Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31 . . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						6. ágústi 1986 - DAGUR - 11

Hestar við

allra hæfi

- hjá hestaleigunni í Mývatnssveit, sem

Hinrik Már Jónsson rekur

í Mývatnssveit er rekin ferða-

þjónustan Eldá. Þessi ferða-

þjónusta samanstendur af

verslun, bátaleigu, hægt er að

fá tjaldstæði og einnig er rekin

þar hestaleiga sem hliðarfyrir-

tæki, eins og Hinrik Már

Jónsson,          umsjónarmaður

hennar, orðaði það. Hinrik tók

ljúfmannlega í smá spjall um

hestaleiguna og var fyrst

spurður hvernig hefði gengið í

sumar.

„Það hefur gengið þokkalega

það sem af er sumrinu. Þetta er

bara tilraunastarfsemi ennþá og

kemur ekki í ljós fyrr en í lok

sumars hvort grundvöllur er fyrir

þessari starfsemi."

- Hvað ertu með marga hesta?

„Ég er með 7 hesta, en það

stendur til að fjölga þeim. Nei,

nei, ég á þá ekki alla, suma leigi

ég af öðrum og aðra er ég með að

láni. Sjálfur á ég 2 hesta, en ég

nota þá bara sjálfur."

-  Ertu með hesta við allra

hæfi?

„Já, ég held að mér sé óhætt að

segja það. Þetta eru tvenns konar

íestar. Annars vegar hestar sem

illir geta riðið og síðan algjörir

byrjendahestar. Þeir eru húðlatir

og fínir fyrir börn og byrjendur.

Þeir sem eru óvanir hestum halda

að þetta sé eitthvert mál, en það

er algjör misskilningur."

-  Ertu með fastar skoðunar-

ferðir um sveitina?

„Nei, það er ekki ennþá boðið

upp á það, ég ætla að sjá til

hvernig þetta kemur út. Þetta eru

mest klukkutíma ferðir og það er

leiðsögumaður í hverri ferð, það

er ég og annar strákur sem sjá um

það. Ég held að fólk fari mest á

hestbak til að sjá landslagið

betur."

Kostar klukkutíminn á hest-

baki 350 kr. og sagði Hinrik að

heldur fleiri útlendingar en

íslendingar notfærðu sér þessa

þjónustu.                            -HJS

Sjálfboðaliða

vantar í skálavörslu í Laugafelli 11.-17. ágúst

og í Dreka við Öskju 17.-24. ágúst.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Ferðafélags Akureyrar.

Opin frá kl. 17-19 alla virka daga.

Skrifstofustarf

Óskum eftir að ráða starfsmann til almennra

skrifstofustarfa fyrir einn af viðskiptavinum

okkar.

Starfið er einkum fólgið í vinnu við tölvuvætt við-

skipta- og fjárhagsbókhald og innheimtu reikninga.

Þyrfti að geta byrjað sem fyrst.

Umsóknir séndist fyrir 12. ágúst n.k. til:

BÓKHALD OG ENDURSKOOUN

Tryggvabraut % Akureyri sími 96-21838.

j-y^^

Jiögni

Frídaga fjölgun og önnur

Ég held að menn séu nokkurn

veginn sáttir við þessa þrjú

hundruð sextiu og fimm daga,

sem oftast eru í hverju ári.

Sömuleiðis heyrast menn lítið

kvarta yfir fimmtíu og tveim vik-

um eða tólf mánuðum. En það

eru sunnudagarnir. Þeir hafa

aldrei verið nógu margir. En

finna má ráð við flestu eða öllu.

Og nú gripu menn til þess ráðs

að fjölga sunnudögum um

helming og héldu hvíldardaga

hátíðlega bæði laugar- og

sunnudaga. Jafnvel gengu

sumir svo langt, að byrja helg-

ina um miðjan föstudag. Þótti

einsýnt að með þessu áfram-

haldi yrði vinnuvikan að lokum

frá því klukkan ellefu þrjátíu til

klukkan hálftólf, á mánudögum.

En þá var það, að einhverjum

datt það snjallræði í hug að

ákveða auka frídag, sem bund-

inn skyldi vera við ákveðna stétt

manna. Trúlega voru það sjó-

menn sem byrjuðu. Eins og allir

vita eru menn á sjó alla daga,

svo það var e.t.v ekkert til-

tökumál þótt sjómenn veldu sér

sunnudag f þessu sambandi.

Enda breytti þetta litlu sem

engu. Sjómenn eru eftir sem

áður oftast á sjó, uppteknir við

það að draga björg í bú en eftir-

láta fyrrverandi sjómönnum og

landkröbbum að halda daginn

hátíðlegan.

En nú tóku verkamenn til

sinna ráða. Og þeir vildu ekki

brenna sig á því sama og

sjómenn, en miðuðu sinn frtdag

við ákveðinn mánaðardag, nán-

ar tiltekið þjóðhátíðardag vina

okkar í austri, Rússa. Því er þó

ekki að neita, að stöku sinnum

ber þennan dag upp á laugar-

eða sunnudag, en það er þó

mun sjaldnar en hitt. Og áður

en nokkur vissi af, var öll þjóðin

orðin að verkamönnum og -kon-

um þennan dag og tók sér frf.

Og nú máttu verslunarmenn

ekki vera minni. Þeir létu sér víti

sjómanna og verkamanna til

vamaðar verða og bundu sinn

frídag við ákveðinn vikudag,

mánudag, og þann dag ber

aldrei upp á laugar- eða sunnu-

dag, það er alveg pottþétt. Að

sjálfsögðu tóku landsmenn allir

þessu fegins hendi og héldu

upp á daginn verslunarmönn-

um til samlætis, þó nú væri. Er

nú svo komið, að þessi svokall-

aða verslunarmannahelgi, er

orðin helgi allra landsmanna,

nema verslunarmanna. Þeir

verða að vinna þessa helgi

þegar allir eiga frí og bráðvant-

ar þjónustu.

En nú virðist vera komin ein-.

hver stöðnun í frfdagamyndun.

Er engu líkara en menn telji nú

nóg komið. En baráttan verður

að halda áfram. Hvernig væri

að rísa nú upp af svefni og

útnefna fleiri frídaga? Hvar eru

nú flugumferðarstjórar og mjólk-

urfræðingar? Mér dettur í hug,

að upplagt væri að framlengja

verslunarmannahelgina og

gera t.d. þriðjudaginn fyrsta í

ágúst að frídegi flugumferðar-

stjóra og miðvikudagurinn gæti

þá verið frídagur mjólkurfræð-

inga. Kennarar og iðnaðar-

menn gætu svo rifist um það

sem eftir er af vikunni. Og ekki

skal standa á okkur hinum að

halda daginn hátíðlegan, ann-

að hvort með, eða fyrir, þessar

stéttir.

Annars er það með ólíkind-

um hvað þessi helgi, verslun-

armannahelgin, reynist mönn-

um drjúg. Það sýna m.a. barns-

fæðingamar í maí. Og á fleiri

sviðum koma menn ýmsu í verk

á þessum þrem dögum. Menn

ferðast einhver ósköp. Ég hitti

kunningja minn í gær og spurði

í mesta sakleysi hvort hann

hefði farið eitthvað um helgina?

Jú, ég fór hringinn, svaraði

hann. Veðrið? Jú, það var

sæmilegt. Rigndi að vísu þess-

ar sex mfnútur sem við stopp-

uðum í Skaftafelli.

Högni.

Bæjarritari

Sauðárkrókskaupstaður auglýsir laust til umsóknar

starf bæjarritara. Umsóknarfrestur er til 10. ágúst.

Upplýsingar gefur bæjarstjóri í síma 95-5133.

Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.

Hin árlega

okkar

er hafin

Þú gerír reyfarakaup

á útsölunni okkar

Sporthú^id

Hafnarstræti

24350

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12