Dagur - 12.02.1918, Blaðsíða 2

Dagur - 12.02.1918, Blaðsíða 2
2 DAGUR. Tilkynning. Peir menn úti um sveitir, sem fá blaðið sent óbeðið, verða taldir kaupendur þess, hafi þeir ekki endur- sent fyrstu blöðin til afgreiðslumanns fyrir miðjan apríl n. k. gerðir Pessvegna eru þeir, er blað- inu senda greinartil birtingar, beðnir að vera stuttorðir og gagnorðir. Ljettvægu ljóðarugli og langlok- um um dána menn verður ekki veitt rúm í blaðinu. Ró að »Dagur« sje nú lítill vexti, þegar hann hefur göngu sína, má þó vel svo fara að á honum sannist það fornkveðna: »Mjór er mikils vísir.« Frá útlöndum. Úfar eru teknir að rísa á vinfengi Rússa og Rúmeníu. Tildrögin sögð þau, að Rúmenar hafi hnept rúss- neska herforingja í varðhald. Maxí- malistar snerust illa við þessu, og harðnaði rimman svo, að stjórnmála- sambandi var slitið milli landanna, og hafa Rúmenar ráðist með ófriði inn í land Rússa. Stjórnmálaástandið í Rússlandi er í miklu öngþveiti. Maxímalistar hafa orðið undir í þinginu, enda eru þeir sagðir sundurþykkir innbyrðis. Litlar líkur fyrir því, að til friðar dragi miili Rússa og Miðveldanna. Finnland er í nauðum statt. Maxí- malistar hafa tekið höfuðborg lands- ins og rekið stjórnina frá völdum. Óstjórn og hungur þjakar landslýðn- um ó{f ínargskonar glæpir eru þar daglegt brauð. Eru Finnlendingar teknir að hrópa á hjálp annara þjóða í þessuin hörmungum sínum, en fá líklega enga áheyrn. Frá vesturvígstöðvunum héyrist lítið sögulegt. Þó er getið um að Frakkar hafi unnið 'nokkurn sigur á einum stað. Að undanförnu hafa Þjóðverjar verið að flytja mikið lið að austan til vesturstöðvanna og hafa Bandamenn átt von á harðri sókn frá þeirra hendi. En nú hafa myndast gríðarleg verkföll í Mið- veldunum, sem ekki hafa eingöngu verið bygð á kröfu um bætt kjör verkalýðsins heldur og á kröfum um frið. Er svo að sjá, að verk- fallið hafi byrjað i Austurríki og að stjórnin þar hafi orðið við kröfum verkamanna og samkomulag feng- ist, En síðan varð ógurlegt verkfall í sjálfri Berlín og tók upp undir hálf miljón verkafólks þátt í því þar í borginni, og sagt að verk- fallshreyfingin breiðist óðfluga út um Þýskaland. Heimta verkfalls- menn, að friður verði saminn hið bráðasta. Er eflir að vita hvort þýska stjórnin getur brotið byltingu þessa á bak aftur með herafla sínum. En ekki er það ólíklegt að slíkar frið- arhreyfingar sem þessar geti helst stytt ófriðinn. Að öðru leyti eru friðarhorfur milli Bandamanna og Miðveldanna ekki vænlegar. Ber þar margt á milli og ekki síst Elsass-Lothringen, sem Rjóðverjar munu ekki ótilneydd- ir sleppa. Bretar munu og verða þungir fyrir í samniugutn um þýsk- ar nýlendur, er þeir hafa tekið í ófriðnum, en þrátt fyrir alt þykjast þó sumir menn sjá friðarglætu í lofti, en Iítið mun á því að byggja. Bretar hafa gert ógurlega flug- vjelaárás á borgina Mannheim og er tjónið talið afskaplegt. Ætla Bretar á þennan hátt að venja Pjóðverja af Zeppelínsárásum á breskar borgir. Skáldið Kristófer Janson er ný- lega látinn á áttræðisaldri. Síðustu fregnir segja algert stjórn- leysi í Rússlandi. Rússar og Pjóð- verjar sjeu farnir að berjast á ný og Rússar fari hrakfarir. Ennfremur að Bandamenn vilji engum friðar- skilmálum sinna, og stríðinu skuli haídið áfram af krafti. Talið að þýsku verkföllin sjeu í rjenum. Samtíningur. — Sveinn Ólafsson alþm. í Firði hefir um stundarsakir hætt störfum í Fossanefndinni vegna lasleika og dvelur heima í bili. — Aðalsteinn Kristinsson umboðs- sali og Haraldur Jóhannesson úr- miður fóru til Rvíkur með síðasta pósti. — Höfuðstaður Norðurlands hefir verið í kolahraki. Ráðstafanir hafa verið gerðar til að úlvega bænum kol, en gengið tregt, þar til bæjar- fulltrúa Otto Tulinius tókst með sínum alkunna dugnaði og hjálp- fýsi að útvega bænum 70 til 100 smálestir norðan úr Jötunheimum. — Á síðasta bæjarstjórnarfundi hjer í bæ var ákveðið að taka alt að 50þús. kr. bankalán til dýrtíðarráðstafana. — Mótornámsskeið stendur yfir hjer í bæ. Stýrir því Ólafur Sveins- son úr Rvík. Margir nemendur. — Kvenfjelagið »Framtíðin« ætl- ar að fara að reka eldhús í barnaskól- anum og gefa fátæklingum miðdeg- isverð. Lofsvert fyrirtæki. — Nýlega eru látnir hjer á sjúkra- húsinu Jón Ólafur sonur Jóns bónda í Möðrufelli og Ólafur Kristjánsson bóndi frá Hólum í Eyjafirði. — Barnaskóli Akureyrar tók tif starfa 4. þ. m. eftir þriggja vikna lokun vegna kulda. — í »fslendingi« eru tilnefnd þrjú ráðherraefni líkleg: Klemens, Vig- urklerkur og Flygenring. Sú stjórn mundi tæplega eiga nema tvo stuðn- ingsmenn, einn í Fingeyjarsýslu og einn á Akureyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.