Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						3. september 1987 - DAGUR - 5

Starfslaunum Ríkis-

útvarpsins úthlutað

- Þrjú sjónvarpshandrit send til þátttöku

í Genfar-Evrópusamkeppni sjónvarpsstöðva

Oddur Björnsson, rithöfundur,

hefur hlotið starfslaun Ríkis-

útvarpsins til listamanna, sem nú

er úthlutað í fyrsta sinn.

Starfslaunin eru veitt til sex

mánaða hið lengsta og vinnur

listamaðurinn að gerð útvarps-

eða sjónvarpsefnis til frumflutn-

ings í Ríkisútvarpinu á starfstím-

anum. Starfslaunum fyígj a

ókeypis afnot af íbúð Ríkis-

útvarpsins í Skjaldarvík í Eyja-

firði.

Oddur Björnsson sótti um

starfslaunin til að vinna að tveim-

ur verkefnum. Annars vegar er

um að ræða verkefni fyrir sjón-

varp um Kjarval, „líf hans og list

og samskipti hans við fólk og

huldufólk með hliðsjón af lista-

yerkum hans og skáldskap," eins

og segir í umsókn höfundar. Hitt

verkefnið er leikrit fyrir útvarp.

Framkvæmdastjórn Ríkisút-

varpsins úthlutar starfslaunum að

fengnum umsögnum dagskrár-

deilda Ríkisútvarpsins. Átta

umsóknir um starfslaun bárust í

þetta sinn.

Þá liggja ennfremur fyrir niður-

stöður íslensku dómnefndarinnar

í Genfar-Evrópusamkeppninni

um sjónvarpshandrit, sem Ríkis-

útvarpið varð stofnandi að á sl.

vetri. í dómnefnd sátu Egill

Eðvarðsson,         dagskrárstjóri,

Stefán Baldursson, leikhússtjóri

og Steinunn Sigurðardóttir, rit-

höfundur.

Dómnefndin hafði til umfjöll-

unar 27 handrit eftir 23 höfunda

og varð sammála um að mæla

með þremur verkum til áfram-

haldandi þátttöku í þessari sam-

keppni Evrópusjónvarpsstöðva

um sjónvarpshandrit. Þau eru:

Engin spor eftir Viktor Arnar

Ingólfsson.

Heimkoma eftir Önnu Heiði

Oddsdóttur og Michael Dean

Ford.

Steinbam eftir Vilborgu

Einarsdóttur.

Umsögn dómnefndar er svo-

hljóðandi:

„Dómnefndin telur þessar

þrjár tillögur að sjónvarpsleikrit-

um vera heilsteyptar og skýrt

fram settar, auk þess sem efnis-

valið sjálft vekur áhuga og lýsir

hugmyndaauðgi höfunda. Eftir

tillögunum að dæma virðist

höfundum treystandi til að fylgja

tillögunum eftir og fullmóta þær,

enda eru þær unnar af vandvirkni

og kunnáttu.

Engin spor eftir Viktor Arnar

Ingólfsson er framhaldsmynda-

flokkur í anda nútíma sakamála-

sögu. í upphafi er framið morð í

gamalgróinni reykvískri fjöl-

skyldu. Hið óvenjulega er að það

á sér nákvæma hliðstæðu í fortíð

fjölskyldunnar og framvinda

verksins felur í sér rannsókn, þar

sem flett er ofan af hvoru

tveggja. Uppbygging verksins er

hefðbundin með ágætri leikfléttu

og forvitnilegum persónulýsing-

um. Leikurinn gerist í aðalatrið-

um á íslandi en berst þó til

annarra landa. Höfundi tekst að

ánetja lesanda/áhorfanda atburða-

rásinni og magna upp spennu

sem losað er um í áföngum, en

þó ekki endanlega fyrr en með

lausn málsins í lokin. Sagan nær

yfir nokkrar kynslóðir og eykur

það ásamt áhugaverðu umhverfi

á gildi verksins.

Heimkoma eftir Önnu Heiði

Oddsdóttur og Michael Dean

Ford er frumleg tillaga að sjón-

varpsleikriti, sem byggir á heim-

Höfundarnir ásamt forráðamönnum Ríkisútvarpsins. Fremst frá vinstri:

Oddur Björnsson, Vilborg Einarsdóttir og Viktor Arnar Ingólfsson, þá

Michael Dean Ford og Anna Heiður Oddsdóttir og síðan Markús Örn

Antonsson, útvarpsstjóri, Egill Eðvarðsson, dagskrárstjóri og Pétur Guð-

finnsson, framkvæmdastjóri Sjónvarpsins.

flutningi íslensku handritanna frá

Danmörk. Utan um þennan

sögulega atburð spinna höfundar

reyfarakennda atburðarás, sem

er oft á mörkum hins trúverðuga,

en reynist þó eiga sér vissa for-

•sendu í verkinu. Aðalpersónan er

kona sem vinnur að handrita-

viðgerðum í Árnastofnun í

Kaupmannahöfn og lifir sig mjög

inn í hin gömlu fræði. Hér er á

ferðinni skemmtileg blanda

raunverulegra atburða og ævin-

týralegs uppspuna, sem höfund-

um tekst þó að gera að heillegu

verki.

Steinbam eftir Vilborgu Einars-

dóttur er bæði manneskjulegt og

„mystiskt" verk. Atburðarásin er

dramatísk, spennandi og óhugn-

anleg og fléttað er saman fortíð

og nútíð á hugvitssamlegan hátt.

Umhverfið, sem verkið á að ger-

ast í, er stórbrotið, en „hug-

myndin er skrifuð með Reykja-

nesvita og svæðið þar við í huga,

en þó sem einhvern allt annan og

mun afskekktari stað í sögunni

en í raun," eins og höfundur segir

sjálfur. Aðalpersóna sögunnar er

kona sem leigir sér eyðihús,

skammt frá vita, til þess að vinna

við ritstörf. Fimm ára dóttir

hennar, sem eíst upp hjá föður

sínum, dvelst um tíma hjá móð-

urinni í eyðihúsinu. Kona á

áttræðisaldri, sem hefur alla tíð

búið í vitavarðarhúsinu, kemst

fyrir tilviljun í kynni við telpuna

og stutt er í hræðilega atburði. í

ljós kemur að örlög gömlu kon-

unnar eiga sér vissa samsvörun í

aðstæðum ungu konunnar, svo

ólíkar sem ævir þeirra eru. Frá-

sögnin er mögnuð og myndræn

og tillagan býður upp á bæði

dramatíska og sálfræðillega

úrvinnslu."

Að auki vekur dómnefnd

athygli á eftirtöldum tillögum, til

nánari athugunar fyrir Sjón-

varpið:

Viðkomustaður eftir Ómar Þ.

Halldórsson, Viðræður bannaðar

eftir Sveinbjörn Baldvinsson,

Yfirheiðina eftir.Sigurð Pálsson,

Hefndin er sæt eftir Þorstein Úlf-

ar Björnsson (eftir smásögu Þóris

Bergssonar, Slys í Giljareitum),

Langlínudans eftir Frey Þormóðs-

son, Drengurinn frá Voronesj

eftir Kristínu Ólafsdóttur.

Að lokum vekur dómnefnd

athygli Sjónvarpsins á tillögu

Erlends Sveinssonar, Rætur

nútímans, sem er metnaðarfull

og mjög viðamikil. .

Evrópsk dómnefnd mun velja

10 handrit til áframhaldandi 'þátt-

töku í Genfar-Evrópusamkeppn-

inni úr þeim tillögum sem borist

hafa frá evrópskum sjónvarps-

stöðvum.

Niðurstöður verða kynntar við

hátíðlega athöfn í Genf hinn

3. desember n.k. Formaður

evrópsku dómnefndarinnar er

Vigdís Finnbogadóttir, forseti

íslands.

Uósritunarvélar ítLRno,ary

Canon

Bókabúðin Edda

Hafnarstræti 100   Akureyri   Sími 24334

Einingabréf 1 nú 13-14%

umfram verðbólgu.

Einingabréf 2 nú 9-10%

umfram verðbólgu.

Einingabréf 3 nú 35-39% nafn-

vöxtun. Raunvöxtun háð verð-

bólgu.

Aukið öryggi vegna dreifingar áhættu.

Óbundið fé. Einingabréfin eru alltaf laus til

útborgunar.

AHir geta eignast Einingabréf, því hægt er að

kaupa þau fyrir hvaða upphæð sem er.

GENGI BRÉFANNA:

Einingarbréf 1   ..............   2.270.-

Einingarbréf 2   ..............   1.339.-

Einingarbréf 3   ..............   1.404.-

Lífeyrisbréf   ..................   1.141.-

Kaupþing Norðurlands hf .

Ráðhústorgi 5 • Pósthólf 914

602 Akureyri • Sími 96-24700.

-tölvur

fyrir:

*   Skólafólk

*   Tæknifræðinga

*  Verkfræðinga

*   Verslunarfólk

o.fl. o.fl.

ÍS HF. - GLERÁRGÖTU 20 - 600 AKUREYRI - SÍMI 22233 - NAFNNÚMER 4817-6887

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16