Dagur - 13.04.1966, Blaðsíða 4

Dagur - 13.04.1966, Blaðsíða 4
4 S Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri Símar 1-1166 og 1-1167 Ritstjóri og ábyrgðarmaður: ERLINGUR DAVÍÐSSON Tryggvi Jónsson KVEÐJUORÐ í Auglýsingar og afgreiðsla: JÓN SAMÚELSSON Prentverk Odds Bjömssonar h.f. VÖRN EÐA SÓKN ÞAU TÍÐINDI era nú að gerast í þjóðfélagi okkar, að nmfangsmiklar framkvæmdir eru ákveðnar á Suð- vesturlandi. Má þar nefna Búrfells- virkjun, alúmverksmiðja við Straums vík og hernaðárframkvæmdir í Hval- firði. Auk þessa efna auðmenn og þeir, sem aðgang hafa að bönkunum til margs konar fjárfestinga, sem áframhaldandi verðbólga á að af- skrifa á skömmum tíma. Hjól verðbólgunnar mun á næst- unni snúast hraðar en nokkru sinni fyrr. Kapphlaupið um vinnuaflið mun vaxa í svipuðu hlutfalli. í hinni miklu verðbólguskriðu, sem undan- farið hefur þótt nægilega ferðmikil, hrifsar hver J>að, sem til verður náð. í viðskiptum og framkvæmdaáætl- unum er ýmsum viðurkenndum lög- málum kastað útbyrðis, en upp tek- in önnur ný, sem J>ykja við hæfi í núverandi umróti efnahagslífsins á íslandi ef marka má „viðreisnina". Hinar miklu framkvæmdir svðra, munu valda atvinnubyltingu í land- inu, meiri en áður hefur þekkzt. Búr fellsvirkjun er sjálfsögð framkvæmd og hefði átt að vera hafin fvrir löngu, til að mæta innlendri raforkujiörf. Framkvæmdir við Straumsvík eru hinsvegar erlendar og sá atvinnu- rekstur, sem þar er fyrirliugaður og kenndur við aluminíum, af erlend- um toga. Þar munu íslenzkir menn þjóna hagsmunum útlendra manria, vinna við ritlent fyrirtæki, sem fær keypta raforku frá Búrfellsvirkjun. Yfir Hvalfjarðarframkvæmdum hvíl- ir meiri leynd Jrótt ]>æi' séu hafnar. En talið er, að þar sé um stórfram- kvæmdir að ræða, sem muni binda íslenzkt vinnuafl um lengri tírna. Norðlendingar munu brátt átta sig á nýjum og breyttum viðhorfum í at- vinnumálum, og aðrir landsmenn, sem einhvern atvinnurekstur stunda. Þeir eru að eignast sterka og óvægna keppinauta, sem Jiegar eru farnir að bjóða svo hátt kaup og fríðindi í ýmsum myndum, að ólíklegt er, að íslenzkir atvinnuvegir geti um vinnu- aflið keppt, að öðru óbreyttu. Ríkis- valdið, með meirihluta Jiingmanna sér við hlið, liefur beðið skipbrot á vettvangi innlendra mála, og leitar nú skjóls undir væng erlendrar auð- hyggju til atvinnureksturs á Islandi. En hver verða nú viðbrögð ráð- andi manna hér nyrðra, og hvernig vilja jieir mæta hinum fyrirsjáanlega vanda? Ekkert gétur hamlað á móti, nema aukið athafnalíf. O AÐ KVÖLDI þess 18. marz sl. andaðist Tryggvi Jónsson Ránar götu 7 Akureyri og var útför hans gerð frá Akureyrarkirkju laugardaginn 26. sama mánaðar. Jón Tryggvi, eins og hann hét fullu nafni var fæddur að Grýtu í Öngulsstaðahreppi 15. júní 1877 og var því nær 89 ára er hann lézt. Hann var næst elztur 6 barna þeirra hjóna Jóns Jóns- sonar og Ingibjargar Ástu Jóns- dóttur búenda á Uppsölum í sömu sveit fyrir og um aldamót in 1900 og kenndi hann sig jafn an við það heimil^ og sýndi því alltaf sérstaka tryggð og rækt- arsemi. Tryggvi var af eyfirzku bændafólki kominn. Ætt hans rakin í beinan karllegg er þessi: Jón faðir hans var sonur Jóns bónda á Grýtu, Þorleifssonar bónda Rútsstöðum, Einarssonar bónda á Litla-Hóli, Árnasonar bónda Stóra-Hamri, Jónssonar bónda Hlíðarhaga, Jónssonar bónda Hlíðarhaga, Jónssonar bónda Syðra-Dalsgerðum, Jóns- sonar hreppstjóra í Stóradal, Jónssonar hospítalhaldara Möðrufelli, Magnússonar lög- manns á Reykjum í Tungusveit, Björnssonar bónda á Jörfa í Haukadal, Árnasonar bónda Grýtubakka, Þorsteinssonar bónda í Holti í Fljótum, Magnús sonar stórbónda (svokallaður) á Grund í Eyjafirði á fyrrihluta 15. aldar. Ingibjörg Ásta móðir Tryggva var af svonefndri Hvassafells- ætt, dóttir Jóns bónda á Strúgsá og Hálsi, Benediktssonar bónda í Hvassafelli, Benediktssonar hreppstjóra í Hvassafelli, Björns sonar bónda á Garðsá, Helgason ar bónda á Svertingsstöðum, Ólafssonar Iielgasonar úr Rang- árvallasýslu. Ástæða væri til að rekja ættir hins betra helm- ings, þ. e. eiginkvenna þessara manna, en því verður sleppt hér. Tryggvi ólst upp með ’foreldr- um sínum til fullorðinsára og var hjá þeim heimilisfastur allt til þrítugsaldurs, þó oft leitaði hann vinnu utan heimilis þegar hún bauðst, enda voru börn þeirra Jóns og Ingibjargar 6 að tölu og höfðu ekki öll verkefni heimafyrir er þau komust til þroska. En systkinin voru þessi, talin eftir aldri: 1. Jónína Guðleif, gift Páli Jónassyni búandi hjón á Upp- sölum yfir 30 ár. 2. Jón Tryggvi, giftur Lauf- eyju Hrólfsdóttur. 3. Margrét, dó ógift 31 árs gömul, átti eina dóttur barna, Margréti Ingibjörgu Jónsdóttur. 4. Ingimar, giftur Maríu Kristjánsdóttur. Var starfsmað- ur á Gefjun yfir 30 ár. 5. Sigríður, gift Kjartani Ól- afssyni, hafa búið lengst af 'í Miklagarði í Saurbæjarhreppi. Lifir Sigríður nú ein eftir af systkinum sínum. 6. Marinó, dó tæplega fimm- tugur að aldri, ókvæntur og barnlaus. Vorið 1907, þann 20. apríl er Tryggvi var um þrítugt, steig hann eitt sitt stærsta gæfuspor í sínu lífi, en þann dag kvæntist hann heitmey sinni Laufeyju Hrólfsdóttur, er dvalið hafði um tíma á heimili hans, hinni ágæt- ustu konu, sem var fríð, glaðvær og glæsileg, þá tvítug að aldri. Bjartar voru framtíðarvonirnar, þó efni væru smá og veit ég að þau hefðu helzt kosið að gerast búendur í sinni sveit og mega þar eiga sína framtíð. En þar var þá hvert jarðnæði meir en fullsetið og varð það því svo að þeirra spor lágu burt frá æsku- stöðvum og til Akureyrar. Það vildi líka svo til, að þá var ráð- ið að byggja ullarverksmiðjuna Gefjun og réðzt Tryggvi þangað í byggingarvinnu og síðan, sem fastur starfsmaður, eftir að verk smiðjan hóf starf sitt. Þar vann Tryggvi, sem afgreiðslumaður, æ síðan í hart nær 50 ár, eða þar til starfskraftar þurru með öllu. Ég efast ekki um að hann taldi sér það happ að komast þar að.í fasta vinnu, eins og at- vinnumöguleikar voru hér á Ak ureyri um þær mundir. En ég hef líka leitt að því huga hversu mikil gæfa það er einu fyrirtæki að fá að njóta starfskrafta manns, sem Tryggvi var. Meiri trúmennsku, skyldurækni og ósérhlífni, er held ég ekki hægt að sýna, en þar, sem hann var. Þetta veit ég með vissu og sá er einnig einróma dómur sam- starfsmanna hans. Og mörg var sú fyrirgreiðsla, sem hann sýndi einum og öðrum viðskiptamönn um fyrirtækisins, mörg var bón in og margt var kvabbið, allra þarfir vildi hann uppfylla, eng- um mátti neita, ekkert mátti láta undan falla, ef möguleiki var á, að veita fyrirgreiðslu. Hann gat aldrei brugðizt, þar sem honum var tiltrúað. Það var líka að vonum að margir yrðu honum þakklátir og hann yrði vinsæll og vinmargur, en hinu vil ég trúa að þetta hafi einnig og ekki síður aukið vin- sældir og tiltrú fyrirtækisins, sem hann vann fyrir. Og að von um vottuðu forsvarsmenn Gefj- unnar honum sérstakar þakkir og sýndu honum sóma er leið að starfslokum hans, fyrir frá- bæra dyggð og trúmennsku í starfi. Meðal samstarfsmanna var hann vel metinn og vinsæll. Starfaði hann lengi með sinni alkunnu skyldurækni í Starfs- mannafélagi Gefjunar og hlaut þann verðskuldaða sóma að vera gerður þar að heiðurs- félaga. Tryggvi Jónsson var maður í stærra lagi á vöxt, karlmann- legur og höfðinglegur í sjón. Hann var all sterkur persónu- leiki og vakti sérstaka athygli hvar sem hann fór. Hann var gleði- og fjörmaður mikill og jafnan hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi og allsstaðar aufúsugestur. Jafnan átti gleð- in upptök sín þar, sem hann var og alltaf var hann eftirsóttur og kærkominn félagi í vinahóp. Gleði hans var heið og hrein og gamansemi hans aldrei gerð á annarra kostnað. Um leið og Tryggvi var mikill gleðimaður, var hann alvörumaður og mátti ekki vamm sitt vita í neinu, var sannur drengur, trúr og traust- ur. Hann var maður einarður og ákveðinn í skoðun og fylgd- ist sérstaklega vel með málum, sem efst voru á baugi hverju sinni, allt fram á hinzta dag og voru stjórnmálin þar ekki und- anskilin. En í umræðum um þau mál, talaði hann aldrei af hita eða þjósti, til þess var hann -of stilltur í geði og víðsýnn. Tryggvi og Laufey bjuggu fyrst allmörg ár í íbúðarhúsi Qefjunar, sem ávallt var kall- að „Vélarhúsið11. Er þau fluttu þaðan voru þau í Brekkugötu 25 og Strandgötu 43, nokkur ár á hvorum stað, en um miðjan fjórða tug þessarar aldar reistu þau sitt eigið hús í Ránargötu 7 og hafa alltaf búið þar síðan, glöð og ánægð á sínu hlýlega og góða heimili. Sambúð þeirra hjóna hefur verið svo einlæg og ástúðleg alla tíð, þar hefur verið gagnkvæm virðing, feg- urð og samhyggja, þar hafa margir átt glaðar og góðar stund ir og sumum góður griðastaður í sjúkdómum og annarri harð- leikni lífsins. Konan, sem tekin var inn á þeirra heimili fyrir mörgum árum, um lengri tíma, til að gleðja hana og annast og losa hana við sjúkrahúsvist þann tíma, flutt hingað frá vin- um og vandafólki, öllum hér ókunnug' og helsærð af ólækn- andi sjúkdómi. Hversu þakklát hún var fyrir þessa miklu góð- vild, allan þann stutta tíma, sem hún átti ólifaðan veit ég nokk- uð um. Og bróðirinn, sem tek- inn var inn á þetta heimili og annast var um í sjúkdómi hans og honum gerð sem gleðilegust síðustu æviárin. Hversu ríkt var ekki hið þögula þakklæti, þó orðin væru ef til vill ekki mörg. Oll verk okkar mannanna, hver sem eru, fela sín laun eða dóm í sjálfu sér. Manngæzka o'g góð- vild gefa sín laun og skapa þann sjóð, sem öllu er tryggara og betra. Heimilið hefur verið hlýtt og bjart, þar hafa börnin vaxið upp og veitt gleði og fögnuð. Ein- lægni, ástúð og samheldni hefur ríkt með börnum og foreldrum og frændrækni mikil við aðra ættingja. „Við erum stolt af því að eiga slíkan mann að föður“ eru orð barna hans töluð í minni áheyrn. Þetta er fagur vitnis- burður í fáum orðum, sem lýsir Tryggva svo vel. Tryggvi og Laufey eignuðust 5 börn. Þau eru: 1. Aðalsteinn verkstjóri á Gefjun. Giftur Kristínu Kon- ráðsdóttur. 2. Bergþór Ingólfur, dó 5 ára gamall. 3. Herbert, afgreiðslumaður á Gefjun. Giftur Kristbjörgu Ingvarsdóttur. 4. Sóley Ingibjörg, gift Hans Hansen verkstjóra á Gefjun. 5. Jóhanna, gift Jósteini Brodda Helgasyni starfsmanni á Gefjun. Auk þess ólu þau upp sonar- dóttur sína Brynju Breiðfjörð Herbertsdóttur, gift Guðmundi Bjarna Baldurssyni starfsmanni hjá KEA. Og barnabörnin. Leiðir þeirra hafa oft legið í Ránargötu 7. Er- indið máske aðeins að sjá afa og ömmu; þar mætti þeim alltaf hlýleiki og góð umönnun, holl ráð og nærgætni. Ég átti því láni að fagna, barn ungur að kynnast þeim Tryggva og Laufeyju, sem tóku við mig því ástfóstri að segja má að heimili þeirra væri alla stund síðan, sem mitt annað heimili og hef nú 5 síðustu árin verið leigj andi þeirra. Vinátta okkar Tryggva varð einlæg og trygg og því nánari, sem lengra leið. Það varð gagnkvæmt trúnaðar- traust, sem aldrei brást. Það eru svo misjöfn áhrif, sem mér finnst ég verða fyrir í sambúð og umgengni við aienn. Frá sumum stafar alltaf einhver hlýja, einlægni og hrekklaust viðmót. í nálægð slíkra manna er gott að vera og slíkur maður var Tryggvi. Nú hin síðustu 3 árin hefur Tryggvi verið rúmliggjandi og oft verulega þjáður. Hefur eigin kona hans annazt hann og hlúð að honum með frábærri ástúð og umhyggju. Hefur hún sýnt þar ótrúlegt þrek og sálarró, eins þjáð og hún hefur sjálf oft verið af sjúkdómi, sem hún hef- ur átt við að stríða um fjölda- mörg ár. Erfitt mun það hafa verið jafn þrekmiklum manni og starfsfúsum, að verða að lifa um lengri tíma, þannig ósjálf- bjarga, en því tók hann með al- gjöru æðruleysi, aðeins þráði hann að kallið færi að koma og það vissum við báðir að stundin færðist nær. Hitt kom mér þó þrátt fyrir allt alveg á óvart, er við ræddumst við kvöldið 18. marz og gerðum að gamni okk- ar, að frá því ég bauð honum góða nótt, myndi ekki líða nema rúm 1 klukkustund, þar til hin þráða lausn væri honum gefin, — kæmi svo snögglega og fyrir varalaust, hin langa góða nótt, með sinn himneska dásama frið. Horfinn er vinur; stórt er hið auða rúm og sárast mun hún finna fyrir því konan, sem var hans tryggi og ástúðlegi lífs- förunautur um 59 ára skeið. Guð gefi henni stýrk og ævi- kvöldið sem bjartast og bezt. Innilegasta hlýliug sendi ég henni og hennar nánustu. Ég kveð þig Tryggvi vinur minn með klökkum huga, um leið og ég veit að lausnin frá hinu jarðneska lífi var þér náð- argjöf. Nú ert þú fluttur inn til Ijóssins sala eilífðarlandsins, þar sem þú ert umvafinn kærleika Guðs. — Leiðir skilja um sinn, en við eigum aftur endurfund. Ég minnist allra þeirra mörgu gleðistunda er við áttum tveir einir, eða með öðrum og þeirrar falslausu alúðar og vinhlýju, er þú ætíð sýndir mér frá okkar fyrstu kynnum til þinnar hinztu stundar. Hafðu hjartans þökk fyrir allt og allt. Ingólfur Pálsson. BÆRINN OKKAR var frumsýndur 2. páskadag Sunna Borg og Sigurgeir Hilmar haldast í hendur en Haraldur Sigurðsson les hin þýðingarmiklu orð. (Ljósm.: E. D.) (Framhald af blaðsíðu 8). um ómerkileg leikhúsverk. Eitt af hinu óvenjulega í sjón- leiknum Bærinn okkar er það, að sérstakur leiksviðsstjóri kynnir umhverfið, persónur, heimili fólksins og gang lífsins í hinum litla bæ, þar sem leik- urinn gerist. Haraldur Sigurðsson hefur þessa „leiksviðsstjórn“ á hendi og er það jafnframt eitt veiga- mesta hlutverk leiksins, og það leysir hann mjög vel af hendi. Sýnir hann hér enn einu sinni, að hann er góðum leikarahæfi- leikum gæddur, og kann vel með þá að fara. Júlíus Oddsson og frú Guð- laug Hermannsdóttir leika dr. Gibbs og frú. Þau gera hlutverk um sínum hin beztu skil, enda Júlíus einn af „hinum góðkunnu leikurum bæjarins“ og frúin upprennandi stjarna, sem áður hefur lofað miklu og sýnist ætla að efna það. Sigurgeir Hilmar og Sigur- björg Steindórsdóttir leika börn læknishjónanna. Sigurgeir, eða George Gibbs, leikur dreng, síð an brúðguma og bónda, vanda- samt hlutverk, sem hann ræður þó undra vel við. Marinó Þorsteinsson leikur Webb ritstjóra, þróttmikinn, glæsilegan og skilningsríkan heimilisföður. Frú Björg Baldvinsdóttir leik ur frú Webb á mjög hlýlegan og nærfærinn hátt. Ungfrú Sunna Borg og Þor- steinn Kormákur Helgason leika ritstjórabörnin. Gibbs- og Frá Fiskiþingi Webb-fjöldskyldurnar tengjast og fellur það í hlut Sunnu, að leika hina ungu heimasætu, Afstaða Fiskiþings til síldar- flutninga. a. Fiskiþing ítrekar fyrri sam- þykktir, vegna vaxandi síld- veiða fyrir Austurlandi, verði þar örugg og góð afskipunarað- staða fyrir síldveiðiflotann. Verði það bezt tryggt með end- urbótum á eldri verksmiðjum, ásamt auknu þróarrými og ný- byggingum, en með allar endur bætur og nýbyggingar verði lögð áherzla á sem hagkvæm- asta vinnslu er geti orðið undir staða að hækkuðu síldarverði. b. Fiskiþing telur að reynslan af síldarmóttöku hjá veiðiskip- um á miðunum muni auka möguleika skipanna til að ná meiri afla, sérstaklega á þetta við á fjarlægum miðum. Síldar- flutningaskip hafa aðstöðu til flutninga þangað sem þörf kref- ur hverju sinni og ætti starfið að verá skipulagt samkvæmt því. Reynslan af síldveiðum und anfarna ái-atugi sýnir að síldin er nokkuð á hreyfingu umhverf is landið og verður því að telja síldarflutninga með þar til hæf- um skipum æskilega þróun. Telur Fiskiþingið nauðsynlegt að gerðar verði tilraunir með flutning á síld með síldarflutn- ingaskipum sem miðist við nýt- ingu á fullkominni vöru til manneldis. c. Fiskiþingið telur tímabært að losa, að meira eða minna leyti, um bann við kaupum á fersksíld og öðrum fiski, af er- lendum veiðiskipum, t. d. með gagnkvæmum samningum. Greinargerð. Vegna göngu síldarinnar á miðum umhverfis landið hafa oft skapazt miklir hagnýtingar- erfiðleikar, og þá sérstaklega til að fá síld á vinnslustaði, sem góð vara sé til manneldis. Hér hafa síldarflutningaskipin stóru hlutverki að gegna, því telja ber, að vinna eigi síldina sem mest, að hægt er, til manneldis, eða svo sem markaðsmöguleik- ar ýtrast leyfa, og allra hag- kvæmra ráða verði að leita, til að ná sem lengst í þeim efnum og er flutningur síldarinnar, sem fullkomins hráefnis til vinnslustöðva, víðsvegar um landið, undirstaða þess. Stór hluti af aflamagni, með núver- andi aðstæðum og afla hlýtur þó að fara til mjölvinnslu, en hagkvæmar fjárfestingar á því sviði ráða ávallt nokkru um bræðslusíldarverð. Telja má (Framhald á blaðsíðu 7.) móti Sigurgeir. Er þar mikið lagt á hina ungu leikkonu og veldur hún vel sínum hluta, sem er þó hinn vandmeðfarn- asti að þessu sinni. Kjartan Ólafsson, Úlfar Hauksson, Bjarni Baldursson, Kristín Konráðsdóttir, Jón Ingi- marsson, Sæmundur Guðvins- son, Eggert Ólafsson, Svanliild- ur Eggertsdóttir, Ragnheiður Júlíusdóttir og Jón M. Guð- mundsson hafa á hendi mismun andi stór hlutverk, sem hvert þjónar sínum tilgangi á hinn ýmsa hátt og hér verða ekki í bráðina gerð að umtalsefni. Árni Valur Viggósson er Ijósa meistari og hefur aldrei fyrr reynt eins mikið á kunnáttu í notkun Ijósanna og nú. Með þessum fáu orðum fylgja svo þakklátar kveðjur til Leik- félags Akureyrar fyrir það að hafa að þessu sinni valið viður- kennt, sérstætt og hugljúft við- fangsefni, þar sem meira reynir á skilning leikhúsgesta og ímyndunarafl en telja má vana- legt í leikhúsum. E. D. NYTT SKÁLD I HVVAINSSVEIT FYRIR OG EFTIR aldamótin síðustu voru í Mývatnssveit, bæði þjóðskáld og hagyrðingar, kunnir um allt land. Á síðari árum hefur skáldafylking Þing- eyinga verið meira þunnskipuð og verða þeir sjálfir og aðrir landsmenn að sætta sig við nokkra samfærslu í þeim efn- um. En í haust sem leið kom skáld í Mývatnssveit fram á rit- völlinn og vakti mikla eftirtekt. Það var Jakobína Sigurðardótt- ir, húsfreyja í Garði í Mývatns- sveit. Gaf hún út mjög eftirtekt- arverða skáldsögu með vfirlætis lausu nafni „Dægurvísa“. Þessi bók vakti allmikla eftirtekt, hér var farið listrænum höndum og beitt nýstárlegri tækni við lýs- ingar á daglegu lífi í byggð og bæ. Menn vildu gjarnan vita nokkuð um þessa nýju skáld- konu. Hún er fædd og uppaldin í Strandasýslu, í dreifbýli við stórbrotna náttúrufegurð. Móð- ir hennar bjó til heimilisleikrit fyrir börnin, baðstofan var leik- hús og sýningarnar til ánægju, bæði börnum og fullorðnu fólki. Á uppvaxtarárum bjó Jakobína . við stórskorið umhverfi í dreif- býli, bóklestur að fornum sið í baðstofu og við útivist þegar tækifæri gafst. Þegar Jakobína var á fermingaraldri, lagðist sveit hennar í eyði eins og fleiri héruð á Vestfjörðum. Foreldrar hennar fluttust fyrst til ísafjarð ar, en skömmu síðar til Reykja- víkur og þar virðist skáldkonan og fólk hennar hafa lifað kyrr- látu lífi í nokkur ár. Þann tíma virðist hún hafa notað til að fræðast um mannlífsmálefni höf uðstaðarins. Jakobína virðist hafa öðlazt mikla mannlífsþekk ingu á sínum kyrrlátu dvalarár- um í Reykjavík. Ekki lét hún mikið á sér bera, en þó komu við og við út í dagblaði í höfuð- borginni, nokkur kvæði í sígildu formi sem virtust bera vott um þróttmikla lífsskoðun. Eftir nokkra stund var Jakob- ína Strandakona komin norður í Mývatnssveit og hafði fest ráð sitt. Hún var orðin húsfreyja á einum af hinum fögru jörðum við Mývatn. Maður hennar er náfrændi Þuru skáldkpnu, sem gert> hefur garðinn frægan. Nú víkur að Dægurvísunni. Það er ékki sveitasaga, þó að sveitafólk komi þar nokkuð við sögu, held ur lýsing á höfuðstaðarlífi í miðri höfuðborginni, eins og hún er nú og var fyrir fáum ár- um. Sagan gerist í góðri og borg aralegri götu. Og gerist á einum degi, í hversdagslegu húsi. Það virðist hafa verið fjórar hæðir, þar með talinn kjallari og efsta loft. Einna mest bar þar á hjón- um og hálfstálpuðum börnum. Faðirinn mun hafa verið hús- eigandi, en um leið er hann iðn aðarmaður og ættaður ofan úr sveit. Hann er hæglátur, kurteis, ráðsettur og líklegur til að eign- ast allt húsið og fleiri eignir. Kona hans mun á æskuárum hafa verið einskonar fegurðar- dís í sínu hverfi. Á þeim árum átti hún nokkra álitlega ást- menn, einn þeirra hafði orðið atómmálari. Um hann höfðu fé- lagar og stallbræður skrifað lof- legar greinar, án þess að sann- anir fylgdu fjárhagsöryggi lista- mannsins, En sá biðillinn sem varð sigursælastur á þessum vig velli var fulllærður iðnaðar- maður. Svava giftist honum, en mundi þó eftir málaranum. Þann dag er sagan gerðist er húsráðandi nokkuð íbygginn við konu sína við hádegisverðinn, gefur í skyn að von sé góðra frétta, heimilið sé að eignast bíl og vonist eftir að geta komið heim með bílinn og sýnt vanda- mönnum sínum bílinn um leið og sezt væri að miðdegiskaffi þann dag. Þetta voru furðu góð tíðindi, en sönn. Bíllinn var keyptur, en ekki kominn heim. Húsbóndinn vildi á sinn góð- mannlega hátt láta eiginkortú og börnin vita að fjölskyldunni hefði hlotnazt þessi happdrátt- ur. En nú bar svo við að fleira gerðist í húsinu þennan dag. Þar var öldungur, gamall húsráð- andi úr sveit, faðir bóndans, sem unni ekki sem bezt kaup- staðarlífinu og gat auk þess bú- izt við að hann ætti kost á vist í elliheimilinu, sakir þrengsla í stofu tengdadóttur og helzt vildi gamli maðurinn komast norður í sveit þar sem hann hafði búið áður en á því voru líka mein- baugir um heppilegt húsnæði á fámennu heimili fyrir eldri mann. Meðan stóð á umræðum þessa hlið málsins kom uppgjafa prestur í húsið í heimsókn til gamla bóndans, enda átti hann heima í Reykjavík, en mundi sinn fífil fegurri þegar hann var prestur í sveitinni og öldungur- inn safnaðarbarn hans. Ox milli þeirra fjörugt samtal um bú- skap og skepnuhöld í sveit þeg- ar þeir voru í blóma lífsins. Rétt um þetta leyti lét atómmálarinn Svövu vita að hann væri nú í bænum og vildi gjarnan koma í síðdegiskaffi til frúarinnar. Svövu þótti að vísu all gott að fá þennan gamla gest, en bónd- inn tók því fálega með fullri kurteisi, en vildi sýniléga ekki hafa óviðkomandi mann við, þegar konan og börnin sem vissu um bílinn, fengju að sjá þegar þessi eftirsótti hlutur væri staðsettur við húsið. Auð- séð var að húsbóndinn vildi ekki koma í síðdegiskaffi þó að hann ræddi lítið um málið. Svava bjóst þó við að gesturinn mundi koma og vildi gjarnan sýna honum fulla gestrisni. Þá var margt til tafar, stálpaður drengur þeirra hjóna fékk glaðn ing til að vera úti að leika sér, en þá fór verr en skyldi, dreng- urinn hvarf skyndilega og var móðir hans hrædd um að hann hefði lent í slysi. Varð af þessu órói á heimilinu, þannig að gamla bóndanum varð ekki gott af fjörugum samræðum við prestinn. Lagði hann sig fyrir í þrönga herberginu og var auð- séð að hann átti stutta stund eftir ólifað. Þetta umstang vai-ð til þess að tefja fyrir dvöl lista- mannsins í húsinu. Fleiri voru í húsinu, þar voru ungir elsk- endur, nokkuð út af fyrir sig, þeir virtust vera tilbúnir að leika inngangsþátt að Rómeó og Júlíu. Hér var líka í kjallara annað par, kona með barn. Kon- an sennilega um fertugt og átti lítinn lausaleiksunga. Móðir drengsins var vinnukona í hús- inu. Hún var ötul, en nokkuð ófríð og hafði lagt hug á lausa- mann, sem var faðir drengsins. En hann var kaldlyndur og hafði mestan hug á að láta drenginn hverfa úr mannheimn- um. En hann fæddist og sýndi faðirinn fulla tregðu að greiða föðurgjaldið, en móðirin leitaði til trygginganna um fjármála aðstoð að því leyti sem hún gat ekki unnið fyrir barni sínu. Ekki undi vinnukonan vel vist- inni, enda varð hún vör við stéttamun, þó að hægt væri far- ið í sakirnar. Bóndi í sveit hafði frétt um þessa stúlku, að hún kynni að vera fáanleg til ráðs- konustarfs í sveit. Maður þessi var á miðjum aldri, hann hafði stofnað bú með móður og syst- ur, en þegar hún giftist og átti sitt eigið heimili lék honum hug ur á að fá sér roðakonu. Nú kem ur þessi bóndi í heimsókn í hús- ið. Hófst nú samtal milli bónd- ans og væntanlegrar ráðskonu, drengurinn fylgdi móður sinni fast, enda var hún eina aðstoð hans. Bóndinn hafði ráð á litlu sveitaheimili. Hófust nú eðlileg- ar umræður milli væntanlegrar ráðskonu og bónda um hversu skipta skyldi verkum milli þeirra ef hún flytti í bæ hans. Bóndi var sýnilega eljumaður, góðlyndur, kurteis en óvægur að halda fram rétti sínum. Hann vildi búa á býli sínu ef þess var nokkur kostur, þó að hann ekki segði frá því opinberlega, því hann bjóst við ósigri í þessum vistráðningarmálum og síðan kæmi landauðnin. Vinnukonan hafði að vísu ekki frá miklu að hverfa en þó hefði hún barnið hjá sér. En þá gerðist atburður í þessu litla mannlífstafli. Dreng urinn sem stóð við hlið móður sinnar veitti hverju orði eftir- tekt. Inn í samtalið komu orð eins og kýr og hestar, hundar og kettir. Þá hýrnaði yfir drengnum. Um það vildi hann heyi-a meira, fór hann til bónd- ans hélt um hné hans og horfði spyrjandi barnsaugum á allt sem hann sagði sem minnti á húsdýrin. Sagan hermir ekki ýtarlega hvernig samningum lauk. Lesandinn finnur að dreng urinn hafði komið til móts við bóndann og sennilegt að þá hafi mótazt í huganum nýtt heimili. Konan og sonur hennar vildu fegin hverfa af götunni til hús- dýra í sveit. Svava húsfreyja var í nokkr- um vanda, bóndinn kom ekki heim með bílinn. Hún hafði taf- izt við ýmiskonar annir. Lista- maðurinn reyndi símtöl við frúna, en málið var erfitt. Hús- freyjurnar voru gamlir vinir, en þær túlkuðu með nokkrum blæ- brigðum ákveðnar hliðar í þeim straumi, sem líður hversdags- lega fram á götu í Reykjavík. Ef einhver greindur náungi, sneyddur skáldgáfu hefði dval- ið um stund í þessari umræddu götu mundi honum ekkert hafa borið það fyrir augu sem honum þætti í frásögu færandi. En þessu er allt öðruvísi varið með Jakobínu Sigurðardóttur. Frá venjulegu sjónarmiði gerist ekkert í þessari götu sem hún hefur gert að leikvangi. Skáldið hefur augu sjáanda. í hennar augum verða hinir hversdags- legustu viðburðir gæddir lífi og verða að sögu. Enginn getur metið gildi Dægurvísunnar nema hann lesi bókina af at- hygli og felli dóminn sjálfur. Lítill úrdráttur gefur litla hug- mynd um gildi þessarar nýút- komnu skáldsögu. Menn munu nú að vonum spyrja: Hvernig getur Jakobína Sigurðardóttir orðið listrænt söguskáld uppi í sveit. Því er fljót svarað, hún hefur meðfæddar gáfur. Strand- ir, Reykjavík og Mývatnssveit hafa fóstrað listræna skáldkonu. Jónas Jónsson frá Hriflu. GÓÐUR GESTUR í NÆSTU VIKU er væntanleg- ur hingað til bæjarins Toralf Austin, deildarstjóri í ráðuneyt- inu norska, sem fer með skóg- ræktarmál. Hann mun flytja hér erindi fimmtudaginn 21. apríl um skógræktarmál Noregs. Austin kemur hingað á vegum félagsins ísland—Noregur. Þess er að vænta að Akureyringar láti ekki sitt eftir liggja að hlýða erindi hans, en af fáum getum vér meira lært en Norð- aaönnum um þessi efni. Q

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.