Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						12

Daguk

Miðvikudaginn   5.   janúar   1955

Frægur píanósnillingur heldur

hljómleika hér í kvöld

Ervin Laszlo meðal fremstu yngri píanóleikara

..............

í kvöld kl. 9 hefur ungversk-

ameríski píanósnillingurinn Ervin

Laszlo píanótónleika fyrir al-

menning í Nýja-Bíó hér á Akur-

eyri. Eru tónleikarnir haldnir að

tilhlutan ísl.-ameríska félagsins

hér, en Laszlo kemur hér við á

leið til Evrópu, þai sem hann

mun halda marga tónleika á

næsturini.

Kom Laszlo hingað til lands um

leið og fiðlusnillingurinn Isaac

Stern, sem heldur hljómleika í

Reykjavík nú í vikunni. Laszlo

mun leika í mörgum helztu höf-

uðborgum Evrópu að aflokinni

heimsókninni til íslands.

TJngur snillingur.

Ervin Laszlo er áðeins 22 ára að

aldri, en hefur þegar mikinn orð-

stír sem glæsilegur píanóleikari.

Á sl, ári fór hann hljómleikaferð

um Evrópu, og hlaut nvjög lof-

samlega dóma. En hann var þeg-

ar kunnur í Evrópu. Hann er

ungverskur að ættum, fæddur í

Búdapest og stundaði nám þar

hjá tónskáldinu Dohnanyi, hlaut

Franz Liszt verðlaunin 1946 fyrir

píanóleik og árið eftir 1. verðlaun

á alþjóðlegu tónlistarmóti í Genf.

Var hann yngsti þátttakandinn

þar. Laszlo kom fyrst fram 9 ára

gamall í Búdapest og lék þá með

fílharmonísku    hljómsveitinni    í

Kyrrlátt um jól og

áramót

Lögreglan hér á Akureyri skýrði

blaðinu svo frá, aff tíðindalaust

háfi verið hjá heiini að kalla u'm

jólin og áramótÍB.. Engar óspektir

urðu hér á gamlaárskvöld og lög-

reglan telur ölyun á opinberum

sanikoiiiuiii og í bænum almennt

hai'a verið með minnsta móti á

nýjársnótt. Hefur ástahdið að þessu

leyti farið batnandi hér hin síðustu

Fyrsti fimdiir Bænda-

klúbbsins

Bændaklúbburinn heldur fyrsta

fund sinn á þessu ári næstk.

þriðjudag að Hótel KEA kl. 9 e. h.

Rætt verður um heyverkunarað-

ferðir eða nautgriparækt.

borgínni, en hélt síðan sjálfstæða

hljómleika.

Til Parísar kom hann árið 1947,

eftir að hafa flúið land með móð-

ur sinni ,en árið 1948 fluttu þau

til Bandaríkjanna og hafa átt þar

heima síðan. Á hljómleikunum

hér leikur Laszlo þessi verk:

Sónata nr. 7 óp. 83 eftir Pro-

kofiev, Cairnaval eftir Schumann,

12 etudur eftir Chopin, L'-

Arabesque eftir Debussy og La

Legende eftir Albéniz.

Einu hljómleikarnir hér á landi.

Þetta verða sennilega einu

hljómleikarnir, sem Laszlo heldur

hér á landi.

Aðgöngumiðar.

Aðgöngumiðasalan er í Ferða-

skrifstofunni til kl. 6 í dag, en ef

eitthvað verður óselt í kvöld,

verða þeir miðar seldir við inn-

ganginn.

Hljómleikarnir verða ekki end-

urteknir. Er þetta því eina tæki-

færið til að hlýða á þennan ágæta

listamann, einhvern hinn fremsta

píanósnilling, sem bæinn hefur

gist í áratugi.

Ymis líðindi úr nágrannaby

Álfadans og brenna á

sunnudagskvöld

íþróttafélagið Þór efnir til

brennu og álfadans á sunnu-

dagskvöldið kemur á Þórsvelli

á Gleráreyrum. Verður gerS

mikil og vegleg brenna og álfar

dansa þar undir handleiðslu

. álfakóngs og drotrningar. —

Verður þetta eina stórbrennan

nú um áramótin, en á gamlárs-

kvöld héldu unglkigar nokkrar

niinni liáttar brennur á nokkr-

um slö5um í bænum.

80 börri á sanikomuáð

Hrafnagili

Úr Hrafhagflsh-.-eppi 4 jan.

Kvenféiagið Iðunn í Hrafna-

gilshreppi hélt barnasamkomu að

Hrafnagili nú um hátíðirnar. Þar

voru sýnd 4 smáleikrit. Auk þess

var jólatré og jólasveinn og dans

stiginn á eftir. 80 börn mættu á

samkomu þessari.

Hundrað Dalvíkingar

farnir í atvinnuleit

til Suðurlands

Úr Svarfaðardal 3. jan.

Það vekur ugg manna á Dalvík,

hvað margir leita nú atvinna til

Suðurlands, bæði konur og karl-

ar. Þrír stórir langferðabílar og 3

minni bílar, lögðu af stað suður

nú í vikunni og fluttu um 100

manns frá Dalvík og að auki frá

Ólafsfirði. Flest er fólk þetta á

bezta aldursskeiði og er ráðið til

ýmissa starfa í Vestmannaeyjum,

Sandgerði og fleiri verstöðvum

sunnanlands. Finnst heimamönn-

um dauflegt, sem von er, eftir

brottför þessa fólks, enda er þetta

stór hluti verkfærra manna í

þorpinu.

Leikfélag Dalvíkur hefur nú

sýnt sjónleikinn „Þrír skálkar"

fjórum sinnum í samkomuhúsinu

í Dalvík. Aðsókn er ágæt. —

Barnasamkoma var haldin þar

síðastliðinn mánudag. Barnaskól-

inn og stúkan gengust fyrir

henni.

Ungmennafélag Svarfdæla hélt

upp á 45 ára afmæli sitt 30. des-

ember sl. með fjölmennu hófi. —

Formaður félagsins, Jón Stefáns-

son flutti þar ágætt erindi.

Smárakvartettinn söng. Þar var

einnig spurningaþátturinn ,,Já og

nei" og fleira var þar til

skemmtunar. — Dans var stiginn

fram eftir nóttu. — Ungmenna-

félagið hélt einnig almenna sam-

komu á gamlársdag. Var þar hús-

fyllir Aðgöngumiðar að samkomu

þessari voru jafnframt happ-

drættismiðar að ýmsum góðum

munum.

U. M. F. Þorsteinn Svörfuður

minntist 33. ársafmælis síns með

samkomu að Grund 27. des. Þár

var margt til skemmtunar, rri. a.

upplestur, spumingaþáttur og

fleira. Veitti félagið öllum sam-

komugestum kaffi. Formaðui fé-

lagsins er Þorgils Gunnlaugsson á

Sökku. — Jólaveður voru mjög

góð í Svarfaðardal og færi gott.

Guðsþjónustur voru vel sóttar

um hátíðirnar og jólin í alla staði

ánægjuleg.

Fjöldi Húsvíkinga far-

inn suður í atvinnuleit

- togarakaupin helzta

umræðuefnið nú

Húsavík 4. janúar.

Karl Kristjánsson alþingismað-

ur hefur flutt tillögu í bæjar-

stjórn Húsavíkur um að sett verði

á stofn nefnd til þess að taka þátt

í samningum um stofnun Muta-

félags með öðrum kaupstaða-

búum — og ríkisvaldinu

— um kaup og útgerð togara þess,

sem ríkissjóður keypti af Vest-

mannaeyingum fyrir jólin. Til-

lögu bessari var vísað til bæjar-

ráðs, en víst talið að hún verði

samþykkt einróma. Togarakaupin

fyrirhuguðu og útgerðin í sam-

vinnu við aðra kaupst. nyrðra, er

eitt helzta umræðuefni manna nú

um nýjárið, sem vonlegt er, enda

eru hér mikil tíðindi og góð.

Virðist nú aftur horfa til upp-

byggingár í útgerð. Líklegt er að

tveir nýir 50 lesta bátar bætist í

bátaflota Húsvíkinga á þessu ári.

Hafa verið veitt innflutningsleyfi

fyrir 2 bátum til útvegsmanna

hér.

Fjöldi manna leitar nú suður á

land í atvinnu þar, og fer jafnan

svo um hver áramót, að athafna-

lífið syðra kallar á sjómenn og

marga aðra. Er þá dauflegt fyrir

þá, sem eftir sitja.

Hátíðirnar liðu með ró og frið-

semd í Húsavík. Veður voru fá-

dæma góð. Á gamlárskvöld efndi

íþróttafélagið Völsungur til mik-

illar brennu í Skálabrekku í

Húsavíkurfjalli, en þangað sést

mjög vel hvaðanæfa úr kaup-

staðnum. Gengu Völsungar með

kyndla frá barnaskólanum að

bálkestinum og mynduðu upp-

hafsstafi félags síns með kyndl-

unum. Var að þessu góð skemmt-

un.

Aðeins 3 nemendur í

Laugaskóla yfir jólin

Laugum 4. janúar.

Með batnandi samgöngum

verður það æ tíðara að skólafólk-

ið hverfi úr skólunum fyrir jólin

og dvelji heima fram yfir áramót-

in. — í héraðsskólanum að Láug-

um voru aðeins 3 nemendur yfir

jólin. Á sunnudag og mánudag

dreif skólafólkið að aftur og hófst

kennslan að nýju í gær.

Heilsufar hefur verið gott í

skólanum í vetur, það sem af er,

að öðru leyti en því, að vont kvef

gekk þar um tírna.

Völsungar í Húsavík héldu

fjölmenna samkomu að Breiða-

mýri í Reykjadal um áramótin.

Þar var sungið, lesið upp og Karl

Kristjánsson alþingismaður flutti

ræðu.

Reykjadalsá valt fram kolmó-

rauð og með miklum jakabmði í

hlákunni   á   mánudagirm,   líkast

sem í vorleysingu væri.

—o—

Fljúgandi himintungl. — Rétt

fyrir jólin sat gömul kona, Val-

gerður Sigurðardóttir, við dag-

stofuglugga í Vallholti í Reykja-

dal, Dimmt var í stofunni. Sá hún

þá hvar eldhnöttur allstór kom

yfír ásabrúnir ofanvert við bæ-

inn. Fór hann lágt með jörðu,

enda varaði sýn þessi skamma

hríð. Gamla konan gekk þegar

fram í eldhús til húsfreyjunnar

og sagði henni hvað fyrir hana

hefði borið.

—o—

Jólatrésskemmtun að Laugum.

Kvenfélag Reýkdæla hélt jóla-

trésfagnað fyrir börn hinn 4. jóla-

dag að Laugaskóla, en húsrúm

var þar ærið, þar sem nemendur

nær allir voru í jólaleyfi. Gengið

var umhverfis forkunnarfagurt

jólatré .stuttar kvikmyndir sýnd-

ar og dansað og leikið við börnin.

Öllum veitt súkkulaði og kaffi.

Komu mæður barnanna með

heimabakað brauð ineð sér, en

kvenfélagið sá um veitingar að

öðru leyti.

—o—

hafður sá háttur á, að kirkjukór-

inn situr meðal annarra kirkju-

gesta og syngur í sætum sínum.

Verður það til þess að aðrir

syngja með. Þótt söngflokkurinn

syngi inn í kór við hátíðamessur

verður reynslan sú, að söfnuður-

inn syngur eirinig með þá.

Margar fara í atvinnuleit.  —

Allmargir fóru.í atvinnuleit til

Suðvesturlandsihs eftir áramótin.

Hefur jafrian ¦ verið alimargt

ung fólk heima í Reykjadal árið

um kring, en nú e;r það með fæsta

móti og horfir til hreinna vand-

ræða með fólksleysi heimilanna

ef eitthvað bér út af með heilsu

þeirra fáu, sem' eftir eru, auk þess

sem ¦ félagslíf og skemmtanalíf

hlýtur að véirða í rústum.

Fjármargir einstakling-

ar á Sauðárkróki

Sauðárkróki í desember.

Allmargir hér í bæ eiga ein-^

hverjar skepnur, bæði sér til

hagsbóta og ánægjuauka. Þannig

mun nú vera nálægt 1770 fjár í

bænum.-um. 50 nautgripir og 55

hross. - - Fjárflestu einstaklingar

eiga allt að 90 kindum, en flestir

eiga þó aðeins fáar eða kringum

10 kindur. Heyeign bæjarbúa var

í haust um 8000 hestar og megin-

ið af því taða, enda er ræktun

mikil í bæjarlandinu.

Jólaleyfið í skólunum er byrj-

að. Var viðhöfn að venju, þar

sem haldin voru ,,Litlu jól" í

barnaskólanum með söng og upp-

lestri við kertaljós og skreyttar

skólatöflur. Gagnfræðaskólanem-

endur fengu einkunnabækur sín-

ar með innfærðum fyrstu eink-

unnum vetrarins. Slíku fylgir

ávallt nokkur eftirvænting hjá

hinu unga námsfólki. Jójaleyfin

eru ætíð vel þegin, bæði af nem-

endum og kennurum skólanna,

enda í mörgu að snúast síðustu

daga fyrir jólin.

í barnaskólanum eru um 100

börn, en nemendur gagnfræða-

skólans eru um 60, þar af nálega

fjórði hluti úr nærliggjandi sveit-

um.

í verzlunum á Sauðárkróki var

margt um manninn fyrir iólin,

enda tjaldað því sem til var af

jólavarningi og gluggar skreyttir

til hátíðabrigða. Hér var nú í

fyrsta skipti gerð tilraun með

útiskreytingu, hefur bærinn látið

setja upp ljósaskreytingu við

Kirkjutorgið. Fegrunarfélagið,

sem stofnað var á sl. vori, hefur í

undirbúningi         ljósaskreytingu

framan við kirkjuna. Þetta setur

hátíðasvip á bæinn og verður

vonandi til bess að frekar verði

að þessu gert á næstu árum.

ÞinsíeYsku heiðarnar

bílfærar

Ö

Aukin almenn þátttaka í mcssu-

gerð. Messað var að Einarsstöð-

um annan jóladag. Var það síð-

degismessa, þar sem sóknar-

presturinn, séra Sigurður Guð-

mundsson, messaði einnig að Nesi

í Aðaldal. Það vekur athygli, 'að

þátttaka safnaðarins í messusöng

að Einarsstöðum er meiri en víða

annars staðar. Hefur alloft verið

Fosshóli 4. janúar.

Fljótsheiði er ágæt yfirferðar

öllum farartækjum og Vaðlaheiði

einnig bílfær. Snjóa leysti ört í

hlákunni og jörðin kom angandi

undan snjónum. ,Féð hefur þó

víðast verið á fullri gjöf fram að

þessu og kópalið yfir fengitímann.

— Fjölmenn skemmtisamkoma

var að Yztafelli á milli jóla og ný-

árs. Þar söng kvennakór undir

stjórn Ingu Hauksdóttur og sýnd-

ur var gamanleikur. Síðan var

dansað af miklu fjöri. — í dag

heldur Kvenfélag Ljósvetninga

barnasamkomu að Fosshóli.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12