Dagur - 12.02.1918, Blaðsíða 3

Dagur - 12.02.1918, Blaðsíða 3
DAOUR. 3 Fjöregg Islendinga. í stríðsbyrjun hækkuðu flestallir íslenskir kaupmenn fyrirliggjandi vör- ur að nauðsynjalausu. Fáum mán- uðum síðar afrjeð þing og stjórn að hefja landsverslun. Ekki til að keppa við kaupmenn, heldur til þess að bjarga þjóðinni. Sú verslun hefir farið sívaxandi, af því að kaupmenn fluttu of litlar vörur og of dýrar. Jafnvel stærsta verslun landsins, »Kol og Salt«, varð því nær að hætta, hafði þó einhvern færasta kaupmann landsins fyrir framkvæmdarstjóra. Svipaða sögu er að segja af Stein- olíufjelaginu. Gömul og voldug verslun eins og Örum & Wulf vesl- aðist upp og er nú að liðast sundur. » Kaupmanrtaverslunin visnaði þann- ig, af því að kaupmenn skorti skip og framsýni til að sælta sig við skaplegan milliliðsgróða. Ef þing og stjórn hefði ekkert aðhafst í verslunarmálinu, hefði það leitt til: 1. Altof lítilla aðdrátta frá útlönd- um og almennrar hungursneyðar. 2. Sú vara, sem komið hefði, mundi hafa verið seld með neyðarverði. Dýrtíðin hefði þannig orðið enn átakanlegri. Hungursneyð fyrir allan þorra manna, og neyðarkjör fyrir þá, sem eittlivað hefðu fengið. Auka- þingið í fyrra sá þetta. Allir flokkar samþyktu, að stjórnin skyldi kaupa skip og leigja og tryggja landinu vörur. Retta hefir stjórnin gert og tekist að bjarga þjóðinni frá hung- ursneyð og dregið úr dýrtíðinni, fram að þessu, þrátt fyrir galla á fyrirkomulaginu, sem nú er verið að laga. Nú heimta kaupmenn höfuð- staðarins, að þing og stjórn hætti þessum bjargráðum. Peir stofna nýjan flokk í þessu skyni. Erindi þeirra reka þeir J. Rorláksson í Lög- réttu, Sv. Björnsson í ísafold, Björn Kr. í Landinu, J. Möller í Vísi, V. Finsen í Morgunbl. og Jón Stefáns- son í Norðurl. Sigurður dýralæknir virðist og hallast á þessa sveif í blaði sínu. Myndu margir hafa unn- að honum betra hlutskiftis. Kaupmenn höfuðstaðarins og þefrra fylgifiskar stefna að þvf leynt og Ijóst að fella núverandi stjórn og fá nýjar kosningar, til að geta náð yfirtökum í fjármálum landsins. Takist það, mundi almenningur skjótt finna, að fjöregg þjóðarinnar á þessum neyðartímum, landsversl- unin, hefði verið brotið, til að gefa fámennri stjett tækifæri til að færa sjer í nyt bágindi almennings. Vill þjóðin afhenda fjöregg sítt? Glúmur. „Óstjórnin". í »Norðurlandi« frá 15. f. m. birtist grein með ógurlegri yfirskrift, er hljóðar svona: »Geffun og landsíjórnin. Landstjórnin stofnar verksmiðj- unni i bersýnilegan voða, með því að selja henni ekki kol i tíma. . Fjöldi (70) bláfátæks verkafólks sviftur fastri atvinnu að nauðsynja- lausu. Almenningi hjer norðanlands fyr- irmunað að vinna utan á sig nauð- synlegasta fatnað, til að skýla nekt sinni í gaddhörkunum, sem nú hel- taka alt.« Misjafnir eru nú dómar mann- anna. Sumir mektarmenn hjer í bænum, bæði í og utan bæjarstjórn- •ar, hafa haldið því fram, að dýr- tíðarráðstafanir væru óþarfar, af því að engin neyð væri í bær.um. En Norðurl. upplýsir, að allur almenn- ingur, ekki aðeins á Akureyri held- ur öllu Norðurlandi, gangi nú ber- ______ strípaður og hafi ekkert að hylja nekt sína með í gaddhörkunum, sem heltaka alt, af því að »Gefjun« hafði verið lokuð nokkra daga. Hvað er nú rjett? Er engin neyð á ferðinni, eða er neyðin svona af- skapleg eins og Nl. segir? Sama blað fullyrðir, að 70 blá- fátækir verkamenn hafi verið sviftir atvinnu við Iokunina. 27 menn alls, bæði unglingar og fullorðnir, hafa unnið við verksmiðjuna, en Nl. fær út hærri töluna með því að telja með öll börn og skyldmenni þeirra, sem atvinnu höfðu, Jeg sá í gær drenghnokka á 3. ári. Hann sat á gólfinu, nagaði kringlubita og. var að hjala við sjálfan sig. Jeg veitti snáðanum litla eftirtekt í fyrstu, en þegar eg heyrði, að haun væri ná- frændi eins þeirra 10 unglinga, sem unnu í verksmiðjunni, vissi jeg, að hann var hvorki meira nje minna en einn af þeim 70, sem Nl. talar um, bláfátækur verkamaður, sviftur atvinnu fyrir glópsku landstjórnar- innar, »óstjórnarveturinn mikla«.Mjer varð þungt í skapi er jeg hugsaði um óstjórnina, en »verkamaðurinn« bláfátaéki virtist taka öllu með mesta jafnaðargeði og át kringluna eins og ekkert hefði í skorist. Stjórnin eða landsverslunin hafði vanrækt að senda kol til Gefjunar og barði við rúmleysi í s/s »Wille- moes« En afglög »óstjórnarinnar« ríða ekki við einteyming, og nú kemur höfuðhneykslið, sem Norðl. skýrir líka frá hispurslaust. Með sama skipi sendi stjórnin samt sem áður kol til eins borgara hjer í bæn- um. Blaðið getur nú ekki um, að þessi borgari var eigandi hins eina brauðgerðarhúss, sem fram að þess- um tíma hefir verið starfrækt í bæn- um. Enda átti ekki við að taka þetta fram eins og nú stóðu sakir. Ef kolin aftur á mót hefðu komið til Gefjunarj en ekki til brauðgerðar- hússins, þá hefði átt vel við, að í Nl. hefði komið grein með siórri

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.