Dagur - 21.08.1987, Blaðsíða 14

Dagur - 21.08.1987, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - 21. ágúst 1987 Slysavarnaskóli sjómanna: Starfsemin hefst í september Slysavarnaskóli sjómanna tekur til starfa nú að loknum sumar- leyfum í byrjun september n.k. Kennsla fer fram með svipuðu sniði og áður. Einkum verður lögð áhersla á kennslu í endur- lífgun, tlutningi slasaðra, ráðum til að halda lífi við erfiðar aðstæður og notkun björgunartækjabúnað- ar um borð í skipum. Einnig verður fjallað um lög og reglur þar að lútandi. Þá er kennd björgun með þyrlum, brunavarn- ir og slökkvistarf. Þar sem ekki hefur verið hægt til þessa að sinna öllum beiðnum um námskeiðahald á vegum skólans, er mjög áríðandi að þeir sem vilja komast á námskeiðin fyrir áramót hafi samband við skólann hið fyrsta. Upplýsingar eru veittar á skrif- stofu Slysavarnafélags íslands í Reykjavík. Markaðurinn í Reistarárrétt Nú á laugardag á milli kl. 13.30 og 17.00 verður líf og fjör í Reist- arárrétt við Dalvíkurveg. Göng- ur og réttir eru þó ekki á döfinni, heldur verður þarna hinn árlegi útimarkaður undir forsjá ung- mennafélaganna í Skriðu- og Arnarneshreppi. Seljendur eru um 30 og fylla alla dilka réttarinnar, en kaup- endur spranga um almenninginn. Á boðstólum er hinn margvís- legasti varningur svo sem búta- saumur, vefnaðarvara, brauð, saltfiskur, sveppir, heimasaum- ur, keramik, rúmfatnaður, skart- gripir, pottablóm, klukkukassar, sulta og bækur. Ungmennafélög- in bjóða upp á „Tívolíleiki" en unglingar ■ úr Möðruvallasókn verða með hlutaveltu til ágóða fyrir kirkjuna. Um kvöldið sér svo ungmenna- félagið í Skriðuhreppi að vanda um svokallað körfuball að Mel- um þar sem kvenfólkið kemur að þessu sinni með drykkjarföng en karlmenn með meðlæti. Léttlamb á Hótel KEA Hótel KEA býður upp á fjöl- breyttan matseðil um helgina eins og jafnan áður. Á matseðli helgarinnar er m.a. að finna svokallað léttlamb, sem er kjöt af sumarslátruðu. Kjötið er fituminna og „léttara" en venjulegt lambakjöt og hefur sú nýjung að bjóða upp á kjöt af sumarslátruðu mælst mjög vel fyrir meðal neytenda. Mat- reiðslumeistararnir á Hótel KEA bjóða upp á léttlambið ofnsteikt og borið fram með madeirabættri túnfíflasósu. Auk þess er ýmsa hefðbundnari rétti að finna á helgarmatseðlinum sem er í gildi föstudag, laugardag og sunnu- dag. Á laugardagskvöldið er að venju dansleikur á Hótel KEA og er það hljómsveitin Helena fagra sem annast tónlistarflutn- inginn. jþrottiL Norðurlandsmótið í golfi: sppni hefst fyrramál ið Leikið á SkeggjabrekkuvelIi í Ólafsfirði Norðurlandsmótið í golfí fer fram á Skeggjabrekkuvelli í Ólafsfirði um helgina og hefst keppni kl. 9 í fyrramálið og verður síðan fram haldið á sunnudag. Leiknar verða 36 holur, með og án forgjafar og verður keppt í karla-, kvenna- og unglingaflokki. Búist er við að allir sterkustu kylfingar Norðurlands mæti til Ieiks. Skeggjabrekkuvöllur sem er 9 holu völlur er í mjög góðu ásig- komulagi um þessar mundir og hefur sjaldan verið betri enda verið unnið að miklum endurbót- um á honum í sumar. Norðurlandsmeistari í karla- flokki án forgjafar árið 1986 varð Axel Reynisson frá Húsavík en Jónína Pálsdóttir í kvennaflokki. Axel mun eflaust reyna að halda titlinum á mótinu en Jónína er flutt frá Akureyri til Reykjavíkur og keppir nú undir merki GR. Unglingameistari árið 1986 varð Sigurbjörn Þorgeirsson frá Akur- eyri og sigraði hann bæði í keppni með og án forgjafar. Búast má við skemmtilegu móti og ættu golfáhugamenn að fjölmenna í Ólafsfjörð og fylgjast með þeim bestu á Norðurlandi í keppni. Körfubolti: Dómaranámskeið Tekst Axel Reynissyni að verja Norðurlandatitilinn í golfi í Ólafsfirði um helgina. Körfuknattlcikssamband ís- lands og Dómaranefnd KKI munu gangast fyrir dómara- námskeiði í september. Námskeiðið hefst fímmtu- Handboltinn af stað - eftir rúman mánuð - Þórsarar byrja á tveimur útileikjum en KA-menn á tveimur heimaleikjum Nú styttist í það að handbolta- vertíðin hefjist fyrir alvöru. Liðin æfa nú af fullum krafti og nokkur þeirra halda innan skamms í æfínga- og keppnis- ferð erlendis, þar á meðal 1. deildar lið KA og Þórs. Keppni í 1. deild hefst þann 30. september en þá verður leikin heil umferð. KA-menn fá Stjörnuna í heim- sókn í fyrsta leik en Þórsarar sækja FH-inga heim í Hafnar- fjörð. Breiðablik og KR leika í Kópavogi, Víkingur og ÍR og Fram og Valur mætast í Reykja- vík. í annarri umferð sem leikin verður 10. október leika Pór og Valur í Reykjavík, KA og Fram á Akureyri, Stjarnan og UBK í Kópavogi, KR og Víkingur og ÍR og FH í Reykjavík. Á þessu má sjá að nýliðar Þórs þurfa að leika fyrstu tvo leiki sína í deildinni á útivelli en KA-menn leika sína fyrstu tvo leiki á heimavelli. Leikmenn KA og Þórs æfa sig nú af fullum krafti fyrir kómandi keppnistímabil en það er ljóst að Þórsarar eiga fyrir höndum harða baráttu fyrir því að halda sæti sínu í deildinni. KA-menn sem leikið.hafa í 1. deild undanfarin ár ættu að geta blandað sér fyrir alvöru í toppbaráttu í vetur, ekki síst þar sem liðið hefur endur- heimt þá Erling Kristjánsson og Jakob Jónsson. Einnig hefur gamla kempan Þorleifur Anan- íasson æft mjög vel í sumar og það kæmi umsjónarmanni íþrótta- síðunnar ekki á óvart þótt Þor- leifur léki með liðinu af fullum krafti í vetur. Dagur hafði samband við Þor- leif og spurði hann hvort hann hefði tekið skóna fram að nýju. „Þó að Jón Kristinsson hafi hjól- að í kringum landið um daginn, er ekki þar með sagt að hann verði sendur á hjólreiðakeppnina á Ólympíuleikunum í Seoul og þó að ég æfi handbolta um þessar mundir, er ekki þar með sagt að ég sé kominn inn í KA-liðið,“ sagði Þorleifur. Hvað um það, reikna má með jöfnu og skemmtilegu móti enda hafa nokkir af okkar snjöllustu hand- knattleiksmönnum snúið heim á nú úr atvinnumennsku. Má þar nefna Einar Þorvarðarson, Sigurð Gunnarsson og Atla Hilmarsson. daginn 24. september og lýkur sunnudaginn 27. september. Námskeiðið verður bæði bók- legt og verklegt. Fyrirlesari verður norskur alþjóðadómari Tor Christian Bakken. Þátttökutilkynningar skulu ber- ast skrifstofu KKI fyrir 1. sept- ember n.k. Námskeiðið er öllum opið. Dómaranefnd KKÍ mun einnig gangast fyrir fundi mánudaginn 28. september með starfandi dómurum. Ætlunin er að starf- andi dómarar geti undirbúið sig sem best undir næsta keppnis- tímabil. Fyrirlesari verður Tor Christian Bakken. Allar nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu KKI í síma 91-685949. Knattspyrna: Firma- og félagakeppni KA Hin árlega fírma- og félaga- keppni KA í knattspyrnu verð- ur haldin á KA-velIi dagana 26., 27., 28. og ef til vill 29. ágúst næstkomandi. Eins og undanfarin ár verður leikið á litlum völlum , 30 x 60 m og er leiktíminn 2x10 mín. Þeir leikmenn sem hafa leikið í 1. eða 2. deild eða verið á leik- skýrslu í þeim deildum, eru ekki gjaldgengir í keppnina. Óheimilt er að leika á svokölluðum grasskóm. Þátttökugjald er kr. 7000 fyrir hvert lið nema ef um fleiri en eitt lið sé að ræða frá sama fyrirtæki, þá lækkar gjaldið. Þátttökutilkynningar berist til Árna Freysteinssonar í KA-heimilinu í síma 23482, Bjarna Jónssonar í síma 24147 eða Friðfinns Hermannssonar í síma 22900 sem einnig veita allar nánari upplýsingar. Kvennalandsliðið valið: Þrjár frá Akur- í nópnum eyri Jakob Jónsson verður í eldlínunni með KA í vetur. Þær Stella Hjaltadóttir og Hjördís Úlfarsdóttir úr KA og Þórdís Sigurðardóttir mark- vörður Þórs, hafa allar verið valdar í landslið íslands í knattspyrnu sem mætir V.- Þjóðverjum í vináttuleikjum ytra 4. og 6. september næst- komandi. Þær Stella og Hjördís eru burðarásarnir í KA-liðinu, Stella geysilega sterkur varnar- maður og Hjördís snjöll bæði í vörn og sókn. Þórdís hefur varið mark Þórs í sumar af stakri prýði. Aðrar í hópnum eru, Anna Sig- urbjörnsdóttir Stjörnunni, Vala Úlfljótsdóttir IA, Halldóra Gylfadóttir ÍA, Sigurlín Jóns- dóttir ÍA, Guðrún Sæmundsdótt- ir Val, Ragna Lóa Stefánsdóttir ÍA, Ragnheiður Víkingsdóttir Val, Cora Barker Val, Magnea Magnúsdóttir Stjörnunni, Ásta María Reynisdóttir UBK, Vanda Sigurgeirsdóttir ÍA, Arna K. Steinsen KR, Ingibjörg Jónsdótt- ir Val. Helena Ólafsdóttir KR, Svava Tryggvadóttir UBK og Inga Birna Hákonardóttir ÍBK.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.