Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						3. september 1987 - DAGUR - 9

^spurning vikunnac

Myndir og texti:

Rut Valgarðsdóttir og Heiga Kristjánsdóttir.

fyrir 8 árum og Lilju sem hefur

búið þar í 5 ár. En hvernig skyldi

þeim finnast að búa í Hrísey?

„Hér er mjög gott að búa, hér

er rólegt og alveg sérstaklega

fallegt, íbúarnir hérna eru líka

alveg einstaklega gott fólk, það

er helst á veturna að það vanti

Guðrún Sigurgeirsdóttir

Við gerðum fleiri en eina tilraun

til að ná tali af Guðrúnu sem er

að vinna á veitingahúsinu

Brekku. Húsið var alltaf yfirfullt

og allir starfsmenn á þönum. í

þriðju tilraun voru gestirnir flest-

ir farnir og Guðrún átti smá tíma

það væri þó ágætt að hafa bíó,

það var hérna einu sinni maður

sem var með sýningarvél og sýndi

myndir en það datt alveg upp-

fyrir."

- Ætlar þú að búa í Hrísey í

framtíðinni?

„Nei ekki í framtíðinni, maður

á alveg örugglega eftir að flytja í

burtu."

Edda Heiðarsdóttir og

Lilja Sigurðardóttir

Fyrir utan verslun kaupfélagsins

hittum við tvær ungar mæður,

þær Eddu, sem flutti til Hríseyjar

Linda Tryggvadóttir, Eva Gunnarsdóttir og Aníta Stefánsdóttir.

Ólafsson og Kristján Hallgrímsson.

eitthvað til skemmtunar, við

erum að vísu í saumaklúbbi en

aðra skemmtun sækjum við bara

í land, það er ekkert mál að

skella sér í bæinn."

-  Þið munduð þá ekki frekar

vilja búa í landi?

„Nei við viljum ekki flytja í.

land, alls ekki."

-  Er það almenn skoðun Hrís-

eyinga að vilja vera áfram hér í

eyjunni?

„Já a.m.k. hjá fullorðna fólk-

inu, unglingarnir sjá hins vegar

litla framtíð í staðnum og þá

aðallega þeir sem ætla í fram-

haldsnám, þeir fá enga vinnu við

sitt hæfi hér og raunar er frysti-

húsið svo til eini vinnustaðurinn

hér og þá er Hrísey ekki spenn-

andi."

-  Eruð þið hrifnar af kjötinu

sem gerir Hrísey svona vinsæla?

„Já það er ágætt en annars

borða Hríseyingar lítið af því

sjálfir."

handa okkur í spjall. En skyldi

hún vera fæddur og uppalinn

Hríseyingur?

„Nei alls ekki, ég á lögheimili í

Bárðardal en hef verið við nám

og störf í Reykjavík undanfarin

ár."

-  Hvernig datt þér þá í hug að

koma til Hríseyjar?

„Systir mín er kokkur hér á

Brekku, hún útvegaði mér vinnu

og húsnæði og ég sló til."

-  Hvernig hefur þér svo líkað

vistin?

„Mér hefur líkað mjög vel

hérna, ég hef að vísu kynnst

fáum unglingum því að vinnutím-

inn hjá mér stangast á við vinnu-

tímann hjá unglingunum í frysti-

húsinu, svo þegar ég á langt frí þá

fer ég austur í Bárðardal eða til

Húsavíkur, þannig að ég legg mig

svo sem ekkert eftir því að kynn-

ast neinum."

-  Hvað kom þér mest á óvart

þegar þú komst hingað?

„Ég vissi náttúrlega lítið um

eyna þegar ég kom hingað, en

ætli það hafi ekki helst verið hvað

staðurinn er ólíkur öðrum stöð-

um sem ég þekki."

-  Er Brekka vinsæl á meðal

ferðamanna?

„Já, að vísu koma flestir

útlendingarnir hingað á eyjuna til

að skoða en íslendingarnir koma

til að borða, flestir labba meira

að segja beint úr ferjunni og

hingað."

-  Hvað eruð þið með á mat-

seðlinum?

„Það eru fjölbreyttir réttir, en

mesta salan er í Galloway steik-

inni, hún er matreidd á mismun-

andi hátt, en þetta eru allt mínútu-

steikur."

-  Að lokum Guðrún, ráðlegg-

ur þú öðrum að koma til Hríseyj-

ar í vinnu?

„Já endilega, þetta er svo mikil

uppljfun, það er erfitt að útskýra

þetta, maður verður bara að

prófa."

Hvernig fannst þér dagskrain

á Akureyrarafmælinu?

Óli Örn Andreasen:

Mér fannst framkvæmdin á

henni mjög góð en efnislega

fannst mér hún ekkert sérstök.

Mér fannst t.d. dagskráin í

göngugötunni ekki nógu góð

upp á það að gera.

Arnar Bergþórsson:

Hún var góð, a.m.k flest í henni.

Það var gaman á tónleikunum í

göngugötunni. Jú, þetta var

bara ágætt.

Grétar Viðarsson:

Mérfannst hún góð, a.m.k. það

sem ég sá af henni. Annars var

ég að vinna mestallan tímann

og gat lítið fylgst með. En ég

var ánægður með hversu góð

þátttaka var í hátíðarhöldunum.

Eggert Benjamínsson:

Það sem ég sá fannst mér gott.

Ég sá hljómsveitimar í göngu-

götunni og þær voru f ínar. Síð-

an fannst mér leikklúbburinn

komast vel frá sínu. Ég sá hann

að vísu ekki en...

Björn Steingrímsson:

Mér fannst hún alveg Ijómandi.

Þetta var ágætt hérna í bænum

en mér fannst skemmtilegast í

Lystigarðinum. Maður er orðinn

svo gamall í hettunni.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16