Dagur - 26.03.1987, Blaðsíða 13

Dagur - 26.03.1987, Blaðsíða 13
26. mars 1987 - DAGUR - 13 -íþróttir._________ Akur- eyrar- mót - í alpagreinum Akureyrarmótið í svigi í flokki 13 - 14 ára fer fram í Hlíðar- fjalli á laugardag og hefst kl. 10. Kl. 12 hefst keppni í svigi í flokkum 10 ára og yngri. Keppt verður í þremur flokkum, 8 ára og yngri, 9 ára og 10 ára flokki. Á sunnudag verður síðan keppt í stórsvigi á Akur- eyrarmótinu í flokki 13 - 14 ára og hefst keppni kl. 10. Kl. 12 á sunnudag hefst svo keppni í svigi í flokki 11-12 ára. Aðal- fundur Þórs Aðalfundur íþróttafélagsins Þórs verður haldinn laugar- daginn 28. mars 1987. Fundur- inn fer fram í starfsmannasal KEA í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð og hefst kl. 14. Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf en auk þess verður rætt um fyrirhugaða félagsheimilisbyggingu. Þórsarar eru hvattir til þess að mæta á fundirin og sýna í verki áhuga sinn á starfi félagsins. Lands- mót - vélsleðamanna Landssamband íslenskra vél- sleðamanna mun halda sitt árlega landsmót í Kerlinga- fjöllum um næstu helgi. Dagskráin verður fjölbreytt að vanda og mun fjöldi vélsleða- manna alls staðar að af landinu sækja þetta mót. Getraunir: Einn með 12 rétta Aðeins einn seðill fannst með 12 réttum leikjum hjá íslensk- um getraunum um helgina. Þetta var opinn kerfísseðill með 162 röðum á kr. 810 sem hreppti pottinn. Tólfan jgaf kr. 571.470 en seðl- inum fylgja einnig 9 raðir með 11 réttum þannig að vinningur hans er kr. 709.233. Alls komu fram 16 raðir með ellefu réttum og vinningur á hverja röð er kr. 15.307 Köku- basar Kvennalið Pórs í knattspyrnu heldur kökubasar á sunnudaginn. Basarinn fer fram í Laxagötu 5 og hefst kl. 14. Þarna verða stór- góðar kökur til sölu og þeir sem ætla að ná sér í bita, verða að mæta tímanlega. Umsjón: Kristján Kristjánsson Leikur Eriingur Kristjánsson með KA í handboltanum næsta vetur? Erlingur hættur hjá Fredriksborg - Helgi Ragnarsson þjálfar ÍBÍ Erlingur Kristjánsson sem leikið hefur handbolta með norska 1. deildarliðinu Fredr- iksborg SKI í vetur, hefur ákveðið að leika ekki með lið- inu næsta keppnistímabil. Norsku 1. deildinni er lokið og hafnaði lið Fredriksborgar í 5. sæti. Framundan er úrslita- keppni þar sem 4 efstu liðin í 1. deild leika um meistaratitilinn. Erlingur hefur sótt um í íþróttaháskólann í Osló en í sam- tali við Dag í gær, sagði hann að það væru um helmingslíkur á því að hann kæmist inn í skólann næsta haust. „Ef ég fæ iringöngu í skólann næsta vetur, mun ég hægja á í handboltanum og ann- Einn leikur fer fram í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik á laugardaginn. KA og Haukar leika í íþróttahöllinni á Akur- eyri kl. 14. Þetta er síðasti heimaleikur KA og næst síð- asti leikur liðsins í deildinni að þessu sinni. Haukamenn sem berjast fyrir tilverurétti sínum í 1. deild munu án efa mæta grimmir til leiks. KA-menn hafa sýnt það í vetur að það getur ekkert lið bókað sigur gegn þeim og allra síst hér á Akureyri. Róður Haukamanna verður því þungur. að hvort leika með liði í neðri deildunum eða hætta alveg. Þetta hefur gengið upp og niður í vetur og ég er ekki nógu ánægður með sjálfan mig,“ sagði Erlingur. „Það er nú samt alltaf best að leika með KA-liðinu og ef ég verð ekki úti næsta vetur, leik ég með því,“ sagði Erlingur enn- fremur. Hann kemur til landsins á sunnudaginn og mun hefja æfingar með knattspyrnuliði KA fljótlega eftir helgina. Helgi Ragnarsson þjálfari Fredriksborg SKI hefur ákveðið að snúa heim á ný og hætta þjálf- un erlendis. Hann er þó alls ekki hættur þjálfun og hefur þegar ráðið sig sem þjálfara ÍBÍ í knatt- spyrnu í sumar. Liðið er í næst neðsta sæti deild- arinnar, með 8 stig en á ennþá fræðilega möguleika á því að bjarga sérfrá falli eftir sigurinn á Fram um síðustu helgi. Til þess þurfa Haukar að vinna bæði KA um helgina og KR í síðustu umferðinni og á meðan þurfa Framarar að tapa báðum sínum leikjum, gegn Víkingi og FH. Ef KA sigrar á laugardag, falla Haukar í 2. deild. KA-menn töpuðu stórt fyrir Stjörnunni um síðustu helgi og þeir þurfa að spila mun betur á laugardag en þeir gerðu þá ef þeim á að takast að vinna. Handbolti: Fellir KA Hauka? Knattspyrna: Leiflur til Knattspyrnulið Leifturs I Ólafsfírði heldur til Englands í næsta mánuði. Liðið mun dvelja í æfíngabúðum í útjarði London og auk þess spila eina þrjá æfíngaleiki. Þá verður að sjálfsögðu farið á völlinn og fylgst með leikjum í 1. deild- inni ensku. Haldið verður utan með 22 manna hóp þann 9. apríl og komið heim 18. apríl. Leiftursmenn hafa æft af krafti síðustu mánuði en leikmenn liðs- ins eru dreifðir vítt um landið. 11 manna hópur æfir í Reykjavík undir stjórn Óskars Ingimundar- sonar þjálfara, nokkrir æfa með Englands Þór á Akureyri og enn aðrir æfa heima í Ólafsfirði. Leiftursmenn unnu 3. deildina í fyrra og þeir ætla sér stóra hluti í 2. deildinni í sumar. í fyrra haust var byrjað á æf- ingagrasvelli í Ólafsfirði og verður síðan meiningin að hefjast handa við gerð nýs grasvallar sem staðsettur verður sunnan við núverandi malarvöll. Er ætlun heimamanna að nota sandinn sem dælt verður upp við dýpkun hafnarinnar, í undirlag á völlinn. Ef allt fer samkvæmt áætlun ætti að vera hægt að leika á vellinum 1988. Handbolti: Kemst Þór í 1. deild? - Liðið ieikur við ÍBV á Akureyri annað kvöld Annað kvöld kl. 20 leika Þór og ÍBV í 2. deildinni í hand- bolta. Þetta er án efa mikil- vægasti leikur sem fram fer í HöIIinni á Akureyri á þessu keppnistímabili. Leikurinn sker úr um það hvort liðið, Þór eða ÍBV fylgi ÍR í 1. deiídina að ári. Liðin eru jöfn að stigum fyrir þessa síðustu umferð. Þórsarar standa þó betur að vígi þar sem þeir unnu fyrri leik liðanna sem fram fór í Eyj- um og þeim nægir því jafntefli annað kvöld. Dagur hafði samband við Erlend Hermansson þjálfara Þórs og spurði hann hvernig þessi mikilvægi leikur legðist í hann. „Hann leggst mjög vel í mig. Strákarriir eru ákveðnir í því að vinna leikinn. Við erum búnir að vinna þá einu sinni í vetur og ætl- um að gera það aftur. Hjá mér eru allir leikmenn heilir óg þeir ætla að selja sig dýrt. Þá hefur Árni Stefánsson hafið æfingar með liðinu og það bendir flest til þess að hann leiki með gegn ÍBV. Ég skora á bæjarbúa að fjöl- menna í Höllina og hvetja okkur til sigurs. Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn. Það væri stórkost- legt að sjá fulla Höll af áhorfend- um og þeir mættu koma með trommur, flautur, hrossabresti og annað slíkt með sér. Áhorfendur hafa staðið mjög vel við bakið á okkur í vetur og ég vona að þeir bregðist okkur ekki núna,“ sagði Erlendur Hermannsson. Dagur hefur haft af því spurnir að með ÍBV liðinu komi hópur áhorfenda og því þurfa Akureyr- ingar að fjölmenna í Höllina og kæfa hvatningarhróp þeirra um leið og þeir hvetja Þór til sigurs. „Ætlum að vinna leikinn,“ segir Erlendur Hermannsson. Frábær árangur Eyjólfs Sverrissonar - í 1. deildinni í körfubolta í vetur Keppni í 1. deild á íslandsmót- inu í körfuknattleik er lokið eins og komið hefur fram í blaðinu. 20. og síðasta umferð- in var leikin um síðustu helgi. ÍR stóð uppi sem sigurvegari, Þór varð í 2. sæti, UMFG í 3. sæti, UBK í 4. sæti, UMFT í 5. sæti og ÍS í því 6. Eyjólfur Sverrisson var langstigahæstur leikmanna 1. deildar og sýndi einnig langbestu vítahittnina. Svona rétt í lokin er rétt að skoða hvaða leikmenn það voru sem skoruðu flest stigin, sýndu bestu vítahittnina, skoruðu flest- ar þriggja stiga körfur og síðast en ekki síst fengu flestar villur í deildinni í vetur. Þegar síðast talda atriðið er skoðað kemur dálítð forvitnilegt í ljós. Stigaskor: 1. Eyjólfur Sverriss. UMFT 528 2. ívar Webster Þór 434 3. Guðm. Bragas. UMFG 360 4. Helgi Gústafsson ÍS 352 5. Karl Guðlaugsson ÍR 347 6. Hjálmar Hallgr.son UMFG 345 7. Konráð Óskarsson Þór 333 Þriggja stiga körfur: 1. Karl Guðlaugsson ÍR 45 2. Konráð Óskarsson Þór 37 3. Eyjólfur Sverrisson UMFT 22 4. Kristján Rafnsson UBK 17 5. Hannes Hjálmarsson UBK 16 6. Hjálmar Hallgr.son UMFG 16 Vítahittni: (fjöldi skota, stig og nýting) 1. Eyjólfur Sverrisson UMFT 205/166 80.98% 2. Hannes Hjálmarsson UBK 45/35 77.78% 3. Sigurður Bjarnason UBK 79/61 77.22% 4. ívar Webster Þór 59/45 76.27% 5. Jóhannes Sveinsson ÍR 56/41 73.21% 6. Karl Guðlaugsson ÍR 53/38 71.70% Flestar villur: 1. Kári Marísson UMFT 75 2. Sverrir Sverrisson UMFT 73 3. Eyjólfur Sverrisson UMFT 72 4. Rúnar Árnason UMFG 70 5. Konráð Óskarsson Þór 70 6. Guðmundur Björnsson Þór 66 7. Eiríkur Sigurðsson Þór 64 Ætla má að leikmenn Tinda- stóls og Þórs hafi tekið hraust- lega á mótherjum sínum í vetur, alla vega sýnist manni það þegar taflan yfir þá leikmenn sem fengu flestar villur í vetur er skoðuð. Tindastólsmenn eru þar í nokk- rum sérflokki en Þórsarar fylgja fast á eftir og saman hafa norðan- liðin verið í nokkrum sérflokki hvað þetta varðar. Eyjólfur Sverrisson leikmaður Tindastóls átti frábært keppnis- tímabil eins og sést hér að ofan og hann er svo sannarlega maður framtíðarinnar í körfuknattleik.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.