70. árgangur Akureyri, fimmtudagur 3. september 1987 166. tölublað Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Hjalteyri: Lúðueldið hefst í mánuðinum" - segir Ólafur Halldórsson verkefnisstjóri Þetta gengur ágætlega, við erum að setja upp ker og ganga frá tilraunahúsinu og erum búnir að byggja yfir hluta af gömlu mjölskemmunni," sagði Ólafur Halldórsson, verkefnisstjóri, en nú er unnið af fullum krafti við undirbún- Iðnaðardeildin: Aukin hlutdeild í skinna- útflutningi Útflutningur á vegum Iðn- aðardeildar Sambandsins á Akureyri hefur aukist mikið að undanförnu. I bráða- birgðauppgjöri fyrir fyrstu sex mánuði ársins kemur fram að Iðnaðardeildin er með um 80% af útflutningi Iandsmanna í skinnavörum. Það er ljóst að afkoma skinnaiðnaðar er sæmileg og rekstrarafgangur er töluverð- ur," sagði Jón Sigurðarson forstjóri Iðnaðardeildar. Heildarframleiðsluverðmæti hefur aukist um 45% miðað við sama tíma í fyrra. Launakostnaður hefur auk- ist verulega, að sögn Jóns, eða um 52% á milli ára miðað við fyrstu sex mánuði ársins. Hallarekstur er aftur á móti á ullariðnaði. Við höfum ekki farið varhluta af þeim vandræðum sem ríða nú yfir ullariðnað landsmanna. Það verður til þess að heildaraf- koma Iðnaðardeildar er ekki viðunandi," sagði Jón Sigurð- arson. mþþ ing fiskeldistilraunastöðvar- innar á Hjalteyri. Eins og komið hefur fram beitti Iðnþróunarfélag Eyjafjarð- ar sér fyrir tilraunaeldi á lúðu á Hjalteyri auk annarra rannsókna á möguleikum til fiskeldis. Þegar Ólafur var spurður að því hvenær þeir fengju fisk til eldis sagði hann: Eg er að vona að það verði í þessum mánuði. Við erum með fjögur ker í húsinu og rúmar þetta um þúsund fiska. Lúðan sem við fáum verður veidd í Breiðafirði og flutt hingað. Smærri lúðan veiðist á dragnót en sú stærri á línu. Við ætlum að sjá hvernig þetta gengur í eitt ár og sjá svo til með framhaldið. Við stundum fleiri athuganir og förum t.d. hálfs- mánaðarlega á sjó og mælum umhverfisþætti eins og hitastig og súrefni auk þess sem við söfnum dýrasvifi á nokkrum stöðum í firðinum. Þá þurfum við að kanna staðinn nánar og athuga hvort og þá hvernig megi standa að fiskeldi hér á Hjalteyri. Lúðu- eldið er ekki nema eitt af því sem við höfum áhuga á, Hjalteyrar- tjörn er athyglisverður möguleiki því svipaðar tjarnir hafa verið notaðar í Noregi til að ala þorsk- seiði en aðaláherslan er á lúðu- eldið fyrst um sinn." EHB Áskell ÞH 48 kemur til hafnar á Grenivík. Mynd: KK Kaldbakur hf. Grenivík: Dökkt útlit framundan" - ef ekki fæst fleira starfsfólk segir Knútur Karlsson Útlitið hefur ekki verið svona dökkt síðan við hófum starf- semi hér í janúar 1968 og þetta er í fyrsta sinn sem okkur vant- ar karlmenn til starfa," sagði Knútur Karlsson, framkvæmda- stjóri Kaldbaks hf. á Grenivík, en nægilegt vinnuafl fæst ekki til starfa við frystihúsið. Áskell EA, 70 tonna bátur, hefur stundað netaveiðar fyrir frystihúsið og hefur hann komið með um sextíu tonn síðan 16. ágúst. Það hefur verið mikið að gera hjá okkur í sumar og útlitið er þokkalegt fram í febrúarlok. En okkur vantar tilfinnanlega fleira starfsfólk og útlit er fyrir að við verðum að ráða utanaðkom- andi fólk eða útlendinga til starfa í vetur. Hérna hafa verið 40-50 starfsmenn að meðaltali og eitthvað fieiri á sumrin en þessi fjöldi fólks er lágmark þess sem þarf í húsið. Vegna fólkseklu get- ur farið svo að við neyðumst til að vinna meira í salt eða ódýrari pakkningar í frystingunni," sagði Knútur Karlsson. EHB Miklilax og Hólalax: Selja augnhrogn til Chile Nýlega barst laxeldisstöðinni Miklalax í Fljótum beiðni um sölu á augnhrognum til Chile og hafa forráðamenn stöðvar- innar fengið Hólalax í Hjalta- dal til liðs við sig. Það er skoska fyrirtækið Fish farming development sem Miklilax hef- ur keypt af ráðgjöf, sem kaupir hrognin, en skoska fyrirtækið er einnig með fyrirtæki í Chile. Samningurinn hljóðar upp á milljón hrogn og verða þau send út í byrjun desember eftir að hafa verið í stöðinni hjá Miklalaxi í 2- 3 mánuði. Ég hefði ekki farið í þessa sölu núna nema sjá fram á að geta átt við þá verulega meiri hrognaviðskipti á næstu árum, þegar við verðum búnif að eign- ast okkar eigin stofn og mér líst vel á þetta dæmi. Við fengum Hólalax til liðs við okkur og það verður unnið að þessu á jafnrétt- isgrundvelli. Veiðar á fiski sem kreistur verður til hrognatöku munu hefjasat nú strax og erum við fullvissir um að ná því sem okkur vantar," sagði Reynir Páls- son framkvæmdastjóri Miklalax í Iðnsýningin: Stefnir í metaðsókn Feikilega góð aðsókn hefur verið að iðnsýningunni í Iþrótta- höllinni. Að sögn Þorleifs Þórs Jónssonar framkvæmdastjóra sýningarinnar mættu hátt í 5.000 manns um síðustu helgi en það er sá fjöldi sem menn bjuggust við að fá á sýninguna í heild. Síðan hafa komið um 300 manns á hverjum degi. Ef það koma 300 manns á kvöldin út vikuna og kannski 1.000 sinn hvorn daginn um helg- ina þá erum við komin með í kringum 8.000 manns sem sam- svarar rúmlega 60.000 manna aðsókn að sýningu í Reykjavík," sagði Þorleifur. Hann sagði að greinilegt væri að fólk á Akureyri og úr ná- grannabyggðarlögum sýndi mik- inn áhuga á iðnsýningunni. Enda hefðu fyrirtækin lagt sig í líma við að koma upp skemmtilegum bás- um með útstillingum og fjölþættri kynningarstarfsemi. Það er alltaf boðið upp á eitthvað nýtt á hverjum degi og um helgina verður ennþá meira um að vera. Fyrir utan daglegar skoðunarferðir í fyrirtæki má nefna tískusýningar og skemmti- atriði. Nú, það má kannski hvetja fólk til að mæta allt eins á virkum degi til að geta notið sýningarinnar sem best því það má búast við margmenni um helgina," sagði Þorleifur að lokum, hæstánægður með viðtökurnar. SS samtali við blaðið. Hrognin verða flutt með flugi til Chile, í sértilgerðum pappa- öskjum fyrir slíkan flutning. Flutningurinn, með tveim milli- lendingum, mun taka rúman sól- arhring. Aðspurður sagði Reynir að þessi hrognasala mundi létta á rekstri stöðvarinnar, en fyrstu gönguseiðin fara frá Miklalaxi næsta vor. Eldið í stöðinni hefur gengið mjög vel og er útlit fyrir að líftalan verði hærri en gert var ráð fyrir. Nú eru 600 þúsund hrogn lifandi af þeim 800 þúsund- um sem sett voru í stöðina síð- asta haust. Gert var ráð fyrir 350 þúsund seiðum út úr stöðinni að vori, en Reynir sagði að miðað við þessa þróun gætu þau orðið 400-450 þúsund og væri það veru- legur ávinningur. f sumar hafa verið gerðar til- raunir með eldi á sjógönguseið- um í Miklavatni í samvinnu Miklalax og Fljótalax. Virðist þetta eldi ætla að skila góðum árangri og hafa seiðin vaxið ört. Styðja þessar tilraunir það sem menn hafa haldið fram, að skil- yrði til seiðaeldis í Miklavatni séu frábær frá náttúrunnar hendi. -þá