Dagur - 16.01.1930, Blaðsíða 1

Dagur - 16.01.1930, Blaðsíða 1
D A O U R kemur út á hverjum fimtu- degi. Kostar kr. 6.00 árg. Gjalddagi fyrir 1. júlí. Gjaldkeri: Ámi Jóhanns- son í Kaupfélagi Eyfiró- inga. Afgreiðsian er hjá J6ni Þ. Þ4r, Noröurgötu 8. Talslmi Ll£. Uppsögn, bundin við ár»- mót, sé komin til af- greiðslumanns fyrir 1. áes. • •• • • • •••• XIII. ár * • # f ♦ • • •-•- • • • • • • • | • • • • # • • • •-•-•-• • • • • •• • • •-•-♦'•-♦ Akureyri, 16. janúar 1930 -♦-•-• -•-♦-•-•-• • • • ♦ -♦••-• • • • • • -•-•♦-•♦•♦ • • ♦♦ •-• ♦ •♦♦ 4. tbl. Úrsiit bæjarstjórnarkosningarinnar á Akur- eyri urðu sem hér segir: A-listinn (Framsókn) hlaut 400 at- kvæði og kom að 3 fulltrúum. B-iistinn (Jafnaðarmenn) hlaut 488 atkvæði og kom að 3 fulltrúum. C listinn (Borgaraflokkur)’ fékk 620 atkv. og kom að 5 fulltrúum. Samkvæmt ofangreindu voru kosnir bæjariulltrúar: Á A-lista: Atkvrði Ingimar Eydal með 38418/22 Brynleifur Tobiasson — 36316/22 Jón, Ouðlaugsson — 363’/32 Varamenn þess lista eru: Atkvæði Böðvar Bjarkan með 3483/22 Jóhannes Jónsson — 32713/22 Haraldur Þorvaldsson — 3092/22 Á B-lista: Atkvæði Erlingur Friðjónsson með 48410/22 Elfsabet Eiríksdóttir — 4613/22 Einar Olgeirsson — 4389/22 Varamenn þess lista eru: Atkvæði Karl Magnússon með 413°/22 Steinþór Ouðm.son — 40321/22 Porsteinn Porsteinsson — 3803/22 Á C-lista: Atkvæði Sigurður Htíðar með 613Ú22 Hallgr. Davfðsson — 5867hi Ólafur Jónsson — 55510/22 Tómas Björnsson — 525uhi Gísli Magnússon — 50618/22 Varamenn þess lista eru: Atkvæði Páll Einarsson með 4805/22 Stefán Jónasson — 4534/22 Jón Guðmundsson — 42318/22 Jón Jónatansson — 39513/23 Benedikt Steingrfmsson — 36717/22 Alls voru greidd 1532 atkv., en á kjörskrá standa 2258 nöfn; af þeim eru 237, sem ekki öðlast kosningarrétt fyr en sfðar á árinu og komu því ekki til greina nú. Auk þess eru ýmsir, sem ekki geta kosið vegna fjarveru, eða af öðr- um ástæðum. Hafa þvi meir en 3A hlutar kjósenda, er til greina gátu komið, neitt kosningaréttar síns að þessu sinni. Má það heita góð sókn, einkum þegar þess er gætt, að veð- ur var slæmt og færð ill; en mikið kapp var í kosningunni af öllum flokkum. Af þeim 1532 atkvæðum er greidd voru, voru 24 seðlar dæmdir ógild- ir. Tilheyrðu 4 þeirra A-listanum, 10 B listanum og 10 C-listanum. Eins og atkvæðatölurnar innbyrð- is á hverjum lista sýna, voru tals- verðar tilfærzlur og útstrikanir á öllum listunum, en olli þó engri röskun á röðuninni. Sem kunnugt er hefir tala kjós- enda á kjörskrá hækkað allmikið frá því í fyrra. Við bæjarstjórnar- kjörið í fyrra fengu Jafnaðarmenn 456 atkv., íhaldsmenn 563 atkv. og Framsókn 303 atkv. Þegar þetta er borið saman við fylgið nú, kemur það í Ijós, að fylgi Jafnaðarmanna hefir aukist um 7°/o, íhaldsmenn hafa grætt 10°/o, en fylgi Framsóknar hefir aukist um 32°/o. Aukningin við þá stefnu er með öðrum orð- um meira en þreföld á móts við íhaldið og nokkru meira en fjór- föld á móts við Jafnaðarmenn. Méga því Framsóknarmenn bezt við una úrslit kosningarinnar. ■ ■"0---- Eítir kosninouna. Nú er kosningahríðinni létt af hér í bænum og ný bæjarstjórn kosin til næstu 4 ára. Á öðrum stað hér í blaðinu er skýrt frá kosningaúrslitunum, og það sýnir sig, að sá flokkur, er flestum at- kvæðum hefir bætt við sig miðað við undanfarnar kosningar, er Fram- sóknarflokkurinn. — Framsóknar- menn, hvar sem þeir eru, hafa því fulla ástæðu til að fagna úrslitunum. Pau hafa sýnt það, að stefna flokks- ins, sem flokks, aflar honum vaxandi fylgis einnig í bæjum. Hafi verið ástæða til að telja flokkinn fremur til einnar stéttar en annarar í landinu þá virðist sú ástæða vera að hverfa nú; það lítur út fyrir, að framsæknir menn, sem hylla heilbrigða fram- þróun og alhliða umbætur, sem sjá skýrt, það sem liggur fyrir, og láta ekki þyrlast með inn f draum- óraþoku öfga og kenninga um skjótvirkar biltingar, fylki sér æ þéttar undir merki flokkins. Að sjálfsögðu breytir þetta sjálfri stefnu flokksins i engu. Vér verðum enti sem fyr að halda fast við, að aukin ræktun landsins, bættir hagir bænda og viðreisn sveitabúskapar- ins, sé heilbrigðasti og sjálfsagðasti grundvöllurinn fyrir tryggri framtið þjóðarinnar. — Beztu og beinustu leiðina hafa samvinnubændur fundið sjálfir með samtökum sínum til hagsbóta fyrir sjálfa sig og þar með fyrir þjóðina sem heild. En það hefir aðra afleiðingu: Við aukið fylgi allra stétta vex verksvið flokksins og viðfangsefnunum fjölg- ar. Reyndar má benda á það, að þegar núverandi stjórn landsins myndaðist af Framsóknarmönnum, var þetta víðara verksvið þegar að nokkru markað, og það hefir bæði stjórnin og flokkurina vel skilið og uppfylt skyldur sínar í þeim efnum. En það er fyrst við aukna opinbera þátttöku Framsóknarmanna í mál- efnum kaupstaðanna, að flokksins gætir þar og að hann fær afstöðu til að rækja skyldur sínar í sérmálum þeirra og auðvitað er stefnan sú sama þar, sem í landsmáiunum. Aukin menning í öllum greinum, sameining og samhjálp kraftanna til hagsbóta Og viðreisnar, alt eftir þeim skilyrðum, sem fyrir hendi eru, fastara skipulag og kröftugra eftirlit, sem alt saman miðar að því að færa alt í horf sjálfsagðrar siðmenningar á öllum sviðum. — Petta verður erfitt verk, því úr miklu er að bæta, og marga hleypidóma þarf að yfirvinna. En það er vinn- andi verk hér sem annarstaðar, þar sem góður vilji og réttur skilningur haldast í hendur. — Hér í bænum hafa Framsóknarmenn stórum bætt afstöðu sína til að inna þetta verk af hendi, þar sem þeir jafnan geta ráðið mestu um úrslit flestra mála, og í öllum málum geta þeirkomið til greina sem sérstakur flokkur. Peir geta átt frumkvæði að fram- fara og menningarmálum bæjarins, þeir geta stutt öll slik mál til sigurs, hvort heldur þau koma frá hægri eða vinstri og þeir geta hindrað framgang þess sem óheilbrigt er, hvaðan sem það kemur. — Petta hefir einnig verið stefna Framsókn- armannanna í bæjarstjórn hér und- ahfarið. Fyrir Framsóknarflokkinn sem heild, en einkum þó fyrir Framsókn- armenn hér f bænum, hafa kosn- ingaúrslitin hér einnig aðra þýðingu: Hún gefur dálitla hugmynd um, hvemig flokkurinn stendur að vfgi við væntanlegt iandskjör á þessu ári. — Öllum er það sjálfsagt Ijóst að talsvert mikið veltur á þvf fyrir framtíð lands og þjóðar, hvernig úrslit þess verða. Eins og nú stendur virðist alt benda til að afstaða Framsóknar- flokksins sé hin bezta, en menn mega ekki Iáta aukna atkvæðatölu flokksins hér freista sfn til andvara- leysis. Pvert á móti ætti það að verða öllum Framsóknarmönnum eggjun til að láta útkomuna verða enn betri við landskjörið. Oss má vera það Ijóst, öllum Framsóknarmönnum, að andstæð- ingar vorir í stjórnmálum munu ekki síður gera sitt ítrasta þá en nú, svo vér verðum að vera við öllu búnir. Reyndar skal það tekið fram að alls engin líkindi eru til annars, en að Framsókn haldi því sæti, sem hún hefir nú, við landskjðrið, en það ætti að vera bæði hags- muna og metnaðarmál, að það yrði með sem mestri sæmd — helzt ættum vér að vinna annað til í viðbót! Framsóknarmaður. S ím sk ey t i. (Frá Fréttastofu Islandn). Rvik 14, jan. Peking: Tvær miljónir manna hafa orðið hungurmorða í Shansi- héraði árið 1929. Framhaldandi neyð og uppskerubrestur hefir staðið þar yfir í 5 ár í röð. London: Tuttugu manns drukkn- aði af dráttarbraut tilheyrandi Atlants- hafsflotanum já sunnudagskvöldið. Voru þeir við skotæfingar f stormi. Að kvöldi hins 12. þ. m. kviknaði í efstu hæð Herkastalans hér í Rvík. Var hæðin í smiðum. Slökkviliðinu tókst með miklum dugnaði að verja neðri hæðirnar og næstu hús. Skað- inn nemur tugum þúsunda kr. Sennilegt er, að neistar hafi hrokkið úr reykháfnum í spónahrúgur á efstu hæð. Pórður læknir á Kleppi hefir verið skipaður f jáðuneytisnefnd Bygg- ingar- og landnámssjóðs i stað Bjarna Ásgeirssonar. Stjórn síldarbræðsluverksmiðjunn- ar á Siglufirði er skipuð Pormóði Eyjólfssyni, Ouðmundi Skarphéð- inssyni og Sveini Benediktssyni í Reykjavfk. Er hinn síðasttaldi kos- inn af landstjórninni. Pessir menn velja síðan framkvæmdastjóra verk- smiðjunnar. Útflutningurinn síðastl. ár nemur 69,400,000 kr. Innflutningurinn nem- ur sennilega svipaðri upphæð. At- hugandi er, að mikið hefir verið flutt inn af byggingarefni, tilbúnum áburði, bifreiðum o. fl. slíku. Afiinn l.jan. var orðinn 417.273 skpd; fiskbirgðir 52.690 skpd. Afar mikil snjóþyngsli eru sunn- anlands. Umferðateppa fer þó batn- andi í umhverfi Rvíkur. Geysir syngur í Nýja-Bíó sunnudaginn 19. þ, m. kl. 3'/2,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.