Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						TBfef ynúrmtasiz .E - RUöAd - £

3. september 1987 - DAGUR -3

Samæfing björgunarsveita

haldin á Möðrudalsöræfum

- Öllum björgunarsveitum á landinu hefur verið boðin þátttaka

Um næstu helgi munu um 250

björgunarsveitamenn víðast

hvar að af landinu taka þátt í

samæfingu LHS, sem haldin

verður   á   Möðrudalsöræfum.

Samæfingar sem þessi eru

reglulegir viðburðir og skiptast

aðildasveitir Landssambands

hjálparsveita skáta (LHS) á

um að halda þær. Að þessu

Verkmenntaskólinn á Akureyri:

Hermirinn tekinn

formlega í notkun

SI. þriðjudagskvöld var hinn

nýi og fullkomni vélarrúms-

hermir Verkmenntaskólans á

Akureyri tekinn formlega í

notkun. Hermir þessi er smíð-

Áfengissalan:

Töluverð

aukning

á Akureyri

Sala áfengis hjá ÁTVR á

Akureyri nam rúmum 77 millj-

ónum á tímabilinu frá 1. apríl

til 30. júní. Sömu mánuði í

fyrra seldust veigar fyrir rúmar

56 milljónir og er aukningin

37,3%. Á Siglufirði er aukn-

ingin 33,3% og á Sauðárkróki

47,5%.

Á þessu þriggja mánaða tíma-

bili hefur mest söluaukning, í

krónum talin, orðið á Selfossi

eða 48.9%. Sauðárkrókur kemur

næstur, síðan Akureyri. ísfirð-

ingar og íbúar Vestmannaeyja

sitja á botninum með 25-26%

aukningu.

Ef hins vegar er miðað við

fyrsta tímabilið, 1. janúar til 30.

mars, þá hefur aukningin orðið

mest í Vestmannaeyjum eða

60,4%, þá kemur Selfoss með

59,2%, Akureyri með 51,2% og

neðar á blaði eru Siglufjörður

með 47,9% og Sauðárkrókur

með 46,3% aukningu frá fyrra

tímabili.                                 SS

aður hjá norska fyrirtækinu

Norcontrol og hermir hann eft-

ir 2400 hestafla díselvél af

Wiechman gerð. Það var Sig-

fús Jónsson, bæjarstjóri, sem

gangsetti herminn og hóf „sigl-

inguna."

Bernharð Haraldsson, skóla-

meistari verkmenntaskólans,

sagði við þetta tækifæri að þegar

hugmyndin að þessum kaupum

hefði verið kynnt bæjarstjórn

Akureyrar hefði hún tekið erind-

inu vinsamlega og sýnt skilning á

þörfum skólans eins og jafnan

áður. Hinu væri ekki að leyna að

hrifningin yfir tiltækinu hefði

dofnað með kvaðrati fjarlægðar-

innar og hefði jafnvel verið reynt

að draga kjark úr forráðamönn-

um verkmenntaskólans.

Bernharð sagðist ekki ætla að

rekja nákvæmlega það umstang

sem framhaldið hefði kostað, það

yrði að bíða þangað til saga skól-

ans yrði rituð. Sagðist hann þess

fullviss að árangur hefði ekki

náðst nema til hefði komið sterk-

ur stuðningur utan að og margir

hefðu lagt þessu málefni lið þrátt

fyrir að hafa ekki haft nema orð

forráðamanna skólans fyrir ágæti

þessara kaupa.

Og Bernharð endaði ræðu sína

á þessum orðum: „Og nú er að

sjá hvernig til hefur tekist, hvort

valið var ekki rétt hjá okkur. Nú

skal athöfnin taka við af orðinu

og nú skal róið. í þeirri fullvissu

að hér sé stigið stórt framfara-

spor í þágu ungs fólks, í þágu

skólans, að nú sé stokkið inn í

nýja framtíð, bið ég Sigfús

Jónsson, bæjarstjóra, að gang-

setja herminn og hefja sigling-

una."                                  JHB

sinni er samæfingin í höndum

Hjálparsveita skáta í Reykja-

dal, Aðaldal, Fljótsdalshéraði

og á Fjöllum.

Öllum björgunarsveitum á

landinu er boðið til æfingarinnar

og skiptir þá engu til hvaða

björgunarsamtaka þær heyra.

Æfingin verður miðuð við land-

björgun og svipar til fyrri æfinga.

Kappkostað verður að hafa verk-

efnin fjölþætt þannig áð öll

björgunarþjálfun fái notið sín.

Eins og á fyrri æfingum verður

Iögð áhersla á að hafa sem flest

verkefni þannig að æfingin reyni

á alla þátttakendur.

Björgunarsveitir sem ætla að

taka þátt í æfingunni verða að

vera mættar í Möðrudal fyrir kl.

i5, laugardagsmorguninn 5. sept-

; ember. Áætlað er að ljúka æfing-

unni um miðjan dag á sunnudeg-

inum. Samæfingin verður keyrð

eins og útkall þannig að þátttak-

endur verða að vera sjálfum sér

nógir. Undantekning frá því er

að á laugardagskvöldinu býður

LHS þátttakendum upp á heitan

kvöldverð.

Urval

af      ^

badminton

vörum.

Spaðar,

boltar,

skór og

skyrtur.


1QNSYN1NG19S7

I'lÞMTTAHÖLUNNIÁ AKUREYRI

AGUST - 6 SÍPTEM8ER


h/

FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER

18.00  HEIMSÓKN í KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ KEA.

20.00 HLJÓMSVEIT MICHAEL CLARK LEIKUR FYRIR GESTI.

Sýningin opin frá kl. 17-22.

á

V

/	p	'' \	

	1	'     i$>	

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16