D AGU R sendir lesendum sinum óskir um f arsælt ár. Daguk 12 SÍÐUR DAGUR kemur næst út n.k; miS- vikudag, 12. janúar. XXXVIH. árg. Akureyri, miðvikudaginn 5. janúar 1955 1. tbl. Álasundstréð á Ráðhustorgi Jóiagjöf Alasundsbúa til Akureyringa jólatré mikið og fagurt var afhent við hátíðlega athöfn á Ráðhústorgi, eins og til stóð, 22. desember og þá kveikt a því. Sverrir Ragnars, vararæðismaður Norðmanna hér, flutti ræðu og afhenti gjöfina, en Þorst. M. Jónsson, forseti bæjarstjórnar, veitti henni viðtöku og þakkaði með ræðu. Barnakór Akureyrar söng og Björgvin Jörgensson söngstjóri flutti ávarp. Tréð er a m. k. 11 metra hátt og mjög fagurvaxið. Skreyting tókst mjög vel og eiga starfsmenn rafveitunnar, garðyrkjuráðunaut- ur, slökkviliðsmenn og aðrir, er að því unnu, þakkir skildar fyrir sitt verk. Á nýjársdag var barnasamkoma við tréð, séra Kristján Róbertsson talaði en Lúðrasveitin lék. Gengið var umhverfis tréð og jólalög sungin. Var þarna fjöldi manns, áhorfendur og þátttak- endur. Að öllu samanlögðu hefur norska jólatréð orðið bæjarbúum til mikillar ánægju. Tréð var sannkölluð prýði hév á jólunum. Útsvörin áælluð 10.6 milljóntr vtð fyrri umræSu fjárhagsáæfIunar í bæjarsljórn -a Breyting á lokunartíma sölubúða gengur í gildi Nú um áramótin verður tek- ið upp nýtt fyrirkomulag á sölutíma sölubúða í bænmn og er árangur af samningum Fé- lags verzlunar- og skrifstofu- fólks og verzlananna í bænum. Verður búðum framvegis lokað kl. 1 á laugardögum, í stað kl. 4, sem verið hefur á vetrum um nokkurt árabil. Búðir verða opnar á föstudögum til kl.7 síðdegis. Ráðgert að 750 þúsund króna famlag til hrað- frystihúss verði tekið með útsvörum í ár Síðasti bæjarstjórnarfundur fyrra árs hér á Akureyri var haldinn 28. desember og var aðalmál fundarins að ræða f jár- hagsáætlun kaupstaðarins fyrir árið 1955, og var þetta fyrri umræða, en seinni umræða mun fara fram nú innan skamras. Mun áætluniii væntanlega taka einhverjum breytingum við þá umræðu. Útgjöld hækka. En aðalsvipmót áætlunarinnar er hækkun útgjalda bæjarins miðað við áætlunina í fyrra. Eru niður- stöðutölur nú 13,6 millj., en voru 11,7 millj. við fyrri umræðu í árs- lok 1953. Utsvör eru nú áætluð tíkissfjórnin sfylur nágranna- kaupsfaði fii fogaraúfgerðar Þau tíðindi harfa gerzt í at- vinnumálum hér nyrðra, að ríkis- stjórnin mun styðja nágranna- kaupstaði Akureyrar til togara- kaupa og togaraútgerðar, en hin mesta þörf er að bæta atvinnu- ástand þessara staða. Enn er ekki gengið frá því, hvernig þessari útgerð verður háttað, eða hverjir standa að henni, en talið er að Olafsfirðing- ar munu helztu hluttakendur í væntanlegu hlutafélagi, auk þess sem Sauðárkróksbúar og e. t. v. Framhald á 2. síðu). Akueyringar sæmdir fálkaorðu Meðal þeirra, sem forseti fs- lands sæmdi heiðursmerkjum fálkaorðunnar á nýjársdag, eru Davíð Stefánsson skáld frá Fagraskógi, sem hlatit stórridd- arakross fyrir bókmenntastörf, en Davíð verður sextugur 21. þ. m., og Ólafur Thorarensen bankastjóri hér í bæ, er hlaut riddarakross fyrir störf að bankamálum. 10,6 millj., en voru áætluð röskar 8 millj., í síðustu áætlun, en urðu nokkru hærri endanlega. Stærsti nj- liður áætlunarinnar er 750 þúsund króna í'ramlag til hlutabréfakaupa í Utgerðaríclagi Akureyringa. Leið- ir það af samþykkt bæjarstjórnar í sumar, að bærinn legði þetta fé fram, og var engin fjáröflun undir- búin í sambandi við þá samþykkt. Helztu tekjuliðir. Helztu tekjuliðir bæjarins eru, samkvæmt áætluninni nú við fyrstu gerð (Tölur frá í fyrra i svigum): Skattar af fasteignum 1,5 millj. (1.4 millj.), tekjur af jarðeignum 550 þús. kr. (600 þtis), endurgreidd- ir fátækrastyrkir 222 þús. (140 þús.), hluttaka bæjarstofnana í rekstri bæjarins 667 þús. (730 þús.), hlut- ur bæjarins af stríðsgróðaskatti 5 þús. (52 þús.), sætagjald kvikmynda- húsa 20 þús. (20 þús.), útsvör 10,601,550,00 (11,755,100,00). At- diugandi er, að nú er ráðgert að leggja á mun fleiri gjaldendur en í fyrra vegna stækkunar lögsagnar- umdæmis bæjarins. Helztu gjaldaliðir. Vextir og afborganir af föstum lánum 643 þús. (284 þús.) og veld- ur afborgun af sjúkrahússláni hækk- uninni, en sú afborgun er 460 þús. (Framhald á G. síðu). Allir togarar Akureyringa voru hér við bryggjur á jólunum Allir togarai- Akureyringa náðu því að vera í höfn á jólum, þótt tveir þeirra yrðu síðbúnir vegna óveðurs í hafi, á leið frá Þýzkalandi. Komu þeir á jóladagskvöld, Svalbakur fyrr, en Kaldbakur seinna, og var ljósum prýddur stafna í milli og með fallegt jólatré á stjómpalli. Harðbakur og Sléttbakur komu skömmu fyrir jól, en Jör- undur á aðfangadag, eftir langa útivist að heiman að síldveiðum í Norðursjó. Að morgni annars jóladags gat því að líta, hvar allur togaraflotinn lá hér við hafnar- bryggjur og samfögnuðu bæjarmenn sjómönnunum að hafa náð heim til að njóta þessarar stundar með ástvinum sínum. Myndirnar hér að ofan sýna Jörund t. v., þá Svalbak qg Kaldbak við Torfunefsbryggju syðri og loks Harðbak og Sléttbak við nyrðri Torfunefsbryggju. Togarar Útgerðarfélags Akureyringa em farnir á veiðar.