Dagur - 10.09.1969, Blaðsíða 8

Dagur - 10.09.1969, Blaðsíða 8
Um læknadeiluna á Húsavík SMATT & STORT FRÉTTIR berast frá Húsavík af ágreiningsmáli, sem þar er risið út af lækni og virðist bæði hita- og alvörumál. Ekki reyndist auðvelt að fá um það hlutlausar upplýsingar austur þar. En stjórn sjúkrahússins á Húsavík og Daníel Daníelsson læknir sama sjúkrahúss, hafa birt um málið greinargerðir. En nokkur helztu atriði málsins virðast þessi: Fyrir þremur árum eða svo var Daníel Daníelsson héraðs- læknir og læknir við sjúkra- húsið á Húsavík, sem er sam- eign Húsavíkurkaupstaðar, S.- Þingeyjarsýslu og e. t. v. fleiri. Um það leyti samdi sjúkrahús- stjórnin við Daníel um, að hann færi til framhaldsnáms í skurð- lækningum í Svíþjóð og tæki upp störf að námi loknu. En þá mun hafa verið gert ráð fyrir, að hann sleppti héraðslæknisemb- ættinu. Þegar Daníel var farinn voru ráðnir að sjúkrahúsinu læknarnir Gísli Auðunsson og Ingimar Hjálmarsson, sem tóku að sér sjúkrahúsið og læknis- þjónustuna í héraði, utan um- dæmis Breiðumýrarlæknis, Þór BORUN í SKÚTUDAL BER ÁRANGUR Siglufirði 9. sept. Hér rigndi ofboðslega í gær og síðan tók að snjóa og er nú hvítt að sjá allt niður undir sjó. Föl var hér á götum í nótt en er nú horfið, en snjór er töluvert mikill í fjöllum. Byrjað er að leggja niður síldina. Þar er tveggja mánaða vinna og verður atvinna sæmi- leg á meðan, en hún hefur ekki verið nægileg í sumar þótt vel hafi aflazt og íshúsin séu í full- um gangi. Hafliði var að landa 150—160 tonnum í gær og Sigl- firðingur landaði 60 tonnum í. fyrradag en Margrét hefur oft landað, eða á þriggja daga fresti undanfarið. Héðan róa um 20 trillur og smærri dekk- bátar og hafa aflað sæmilega. Nóg ber eru hvert sem farið er og óvenju vel þroskuð, en liggja nú undir snjónum. Verið er að bora fyrir heita vatninu í Skútudal. Nú er bor- að miklu framar en fyrst var gert, og er góður árangur að názt, eða 70 gráðu heitt vatn þótt enn sé skammt borað og 8—10 lítrar á sek. Er þetta óvenju góður árangur. Skútudalur er lítill dalur, er blasir við í suðaustur frá Siglu- fjarðarkaupstað, hinumegin fjarðar. J. Þ. odds Jónassonar. Mun Gísli Auðunsson nú settur héraðs- læknir. Þegar Daníel kom aftur að sjúkrahúsinu í fyrrasumar, kom verkaskipting læknanna á dag- skrá og varð ekki samkomulag þeirra í milli og hefur ekki enn orðið. Til þess að leysa þetta mál, var leitað til landlæknis og Læknafélags íslands og í vetur komu þrír úr stjórn þess félags til Húsavíkur til að freista þess að koma á samkomulagi milli læknanna og virðist sú ferð ekki hafa borið árangur. M/S MÁNAFOSS, minnsta skip ið í eigu H.f. Eímskipafélags ís- lands hefur nú verið selt til grísks skipafélags. Skipið var smíðað árið 1959 í Hollandi og keypti Eimskipa- félagið það af dönsku fyrirtæki árið 1963. Hefur það því verið í eigu félagsins í 6V2 ár. Mun skipið verða afhent kaupendum SL. LAUGARDAG var haldið sjóstangveiðimót á vegum Sjó- stangveiðifélags Akureyrar. — Keppendur voru 56 frá Reykja- vík, Akureyri, Dalvík, Ólafs- firði og Hrísey. Róið var frá Dalvík á 13 bátum. Aflahæstur keppenda var Karl Jörundsson frá Akureyri, veiddi 175 kg. og hann veiddi einnig flesta fiska. Annar varð Jóhannes Kristjánsson og þriðji Matthías Einarsson, báðir frá Akureyri. Aflasælasta sveitin var sveit Nokkru síðar réðust þessi mál svo, að sett var reglugerð, staðfest af heilbrigðismálaráð- herra um rekstur sjúkrahússins og störf læknanna þar. Gísli Auðunsson og Ingimar Hjálm- arsson læknar munu hafa fall- izt á reglugerðina, en Daníel Daníelsson ekki í öllum atrið- um. Þegar í ljós kom að Daníel taldi sig ekki geta starfað sam- kvæmt reglugerðinni, sagði sjúkrahússtjórnin honum upp störfum við sjúkrahúsið frá til- (Framhald á blaðsíðú 4) til Grikklands í höfn á meginlandi Evrópu í síðari hluta september. Þá hefur Eimskipafélagið í athugun að festa kaup á skipi í stað Mánafoss, er verði nokkuð stærra og henti betur til að leysa þau verkefni, sem fyrir liggja. (Fréttatilkynning frá H.f. Eim skipafélagi íslands). Jónasar Jóhannssonar, Akur- eyri, og með honum voru þeir Matthías Einarsson, Konráð Árnason og Karl Jörundsson, sveitin veiddi 548 kg. Næst var sveit Jóhannesar Kristjánsson- ar, Akureyri, og þriðja sveit Þorsteins Péturssonar, Dalvík. Aflahæst kvenna var Guð- björg Árnadóttir, Akureyri, veiddi 77 kg. og önnur Ólafía Jóhannesdóttir einnig frá Akur eyri. Aflahæsti skipstjóri var Jó- hann Sigurbjörnsson á Hafemi FÆKKUN BÚFJÁR í HAUST Sunnlenzkum bændum hefur gengið svo illa að heyja í sumar, vegna nær stöðugra óþurrka, að sýnileg fóðurvöntun er þar framundan. Verður ekki úr hon um bætt nema með stórfellduni innflutningi kjarnfóðurs, auk heykaupa í öðrum landshlutum, sem geta orðið einhver en ekki mjög mikil, eða verulegri fækk- un búfjár. Fjallaði aðalfundur Stéttarsambands bænda um þessi mál nýlega og hvatti bænd ur til þess, að fækka fremur sauðfé en kúm ef létta þarf á fóðrum. SMJÖRFJALLIÐ EYÐIST Talið er líklegt, að á næsta vori verði smjörfjallið, sem óx mörg uni mjög í augum á sínum tíma, eytt og upp etið, ef svo heldur sem horfir. Nú þegar endist framleiðsla mjólkur á Suð- og Suðvesturlandi knapplega til að mjólkurfæða þéttbýlisfólk við Faxaflóa. Framundan er þó sá árstími, að framleiðsla mjólkur minnkar til muna frá því sem nú er og verður þá mjólkur- skortur syðra. Undirbúnir eru miklir mjólkurflutningar frá norðlenzku mjólkursamlögun- um, ennfremur á rjóma og skyri. Landbúnaðarstefna nú- verandi ríkisstjórnar hefur dreg ið úr hinni öru þróun, sem áður einkenndi landbúnaðinn, svo sem mjólkurskorturinn vitnar um. HVE MARGIR GLATAST? Á sínum tíma voru margir Sví- ar, eins og íslendingar, mjög áhugasamir um að láta öl- drykkju leysa áfengisvandamál ið, þ. e. leyfa frjálslegri brugg- un og sölu öls, er fremur yrði þá neytt en sterku drykkjanna. frá Hrísey, annar Sigurður Kon ráðsson, Sólrúnu frá L.-Ár- skógssandi og þriðji Tryggvi Ingimarsson, Björgu frá Hrísey. Þyngsta þorsk veiddi Jakob Kristinsson, Ak., steinbít Magn ús Valdemarsson, Rvík, keilu Lúðvík Eggertsson, Rvík, lúðu Jóhannes Kristjánsson, Ak., kola Hólmar Kristmundsson, Ak., ufsa Matthías Einarsson, Ak., karfa Halldór Snorrason Rvík og ýsu Helgi Indriðason, Dalvík. Heildar aflamagn sem veidd- ist var íátn 4000 kg, Sænskir öhnenn sigruðu og hafa síðan 2.8% og 4.5% öl. Fyrir þrem árum var þetta ekki talið nægja og var þá 3.6% öl leyft til sölu í öllunr matvöruverzl- unum, en sterkara ölið í áfengis útsölum. Fræðslumálastjóri Sví þjóðar segir milliölið vera ung- lingadrykk skólaæskunnar með hinum alvarlegustu afleiðing- um. Skólakennarar hafi frá mörgum unglingum íað segja,> sem orðnir séu háðir áfengi 15 ára gamlir. í kjölfarið koma svo eiturlyfin. Margir fslendingar vilja fylgja dyggilega í slóð ölþjóðanna, þótt frumvörp hafi ekki náð frarn að ganga í þessu efni á Alþingi, en felld naum- lega. UNDARLEGUR ÚTFLUTNIN GUR Nýlega voru flutt tvö tonn af arseniki frá íslandi til Svíþjóð- ar. Þetta mikla magn af hættu- legu eitri, var búið að vera í Reykjavík í nokkur ár, án vit- undar yfirvalda eða heilbrigðis- þjónustu. Árleg notkun hér á landi af eitri þessu er 2—3 kg. Eitrið átti að nota til glergerðar, þegar það ævintýri var á dag- skrá og hafa innkaupin ekki verið miðuð við * neina smá- framleiðslu! Kannski gerð út í bláinn. 210 HJÓN SKILDU f nýjum Hagtíðindum segir, að mannfjöldi á fslandi 1. des. sl. hafi verið 202.191 og voru karl- ar 2.251 fleiri en kontir. Þar segir, að á árinu 1968 hafi barns fæðingum fækkað en hjóna- skilnuðum fjölgað. Það ár skildu 210 hjón að lögum og er það hæsta árstala til þessa. Á sama tíma voru gefin saman 1687 hjón og 4.199 börn fæddust. STARFSLAUN LISTAMANNA Úthlutunarnefnd starfslauna handa listamönnum laulc störf- um. Indriði G. Þorsteinsson lilaut kr. 19.580 kr. laun í 12 mánuði. Þorsteinn frá Ilamri hlaut sömu mánaðarlaun í 6 mánuði, Einar Hákonarson og Jón G. Árnason í 3 mánuði. Út- hlutunarnefnd bárust 40 um- sóknir um starfslaun. En nýjar reglur voru í júlí settar um starfslaun listamanna. Hinn 3. sept. 1919 lióf flugvél sig í fyrsta skipti til lofts á fslandi. I hálfa öld hafa íslenzk flugmál þróazt ört hér á landi. Flugvéla eign landsmanna um síðustu áramót var þessi: Flugvélar alls 82, þar af 51 eins hreyfils, en 18 tveggja hreyfla. Ein vél þriggja hreyfla, Boeing 727, 12 fjögurra hreyfla með sætum fyrir 1490 farþega. Alls gótu flugvélar islendinga flutt 2071 farþega í einp, í byrjun þessa árs. HVER Á LEIRINN? Kísiliðjan í Mývatnssveit fær hráefni sitt úr botni Mývatns, og telur sér það heimilt, ef efnis (Framhald á blaðsíðu 2). Mánafoss seldur Frá vinstri: Matthías Einarsson, Jónas Jóhannsson, Karl Jörundsson og Konráð Árnason. (Ljm.: P.) Sjóstangveiðimót á Eyjafirði

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.