjarstjóri. — Félagar fjölmennið.
STJÚKNIN.
Frétta-
skeyti
IRússneskar flugvélar í Hanoi
Bandarískir flugmenn hafa
komið auga á rússneskar flug-
vélar í Hanoi, sem bera 2700
tonna sprengju þunga og hafa
1600 km. flugþol. Ilanoi liggur
150 km. frá lilutlausa beltinu.
Lögregluvernd
Lögreglan í Stokkhólmi hef
ar aukið vernd sína við banda
■íska sendiherrann þar í borg
vegna hótanabréfa, sem hann
hefur fengið út af Víetnam
styrcöldinni.
■ I
Olíuréttindi .1
Abdúl Rahmann, forseti I-
raks hefur heitið Frökkum
aliuréttindum gegn því að
Frakkar selji þeim Mirage or-
rstuþotur og önnur vopn.
I) Thant reynir sættir
U Thant hyggst beita sér fyr
ir friðarviðræðum í Víetnam
sfyrjöldinni. í gær ræddi
liann við ræðismann Hanoi
stjórnar í New Dehli á Ind-
tandi.
SkothríS við Jórdan
Fjórir Arabar mjsstu líifð í
ikotárásum við ísrael við Jór
lan s.l. föstudag.
‘Atómvopn
Blaðafulltrúi Johnsons liefur
þverneitað öllum orðróm urn
að stjórnin hyggist beita atóm
vopnuin í Víetnam.
Kynþáttaóeirðir
Sjö liundruð menn úr þjóð
arliði Suður Karólínu halda
nú vörð um háskólabygging-
una þar til að hindra frekari
kynþátta óeirðir. Þrír negrar
voru myrtir þar s.l. fimmtu-
dag.
Loftárásir í undirbúningi
Bandaríkjamenn hyggjast
hef'iia loftárásir á Húe, þar
sem Vét Cong og N. Víetnam
ar liafa tryggt öryggi sitt Þar.
Flóttamenn í S. Víetnam
Formaður alþjóða Rauða
krossins í Suður Víetnam
Norðmaðurinn Sverre Kilde
segir ástaiÆið þar algjört
ögnþveiti og flóttamenn séu
töluvert fleiri en þær 2 millj
ónir, sem stjórnin staðhæfir.
tsýzkir liðhlaupar
Þrír vestur þýzkir hermenn
hala leitað hælis í Svíþjóð,
þar sem þeir scgjast ekki vilja
ivera undirmcnn fyrrverandi I
knazistaherforingija.
Aðstoð við þróunarlöndin