Dagur - 12.04.1945, Blaðsíða 3

Dagur - 12.04.1945, Blaðsíða 3
Fimmtudaginn 12. apríl 1945 DAGUR S Af sjónarhóli Norðlendings „Skipið er nýtt, en skerið er hró....“ Það er orðið langt síðan að nokkur félagsskapur hefir minnst ríkisstjórnarinnar á þann veg, að tiltækilegt þætti að birta frásögn um það í útvarpi. í þessu efni er orðin mikil breyting á, því að á sl. hausti var þetta al- gengt útvarpsefni. Traustsyfir- lýsingum og blessunarorðum rigndi þá yfir stjórnina úr ýms- um landsfjórðungum. Margir lögðu trúnað á loforðin um ný- sköpun og allsnægtir fyrir alla. Stjórnin var í þeirra augurn eins og nýtt skip, sterkt og burðar- mikið, en dýrtíðin og öngþveitið í fjármálum og atvinnumálum tildur eitt og hró, sem mundi fljótlega láta undan, er stjórnin léti nýsköpunargamminn geysa fram. „Skipið er nýtt, en skerið er hró, og skal því undan láta“, var orðtak þeirra tíma. Síðan eru liðnir margir mánuðir. Stjórnar- fleytan er farin að veðrast og gljáinn á nýviðnum er farinn að láta á sjá. Þakkarorðin eru hljóðnuð, en skerið stendur enn og er nú hærra úr sjó en fyrr. Dýrtíðin hefir aldrei verið nreiri og útlitið í fjármálum ríkisins aldrei óglæsilegra. Það er því ekki nema vonlegt, að þeir sem mestar vonir bundu við loforðin um nýsköpun og allsnægtir séu farnir að verða nokkuð langeygir eftir því, að stjórnin láti .nýsköpunargamm- inn geysa á skerið, og láti skera úr um það hvort „muni undan láta“. Það er’ heldur ekki ólíkt- legt, að ráðamenn á stjórnar- fleytunni telji sig þurfa að gefa þjóðinni eitthvað meira en lof- orðin tóm, og að ekki muni út- gerðin verða arðbær öllu lengur fyrir tilstilli þeirra. Andxómantískur gamanleikur. Við erum nú komnir það langt fram á árið 1945, að farið er að hilla undir bæjarstjórnarkosn- ingar í kaupstöðum landsins í byrjun næsta árs. Það er hætt við því, að háttvirtir kjósendur muni þá.heimta einhverjar efnd- 'ir á nýsköpunarloforðunum áð- ur en þeir varpa atkvæðum sín- um á stjórnarflokkana. Stjórnar- blöðin eru þess vegna þegar byrjuð að svipast um eftir ein- hverju af því tagi, sem líklegt væri að halda flokkum þeirra á floti, meðan siglt er yfir ólgusjó kosninganna. Það verður að virða þeim það til vorkunnar, að ekki er um auðugan garð að gresja, enda hafa tveir flokkarnir þegar gripið dauðahaldi í sama flothylkið, og vill hvorugur sleppa. Þessi viðuréign stóð fyrir skemmstu í Morgunblaðinu og Þjóðviljanum og var skopleg fyr- ir margra hluta sakir og ekki alls ófróðleg. Raunalegast hlýtur það að hafa verið, að þetta ný- sköpunarflothylki var alls ekki á flot komið frá stjórnarskútunni heldur frá fyrrverandi ríkis- stjórn. Það var hún, sem samdi um kaupin á Svíþjóðarbátunum áður en stjórnarsamvinnan hófst, á ofanverðu sl. surnri, og smíði bátanna er því alls engin „nýsköpun" fyrir anda eða til- vei'knað stjórnarsáttmálans. En hestinn munar um pundið, þeg- ar hartn er þreyttur. Svíþjóðar- bátarnir eru orðnir eina hald- reipi komnxúnista og sjálfstæðis- rnanna í undirbúningi bæjar- stjórnarkosninganna í Reykja- vík. Báðir þakka sér og báðir ákæra hinn aðilann fyrir að hafa ,,snuðað“ Reykjavík um sinn réttláta skerf af ávöxtunum. viðureign blaðanna um það, hvort stefna Sjálfstæðisflokksins í bæjarmálum Reykjavíkur hafi verið „lífæð“ höfuðstaðarins eða „lind dauðans", nálgast það að vera and:rómantískur gaman- leikur, á borð við skemmtun þá, er reykvískir menntaskólanem- endur buðu landsmönnum upp á í útvarpi fyrir skemmstu.' Þar gerði hinn aldni gráskeggur Beinard Shaw, gys aðrómantísku hermennskunnar, einknnisbún- inganna og glysgirninnar. Viður- eignin um Svíþjóðarbátana er raunverulega ekkert nema spott um rómantísku nýsköpunarinn- ar, sem er eins og nýju fötin keisarans. Þar er allt innantómt þegar til á að taka. „Tilgangur stjórnarsamvlinn- unnar“. En það kemst margt skrítilegt upp þegar hjúin deila. í sam- bandi við þessa sýningu á eyði- mörk nýsköpunarinnar flutti Morgimblaðið fróðlegan pistil um „tilgang stjórnarsamvinn- unnar“. Þar segir: „Þjóðvilja- mönnum gagnar ekki að segja, að þeir séu einungis í samvinnu um ríkisstjórn, en ekki bæjar- stjórn. Öllum er vitað, að meðal helztu forustumanna um stjórn- arsamvinnuna eru einmitt sum- ir hinna atkvæðamestu manna í bæjarstjórn. Fyrir þessum mönn- um vakir, að án náíns samstarfs ríkis og bæjar, muni erfitt að forðast hér erfiðleika og öng- þveiti áður en langt um líð- ur... ." Þetta eru ekki alls ófi'óðlegar upplýsingar, til dæmis fyrir þá, sem úti um land búa og eru nú að reyna að mynda samtök til varnar gegn yfirgangi Reykja- víkurvaldsins á sviði atvinnu-, verzlunar- og menningarmála. Það er samvinna ríkis og bæjar (ekki bæja eða sveita) sem er að- alatriðið. Nýja stjórnin átti að veiða eins konar ríkisbæjar- stjórn. Til þess voru refirnir skoi'nir. Upplönd liöfuðstaðar- ins, skattlöndin og „útskæklarn- ir“ voru ekki með í taflinu. Það voru bærinn og fíkið sem ætluðu að taka höndum saman og hefja nýsköpunina. „Nýja-Ameríka“. Eg gat þess fyrir skemmstu, að í undirbúningi brezku þjóðar- innar til friðaráranna gætti nú rnjög ráðstafana í þá átt, að dreifa atvinnufyrirtækjum, iðn- aði og fólki .um byggðir lands- ins, og jafna aðstöðuna til þess að lifa í ýmsum landshlutum. Eg saknaði Jxessa atriðis xir nýsköp- unarprógrammi íslenzku ríkis- stjórnarinnar og gat þess til, að hún mundi engan skilning hafa á mikilvægi þessa atriðis og enga stefnu hafa í Jxví, nema þá, sem þegar væri komin í ljós — einok- un allra framkvæmda í höfuð- staðnum og einbeiting allra stjórnarathafna við hagsmuni Jxess bæjarfélags. Þarf nú ekki lengur vitnanna við um þetta atriði, Jxar sem Morgunblaðið gefur til kynna, að um þetta hafi beinlínis verið samið af stjórnar- flokkunum. Frá sjónarhóli Jxeirra, sem lxúa úti um land má segja, að eftir þessar upplýsingar sé vandalaust að skera úr í deilunni um „lífæð Reykjavíkur" og „lind dauðans". Stefna stjórnarflokkanna er áreiðanlega „lífæð Reykjavíkur", því að hún miðast öll við hags- muni bæjarins, en hún er jafn- framt „lind dauðans" fyrir alla aðra staði á landi hér. Þar á kyrrstaðan að aukast til þess að Reykjavík geti haldið áfram að gegna því hlutverki, sem borgar- stjórinn þar lýsti í ræðu fyrir skemmstu, en það var, að taka við fólki úr örbirgðinni úti á landi, líkt og Ameríka tók við innflytjendum héðan, þegar ísar og hungur herjuðu á byggðii landsins. „Nýja-Ameríka“ verð- ur nýsköpun emígrantanna. Það er boðskapur stjórnarsáttmálans. N orðlendingur. ERLEND TÍÐINDI. (Framhald af 2. síðu). unum. Hann er sá aðstoðarutan- ríkisráðherra Sovétstjórnarinnar, sem fer með Evrópumál. Hann var þátttakandi í Yalta-ráðstefn- unni. Hann verður ekki talinn léttvægur. Orð hans eru auk þess studd af^stefnu Sovétstjórnarinn- ar víðar en í Rúmeníu, því að ekki er hægt að kalla stjórnir þær, sem komið hefir verið á í Póllandi, Búlgaríu, Júgóslafíu og Albaníu lýræðisstjórnir, nema með því að nota skilgrein- ingu hans. Það væri þó einskis nýtt að deila um skilgreiningar. Þótt. Sovétstjórnin leggi aðra, og stundum öfuga, merkingu í orð- ið „lýðræði“ við það, sem tíðkast í hinum ensku mælandi heimi, hefði það aðeins gildi í fræðileg- um deilum, ef ekki væri sú stað- reynd, að Yalta-^áttmálinn hefir gert þetta orð, „lýðræði", að meginatriði samkomulags stór- veldanna þriggja um Evrópu. Og þetta gefur hinum mismun- andi skilgreiningum orðsins mjög mikla pólitíska þýðingu. í Yalta-sáttmálanum skuld- bundu stórveldin þrjú sig til þess, að aðstoða sameiginlega þjóðir Evrópu, bæði þær, sem. leystar eru undan oki nazismans og hinar, sem eru sigraðir Bandamenn Hitlers „til þess að leysa á lýðiræðislegan hátt hin aðkallandi fjárhagslegu og póli- tísku vandamál. . . . “ „til þess að stofna innlendar ríkisstjórnir, sem séu á breiðum grundvelli fulltrúar fyrir öll lýðræðisleg öfl.“ Þetta orð „lýðræðislegur", var notað á sama hátt í sam- komulaginu í Yalta um Pól- landsmálin og um Júgóslafíu. Það er því ekki hægt að komast hjá því, að renna grun í, að árangur Yalta-ráðstefnunnar að þessu leyti hafi ekki verið sam- komulag, heldur misskilrting- ur........ Yalta var þriðja tilraunin til þess að finna samkomulags- grundvöll fyrir stórveldin Jxrjú. Fyrsta tilraunin var gerð með brezk-rússneska bandalagssátt- málanum. Megináherzla var þar lögð á afskiptaleysi af innanríkis- málum þriðja aðilans, (annarra Evrópuríkja). Þetta atriði reynd- ist ekki framkvæmanlegt. Önn- ur tilraunin, aldrei staðfest í sátt- mála, var Teherantímabilið. þar sem gert var ráð fyrir sérstökum áhrifasvæðum. Það varð til þess að tefla í tvísýnu góðri sam- vinnu Bandamanna. Þriðja til- raunin er Yalta-samkomulagið um stofnun „lýðræðis“ í hinum ýmsu löndum. Það er því hin mesta nauðsyn, að samkomulag verði um eina, glögga skilgreiningu á þessu sögulega orði“. Það er fróðlegt, að) bera þessi ummæli hins brezka blaðs og hins rússneska ráðherra, saman við afstöðu kommúnistanna hér til lýðræðis. Nýjasta „taktik" Jxeirra, er að kalla Framsóknar- menn nazista og dýrkendur Hitlers! Áður höfðu þeir nefnt helziu forvígismenn Breta fas- ista, í sambandi við Grikklands- málin. Það er gaman að minn- ast þess nú, í sambandi við þessa einkennilegu lýðræðisást komm- únista, hvernig söng í þeim árin 1939—1941, meðan Rússar voru í bandalagi við Þjóðverja. Þá var það „smekksatriði" aðeins hvort menn voru með nazistum eða á móti þeim og þá prentuðu þeir í blöðum sínum nafnalista yfir þá rnenn, sem umgengust brezka herinn, sem hér dvaldi, á vinsam- legan hátt, meðan Bretar stóðu einir í baráttunni við villi- mennskuna. Framvegis tek ég ekki efni til plyseringar. Ingibjörg Sigfúsdóttir, Brekkugötu 5. Quillaja- börkur til hreingerninga Stjörnu Apóteh Skíðalandsmótið fór fram á Isafirði fyrir og eftir páskana, hófst 29. marz og var lokið 3. apríl. Keppendur voru 45 alls. Þar af voru 4 frá 1. B. A. og að- eins 1 frá 1. B. S. (íþróttabandal. Siglufj.). Verður hér lítillega getið um úrslit og þó frekar þær greinir, sem þessir 5 Norðlend- ingar tóku Jxátt í. Samanlagt ganga og stökk: Sigurvegari Guðm. Guð- mundsson, í. B. A., hlaut 456,4 st., heiðursheitið Skíðakóngur íslands" og Konungsbikarinn. Næstur varð Jónas Ásgeirsson, í. B. S„ eini Siglfirðingurinn, 440,1 st. í 18 km. göngu, A- flokki, varð 1. Guðm. Guðmundss. á 77 mín 18. sek., 240 st. 2. Sigurjón Halldórss., í. B. í., 80 mín. 32 sek. 3. Jónas Ásgeirsson 82 mín. 42 sek. 210 st. Eyrstur varð í B-flokki Reynir Kjartansson, í. B. R. En Reynir er þekktur á mótum hér nyrðra og er Þingeyingur. Stökk, A-flokkur: 1. Jónas Ásgeirsson (stökk 25,5 og 24,5 m.), 230,1 st. 2. Guðm. Guðmundsson (stökk 23,0 og 24 m.), 216,4 st. 3. Sig. Jónsson, í. B. í. (stökk 20,5 og 21,0 m.), 194,5 st. Svig, A-flokkur: 1. Guðm. Guðmundsson, 238,8 sek. Svigmeistari íslands 1945. 2. Magnús Brynjólfsson, í.' B. A., 245,0 sek. 3. Jón M. Jónsson, í. B. R., 246,2 sek. Jónas Ásgeirsson varð sá 4. í röð- inni þarna og 2. í röðinni í B-fl. varð Finnur Björnsson frá í. B. A. Slalom-bikar Litla skiðafélags- ins — fyrir hópkeppni í svigi — unnu fjórmenningarnir frá Ak„ sveit í. B. A. Keppni í bruni fór’fram síð- asta daginn og lauk svo í A-fl.: 1. Jón M. Jónsson, í. B. R. 2. Magnús Brynjólfsson, í. B. A. 3. Hreinn Ólafsson, í. B. A. Ekki ber fréttum alveg saman um röð keppenda í sumum greinum og verður leiðrétt í næsta blaði, ef hér er eitthvað mishermt. Víst má segja, að Norðlend- ingarnir stæðu sig vel á þessu móti, svo fáliðaðir, sem þeir voru. Vegna samgönguerfiðleika gátu Siglfirðingar ekki kornið þangað fleiri skíðamönnum. En á skírdag hófst skíðamót Siglu- fjarðar og væri æskilegt að fá fréttir af því til birtingar hér í blaðinu — og svo fleira um íþróttamál Siglfirðinga. Fjórmenningarnir frá Akur- eyri voru væntanlegir heim með hraðferð frá Reykjavík í gær.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.