Dagur - 09.03.1939, Side 1

Dagur - 09.03.1939, Side 1
AFGREIÐSLAN DAGUR kemur 'if á hverjum fimmtudegi Kostar kr. 6.00 áig. Gjaldk. Árni Jóhannsson ■ Kaupfél. Eyfirðinga. Gjaldd. fyrir 1. júli. er hjá Jóni Þ. Þór, Norður 3. Tal- sími 12. U ppsögn, hundin við áramót, sá komin tii r fgreiðsiti- manns •fyrir 1. des. B •» « O r » « * a 15 ö O C #>#»-» -1» ftíí ® « C- t- ■■ O »> -* -®-«• 6 -* -n XXII. árg. | Akureyri 9. marz 1939. --#• #-«-• «-#■ «- « » 5 10. tbl. Fyrirmyndin, sem Bene- dikt Jónsson frá Auðnum gaf unga fóikinu. Snæhvítur fjallstindur, sem rís yfir lágsléttur og fjallgarða, setur tiginn svip á umhverfi sitt. Yfirbragð hans er konunglegt og stórskorið. Útlit hans er talandi vottur um viðskipti við kaldgeðja veðurfar, sem vegið hefir að honum með vopnum frosta og snjóa. En hann er jafnt fyrir það ímynd óhrekj- anlegs stöðugleika, er breytir straumum storma og veitir skjól. í vernd hans lengjast lágir sprotar og hefja augu mót morgn- inum, sem blikar af roðnandi fögnuði á hans veðurbörðu vöngum. Og hvernig sem viðrar, þá er hinn snæhvíti fjallstindur alltaf jafn hár og sviphreinn, eins og þeir einir eru, sem vítt sjá og vaxið hafa upp úr mistri og mold- ryki órórra dagvinda. Benedikt Jónsson frá Auðnum líktist einmitt snæhvítum tindi nú á seinni árum. Og hann setti samskonar svip á mennina eins og fyrr nefndur tindur á náttúruna. Ekki fyrir það, að hann væri svo fyrirferðarmikill á velli, að- kvæðamikill í framkomu — frá þeirri hlið sást ekkert sem geð- hrifum olli, nema þá ef vera skyldi furðanlega æskukvikar hreyfingar í hárri elli — heldui fyrir hitt, að hans langa æfi, hvíta höfuð og óvenjulega lífssaga hafði gefið honum sérstæða tign, fram y-fir lágsléttur æskunnar og kollótt fell meðalaldursins. Það, sem vakti þó mesta at- hygli á þessum manni, og gerði hann eftirtektarverðan, jafnvel langt fram yfir hrikaleg afbrigði fáséðrar og aðdáunarverðrar nátt- úru, var sú vitneskja, að hann var maður, sem með alú.ð og ástund- un hafði eflt hæfileika sína, hafði látið þá breytast úr blu.ndandi vonum í sóknharðan kraft, er barðist í hugdjörfum sigurmóði fyrir aukinni fræðslu og bættri lífsaíkomu samtíðarmanna sinna og niðja þeirra. Og hann var maður, sem með margra ára sjálfsnámi af lestrl flestra þeirra höfuðrita, sem mestu andar heimsins hafa skrif- að, eignaðist síðan af eigin athug- un, og fyrir dómrýni sjálfstæðrar hugsunar þá eíalausu sannfær- ingu, að einungis með skipulagðri samvinnu takist mönnunum að vinna sér þann veraldlega sess og gera sig verða þeirrar eilíflegu velferðar, sem þeir séu þó fæddir til og viti fegursta. Og hann var maður, sem ekkert augnablik lét líða í dvala né aft- urhvarfi óviss hverflyndis, heldur miðaði áfram jafnt og þétt og not- aði hvert tækifæri sem gafst, og skóp sjálfur fjölda tækifæra til að fjölga kynnum sínum á fyrir- brigðum lífsins og þekkja til hlýt- ar einkenni hvers fyrir sig og gefa öðrum færi á, að njóta hins sama með sér. Þetta stefnufasta framlyndi hóf hann alltaf hærra og hærra í menningarsókninni og gerði hann að sama skapi áhrifa- og umfangs- meiri. En nú er þessi fágæti og þroska- milcli manntindur allt í einu horf- inn, hniginn í dökkva hinnar ei- lífu nætur. Minningin um hann verður samt ekki draumkenndur hugar- burður, er liðið getur frá hvenær sem er, til þess var hann of þýð- ingarmikill leiðtogi, of raunveru- leg jyrirmynd. Benedikt Jónsson er fæddur ár- ið 1848 á afskekktum dalabæ. Hann fæddist í þann mund, sem íslenzk endurreisn fór loks fyrir alvöru að draga andann, þegar líf- grös sjálfstæðisins byrjuðu að gróa. Sveitadrengurinn hefir. eflaust; snemma gleymt leikjum sínum og hlustað fremur eftir viðræðum fólksins um ástand landsins og þjóðfélagsmálin og veitt athygli greinum og bendingum stjórn- málamannanna. En hann var ekki lengi hlust- andi baim. Strax í æsku knúði hann á fleiri dyr en almenningi var gjarnt á þeim árum. Málssvið íslenzkrar tungu veittu honum ekki þau kynni af byggð- um þess mannheims, er lágu utan við h.ið daglega og áþreifanlega líf, sem fullnægðu hinu vakandi ung- menni. Þess vegna nam hann — mest af sjálfsdáðum — erlendar tungur og eignaðist þar með næmari skilning og yfirgripsmeiri þekk- ingu bæði á því mannlega og nátt- úrlega en ella hefði orðið. Mun þá þegar hafa mótast skap- gerð hans og skoðanir, er síðar komu svo greinilega í ljós og réðu öllum hans verkum. Þegar samvinnuhreyfingin barst hingað til lands, þá flutti hún hvorki með sér rósailm né blóð- þef. Heldur kom hún eins og heil- næmt útiloft inn um glugga á loftillu herbergi. Benedikt fann, að henni fylgdi sú ósvikula heilbrigði, sem áður hafði hrifið hann í hillingum fjar- lægra hugsjóna. Allir menn áttu siðferðilegan rétt til að lifa frjálsu athafnalífi. Jörðin var þeim gefin. Engum einum var leyfilegt að eigna sér meira en það, sem hann þurfti til að framfæra sig og sína, ef við það útilokuðust aðrir frá því að komast að eða urðu honum undir- gefnir. En jörðin krafðist sáningar, ná- kvæmra, þolgóðra starfa, ættihún að verða uppskeruhæf, þá var eðlilegast og réttmætast, að hver fengi það í sinn hlut, sem hann hafði unnið til. Og þar sem það sýndi sig þrá- faldlega að mennirnir eru veik- burða og smáir og fátt segir af einum, þá kom það ekki ósjaldan fyrir að bróðurböndin tryggðu gagnkvæmar úrlausnir á vanda- málunum. Þessi meginrök var Benedikt löngu búinn að tileinka sér sjá- andi þó það, að þau voru ekki veruleikinn. Stóð því ekki á hon- um að verða undireins brjóstfylk- ingarmaður í liði samvinnuátrú- andanna, sem hófu endurbóta- starfið á lífskjörum fólksins gegn- um hagfelldara fyrirkomulag verzlunarmálanna. Þingeyskt skáld kvað eitt sinn: „Reikult er rótlaust þangið, rekst það um víðan sjá. Stormar og votir vindar velkja því til og frá‘. Reynslan sannar, að mennirnir eru heimilislausir útburðir, sem velkjast um víðan sjá vanþekking- arinnar, lausir fyrir, óvissir, fálm- andi, fákunnandi, nema þeir festi rætur með námi og menntun. Benedikt var nógu skarpskyggn mannþekkjari, nógu víðsýnn og fróður til þess að ganga þess ekki dulinn, að hin nauðsynlegasta og varanlegasta rótfesti menningar- innar er fólgin í kunnáttu og hyggni almennings. En á seinni oluta 19. aldar átti alþýðan ekki um margar leiðir að velja, hvað andlega upplýsingu snerti. Einn áll var þó opinn að sálum fólksins — bækurnar. Benedikt Jónsson lét ekki þann möguleika ónotaðan til þess að auðga vitund- arheim þeirra, sem hann náði til. Gekkst hann fyrir því, að nokkrir ungir menn tóku sig saman árið 1888 og keyptu nokkrar erlendar bækur, er þeir létu ganga á milli sín. Var það fyrsti vísirinn að sýslu- bókasafni S.-Þingeyinga, sem Benedikt síðan stofnaði og veitti forstöðu allt til dauðadags. í öllu hans starfi við safnið kom fram og naut sín vel fölskvalausi áhug- inn fyrir öllum velferðar- og um- bótamálum, er honum var svo eiginlegur, margþætta, staðgóða þekkingin, er hann hafði aflað sér samfara skörpum smekk í vali bóka, óþreytandi elju og stál- minni, sem hann átti allt í óvenju- ríkum mæli. Mun Benedikt mjög hafa glætt lesfýsi manna og alveg skapað fjöldanum m. a. aðgang að önd- vegisritum og höfundum heimsins. Hafa ýmsir fengið við þann lestur réttari og dýpri skilning á sjálf- um sér og tilverunni í heild, en þeir áður höfðu. Starfsemi þessi blés vorvindi nýrrar þróunar inn í héraðið, og verða þeir ekki með tölum taldir, sem hún vakti og vekur beint og óbeint til meðvitundar um skyld- ur sínar og ætlunarverk. Óhætt má fullyrða það, að allir Þingeyingar og margir fleiri myndu geta mætzt í sameiginlegri þökk og virðingu við leiði Bene- dikts Jónssonar fyrir hið mikla og blessunarríka starf, sem hann vann vð bókasafnið, í þágu mann- ræktarinnar. Benedikt Jónsson lagði það ekki í vana sinn að gera gælur við andvarpandi sorgarsálir með þeim tilheyrandi munnklökkva, heldur lét honum betur að svara hverju sem var með hressandi hvatning- arorðum lífsglaðs hraustmennis, því hann hafði þá skoðun, að fremur beri að lifa lífinu með brosum en tárum. Æfi Benedikts Jónssonar var næstum einn nóttlaus starfsdagur. Ungur stefndi hann hátt, gam- all hafði hann verið sjálfum sér trúr. Æskuheit hans voru djarfmann- • (Framh. á 2. síðu).

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.