Dagur - 02.07.1966, Blaðsíða 2

Dagur - 02.07.1966, Blaðsíða 2
2 Fyrsta mark gert í minnmgarleikrium: Akúreyringar sóttu fast aö marki Vals og knötturinn hafn- aði í netinu. Steingrímur, alveg upp í markinu, og skoraði. (Ljósmynd: E. D.) Minningarleikur um Jakob Jakobsson Akureyringar sigruðu Val með 2:1 Á FIMMTUDAGINN fór fram á íþróttavellinum hinn árlegi minningarleikur, sem bundinn er nafni Jakobs Jakobssonar og haldinn til að efla sjóð þann, sem við hann er kenndur og styrkir íþróttamenn til náms. Þessi knattspyrnukappleikur er sá þriðji í röð slíkra leikja og voru áhorfendur fjöldamarg ir. Lið þau, sem þarna kepptu, Voru ÍBA og Valur í Reykja- vík. Svo skemmtilega vill til, að leikina alla hafa Akureyr- ingar unnið, nú með 2 : 1 og hefði þó munurinn átt að vera meiri- eftir gangi leiksins. Veður var þurrt og ekki mjög heitt. Leikurinn var allur hinn prúðasti og mjög spenn- andi á köflum. Sunnanmenn virtust orkumeiri og oft ákveðn ari, en heimamenn leiknari. Hér verður ekki dómur lagð- ur á einstaka leikmenn, en að- eins þakkað fyrir góða skemmt un, sem um leið er verðugur minningarleikur um einn af drengilegustu íþróttamönnum þessa bæjar, Jakob Jakobsson. r-.-Jþ.-.-. ! ■1111 Drengjarneisfarðmóf Islands í frjálsum íþróffum fer fram á Akureyri um helgina r Valbjörn Þorláksson og Jón Þ. Olafsson boðnir norður til keppni 1 DAG (laugard. 2. júlí) kl. 2 e. h. hefst á íþróttavellinum á Akureyri Drengjameistaramót íslands í frjálsum íþróttum og sér Frjálsíþróttaráð Akureyrar um mótið. Keppendur verða um 40 víðsvegar að af landinu. Þá hefur Frjálsíþróttaráð boð ið hingað tveim beztu frjáls- íþróttamönnum landsins, þeim Valbimi Þorlákssyni og Jóni Þ. Ólafssyni, og keppa þeir sem gestir á móíinu. Búast má við skemmtilegri keppni á móti þessu og ættu bæjarbúar að fjölmenna á völl- inn. Keppnisgreinar verða þessar: Laugardaginn 2. júlí kl. 2 e. h. 100 m hlaup, kúluvarp, há- stökk, 800 m hlaup, spjótkast, langstökk og 200 m grinda- hlaup. Sunnudaginn 3. júlí kl. 2 e. h. 110 m grindahlaup, kringlu- kast, stangarstökk, 300 m hlaup, þrístökk, 1500 m hlaup og 4x100 m boðhlaup. Jón Þ. Ólafsson og Valbjöm Þorláksson keppa á Akureyri imi helgina. - Sfarfsaðsfaða (Framhald af blaðsiðu 4). gengt að menn, sem þannig er ástatt um, mega alls ekki þang- að koma fyrr en nokkuð er af þeim runnið, enda sorgleg dæmi um það nærtæk. En sem betur fer eru fangageymslurnar stundum mannlausar. Hvenær er mest að gera hjá lögreglunni? Um helgar, eða frá því á föstu dögum til mánudags. En hve- nær sem er getum við fengið ó- vænt Verkefni í hendur. Slíkt gerir sjaldnast boð á undan sér og götulögreglan t. d. hefur allt af eitthvað að starfa við hið daglega eftirlit. Hvað viltu segja um áfengis- neyzluna og störf lögreglunnar? Áfengisneyzlan jókst veru- lega hér á Akureyri þegar opn- uð var útsala áfengis og óskyn- samleg áfengisneyzla er böl ein staklinganna, jafnframt því sem hún færir lögreglumönnum meiri verkefni í hendur en nokkuð annað. Lögreglumenn kynnast margs konar böli of- drykkjunnar í starfi sínu, en almenningsálitið er ekki nægi- lega vakandi í þessum efnum — vill naumast viðurkenna áfeng isböl. — Eru konur tíðir gestir ykkar á lögregluvarðstofunni? Það kemur stundum fyrir, að Norrænu sundkeppn- inni lýkur 15. sept. FRÁ 15. maí til 15. septem- ; n ber fer fram Norræn Sund- < !; keppni. Aðaltilgangur henn- ; í; ar er að fá sem flesta til þess ! ;|að iðka sund og reyna sund; !; getu sína mcð því að synda; 200 metra án viðstöðu. ;; Iðulega gerast liér þeir !; atburðir, sem sýna nauðsyn ; góðrar sundkúnnáttu. !; Vilduð þér með aðild fé- ; Iags yðar Ieggja því lið að i; sem flestir íslendingar séu 1: vel syndir og að þeir full- ;! vissi sjálfa sig um sundfærni ;;sína með því að synda „200 ;! mctrana“? — !; — Ef svo, fáið félaga yðar !| nú um hásumarið til þess að ; iðka sund og synda „200 !; metrana“. ;! Nú er sá tími, sem allar ;;sundlaugar eru starfræktar, !!veður bezt og því hentugast ; ölluni að njóta sunds, Ioft- ! og sólbaða. j! Takmarkið er að 58 þús. i; fslendingar hafi fyrir 15. ilseptember sýnt, að þeir hafi ;jsundfærni til þess að synda !;„200 metrana". !; Með virðingu og kærri kveðju, !; Landsnefnd Sundsambands J; íslands vegna Norrænu !; Sundkeppninnar. lögreglunnar við verðum að hýsa konur og einu sinni tvær í einu. Annars er það fremur fátítt að þær þurfi að sæta slíkri með'ferð, enda munu þær taka fangavist miklu nær sér en karlmenn. En í sambandi við geymslu fólks í fangaklefum er margs áð gæta. Þörfin er oft alveg brýn, þegar um er að ræða einstaklinga, sem sýnilega geta farið sér að voða eða verið öðrum hættu- legir. Og stundum er þessi þörf svo brýn, að yvið höfum óða fanga inni hjá okkúr á varð- stofunni, sem beita verður hk- amlegu ofbeldi en ekki er rúm fyrir í fangaklefum. Þið liafið áhuga á bættum vinnuskilyrðum, lögreglu- menn- Já, vinnuskilyrðin eru alveg óþolandi. Sem dæmi um það hefur yfirlögregluþjónninn stundum þurft að fara með fólk út í bíl sinn til yfirheyrslu. Enda er það óforsvaranlegt með öllu að taka skýrslur af vitnum á varðstofunni þegar svo stendur á, að órólegir fang ar eru þar, svo mjög er þar hljóðbært og ekkert afdrep til að vinna slík störf í næði. Við tökum það stundum til bragðs, að hækka í útvarpinu til þess að sá, sem yfirheyrður er og sá, sem bíður yfirheyrslu heyii ekki hvor til annars. Eru menn hættir að brugga, Árni? Það held ég. Það er langt síð- an lögreglan hefur fengizt við bruggmál hér um slóðir. Á tím um hins mikla hraða nennir víst enginn að liggja yfir því að brugga áfengi, enda er það auð fengið og kaupgetan mikil. Eru slagsmál ekki á hröðu und- anhaldi, sem íþrótt hinna ölvuðu? Þau eru enn tíðkuð. Þegar ölvunin er mikil geta þau bloss að upp og hæglætismenn orðið viti sínu fjær. Vissum mönnum vill oft verða laus höndin, en þess utan getur slíkt breiðzt út í fjölmenni og orðið til vand- ræða. Hvemig líkar þér lögreglu- mannsstarfið? Þetta er ekkert skemmtistarf þótt þaS sé nauðsynlegt. Það er hart að þurfa að hafa fjölda manns við löggæzlu, einkum vegna þess að margir hinir al- mennu borgarar kasta fram af sér beizlinu öðru hverju og geta farið sér að voða. En þann ig er það samt sem áður, og verð ur lögreglan þá að grípa til sinna ráða til að afstýra vandræðum. Samvinna hinna almennu borg ara og lögreglumannanna er_ yf irleitt mjög góð ■ og léttir það starf okkar til muna, segir Árni Magnússon að lokum, og þakk ar Dagur svör hans. Skemmfileg unglingakepprti í golfi 1 SL VIKU var háð unglinga- keppni í golfi á golfvelli klúbbs ins. Leiknar voru 9 holur með íullri forgjöf. í þessari fyrstu keppni drengjanna á sumrinu var mikil barátta um fyrsta sæt ið, enda eru drengirnir í góðri þjálfun og má búazt við góðum árangri á íslandsmátinu, sem háð verður hér í sumar. Strax í upphafi tók Björgvin Þorsteinsson forustuna, en bróð ir hans Viðar fylgdi fast á eftir. En er líða tók á hringinn, virt- ist sem Gunnar Þórðarson, sem hefur tekið miklum framförum ****■'£ »3'rnW frá því í fyrra, ætla að sigra, en á síðustu holunni tókst Viðari að halda jöfnu og luku þeir keppninni í 37 höggum. Annars var röðin þessi: högg 1.—2. Gunnar Þórðarson 37 1.—2. Viðar Þorsteinsson 37 3. Þengill Valdimarsson 38 4. Björgvin Þorsteinsson 39 5. Hermann Benediktss. 41 í kvöld hefst svo keppnin um Olíubikarinn, sem gefinn er af Olíufélagi íslands, og er út- sláttarkeppni og verða leiknar 18 holur í kvöld. □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.