Dagur - 12.05.1986, Blaðsíða 5

Dagur - 12.05.1986, Blaðsíða 5
lesendahorniá 12. maí 1986 - DAGUR - 5 „Ein tafla þrisv- ar á dag“ Mig langar að koma á framfæri nokkrum orðum, eftir að hafa lesið grein í Degi þann 6. maí sl. um fund þann um vímuefnalausa æsku, er haldinn var í Alþýðu- húsinu fyrir stuttu. Þar er spurt hvort deyfilyfja- neysla vegna veikinda geti leitt til ávana og Ólafur Oddsson héraðs- læknir svarar því neitandi: „Það er að segja ef skammturinn mið- ast við að losa sjúkling við sárs- auka, en er ekki gefinn til að komast í vímu,“ tilvitnun lýkur. Ég tel Ólaf vera ábyrgan lækni og heiðarlegan og því skil ég að hann skyldi svara þessu til, en því miður eru til innan læknastéttar- innar ekki síður en í öðrum stétt- um fólk, sem hefur tilhneigingu til að leysa mál á einfaldan hátt án þess að hugsa um daginn á morgun. Ég var svo ólánsöm, að lenda undir umsjá slíks læknis og í stað- inn fyrir að fjarlægja orsökina fyrir þjáningum mínum, þá gaf hann mér lyf, sem ég varð háð. Verkjalyf, bólgueyðandi lyf, vöðvaslakandi lyf og ef ég var með eitthvert nöldur um hægan bata og að ég vildi láta gera eitthvað, þá fékk ég róandi. Manneskja sem tekur þessi lyf í einhvern tíma, verður smátt og smátt biluð og gerir sér ekki grein fyrir því sem er að gerast. Líkam- inn dofnar, heilinn dofnar, dóm- greindin minnkar, sjálfsvirðingin minnkar, manneskjan verður fyr- ir rest lifandi maskína sem tekur sínar pillur af því læknirinn segir að hún þarfnist þeirra, og ef hún ekki tekur þær þá verður hún svo veik. Mitt lán varð það, að aðrir en ég sáu hvert stefndi með mig og ég komst í meðferð hjá SÁÁ. Afengi notaði ég ekki og það er líka eins gott, því mér fannst alveg feikinógu erfitt að losna við pilluátið, þó ekki hefði vín bæst við. Það var heilt helvíti að ganga í gegnum þessa afvötnun og sú staðreynd, að mér var haldið á Vogi í þrjár vikur segir mér, að þessi sakleysislega formúla ein tafla þrisvar á dag, sé ekki eins saklaus og hún hljómar. Líf mitt án þessara sterku lyfja er svo sannarlega þeirra þjáninga virði, sem ég varð að þola til að losna við þau og í dag nota ég lyf sem ekki eru ávanabindandi. Það er nefnilega svo undarlegt, að þau eru til og mér er ómögulegt að skilja, hvers vegna læknar gefa lyf sem eru ávanabindandi, þegar þess er ekki þörf. Ég vil bara benda fólki á að tala við lækninn sinn ef til þess kemur að það þurfi á slíkum lyfj- um að halda og vera á varðbergi gagnvart þeim, því þau eru svo fljót að taka af manni ráðin og það er engin ástæða til þess að taka lyf án þess að vita allt um þau. Óg eins vil ég beina þeirri ósk minni til lækna, að þeir sýni sjúklingum þolinmæði og upplýsi þá um lyfið sem þeir ávísa, því ég held að margir séu hræddir við lyf eftir alla þessa umræðu sem nú er í gangi um þessi mál og það er kannski bara eins gott. Unnur. ^iögni._____________ Úti er ævintýri Ævintýri hafa fylgt mönnunum í aldaraðir. Oftast eru ævintýri skemmtileg. Þau hafa t.d. þann mikla kost, sem virðist vera á hröðu undanhaldi, að enda vel, - svona oftast. Nýlega urðum viö þó vitni að einu litlu ævintýri, sem endaði ekki alveg nógu vel. Ekki veit ég hvað þetta ævintýri heitir, ef það heitir þá nokkuð, en við getum kallað það: Þegar við töpuðum Júró- visjón. Einhver spakur lét svo um mælt í þessu sambandi, að þetta hafi verið mesti tilvonandi stórsigur, sem við hefðum nokkru sinni misst af. Ég man eftir því hérna um árið, að erkifjendurnir Danir, unnu okkur í fótbolta. Þeir eigin- lega rótburstuðu okkur og þjóð- in, eins og hún lagði sig, fékk móðursýkiskast. Og margar kenningar voru uppi: Dómara- kenningin, línuvarðakenningin, matarkenningin, veðurkenning- in og áhorfendakenningin svo eitthvað sé nefnt. Mér er nær að halda að það hafi verið skip- uö nefnd, til að rannsaka þessi ósköp. Og nefndin komst að þeirri gáfulegu niðurstöðu, að íslendingar hefðu ekki beinlínis verið svona lélegir, heldur hefðu Danir barasta verið svona afskaplega góðir. Og svo kom annað tap. Við vorum rótburstaðir í söngva- keppni. Auðvitað fékk liðið sitt fasta móðursýkiskast. Og aftur voru margar kenningar* uppi: Hljómsveitin norska var að sjálfsögðu hlutdræg og gerði I því að spila falskt og allt of veikt. Föt sönghópsins voru hreint og beint púkaleg og sviðsframkoman misheppnað- ist. Óneitanlega minnir nú fata- kenningin á gamalt ævintýri um keisara í nýjum fötum. Æsí sönghópurinn var ekki í fötum og þess vegna er tómt mál að deila um föt. Þau voru f tuskum og það var meinið. En að sjálf- sögðu verður að skipa nefnd til að rannsaka allt þetta mál. Og svona til að flýta fyrir niðurstöðu væntanlegrar rannsóknar- nefndar, leyfi ég mér hér með að stinga upp á því hvort ekki komi til greina, að ástæðan fyrir hinu hroðalega tapi í Björgvin á dögunum hafi ekki einfaldlega orsakast af því, að íslenska lagið var ekki nógu gott? Eða eigum við að orða þetta svolítið kurteisislega og segja að lagið hafi verið frábært, en hin lögin hafi barasta verið ennþá frá- bærari? Eða eins og skáldið sagði: En munið börn, að oftast endar illa, það ævintýri, sem byrjar vel. Högni. Lejon 42.195 st. 35-9'Á bporthú^id HAFNARSTRÆTI 94 SIMI 24350 Miinchen st. 31á-11 Universalst. 7-11 Flip st. 25-35 Panther st.33-51Á Skrifstofuhúsnæði tíl leigu í miðbænum. Uppl. í síma 21792 eftir kl. 19. Farmanna- og fiskimannasamband íslands Stjórnunarfélag íslands Endurmenntun Farmanna- og fiskimannasamband fslands og Stjórnunarfélag íslands hafa ákveðið að efna til 7 vikna endurmenntunarnámskeiðs fyrir þá félags- menn F.F.S.Í. sem hafa allt að 10-15 ára starfs- reynslu og hyggjast hefja störf við verslun og við- skipti í landi. Kennslan skiptist á 4 svið: 1. Sölu- og markaössvið a. Sölutækni b. Markaðssókn - útflutningsverslun c. Innflutnings- og útflutningsskjöl d. Flutningatækni 3. Tölvusvið a. Grunnnámskeið á tölvur b. Ritvinnsla c. Gagnagrunnur d. Áætlanagerð 2. Stjórnunarsvið a. Stjórnun og samskipti við starfsmenn b. Stjórnun fyrir nýja stjórnendur c. Viðtalstækni d. Verðútreikningar og tilboðsgerð e. Bókhald 4. Málasvið a. Ensk verslunarbréf b. Enska í viðskiptum og verslun Megináherslan verður lögð á tvö fyrstu sviðin. Kennslan hefst 20. maí 1986 og stendur fram til 4. júií, alls 7 vikur. Kennt verður alla virka daga frá kl. 08:00 til 15:00. Umsóknir um nám þetta verða að berast í síðasta lagi 14. maí. Allar nánari upplýsingar veitir Farmanna- og fiskimannasamband íslands í sfma 91-29933 og Stjórnunarfélag íslands í síma 91-621066. A Stjómunarfélag islands Farmanna og fiskimannasamband islands Undanrenna er fitulítil og frískandi Mjólkursamlag

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.