Dagur - 24.11.1954, Blaðsíða 1

Dagur - 24.11.1954, Blaðsíða 1
AKUREYRINGAR! Slyðjið hraðfrystihússmál- ið! Kaupið hlutabréf Ú. A. DAGUR kemur tvisvar í viku til jóla, á miðvikudögum og laugardögum. XXXVII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 24. nóvembetr 1954 51. tbl. Nduðsynieg! að iá nýja vélbáfa fil Eyja- ar í sfað beirra, §m seldir ero buri Möðruvallakirkja í Hörgárdal. Myndin er tekin sl. sunnudag. Menn horíðu á för þlna, ó sönprar eru í fa Hátíðlég atliöfn í Möðruvallakirkjii s.l. sunnud., er kirkjiiorganistinn var kvaddur eftir 50 ára starf Á sunnudaginn var þess minnzt með hátíðlegum hætti, að orgel- lcikarinn og forsöngvarinn i Möðruvallakirkju um áratugi, Jón Kristjánsson frá Glæsibæ, fyrrum bóndi í Bragholti, lætur af starfi En hann lék fyrst i kirkj- unni 1904 og hefur verið kirkju- organisti lengst af síðan, þótt nokkur hlé hafi orðið á. Séra Sigurður Stefánsson pró- fastur flutti fallega prédikun og minntist gildi söngs og tóna í til- beiðslu guðs. Valdi hann sér að texta þessi orð úr 68. sálmi Ða- víðs: ,.Menn horfðu á för þína, ó guð. Söngvarar eru í farar- broddi“. Séra Sigurður fór við- urkenningarorðum um allt starf Jóns fyrir kirkju og söfnuð um svo langan tíma og lofaði þá fölskvalausu virðingu og ást, er hann bæri til tónlistarinnar og kirkjunnar. Fyrsta orgelið fyrir 80 árum. Að lokinni messu ávarpaði séra Sigurður kirkjugesti og rakti með nokkrum orðum sögu oigel- leiks í Möðruvallakirkju. En þangað kom fyrsta orgelið, er fluttist hingað til héraðsins, og var það árið 1875. Var fyrst leikið á orgelið þá um hausttð. Eru því ekki nema tæp 80 ár frá því að orgeltónar hljómuðu fyrst í ey- fii-zkri kirkju. Fyisti organisti kirkjunnar var Olafur Tryggvi Jónsson frá Skriðu, síðar bór.di í Dagveroartungu, en síðan hafa aðeins fáir menn gegnt starfinu. Þá ávarpaði formaður sóknar- nefndar, frú Þóra Stefánsdóttir, hinn fráfarandi organista, þakk- aði honum störfin og afhenti hon- um fallegan borðlampa að gjöf frá sóknarnefndinni. Var lampinn svo vígður með því að kveikt var á honum á altarinu Að lokinni messu sat organistinn, söngfólk, sóknarnefnd og nokkrir aðrir gestir kaffiboð presthjónanna heima á staðnum. Við kirkjuoi-ganistastai finu tekur nú Jóhann Ó. Haraldsson tónskáld. Hannibalistar og komm- únistar náðu undir sig Alþýðusambandinu Þingi • Alþýðusambands ís- lands lauk í Reykjavík í gær- morgun. Það gerðist sögulegast á þessu þingi, að samvinna tókst með Iiannibai Valdimarssyni og fylgismönnum hans og kommúnistum, en lýðræðis- sinnaðir Alþýðuflokksmenn og aðrir lýðræðissinnar urðu und- ir. Var Hannibal kjörinn forseti sambandsins og með honum í stjórn 4 Hannibalistar aðrir og 2 kommúnistar. Voru það Ed- vard Sigurðsson og Snorri Jónsson frá kommúnistum og Þuríður Ilannesdóttir, Magnús Bjarnason, Ásgeir Guðmunds- son og Kristján Guðmundsson frá Hannibalsdcild Alþýðu- flokksins. Fulltrúar í sam- bandsstjórn utan af landi voru kjörnir 2 hafnfirzkir kratar. — Alþýðublaðið var í gær mjög harðort um allt framterði Hannibals, en annars er enn allt á huldu, hvernig Alþýðu- flokksforustan snýst við þess- um tiðindum, og hver áhrif valdataka Hannibals og komm- únista kann að liafa á stcfnu Alþýðusambandsins. En liætt er við, að sagan frá 1938 endur- taki sig og kommúnistum tak- izt enn að liöggva skarð í þunn- skipaða fylkingu Alþýðufl. Jón Kristjánsson frá Glæsibæ í kirkjudyrum á Möðruvöllum sl. sunnudag. Jón útskrifaðist ungur frá IHöðruvallaskóIa, nam orgel- leik hjá Haraldi PáJssyni á Dag- vcrðareyri og Magnúsi Einarssyni organista og fór með songfélaginu Heklu í Noregsi'erðina 1905. — Þrír bátar í smíðum Iijá Skipasmíða- stöð IÍEA - lagt til að Akurevrabær styðja litgerðarmaim hér til að kaupa 76 lesta vélbát Á bæjarstjórnarfundi í gær var til umræðu og ályktunar tillaga bæjarráðs um að styðja Júlíus Halldórsson útgerðarmann hér í bæ til þess að kaupa 70 lesta vélbát, sem nú er í smíðum hjá Skipasmíða- stöð KEA, með því að ábyrgjast 300 þúsund kr. lán til kaupanna. Stofnað félag til að sýna klássískar kvik- myndir Verið er að stofna liér fclag, sem bera á nafnið Filmía, og er hliðstætt félagsskap með því nafni í Reykjavík, og raunar víða um lönd. Tilgangur félags- skaparins er að veita félags- mönnum kost á að sjá klassísk- ar kvikmyndir, sem ekki er að 1 vænta að komi til sýningar á kvikmyndahúsunum. Er þetta fjölmennt félag orðið í Reykja- vík og starfar af fjöri. Er það félag í sambandi við Det danske Filniia Museum. Félagið hér | mun hafa náið samstarí við | Reykjavíkurfélagið. Það eru j þeir Magnús Björnsson verzl- unarmaður og Sig. Jónasson skrifstofumaður, scm bcita sér fyrir félagsskap þessum. Geta þeir, sem áhuga hafa á máíinu,' látið skrá sig í hókabúð Axels. Félagsréttindum fylgir að- gangur að öllunt kvikmynda- sýningum félagsins. Þetta félag mun fá fyrstu myndina norður næstu daga og liefjast sýningar í Nýja-Bíó um helg- ina. Þetta cr myndin „Stórlyg- arinn Munchausen“, þýzk mynd.’gerð á stríðsárunum. — Aðeins félagsmenn fá aðgang að þessum sýningum. Vildi bæjarráð veita ábyrgðina að því tilskildu, að til kaupanna fáist 200 þús. kr. atvinnubótafé frá ríkissjóði, og gangi það til lækkunar á ábyrgðinni, ennfrem- ur að settar verði tryggingar, aðr- ar en veð í skipinu, sem bæjar- stjórn getur sætt sig við. Gert er ráð fyrir að Fiskveiðassjóður láni allt að 3/4 kostnaðarverðs til kaupa á bátnum. Sambykkti bæj- arstjórn þessa tillögu bæjarráðs og er þar rheð reynt að stuðla að því, að vélbátaflota bæjarmanna verði haldið í horfinu, en ó því er hin mesta pauðsyn. Svo hovfir nú, að tvö skip verði flutt héðan buitu, og nýlega hefur stór vél- bátur verið seldur suður á land frá Dalvík. Má því segja, að óvænlega horfi með vélbátaútveg hér í Eyjafirði, ef ekki er unnið kappsamlega að því að fá ný skip í stað þeirra, sem í burtu eru seld. Þrír bátar í smíðum hjá KEA. Auk þessa 70 lesta báts, sem er í smíðum hjá Skipasmíðastöð KEA, er nú að hefjast smíði tveggja minni vélbáta, 7—8 smá- lesta, fyrir eyfirzka útvegsmenn. Báðir minni bátarnir eru smíðað- ir fyrir útvegsmenn á Árskógs- strönd, annar fyrir Sæmund Benediktsson á Litla-Árskógs- sandi, hinn fyrir þá Kjartan Valdimarsson og Sveinbjörn Jó- hannsson á Hauganesi. Þessir bátar eru báðir gerðir eftir teikn- ingu Tryggva Gunnarssonar skipasmíðameistara, en hann er yfirsmiður á Skipasmíðastöð KEA. 70 lesta skipið er smíðað eftir teikningu Gunnars Jóns- sonar skipasmíðameistara. Ætl- unin er að minni vélbátarnir verði tilbúnir fyrir vertíð í vor, en 70 lesta báturinn fyrir síldar- vertíð. ef kaupandi fæst að hon- um nú fljótlega. En eins og áður er greint frá hér í blaðinu, var hafin smíði á þessum bát án þess að fyrirfram væri vitað um kaup- anda, til þess að viðhalda skipa- smíðaiðnaði hér og auka atvinnu. Á Skipasmíðastöð KEA starfa nú 13—14 smiðir og hefur verið hörgull á smiðum í seinni tíð. Frá smíði 70 lesta vélbáts á Skipasmíðastöð KEA- Myndin var tekin i sumar er leið. Smíði bátcins er nú miklu lengra komið, en myndin sýnir. Maðurinn á myndinni er Tryggvi Gunnarsson skipasmíða- meistari, yfirsmiður á skipasmíðastöðinni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.