Dagur - 12.05.1986, Blaðsíða 9

Dagur - 12.05.1986, Blaðsíða 9
12. maí 1986 - DAGUR - 9 1 ott ifi Inno „LGIl VI og þæg lílíld ileg“ - segir Valgerður Aðalsteinsdóttir, sem hefur unnið á Heklu í 20 ár Við eina saumavélina situr Yalgerður Aðalsteinsdóttir. Valgerður er búin að vinna á Heklu í 20 ár, með hvíldum, eins og hún orðaði það. Það er því ekki hægt að tala um við- vaningsleg vinnubrögð hjá henni. Valgerður gaf sér tíma til að líta aðeins upp og spjalla. Hún var fyrst spurð hvernig henni líkuðu breytingarnar. „Mér líkar þær vel, þetta er létt vinna og þægileg. Þetta eru auðvitað mikil viðbrigði, en enn sem komið er er þetta léttara en það var. Það var oft erfitt að sauma stakkana og buxurnar, erfitt að fást við rennilása og þess háttar.“ - Hafiði bónus við þennan saumaskap? „Ég veit ekki hvernig verður með bónusinn, það var hópbónus og hann var nú æði misjafn. Það er auðvitað alltaf stefnt að því að það fari eitthvað ákveðið út, en við fáum einhvern aðlögunar- tíma.“ - Heldurðu að þú endist hér 20 ár í viðbót? „Það er allt óákveðið með framtíðina, ég læt hverjum degi nægja sína þjáningu. Ég býst varla við því að verða hér 20 ár í viðbót.“ -HJS Valgerði Aðalsteinsdóttur líkar breytingarnar vel, „þetta er léttara,“ segir hún Myndir: KGA „Er ánægð með að hafa einhverja vinnu,“ segir Helga Stefánsdóttir, sem hefur sauniað fyrir Sambandið sl. 6 ár. „Ég er búin aö sauma hjá Sam- bandinu sl. 6 ár. Var í jakka- saumi fram aö áramótum, það er svipað því sem við erum með aftur núna,“ sagði Helga Stefánsdóttir. Helga brást vel við beiðni um smá spjall og við spurðum hana því eins og Valgeröi, hvernig henni líkaði vinnan. „Mér líkar þetta mjög vel, sér- staklega að hafa vinnu. Þetta er létt og þægileg vinna, maður þarf ekkert að vera að stressa sig.“ - Góður andi á vinnustaðn- um? „Já, hann er mjög góður, það má segja að hér séu allir eitt.“ Helga saumar saman fóðrin í jakkana og setur á þau stroffin og barmfóður. Hún var spurð hvort hún saumaði heima líka. „Nei, ég er alveg hætt því. Ég gerði það áður, tók þá að mér verkefni. Það er alveg nóg að sauma í vinnunni þegar maður er orðinn svona fullorðinn." - Þokkalegt káup? „Já, það er þokkalegt, við höf- um haft bónus sem hefur lyft því aðeins upp. En auðvitað er verk- smiðjukaup frekar lélegt, það vita allir.“ -HJS „Góðar horfur um verkefni“ - segir Arni Gunnarsson, verkstjóri á Heklu 1. maí varð breyting á rekstri Heklu, eða fatadeildar Iðnað- ardeildarinnar, eins og það heitir nú. Gömlu nöfnin, Hekla, Gefjun og Iðunn hafa nú verið lögð niður þó fólk noti þessi nöfn ennþá í daglegu tali. Blaðamaður og Ijósmynd- ari Dags brugðu sér í heimsókn út á Heklu og spjölluðu þar við starfsmenn. Verkstjóri á Heklu er Árni Gunnarsson, hann var spurður að því hvað verið væri að fram- leiða núna. „Við erum að sauma ullarjakka fyrir Icemart, þeir fara í fríhöfnina og til útflutnings. Við höfum verkefni í þessu fram að sumarfríum. Já, já, þetta selst alltaf, það er ótrúlega drjúg verslun í ullarvörum, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu.“ - Nú hefur verið talað um að sala á íslenskum ullarvörum hafi minnkað mikið vegna þess að þær þykja hallærislegar? „Það hefur kannski eitthvað dregið úr sölunni, ég er ekki vel kunnugur því. Það er í bígerð að hanna ný snið fyrir þennan markað, hvenær sem það verður. Ég er hissa á því að ekki skuli vera unnið meira ofin efni á Gefj- un og saumaðir frakkar og jakkar, svo eitthvað sé nefnt. Það er hægt að framleiða fyrsta flokks efni hérna.“ - Hvað vinna margir hérna núna? „Það var ákveðið að halda áfram með helminginn af því sem var og það eru hérna núna 19'/í dagsverk. Áður voru 37 dagsverk í saumaskap og eitthvað fleiri þar fyrir utan. Þessi deild tilheyrir nú ullariðnaðinum, markaðssetning- in, hönnunin og það allt.“ í helmingnum af salnum þar sem saumað er standa nú vélar sem breytt er yfir, Árni var spurður hvort þessar vélar yrðu látnar standa ónotaðar til lengdar? „Þessar vélar verða hér áfram. Þetta eru mikið sérhæfðar vélar fyrir buxur, t.d. til að sauma rennilása í. Ein af breytingunum sem varð á rekstrinum er sú að nú tökum við að okkur verkefni úti í bæ og það gæti orðið buxna- saumur og þá notum við vélarn- ar.“ Enginn ACT fatnaður er nú framleiddur hjá Heklu lengur. Sagði Árni að svo gæti farið að Verslunardeildin myndi panta eitthvað af fötum. „Þeir eru bún- ir að panta buxur og úlpur frá Kóreu, en við fáum kannski ein- hver verkefni frá þeim fyrir jólin.“ - Þegar breytingarnar voru gerðar hér, urðu þá einhverjir atvinnulausir? „Það var öllum boðin vinna, en það þáðu ekki allir það boð. Það voru 7 eða 8 konur sem ekki héldu áfram að starfa innan fyrir- tækisins. Þetta var auðvitað dálít- il breyting fyrir þær sem voru að sauma buxur, það er annað að sauma úr voð.“ - Næg verkefni framundan? „Já, það eru góðar horfur um verkefni, en svo er það bara spurningin hvort við fáum nóg fyrir framleiðsluna.“ -HJS „Ótrúlega drjúg verslun í ullarvörum í Bandaríkjunum og Evrópu,“ segir Árni Gunnarsson, verkstjóri á Heklu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.