Dagur - 06.12.1952, Blaðsíða 1

Dagur - 06.12.1952, Blaðsíða 1
DAGUR kemur nœst út á miðviku- dag. Auglýs. sé skilað fyr- ir kl. 2 e. b. á þriðjudag. Blaðið heimsækir á næstunni ýmsar verzlanir í leit að jéla- gjöfum. Sjá blaðsíðu 2. XXXV. árg. Akureyri, laugardaginn 6. desember 1952 51. tbl. Sumartíð í desember Á sama tíma scm Lundúnaútvarpið tilkynnir kaldasta nóvember í London síðan 1925 og blöðin í París segja frá 3 þumlunga snjólagi þar í borginni, ríkir hið dásamlegasta hlýindatímabil hér á norður- hjara heims, snjólaust alls staðar nema í efstu hlíöum, vegir eins og um sumardag, blóm í görðum. Bærinn okkar hér og umhverfið hef- ur verið friðsælt og fagurt nú hinar síðustu vikur. Birtan er orðin lítil — aðeins fáar klst. á dag — það eru mestu mcrki árstímans. — Þannig leit Akureyri út nú í vikunni, þegar þcssi orð eru skrifuð, snjórinn cr sízt meiri nú cn myndin sýnir, sem þó er tekin í júní 1951 af hinum ágæta sænska Ijósmyndasm. Jöran Forsslund er þá var hér. Bæjarstjómin í Bergen sendir Akureyri stórf jólafré - kom með Gullfossi fil Reykjavíkur í gær Fregnir erlendra blaða af landhelgismálinu eru lifaðar af áróðri Brefa Fréttastofa Associafed Press sendi blöðum um heim allan fregnir af verkfalli Grimsby-manna Bæjarstjórnin í Bergen í Nor- egi hefur gefið Akureyrarbæ stórt og vcglegt jólatré, sem koin til landsins með Gullfossi í gær og fæst vonandi flutt norður í tæka tíð, þrátt fyrir vcrkfallsástandið. Bæjarstjóranum hér barst fyrir nokkru tilkynning um gjöfina. Hugmyndin mun hafa komið frá norska skógræktarfólkinu, sem hingað kom sl. sumar. Farar- stjóri Norðmannanna til íslands er blaðamaður frá Bergen og á hann sæti í bæjarstjórninni. Mun hann hafa beitt sér fyrir málinu og er tréð hingað komið sem vin- argjöf frá Bergensbúum, með sérstakri kveðju frá skógrækfar- fólkinu. Gefendurnir hafa beðið Skóg- rækt ríkisins að annast um tréð í Reykjavík og vinna að því að koma því norður. Hvar verður tréð sett? Bæjarmenn hér munu kunna frændum okkar í Noregi beztu þakkir fyrir þessa ánægjulegu vinargjöf og hugsa gott til að láta hana prýða bæinn um jólin. Ekki hafði verið ákveðið af bæjarins hálfu í gær, hvar láta skyldi tréð standa^ en vonandi verður því valinn góður staður — í hjarta bæjarins. „Egypfinn” kominn í bókaverzlanir Hin fræga saga finnska skálds- ins Mika Waltaris, „Egyptinn“, er komin í bókaverzlanir í mjög fallegri útgáfu frá Bókaforlagi Odds Björnsonar hér í bæ. Þetta mun vera ein eigulegasta — en þó ein ódýrasta — bókin á bóka- markaðinum í ár. DAGUR Blaðið kemur næst út á venjulcgum tíma á miðviku- dagsinorgun. — Auglýsingum þarf uið skila fyrir kl. 2 á þriðjudag. — Auglýscndum er sérstaklcga bent á, að hlaðið litprcntar nú auglýsingar, ef sérstaklcga cr um það samið. Hafið samband við afgrciðsluna fyrr en seinna, því að aðeins cru fá blö'ð til jóla! Ólafsfirðingar faka fisk úr Reykjavíkurtogurunum í fyrradag og gær lönduðu togararnir „Ilallveig Fróða- dóttir" og „Jón Þorláksson“ talsverðu magni af fiski í Ól- afsfirði, til hraðfrystingar og söltunar, og er búizt við því að áframhald verði á þessum löndunum. Verkamannafélagið í Ólafsfirði hefur leyft upp- skipunina. Er mikil atvinna í Ólafsfirði uin þessar mundir og vinna fyrir alla, sem geta unn- ið. — Alþýðusamhandsstjórnin mun líta þessar sjálfsbjargar- aðgerðir Ólafsfirðinga óhýru auga og mun hafa krafizt þess að landanir verði stöðvaðar, cn ekki hefur komið til þess enn. Tíð er með eindæmum góð í Ólafsfirði, og bílferðir yfir Lág- liciði og Siglufjarðarskarð eins og um bezta sumardag. Umsóknir um fjárfesiingar- leyfi fyrir 31. desember Fjárhagsráð hefur auglýst frest til að sækja um fjárfestingarleyfi á næsta ári og til þess að fram- lengja leyfi frá þessu ári, ef fram- kvæmdum er ekki lokið^ til 31. des. næstk. En öllum þeim, sem hafa í huga að hefja fjárfesting- arframkvæmdir, eða hafa ekki lokið framkvæmdum, sem hafn- ar eru á þessu ári, bent á að sækja í tíma. Framsóknarvist í kvöld Munið Framsóknarvistina, sem haldin verður að Hótel KEA og hefst kl. 9, stundvís- lega. — Fyrst verður spiluð Framsóknarvist, þá úthlutað verðlaunuin og einast dansað. Fjögurra manna hljómsveit leikur fyrir dansinum. Fjölmennið á seinustu vist- ina, sem haldin verður á þessu ári. Frá stjórnmálanám- skeiði F. U. F. Á fimmtudagskvöldið flutti Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri, erindi á nómskeiðinu um rætur að stofnun Framsóknarflokksins og upphaf hans. í gærkvöldi flutti Kristinn Guðmundsson, skattstj., erindi um fjármál og stjórnmál. Á morgun kl. 2 e. h. hefst sein- asti fundur námskeiðsins. Að honum loknum verður námskeið- inu slitið mejð sameiginlegri kaffidrykkju allra þeirra, sem sótt hafa námskeiðið. Associated Press fréttastofan — ein stærsta fréttastofa veraldar, sem sendir fregnir til þúsunda blaða um heim allan daglega, sendi fregnir af landhelgisdeil- unni við Breta út um allan heim, frá fréttariturum sínum í Ilull og Grimsby. Birtu blöð í mörgum löndum fréttaskeyti þessi, m. a. sum amerísku stórblöðin. Litaðar fregnir. Enda þótt rétt sé skýrt frá í meginatriðum atburðunum í Hull og Grimsby, slær út í fyrir frétta- riturunum þegar þeir fara að skýra frá tilefni deilunnar. Til dæmis er svo frá skýrt, í AP fréttaskeyti frá Hull 21. nóv. sl., að nýja landhelgisreglugerðin ís- lenzka „svipti brezka fiskimenn fiskimiðum, sem þeir hafa lengi stundað“, en ekkert er getið um að reglugerðin nái til annarra en Breta, til dæmis íslendinga sjálfra.' Ókunnugir munu skija frásögnina á þá leið, að Bretar einir hafi verið útilokaðir, og Iðja, félag verksmiðjufólks hér á Akureyri, hafði fuud um verk- fallsmálin sl. þriðjudagskvöld og var þar samþykkt með talsverð- um meiri hluta að hafna tilmæl- um Alþýðusambandsstjórnarinn- ar um samúðarverkfall. Á sl. sumri var fellt í Iðju að segja upp samningum frá 1. des. eins og Alþýðusambandið hafði lagt til. Fláttskapur kommúnista. Kommúnistar beittu sér gegn því í sumar, að farið væri að vilja Alþýðusambandsstjórnarinnar í Iðju og samningum sagt upp frá 1. des. Vitað er og, að sumir for- vígismenn þeirra hér, beittu sér gegn samúðarverkfalli nú. En heilindin í allri starfsemi komm- únista eru opinberuð í blaði þeirra, sem út kom hér í gær. Þar ráðast þeir með skömm- um að Iðju fyrir að hafa ekki samþykkt samúðarverkfallið og ástæðan er sú, segir í fregninni, að aðgerðirnar eru „nauðsynleg- ar til að vernda miðin, að sögn íslendinga.“ Ekkert er á það minnst, að aðgerðir íslands séu að áliti íslendinga löglegar að- gerðir á eigin yfirráðasvæðum og í öllum þessum fregnum er forð- ast að minnast á dansk-brezka samninginn frá 1901, sem ísland sagði upp með lögformlegum hætti. Skaðlegur áróður. í þesum fréttaflutning felst skaðlegur áróður fyrir málsstað íslands og munu hér enn vera fingraför togaraeigendanna og þeirra fjársterku afla, sem styðja við bakið á þeim í deilunni. Nauðsynlegt virðist að rödd ís- lands heyrist á alþjóðlegum vett- vangi. Á því hefur lítið borið enn sem komið er, t. d. ekki í stór- blöðum heimsins svo að orð sé á gerandi. Vinna þarf að því að fá þesu breytt, svo að aðgerðir Breta gagnvart okkur sjáist í réttu ljósi en ekki röngu eins og í AP- fregnunum frá Hull og Grimsby. kalla það smánarblett, sem „diudlar atvinnurekenda“ liafi komið á félagið. (Framhald á bls. 8). Nýtt andlit á j Alþýðuflokknum Síðastl. miðvikudagsmorgun lauk Alþýðuflokksþinginu í Rvík og urðu þar söguleg átök. Var Stefán Jóhann Stefánsson felldur frá formannskjöri með nokkrum atkvæða mun, en Hannibal Valdimarsson kjörinn. Skipt var um fleiri menn í trúnaðarstöðum og virðast hinir yngri, róttækari menn nú hafa tekið forustuna. — Samþykktir þingsins hafa enn ekki borizt hingað, svo að unnt sé að skoða nánar, hvernig það lít- ur út hið nýja andlit Alþýðu- flokksins, en nokkra athygli mun það vafalaust vekja. Iðja á Akureyri fekur ekki þáti í samúðarverkfallinu Blað kommúnisfa ræðsf á félagið með skömmum - forvígismenn þeirra unnu þó að því, að tilmælum Alþýðusambandssfjórnar væri hafnað!

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.