Alþýðublaðið - 18.05.1968, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 18.05.1968, Blaðsíða 1
Bráöabirðarlög urn heimild til útgáfu reglugerðar um tiikynningarskyldu skipa. Alþýðublaðinu barst í gær eftirfarandi tilkynning frá samgöngumálaráðuneytinu: Forseti íslands hefur í dag samkvæmt óskum Samgöngu málaráðuneytisins gefið út svohljóðandi bráðabirgðalög: Forseti íslands — gjörir kunnugt: Samgöngumálaráðuneytið r hefur tjáð mér að nauðsyn beri til gefa út bráðabirgða- lög um heimild til útgáfu reglugerðar um tilkynningar skyldu íslenzkra skipa. Er sérstaklega brýn nauð- syn á útgáfu slíkrar reglu- gerðar nú þegar, þar sem al- mennar veiðar á fjarlægum miðum fara í hönd. Auk þess ber nauðsyn til af öryggisástæðum að fá sem gleggsta vitneskju um ferð- ir skipa og báta við strend- ur landsins og á úthöfunum. Fyrir því eru hér með sett bráðabirgðalög, samkvæmt 28. gr. stjórnarskrárinnar á þessa leið; 1. gr. Samgöngumálaráðherra er heimilt að gefa út regiugerð um tilkynningarskyldu ís- lenzkra skipa. 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. TT' Gjört að Bessastöðum 17. maí 1968. Ásgeir Ásgeirsson Eggert G. Þorsteinsson. Lög þessi eru sett sam- kvæmt ályktunum Slysa- varnafélags íslands, Far- manna- og fiskimannasam- bands íslands, Landssam- bands íslenzkra útvegs- manna, og er unnið að samn- ingu reglugerðar í samráði við hlutaðeigandi samtök. Samgöngumálaráðuneytið 17. maí 1968. 153 TAKA KENNARAPROF OG 26 STÚÐENTSPRÓF ★ Kennaraskólanum verður slitið mánudagmn 10. júní ogþreyta að þessu sinni 153 nemendur kennara- próf, þar af 11 handavinnukennaarar. Stúdentspróf þreyta 26 nemendur og er þetta í fyrsta skipti sem stúdentar eru brautskráðir frá Kennaraskólanum. Nemendum í Kennaraskóla íslends hefur fjölgað svo mikið að undanförnu að á næsta hausti þarf að bæta við kennurum í níu kennslugrei'num. Tímaspursmál hvenær við förum að veiða. Kolmunna í stað síldar? Mikið magn er nú af kolmunna austur af landinu - Færeyingar fá gott verð fyrir hann í viðtali sem blaðið átti í gær við Jakob Jakobsson, fiski fræðing, kvað hann það skoð- un sína að einungis væri tíma- spursmál hvenær íslendingar færu að veiða kolmunna, sér- staklega ef tekið væri tillit til minnkandi síldveiða, hvort sem það væri af þverrandi síldar- stofni eða síauknum erfiðleik- um á að ná síldinni. Jakob taldi mikið magn af koimunna vera í hafinu austur af landinu. Væri kolmunninn fremur rýr fiskur, en mjög lifrarfeitur. ★ Varff vart fyrst 1960. Flestir nútíma íslenzkir síld veiðisjómenn kannast við kol- munna, en hans mun fyrst hafa orðið vjrt á miðum íslenzkra síldarbáta árið 1960. Var hann iþá afar smár og skemmdi næt- ur bátanna ef kastað var á hann. Yfirleitt er sá kolmunni sem nú verður vart við stærri og taldi Jakob það stafa af því að árgangurinn 1960 hafi verið nýr og ákaflega sterkur, en væri nú fullvaxinn. ★ Veiddur í flotvörpu effa hringnót. Jakob taldi ráðlegt að athug- un færi fram á því, hvaða veiði aðferð yrði hentugust, en bæði gætu komið til greina veiðar í flotvörpu og hringnót. Sagði hann að miklu meira magn væri nú af kolmunna, en síld í sjón um austur af landinu. Yrði kol munninn væntanlega settur í bræðslu. ★ I torfum á gróðu dýpi. Kolmunni heldur sig í torf- um, líkt og síldin, en er ekki eins styggur. Er hann á mis- jöfnu dýpi, oft á 5Ó—60 föðm um, en yfirleitt á ágætu dýpi fyrir báta að kasta á. Kemur hann upp í sjóinn á kvöldin og „30. júní '// í DAG kemur út 1. tölu- blað af 3 0. j ú n í, blaði stuðningsmanna dr. Kristj- áns Eldjárns. — Á forsíðu blaðsins skrifa 17 kunnir menn ÁVARP TIL ÍSLEND- INGA, en Sigurður A. Magn ússon á langt viðtal við dr. Kristján Eldjárn og eigin- konu hans, Halldóru Eld- járn. Jónas Kristjánsson skrifar greinina Stjórnmála- maður eða einingartákn og Hersteinn Pálsson greinina Sjálfstæðismenn — verið sjálfstæðir menn. Ritnefnd skipa: Bjarni Vil- hjálmsson (ábyrgðarmaður), Hersteinn Pálsson, Jónas Kristjánsson, Ragnar Arn- alds og Sigurður A. Magn- ússon. Afgreiðsla blaðsins er í Bankastræti 6. stundum heldur hann sig uppi allan daginn. Kolmunm torfur eru ekki eins þéttar og síldar- torfur og taldi Jakob að ekki yrði um eins stór köst að ræða, en hins vegar undirstrikaði hann fyrri orð sín um það að mikið magn væri af fiskihum við landið. Kolmunninn er lítill og aftur mjór, ekki ósvipaður þorski a® byggingu, og hefur samskonar ugga. Er hann blágrár á ljaki, silfurgrár á hliðurn og silfur- hvítur að ineðan. Munnur hans er svartur að innan og dregur fiskurinn nafn sitt 'af því. Þriðjudaginn 21. maí 1968 gef- ur póst- og símamálastjórnin út tvö ný frímerki að verðgildi: kr. 4,00 (gult) og kr. 5,00 (brúnt) með mynd af götu með hægri umferð. ' Póst- og símamálastjórnin, 17. maí 1968. Þriðjungur atvinnulaus NÝLEGA fór fram könnun á atvinnumöguleikum nemenda Handíðaskólans, og kom þá í ljós, að 32,8% nemenda verða atvinnulausir í sumar. Horfir til hreinna vandræða fyrir nemend- ur, ef yfirvöld gera ekki róttæk- ar ráðstafanir til úrbóta. ■ TVÍSKROKKA JOGARI! Sovétmenn eru nú aff gera tilraunir meff fyrsta tvískrokka togarann. Skip’iff er teiknað af fiskveiffi- og tæknistofnuninni í Kaliningrad og er sagt hafa marga góffa kosti. Skipiff get- ur stundað trollveiffar, liringnótaveiðar og veiffar meff raf- magnsgeislum. íl'inn stóri skutur meff tveim trollrennum gef- ur möguleika á stöffugum veiðum og þar með meiri afla. Sovézkir skípaverkfræðingar eru nú að vinna að mörgum tegundum tvískrokka skipa eft- ir nokkuð vafasama byrjun. Tvískrokka skip eru stöð- ugri en önnur skip og er þægi legt að sigla þeim, ekki ein- ungis á ám, heldur einnig á höfum og vötnum. Nú er verið að smíða tví- skrokka farþegaskip í Sovét- ríkjunum og á það að rúma 1000 farþega. Verður það 230 fet á lengd og 52 fet á breidd. Vegna þess hversu það rist ir grunnt, eða um sex fet, verður unnt að sigla þvi eftir litlum ám og skila af sér far þegum við árbakkana. Sérfræðingar á vegum ríkis stjórnar Sovétríkjanna undir- búa nú smíði tvískrokka skips, ætlað ferðamönnum og mun það ganga um 13 sjómílur. Framhald á 10. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.