Alþýðublaðið - 29.05.1968, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 29.05.1968, Blaðsíða 1
 Migvikudagur 29- maí 1968 — 49. árg. 96. tbl. Hámarkshraði á vegum úti aukinn en áfram 35 km. innanbæjar Á miðnætti í nótt urðu þær breytingar gerðar á hraðatakmörkunum þeim, sem í gildi gengu 26. maí, að hámarkshraði ökutækja á þjóðvegum landsins var hækkaður aftur úr 50 kílómetrum á klst. í 60 kíló- metra á klukkustund. Aðrar hraðatakmarkanir verða óbreyttar, 35 km í þéttbýli, 60 km á Reykjanesbraut, en 50 km á nokkrum vegum í næsta nágrenni við þéttbýli. Vakin skal athygli á því, að nú verður hámarkshraði um sinn 10 km. hærri á þjóðvegun- um en var fyrir breytinguna til hægri aksturs. Gildir þá' sami hámarkshraði á öllum þjóðveg- um landsins að Reykjanesbraut- inni meðtalinni. '«>*• •• iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii iii ir iii 111111111 imi ii ■ iii ii m 1111111111 | Hæsta verB | j 62 jbúsund | | Á málverkauppboði Sigurðar i = Benediktssonar í gær fór 1 = dýrasta myndin á 62 þúsund \ | krónur, og var hún eftir i | Kjarval. Frá uppboðinu er | | sagt .á bls. 3. Í llll■llll■ll■lllll■llll■lll■lllllllll■llllllll■llllllIllll■lll■■■ll■)ll Framkvæmdanefnd hægri um- ferðar er undir það búin að gera tillögur til dómsmálaráðuneytis- ins um lækkun hámarkshraðans frá því, sem nú er, ef í ljós kem- ur, að slysum fjölgi á vegunum nú að þessari hraðahækkun gerðri. Á blaðamannafundi H-nefnd- ar í gær kom fram, að nokkur uggur er í umferðaryfirvöldum vegna þess, að ökuhraði virðist farinn að aukast í þéttbýli og í ljós hafi komið, að menn brjóti hraðaákvæðin, sem í gildi gengu á H-dag. Telja nefndarmenn, að allt of margir hafi brotið ákvæð- in um hámarkshraða og lögregl- an því neyðzt til að kæra fjöl- marga fyrir of hraðan akstur og í einstaka tilvikum þurft að taka bifreiðirnar af viðkomandi bif reiðarstjórum og ökuskírteini. Þrátt fyrir þennan misbrest kvað Benedikt Gunnarsson fram- kvæmdastjóri nefndarinnar þó hafa tekizt að halda ökuhraðan- um mjög niðri. Það væri afar mikilvægt vegna þeirra, sem ekki hefðu þegar öðlazt fulla æf- ingu í unjferðinni og ekki síður vegna þeirra, sem telja sig orðna fullnuma í hægri umferðinni, !því að aldrei væri því svo farið, að jafnvel þeir, sem færastir væru gætu ekki dottið í gildrur hinna nýju umferðarhátta. Að lokum sagði Benedikt Gunnarsson: „Við vörum menn við of mikilli bjartsýni, þó að svo vel hafi íekizt til þessa.” OilillllliiiiiiiilllllililllllllllliiiimilniiiNiaimiilimmilli) I 6 árekstrar 1 | Sex árekstrar urðu í [ [ R.eykjavík í gær. Voru [ 1 fiestir þeirra smávægilegir. = [ í gærkvöldi var bifreiS ekið \ i niður í skurð sem grafinn \ § hefur verið við Holtaveg. | | Ökumann sakaði ekki, en f i hann er grunaður um að | i hafa ekið undir áhrifum i i áfengis. Svona er umhorfs í Parísarborg eftir langvarandi verkfall og raunveru- legt umsátursástand. í gær sagði einn ráðherra sig úr frönsku stjórn- inni og ýmislegt bendir til þess að öll stjórnin riði nú til falls, enda eru menn þegar farnir að ræða um nýja stjórnarmyndun í Frakklandi. SJÁ bls 6. l j r. i SpjölM unnin i kirkiugaröi Óhugnanlegur verknaður var framinn í gamla kirkjugarð- Inum við Suðurgötu í nótt. Ráðizt var á nær 40 grafreiti og trékrossar brotnir af þeim, sumum fleygt, en aðrir skildir eítir mölbrotnir. Þá var ráðizt á nokkra stóra legsteina, þeir felldir niður og skemmdir. Af einum legsteininum var brotin stór og voldug postulínsstytta. Af öðrum legsteini var brotin opalglerplata. Óþokkinn eða óþokkarnir sem ódæðið frömdu virðast hafa val'ið af handaliófi leiði til að svala skemmdarfíkn sinni á. Leiðin sem skemmd voru, voru bæði merkt og ómerkt. Það eru eindregin tilmælí rannsóknarlögreglunnar að hver og einn sem gæti gefið upplýsingar um þennan óhugnanlega verknað hafi samband við rannsóknarlögregluna tafarlaust. Fyrir nokkrum árum átti slíkt sér stað í kírkjugarðinum og þá var það geðveikur maður sem verknaðinn framdi. Var liann staðinn að verki og handtekinn. Myndin hér til hliðar sýnir hvernig umhorfs var við eitt leiðið eftir atgang skemmdarvargsins.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.