Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 . . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						Dagum

LVI. árg. — Akureyri, miSvikudaginn 5. sept. 1973 — 39. tölublað

Hér eru myndir úr tveim sýningardeildum iðnstefnunnar, er báðar voru hinar smekklegustu en það voru Skógerðin og Flóra.

(Ljósmyndastofa Páls).

ÁRDEGIS á fimmtudaginn var

iðnstefnan sett í Gefjunarsaln-

um á Akureyri að viðstöddum

fjölda innkaupastjóra kaupfél-

aganna og öðrum gestum. Fram

kvæmdastjóri Iðnaðardeildar

SÍS, Harry O. Frederiksen, setti

iðnstefnuna með ræðu. Hann

minntist þess, að fyrsta iðn-

stefna samvinnumanna var hald

FRA LOGREGLUNNI

Á AKUREYRI

AÐFARARNÓTT síðasta laug-

ardags lenti bíll á steingirðingu

í Hamarsstíg. Karl og kona voru

í bifreiðinni og voru þau flutt

í sjúkrahús. Bifreiðin skemmd-

ist mjög mikið. Á sunnudaginn

valt bílaleigubíll, sem erlendur

maður ók, í Vaðlaheiði. Ekki

urðu slys á fólki.

í síðustu viku varð drengur á

reiðhjóli fyrir bíl á mótum Norð

urgötu og Gránufélagsgötu.

Hann var fluttur í sjúkrahús,

eitthvað meiddur.

Á laugardagsnóttina var rúða

brotin í Markaðinum, en engu

var þar stolið. Lögreglan biður

þá, sem veitt gætu upplýsingar,

að láta vita.                               ?

in í Brekkugötu 1 við Ráðhús-

torg, árið 1955, og hversu mikl-

um vexti og breytingum iðnað-

urinn hefði tekið síðan. Síðan

sagði hann:

Hvarvetna blasa við stórstíg-

ar framfarir á sviði iðnaðarins

hér, og mikill er sá fjársjóður,

sem iðnaðurinn hefur skilað

þjóðinni. Allar þjóðir keppa að

því að vinna þau hráefni, sem

til eru í landinu. Þeirri stefnu

í samvinnuiðnaðinum hér á

landi, höfum við fylgt. Fólkið

þarf sjálft að fullvinna hráefn-

in. Við eigum að selja fullunna

vöru en ekki hráefni. Því marki

er að verulegu leyti náð, varð-

andi ull og gærur. Til dæmis

kaupa Sovétmenn af okkur á

þessu ári 250 þúsund ullarpeys-

ur og 93 þúsund ullarábreiður

og nemur verðmæti þessara

vara um 212 milljónum króna.

Finnar kaupa af okkur 230 þús-

und gærur, og sútuð skinn og

húðir eru seldar til ótal landa.

Pelsar og skinnafatnaður, sem

er nýjasta framleiðslugreinin,

verður flutt út á þessu ári fyrir

30—40 milljónir króna. Danir,

Þjóðverjar kaupa meðal ann-

arra af okkur lopa og hand-

unnar lopavörur í vaxandi mæli

Þessi viðskipti námu  á sl.  ári

ramaiara

A KJARAMÁLARÁDSTEFNU

AÍþýðusambands íslands, sem

haldin var í Reykholti í Borgar-

firði í síðustu viku, til undirbún

ings'kjarasamningum þeim, sem

standa fyrir dyrum við atvinnu-

rekendur, eru kröfur þær, sem

einkum verða settar á oddinn,

samkv. samþykktum kjaramála-

ráðsteínunnar, þessar:

1.  Jöfnun launakjara með veru-

legri hækkun láglauna.

2.  Sérstakri kauphækkun í fisk-

iðnaði.

3.  Kauptryggingu tímakaups-

fólks.

4.  Verkalýðsfélögin fái full um-

ráð yfir lífeyrissjóðunum.

5.  40 stunda vinnuvika verði

unnin á 5 dögum.

6.  Verulegri hækkun trygging-

arupphæðar við dauðaslys og

örorku.

7.  Auknum greiðslum í veik-

inda- og slysatilfellum.

8.  Auknu fjárframlagi atvinnu-

rekenda til fræðslustarísemi

verkalýðsfélaganna.

9.  Athugað verði af aðilum

vinnumarkaðarins í samráði við

ríkisvaldið með hvaða hætti er

unnt að verðtryggja almenna

lífeyrissjóði.                              Q

um 340 milljónum króna og

hafa nú á sjö fyrstu mánuðum

þessa árs aukist um 38%, mið-

að við sama tíma í fyrra, eða

úr 199 millj. kr. í 277 millj. kr.

, , , Ég lít svo á, sagði ræðumað-

ur ennfremur, að iðnstefnur

samvinnumanna hér á Akur-

eyri gegni aðallega tvennskon-

ar hlutverki. Annars vegar hinu

viðskiptalega og hinsvegar hinu

félagslega, sem ég tel ekki síður

mikilvægt.         Samvinnufólkið,

sem vinnur hliðstæð störf um

land allt, þarf að kynnast, ræða

sín hugðarefni og hinar mörgu

hliðar viðskiptalífsins ....

Samkvæmt skýrslum voru

íbúar hér á Akureyri í des. s.l.

11.182, en ég hef ekki tölur um



Harry Fredenksen setur

iðnstefnuna á Akureyri.

atvinnuskiptingu fólksins. En

ætla má, að um 1000 manns

vinni í verksmiðjum samvinnu-

manna, og er þá sennilega ekki

fjarri lagi að gera ráð fyrir að

um 3000 manns hafi framfæri

sitt af iðnaðarstörfum. Þetta er

hár hundraðshluti eins bæjar-

félags, og þarf þó að aukast, en

skortur  er  á  iðnverkafólki  til

starfa. í ræðulok sagði fram-

kvæmdastjórinn iðnstefnu sam-

vinnumanna setta og bauð öll-

um viðstöddum að ganga um og

gerahagstæð kaup.

Iðnstefna samvinnumanna,

sem haldin var fyrir og um síð-

ustu helgi, vakti mikla athygli.

Sextán verksmiðjur SÍS og

kaupfélaganna sýndu þarna

framleiðslu sína.

Meðal nýjunga má nefna nýj-

ar tegundir og gerðir af garni

í nýjum litum, einnig áklæði,

ullarteppi og fleiri ullarvörur

frá Gefjuni.

Skóverksmiðjan Iðunn sýndi

meðal annars nýjar tegundir af

haust- og vetrarskóm, skólaskó

og háhælaða karlmannaskó.

Fataverksmiðjan Hekla sýndi

nýjan sportfatnað, pelskápur,

úlpur og peysur.

Efnaverksmiðjan Sjöfn sýndi

mjög fjölbreyttar málningar-

vörur og nýjar tegundir: Úti-

tex, Flögu-tex og óskalitakerfið,

ennfremur svampdýnur.

Samvinnutrésmiðjurnar á Sel

fossi, Vík og Hvolsvelli sýndu

margs konar bólstruð húsgögn,

einnig borðstofu- og skrifstofu-

húsgögn og eldhúsinnréttingar.

Plasteinangrun h.f. sýndi ein-

angrunarplast og plastpoka af

öllum stærðum og þykktum. En

Plasteinangrun og Samvinnu-

trésmiðjurnar sýndu þarna í

fyrsta sinn. Ennfremur Vél-

smiðjan Oddi, sem sýndi Golf-

ofna, bobbinga og vatnshita-

dunka, og Húfuverksmiðjan

Höttur í Borgarnesi, sem sýndi

húfur og ýmsar smávörur úr

skinnum.

Iðnstefnuna skipulögðu Jón

Arnþórsson og Rögnvaldur

Gíslason, en uppsetningu henn-

ar stjórnuðu Mikael Fransson

og Haraldur Magnússon.         Q

FUGLADAUÐI

TALSVERT ber á illa útleikn-

um sjófuglum, einkum æðar-

fugli, við fjörur í nágrenni Ak-

ureyrar, vegna þess að olía hef-

ur komizt í fiður þeirra, en eftir

það er þeim ekki lífs von. Hins

vegar vita menn ekki enn hvar

sú olía er, sem þessu veldur, og

er þar rannsóknar þörf.         ?

70 manns vantar

til starfa í haust

SAUDFJÁRSLÁTRUN hefst á Akureyri 12. september.

Sláturhússtjóri KEA, Haukur P. Ólafsson, tjáði blaðinu eft-

irfarandi í gær:

Við þurfum 120 manns í vinnu, karla og konur, á meðan

sláturtíð stendur, frá 12. september til 25. október, en lógað

verður rúmlega 37 þúsund fjár. Við höfum nú fengið um

50 manns, og vantar því 70. Ef ekki rætist úr þessu innan

fárra daga, hlýtur sláturtíðin að lengjast til muna, með ófyr-

irsjáanlegum afleiðingum.

Þessar upplýsingar eru alvarlegar. Hér á Akureyri mun

naumast mikið af „lausu" vinnuafli, en þó ekki útilokað, að

konur gætu stundað hálfsdagsvinnu, eða tvær tekið að sér

heilt starf. Ennfremur er því beint til bænda og fjölskyldna

þeirra, þar sem þess er nokkur kostur, að gefa kost á sér til

sláturhússtarfa til þess að koma í veg fyrir yfirvofandi öng-

þveiti.                                                                                ?

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
4-5
4-5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8