Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						12 - ÖKGÖft - 3?£éptémbér 1987

Þeirra er skömmin og ábyrgðin

- Stjórnir þriggja hestamannafélaga í Eyjafirði deila harðlega á stjórn Landssambands hestamanna

TiIIaga um úrsögn úr LH

samþykkt

Mánudaginn 31. ágúst sl. héldu

hestamannafélögin Funi, Léttir og

Þráinn sameiginlegan íund að Hótel

KEA. Fundurinn var fjölsóttur og

komu menn víða að. Aðalfundarefni

var ákvörðun stjórnar LH varðandi

næsta landsmótsstað. Hafði stjórn

LH verið sent fundarboð þ. 20. ágúst

og óskað eftir að einhverjir úr stjórn-

inni kæmu til þessa fundar og

útskýrðu á hvaða forsendum stjórnin

hefði tekið þessa ákvörðun. Þrátt

fyrir mikla eftirgangsmuni sá enginn

stjórnarmaður sér fært að mæta til

fundarins og læddist sá grunur að

fundarmönnum að ef til vill hefði

ekki verið mikill áhugi hjá stjórn-

armönnum LH að sitja þennan fund.

I upphafi fundarins var lesin upp

sameiginleg greinargerð frá stjórnum

félaganna varðandi þetta mál og

samþykkt að senda hana til birtingar

í fjölmiðla. Urðu síðan frjálsar

umræður þar sem margir tóku til

máls og lýstu allir vanþóknun sinni

og undrun á þessari afgreiðslu stjórn-

ar LH. Einnig bar á góma viðtal það

er birtist í síðasta Eiðfaxa við for-

mann samtakanna, Leif Jóhannes-

son. Þótti öllum sem þar andaði

köldu í garð eyfirskra hestamanna og

greinin væri full af órökstuddum full-

yrðingum og dylgjum sem enga stoð

ætti sér í raunveruleikanum. í lok

umræðnanna voru samþykktar þrjár

tillögur sem fara hér á eftir:

Sameiginlegur félagsfundur hesta-

mannafélaganna Funa, Léttis og

Þráins, haldinn að Hótel KEA

mánudaginn 31. ágúst 1987 sam-

þykkir eftirfarandi.

Vegna ákvörðunar stjórnar LH

um næsta landsmótsstað skorar fund-

urinn á félögin að senda ekki fulltrúa

á næsta ársþing LH og starfa ekki að

neinum þeim málefnum sem snerta

LH.

Sameiginlegur félagsfundur hesta-

mannafélaganna   Funa,   Léttis   og

Þráins, haldinn að Hótel KEA

mánudaginn 31. ágúst 1987 sam-

þykkir eftirfarandi.

Fundurinn beinir því til stjórna

félaganna þriggja að þau leggi fram,

hvert í sínu félagi, tillögu um úrsögn

úr LH á næsta aðalfundi félaganna.

Úrsögnin yrði bundin því skilyrði að

hún væri samþykkt í öllum félögun-

um þrem. Ef hins vegar kemur eitt-

hvað það fram sem félögin gætu sætti

sig við til samkomulags í deilu þeirri

sem uppi er að mati stjórna félag-

anna, fellur þessi samþykkt úr gildi.

Sameiginlegur félagsfundur hesta-

mannafélaganna Funa, Léttis og

Þráins, haldinn að Hótel KEA

mánudaginn 31. ágúst 1987 sam-

þykkir eftirfarandi.

Fundurinn harmar að stjórn LH

skuli ekki senda fulltrúa til þessa

fundar og sýna með því í verki óvild

sína í garð eyfirsku hestamannafé-

laganna þriggja. Fundarboð vegna

þessar fundar var sent til skrifstofu

LH 20. ágúst sl. og hefði því gefisf

nægur tími til að ákveða annan fund-

ardag ef eftir hefði verið leitað og

vilji verið fyrir hendi. Sýnir þessi

framkoma stjórnar LH algjört

áhugaleysi fyrir því að reyna að leysa

deilu þá sem upp er komin vegna

ákvörðunar meirihlutastjórnar LH

um næsta landsmótsstað og endur-

speglar tillitsleysi þeirra gagnvart

félögunum þrem.

Hér með fylgir greinargerð sú sem

áður er vitnað til.

Forkastanleg vinnubrögð

stjórnar LH varðandi val

á landsmótsstað árið 1990

í byrjun júlímánaðar tók stjórn LH

þá ákvörðun að næsta landsmót

hestamanna yrði haldið á Vind-

heimamelum í Skagafirði árið 1990.

Er stjórn LH bundin því að ákveða

með 3ja ára fyrirvara næsta lands-

mótsstað og hefur svo verið um hríð.

Ákvörðun þessi var tekin með leyni-

legri atkvæðagreiðslu þar sem Vind-

heimamelar hlutu 5 atkvæði en Mel-

gerðismelar í Eyjafirði hlutu 2.

Afgreiðsla þessi hefur vakið mikla

undrun og reiði meðal hestamanna í

Eyjafirði.

Til þess að reyna að skýra það

vegna hvers þessi óánægja brýst út og

beinist aðallega að stjórn LH og auk

þess að hluta til að nokkrum hesta-

mannafélögum á Norðurlandi, verð-

ur reynt að rifja upp aðdraganda

þessa máls sem er orðinn ansi langur.

Verður leitast við að draga fram

staðreyndir málsins svo sem frekast

er unnt í stuttri grein og vonandi

verða Iesendur einhvers fróðari að

lestri loknum. Pó nokkur tími sé lið-

inn frá því að ákvörðun þessi var

tekin, hefur óvenjulítil umræða verið

um hana og er það ekki háttur hesta-

manna að láta kyrrt liggja þegar þeir

telja ómaklega að sér vegið.

Forsagan

Um nokkurt skeið hafa verið haldin

svokölluð fjórðungsmót hesta-

manna. Hafa þau verið haldin með

ýmsu sniði og hér á Norðurlandi

urðu þáttaskil í mótahaldi eftir mót

sem haldið var á Einarsstöðum árið

1969. Varð á því nokkur rekstrarhalli

og settust hestamenn á Norðurlandi

á rökstóla um hvað væri til ráða.

Lausnin fannst og næst þegar haldið

var fjórðungsmót, þá á Vindheima-

melum árið 1972 þar sem nýtt svæði

var í uppbyggingu, var komið til

skjalanna samstarf norðlenskra

hestamanna sem hefur orðið fyrir-

mynd hestamannafélaga víðast hvar

á landinu. Tókst mótið afbragðsvel

og tveimur árum seinna var haldið

landsmót á Vindheimamelum þar

sem norðlensku hestamannafélögin

stóðu saman að framkvæmdinni á

sama hátt. Endurtók sagan sig þar,

og virtust allir sammála um ágæti

þessa samstarfs.

Árið 1976 var enn blásið til fjórð-

ungsmóts, nú á Melgerðismelum í

Eyjafirði þar sem eyfirsku félögin

Vörukynningar Mjólkursamlags KEA á iðn-

sýningu á Akureyri28. ágúst-6. sept 1987

Ostakarlinn

- besti vinur barnanna kemur á Iðnsýningu

Fimmtudaginn    3. september

Föstudaginn       4. september

Laugardaginn     5. september

Sunnudaginn      6. september

kl.   17.00-19.00

kl.   17.00-19.00

kl.   16.00-18.00

kl.   16.00-18.00

Mjólkursamlag KEA

Akureyri   Simi 96-21400

Funi, Léttir og Þráinn voru að hefja

uppbyggingu síns mótsvæðis. Var

staðið að framkvæmd þess móts sem

hinum fyrri og einnig að fjórðungs-

móti sem haldið var á Vindheima-

melum 1979. Var samstarf hesta-

mannafélaganna til mikillar fyrir-

myndar og þó vitaskuld væri sam-

keppni og samanburður milli staða

kom það einungis fram í bættri

aðstöðu bæði fyrir keppendur og

áhorfendur.

_______MiIIikafli________

En nú fer að draga til tíðinda. Fyrir

lá að stjórn LH yrði nú að taka

ákvörðun um mótsstað fyrir lands-

mótið 1982 og höfðu Melgerðismelar

sótt formlega um að fá mótið, töldu

sig eiga rétt á því þar sem tvö síðustu

landsmót á Norðurlandi höfðu verið

í Skagafirði. Myndi landsmót verða

Melgerðismelum ómetanleg lyfti-

stöng og héraðinu öllu til framdrátt-

ar, svo sem reynslan hefur sýnt með

aðra staði. Var ekki annað vitað þeg-

ar ákvörðun kom en að Melgerðis-

melar væru einir um boðið.

. En á þeim fundi sem ákveða átti

staðinn, læddi fulltrúi Norðlendinga í

stjórn LH, Egill Bjarnason á Sauðár-

króki, fram tilboði Skagfirðinga

varðandi Vindheimamela. Kom

hann þar fram sem fulltrúi þeirra og

flutti mál þeirra en enginn var til að

tala máli Eyfirðinga. Var gengið til

atkvæðagreiðslu og hlutu Vind-

heimamelar 4 atkvæði en Melgerðis-

melar 2. Brugðust Eyfirðingar

ókvæða við og töldu Skagfirðinga

hafa svikist að þeim á lúalegan hátt

og stefnt samstarfi þessara félaga í

mikla hættu. Einnig töldum við

vinnubrögð stjórnar LH í hæsta mála

óeðlileg og vinnubrögð E. Bj. fyrir

neðan allar hellur þar sem hann átti

að gæta hagsmuna Norðlendinga

allra en ekki einstakrá manna eða

félaga og stuðla þannig að óeiningu

og úlfúð milli Norðlendinga. Hótuðu

Eyfirðingar að segja sig úr LH ef

þessu yrði ekki breytt og rituðu

stjórn LH ýtarlegt bréf þar sem m.a.

stóð:

„Við sjáum ekki vinnínginn í þvf,

að bíða enn og bjóða hinn vangann,

því hætt er við að þeir sem hlupu

undir bagga nú, viljí fá greitt í sama

síðar. Þá heldur óréttlætið áfram og

hleður utan á sig eins og títt er, þar

sem valdníðsla nær að skjóta

rótum."

Ekki höfðu bréfaskriftir þessar

neinn árangur í för með sér og á

landsþingi LH á Flúðum 1979 fluttu

Eyfirðingar tillögu þess efnis að

ákvörðun stjórnar LH yrði hnekkt og

þingið ákvæði stað fyrir landsmót á

Melgerðismelum. Urðú miklar um-

ræður um þessa tillógu en henni var

að endingu vísað frá. Varð stutt um

kveðjur og lá nú í loftinu að ekki yrði

um samstarf að ræða hjá norðlensku

hestamannafélögunum varðandi

framkvæmd landsmóts 1982.

Fór þá stjórn LH á stúfana að

miðla málum og átti fundi með for-

svarsmönnum ýmissa félaga um þessi

mál. Kom þar, að stjórn LH boðaði

til fundar í Varmahlíð 8. júní 1980.

Voru þar mættir fulltrúar frá allflest-

um félögum á Norðurlandi, formað-

ur og framkvæmdastjóri LH ásamt 2

stjórnarmönnum og einum vara-

manni. Urðu miklar umræður um

framtíðarskipulag móta á Norður-

landi næsta áratuginn. Að endingu

var samþykkt eftirfarandi tillaga:

„Að gefnu tilefni vegna afstöðu

fulltrúa eyfirsku félaganna Funa og

Léttis til þátttöku í landsmóti hesta-

mannafélaganna á Vindheimamelum

árið 1982, samþykkir fundurinn, sem

viljayfirlýsingu, en ekki ákvarðana-

töku, þar sem til þess skorti fundinn

umboð, að eðlilegt sé að næsta fjórð-

ungsmót á Norðurlandi verði haldið

á Melgerðismelum í Eyjafirði og að

næsta landsmót hestamanna er kem-

ur íhlut Norðlendinga eftir árið 1982

verði einnig á Melgerðismelum,

verði þá sömu aðsræður um móts-

staði í Norðlendingafjórðungi og nú

eru."

Ályktun þessi var örlítið rædd en

síðan samþykkt með samhljóða

atkvæðum.

Síðar segir í fundargerðinni:

Frjálsar umræður urðu nokkrar er

hér var komið og lýstu nokkrir fund-

armanna fögnuði sínum yfir góðum

niðurstöðum fundarins um einhuga

samstarf norðlenskra hestamanna í

framtíðinni."

Of langt mál yrði að telja upp alla

þá sem rituðu undir þessa tillögu en

það voru fulltrúar frá hestamannafé-

lögunum Þyti í V.-Hún., Óðni og

Neista í A.-Hún., Stíganda og Létt-

feta í Skagafirði, Glæsi á Siglufirði,

Funa, Hring og Létti í Eyjafirði,

Þjálfa í S.-Þing., Grana á Húsavík og

Feyki í Öxarfirði. Einnig rituðu und-

ir samþykktina formaður LH Albert

Jóhannsson og framkvæmdastjóri

Pétur Hjálmsson ásamt stjómar-

mönnunum Sigurði Haraldssyni og

Agli Bjarnasyni og einnig varamaður

í stjórn LH Arni Magnússon. í fram-

haldi af þessum fundi tóku eyfirsku

félögin fullan þátt i undirbúningi og

framkvæmd landsmótsins og einnig

fjórðungsmótsins 1983 á Melgerðis-

melum. Ríkti nú friður milli norð-

lenskra hestamanna að mestu leyti,

þó undir niðri örlaði á nokkurri

spennu.

LokakaOi

Það hafði öllum verið ljóst lengi að

Melgerðismelar hugðust sækja um

næsta landsmót sem kæmi í hlut

Norðlendinga, samkv. áðurnefndu

samkomulagi. Við það miðaðist öll

uppbygging staðarins og fyrir mótið

1983 var lyft Grettistaki í uppbygg-

ingu staðarins og árangurinn kom

strax í ljós. Allir sem á Melgerðis-

mela komu luku upp lofsorði um það

hve staðurinn væri vel til mótahalds

búinn og hvert íslandsmetið af öðru

var slegið á kappreiðabrautinni.

Leið nú að fjórðungsmóti 1987 og

á sameiginlegum fundi stjórna norð-

lensku hestamannafélaganna að

Hótel KEA þann 26. apríl 1986 var

lagt til að Skagfirðingar héldu það og

var það í anda þess samstarfs sem

verið hafði um skiptingu fjórðungs-

móta. En þá kváðust Skagfirðingar

ekki geta tekið það, því vinna ætti

upp hlaupabrautina sem væri orðin

slæm eins og einn forsvarsmanna

þeirra, Friðrik Guðmundsson fram-

kvæmdastjóri Vindheimamela sagði í

blaðaviðtali (Dagur 142. tbl. 1. ág.

1986), þegar hann var spurður um

aðstöðuna á Vindheimamelum:

„En ef ætti að halda þarna lands-

mót þá þyrfti að gera geysimikið

átak. Þetta er nú orðið svo gamalt."

Og síðar í sama viðtali:

„ V/ð fengum ákúrur á okkur eftir

mótið í fyrra í blóðunum. Ekki fyrir

að vera með lélega aðstöðu, heldur

fyrir að vera ekki lengur með bestu

aðstöðu sem þekktist á landinu, nú

væru þeir komnir fram yfir okkur

Eyfirðingar."

Var lagt fast að Skagfirðingum að

taka mótið en allt kom fyrir ekki.

Þegar fullséð var að enginn vildi

halda mótið, buðust Eyfirðingar til

að taka það til þess að bjarga málun-

um en tóku jafnframt fram að þeir

ætluðu að sækja um næsta landsmót

hvað sem þessu móti liði. Kom það

líka fram í máli Skagfirðinga að þeir

hygðust gefa Vindheimamela fala til

landsmóts og toldu sig ekki bundna

af Varmahlíðarsamþykktinni.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16