Dagur - 31.08.1960, Blaðsíða 1

Dagur - 31.08.1960, Blaðsíða 1
I Máuiac.v Fram.sóknarmanna * R tstjóri; Erliní;i'r Davíðssox Skrifstoi a 1 HAFNARSTRÆTt <)0 StMi. H60 . Setminuu og prkntvn a.nnast Prkntverk Odbs Bjöknssonar íí.t. Akurevri s____________________________. Dagur XLIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 31. ágúst 1960 — 39 tbl. Akm.ýsIngast (ÓRi: Jon Sam- ÓEISSON . Ákcangtrinn kostar KR. 100.00 . O'íAKDDATl ER 1. JÓt.í Bl.a»ib kemkr út á miBvikudög- I M or. Á l.AL-CARDÖGL’M (>E<;AK ÁST.FOA WKIR TIL V__________________________________( Ingólfur Jónsson landbúnaðarráðherra skrifaði fjárveit- inganefnd Alþingis í vetur og óskaði að nefndin tæki upp 3ja milljón króna fjárveitingu til kaupa á jarðræktarvélum. En lagt var fram fé í þessu skyni undanfarin ár, þar til Al- þýðuflokksstjórnin felldi fjárveitinguna niður. Þegar leið að afgreiðslu fjárlaga í vetur og formaður fjár- veitinganefndar hafði ekki hreyft ósk Ingólfs ráðherra, gerði Garðar Halldórsson, sem einnig átti sæti í fjárveitinganefnd, þá fyrirspurn til fonnanns nefndarinnar, Magnúsar Jónsson- ar, hvort bæri að líta svo á, að þau mál, sem fyrir nefnd- inni lægju og liefðu ekki verið tekin til afgreiðslu, nytu ekki stuðnings stjórnarinnar. En nieðal þeirra mála var 3ja milljón króna fjárveitingin. Magniis kvað rétt til getið. Þá lögðu Frainsóknarmenn í fjárveitingarnefnd fram tillögu um sömu upphæð til sörnu mála, en stjórnarliðið felldi hana. Við þriðju uinræðu fjárlaga fluttu sömu menn tillögu um 2ja milljón króna fjárveitingu til kaupa á jarðræktarvélum en án árangurs. Stjórnarliðið felldi tillöguna aftur. ING- ÓLFUR JÓNSSON landbúnaðarmálaráðherra greiddi at- kvæði á móti henni. Meðal þeirra, sem einnig greiddu at- kvæði á móti framlagi til vélakaupa voru Magnús Jónsson, Jónas Rafnar og Friðjón Skarphéðinsson. Þessum mönnum finnst ekki ástæða til að auka jarðræktarframkvæmdir og efla landbúnaðinn. En þessir menn og flokksbræður þeirra þykjast þó bera hag bændanna fyrir brjósti, þegar þeir ganga fyrir hvers manns dyr og biðja um atkvæði. — Bændur góð- ir! Sumir ykkar trúa Sjálfstæðisflokknum fyrir málefnum landbúnaðarins. Er ekki komin tími til að endurskoða þá afstöðu? Gengið úr Hofsóskirkju að lokinni vígslu s. 1. sunnudag (Ljósm. E. D.). Fyrsta kirkjan á Hofsósi vígð | Aniiar prestur j [ sækir iim j Blaðinu hafa borizt þær fregnir, þótt ekki séu þær stað festar af biskupsskrifstofu, að Jón Hnefill Aðalsteinsson guð- fræðingur, ættaður af Jökuldal, muni sækja um hið auglýsta prestsembætti hér á Akureyri. Umsóknarfrestur er til 20. september. Hún er, næst Hóladómkirkju, veglegasta kirkja héraðsins, með lienni hækkar svipurinn á Hofsósi, sagði biskupinn við vígslu hennar Biskup íslands herra Sigur- björn Einarsson vígði nýja kirkju á Hofsósi á sunnudaginn var. Hún tekur um 150 manns í sæti, er virðulegt guðshús og vel til þess vandað og er fyrsta kirkja, sem á Hofsósi er byggð. Kirkjan var þéttsetin heima- Aðfarirnar á Akranesi vekja þjóðaratiiygli ílmld og kratar kröfðust þess að Dan- íel Agústínusson bæjarstjóri viki úr starfi - Almenningur mótmælir Halda sætinu Akureyrarpiltarnir hafa sótt = í sig veðrið síðustu kappleik- i ina í fyrstudeildarkeppninni. ; Þeir sigruðu KR með yfir- \ bxu-ðum í Reykjavík fyrir \ skömmu og einnig Fram á = Akureyrarvelli á sunnudag- i inn. Með þessum tveim sið- i ustu leikum liafa knattspyrnu- i menn okkar örugglega tryggt j sér sæti áfram í fyrstu deild, i þótt ekki horfði vænlega i Næsti leikur er við KR á \ sunnudaginn kemur og fer i hann frarn hér. f ráði mun = vera að Akureyrarliðið heim- i sæki vinabæi á Norðurlönd- = um innan skamms. Þau tíðindi gerðust á Akranesi í. síðustu viku á bæjar- stjórnarfundi, að Alþýðuflokks- fulltrúarnir lýstu því yfir, að lokið væri samstarfi vinstri flokkanna í stjórn bæjarmála. Þeir kröfðust þess að Daníel Ágústínussyni bæjarstjóra yrði sagt upp starfi frá 25 ágúst að telja og fluttu tillögu þar um. Tillagan var samþykkt með at- kvæðum Alþýðuflokksmanna og Sjálfstæðismanna. Gegn henni greiddu atkvæði fulltrúar Fram- sóknar og Alþýðubandalags. Allir vinstri flokkarnir höfðu kosningabandalag í síðustu bæjarstjórnarkosningu, höfðu sameiginlega stefnuskrá, náðu meiri hluta og réðu Daníel á- fram bæjarstjóra. Alþýðuflokks- menn hafa nú rofið samstarfið. í bæjarstjórn Akraness eru 4 Alþýðuflokksmenn, 3 Sjálf- stæðismenn 1 Alþýðubandalags- maður og 1 Framsóknarmaður Sá meirihluti bæjarstjórnar, sem samþykkti að víkja bæjar- stjóranum úr starfi, fól Hálf- dani Sveinssyni að gegna störf- um bæjarstjóra fyrst um sinn. Daníel neitaði að standa upp þar sem lög mæla svo fyrir að bæjarstjóri skuli kosinn til alls kjörtímabÉlsins og ástæðurnar fyrir brottvikningunni tylli- ástæður einar, af pólitízkum toga spunnar. Aðalástæðan til að víkja bæjar- stjóra úr starfi er sú, segja í- hald og kratar, að bæjarstjóri hafi ekki látið bæinn greiða að fullu hluta ellilífeyris til nokk- urra vistmanna á Elliheimilinu á Akranesi fyrir síðasta ár. Daníel segir aftur á móti að í mörg ár hafi sú venja ríkt, að hver vistmaður sé ekki reiknað- ur sérstaklega út, og hallinn ekki færður á framfærslureikn- ing einstakra manna, heldur hafi ellilífeyririnn verið látinn ganga óskiptur til elliheimilis- (Famhald á 2. síðu). mönnum og nokkrum gestum. Auk biskups og sóknarprests- ins, séra Árna Sigurðssonar, voru viðstaddir, vígslubiskup Hólastiftis, séra Sigurður Stef- ánsson á Möðruvöllum, prófast- urinn, séra Björn Björnsson á Hólum og fjórir prestar aðrir. Séra Árni Sigurðsson predikaði. Vígslubiskup þjónaði fyrir alt- ari og sleit hátíðinni í kirkjunni. Kirkjukórinn söng undir stjórn Pálínu Pálsdóttur, altarisganga fór fram og athöfnin var öll hin virðulegastar Að vígsluathöfninni lokinni bauð sóknarnefndin gestum til kaffidrykkju í bamaskóla stað- arins. Sátu þar hátt á annað hundrað manns undir borðum. Formaður sóknamefndar, Jó- Framhald á 2. siSu. \ Fjögurra-bandalaga | í keppnin ! Fjögurra - bandalaga - keppni verður á laugardag og sunnu- dag og hefst kl. 4 báða dagana. Þetta er hin árega keppni í frjásum íþróttum á milli Ey- firðinga, Akureyringa, Kefl- víkinga og Kjalnesinga. SJÚKRAFLUG TIL DALVÍKUR Fæstum myndi þykja nauð- syn til bera að nota flugvél til flutninga á sjúkum mönnum milli Dalvíkur og Akureyrar um hásumarið. Á sunnudaginn var þó sjúkraflugvélin til kvödd að flytja mann frá Dalvík er sjúk- ur var af innvortisblæðingum og þoldi ekki flutning í bifreið. Flugvélin var 10 mínútur milli staða. Flugbraut er sunn- an við Dalvík en hana þyrfti að endurbæta. Á miðvikudaginn flaug Tryggvi Helg.ason austur í Egilsstaði og tók þar litlu telp- una, sem varð undir vörubíl og frá hefur verið sagt í fréttum að austan, og flutti til Reykja- víkur. Tryggvi hefur nú ráðið til sín ungan flugvirkja úr Reykja- vík til að starfa með sér að við- haldi og viðgerðum og flytur hann hingað norður um þessi mánaðamót. Þá er Tryggvi að byggja smáverkstæði við flug- skýlið til að skapa þá aðstöðu, sem nauðsynleg er við sjúkra- flugið.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.