Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						3. september 1987 - DAGUR - 13

Gerðist nú loft lævi blandið og

þegar leið að landsþingi 1986 fæddist

tillaga í stjórn LH sem þeir voru guð-

feður að, áðurnefndur Egill Bjarna-

son, framkvæmdastjóri LH, Guð-

mundur Ó. Guðmundsson fyrrum

framkvæmdastjóri Vindheimamela,

ásamt þáverandi varaformanni LH

Leif Jóhannessyni, núverandi for-

manni LH. Var þar lagt til að þing

LH ákvæði að einungis tveir staðir á

landinu yrðu valdir til landsmóts-

halds í framtíðinni, annar á Suður-

landi og hinn á Norðurlandi, og þing-

ið ákvæði síðan hvaða staðir það

yrðu. í ýtarlegri greinargerð þeirra

höfunda voru tveir staðir nefndir á

nafn, Gaddstaðaflatir á Rangárvöll-

um og Víndheimamelar í Skagafirði

og lýst kostum þeirra en ekki aðrir

staðir nefndir á nafn. Páverandi

varamaður í stjórn LH, Jón Ól. Sig-

fússon í Létti, gagnrýndi framkomna

tillögu harðlega og lét bóka eftirfar-

andi:

„Ég undirritaður mótmæli harð-

lega skipun þeirra Egils Bjarnasonar

og Guðmundar Ó. Guðmundssonar í

nefnd þá, sem undirbúa á tillögu og

greinargerð um framtíðarskipulag

landsmóta sem áætlað er að leggja

fyrir nk. landsþing. Vegna tengsla

þeirra beggja við ákveðið mótssvæði

er ekki þess hlutieysis gætt sem vera

þarfþegar landssambandið sjálft á í

hlut, ekki síst þegar fjailað er um

jafn viðkvæmt deilumál og niðurröð-

un landsmóta er."

Ekki lét stjórn LH þessi mótmæli

raska á neinn hátt hugmyndum sín-

um um landsmótsstaði og unnu áður-

nefndir menn áfram að tillögugerð.

Á þeim stutta tíma sem eftir lifði til

landsþings, vígbjuggust menn af

kappi og ljóst þótti vera að draga

mundi til stórra tíðinda á þinginu.

Að vanda var þar skipt í umræðu-

hópa og kom stóra tillagan til móta-

nefndar. Urðu talsverðar umræður

um hana og þar sagði Sveinn Guð-

mundsson formaður Léttfeta á Sauð-

árkróki m.a. að áðurnefnd Varma-

hlíðarsamþykkt hefði bara verið

hugsuð sem dúsa upp í Eyfirðinga til

að fá vinnufrið fyrir landsmótið.

Kom þar einnig fram í máli Eyfirð-

inga að ef tillagan yrði samþykkt

myndu þeir ekki bjóða Melgerðis-

mela fram sem annan landsmótsstað-

inn því það samræmdist ekki skoðun-

um þeirra varðandi mótahald og

uppbyggingu mótssvæða. Málalyktir

urðu þær að samþykkt var óbreytt

ástand varðandi staðarval, þ.e.

stjórn LH falið ákvörðunarvald eins

og verið hafði en skipuð milliþinga-

nefnd til að leggja fram tillögur um

fyrirkomulag stærri móta í framtíð-

inni. Má með sanni segja að stefna

stjórnar LH í þessu máli hafi beðið

þarna skipbrot og henni gefið það

berlega í ljós að tveir staðir til lands-

mótshalds væri ekki það sem meiri-

hluti hestamanna á landinu vildi,

Skammt var til fjórðungsmóts 1987

og enn hélt uppbygging Melgerðis-

mela áfram. Er skemmst frá því að

segja að það mót tókst mjög vel og

hrifning mótsgesta á svæðinu var

mjög mikil. Hugðum við gott til

glóðarinnar með afgreiðslu stjórnar

LH varðandi landsmótsstað þar sem

við vorum aftur einu umsækjendurn-

ir. En hvað gerist? Gengið er til

atkvæða og leikar fara nú 5 atkv. á

móti 2, Vindheimamelum í vil sem

höfðu ekki einu sinni sótt formlega

um mótið. Okkur setti hljóða þegar

tíðindin bárust í gegnum Morgun-

blaðið og með einkaviðræðum, því

ekki hafði stjórn LH né hinn dug-

mikli framkvæmdastjóri þeirra Guð-

mundur Ó. Guðmundsson fyrir því

að tilkynna aðildarfélögum Mel-

gerðismela úrskurðinn né á hverju

synjunin byggðist. Enn höfðu Eyfirð-

ingar verið lítillækkaðir og hunsaðir.

Hvað lá til grundvallar þessari

ákvörðun? Sl. vetur sendi stjórn LH

út spurningalista með þremur spurn-

ingum þar sem spurt var, í fyrsta lagi

hvort viðkomandi félag hafi stað til

landsmóts upp á að bjóða, í öðru lagi

hvar þau kjósi að haída landsmót og

í þriðja lagi hvort þau muni standa

að mótahaldinu á svipuðum grunni

og verið hafi, burtséð frá því hvar

það yrði haldið. Samkv. svörum

komu tveir staðir til greina og vildu 9

fara á Vindheimamela en 6 á Mel-

gerðismela en tvö félög létu ósvarað

þessari spurningu. Varðandi 3ja lið

kváðust allir myndu standa að móti á

Melgerðismelum en tvö félög kváð-

ust ekki standa að móti á Vindheima-

melum. Átti stjórn LH að vera ljóst

samkvæmt þessu að með þessari

ákvörðun var hún að sundra sam-

starfi norðlensku félaganna og vekja

upp úlfúð og illdeilur milli héraða.

Er raunar óskiljanlegt að stjórn LH

skyldi velja þessa aðferð, en ef til vill

vantaði þá eitthvert hálmstrá til að

skýla sér á bak við og geta þar með

bent á einhvern annan. Slík skoðana-

könnun er líka ákaflega óréttlát

gagnvart öðrum félögum í LH, því

fengu þau ekki líka að benda á sinn

óskastað, þetta er nú einu sinni

landsmót en ekki bara fyrir Norð-

lendinga eina. Einnig er það

óskiljanlegt að meirihluti stjórnar

LH skuli hunsa algjörlega Varma-

hlíðarsamþykktina sem þáverandi

formaður og stjórn LH höfðu for-

göngu um. Segir Albert Jóhannsson í

viðtali við „Hestinn okkar", 1. tbl.

1987 frá aðdraganda þess og segir þar

m.a.:

„Þar var ígrófum dráttum gefin út

viijayfirlýsing um það hvernig móts-

hald í fjórðungnum skyldi háttað

þennan áratug. Og það sem er að

gevast núna er það, að menn virðast

ekki hafa tekið það alvarlega eða

gleymt því."

Og hér erum við ef til vill komin að

kjarna málsins. Hvað er það sem gef-

ur meirihlutra stjórnar LH vald til að

hunsa þessa samþykkt sem þáverandi

stjórn stóð fyrir og ritaði undir? Parf

eij til vill að fara að skrifa í fundar-

samþykktir, hvort fara eigi eftir þeim

eða ekki? Okkur sýnist harla lítið

vera að gera með fundi af þessu tagi

ef slík vinnubrögð eiga að vera ráð-

andi í framtíðinni. Lýsir þessi afstaða

meirihluta stjórnar LH og einnig

stjórna þeirra hestamannafélaga sem

tóku sömu afstöðu, fádæma tillits-

leysi gagnvart þeim sem að áður-

nefndri samþykkt stóðu. Skal engan

undra þótt hrikti í innviðum LH þeg-

ar svona er á málum haldið og ey-

firsku félögin sjái ekki tilgang með

veru sinni í LH. Eflaust koma fram

þær raddir að nú þegar ákvörðunin

sé tekin eigi félögin á Norðurlandi að

snúa bökum saman og láta sem ekk-

ert hafi í skorist. Nei, takk. Við erum

búin að fá á báða vangana og kærum

okkur ekki um meira af slíku góð-

gæti. Ef þetta eru vinir okkar, hvern-

ig eru þá óvinirnir? Stjórn LH hefur

með þessari ákvörðun sundrað fé-

lagsskap þeim sem átti að vera sam-

einingarafl og kraftur hestamanna

um land allt. Þeirra er skömmin og

ábyrgðin.

Stjómir hestamannafélaganna

Funa, Léttis og Þráins

ATVENNA

Ullariðnaður

Okkur vantar nú þegar

starfsfólk við ýmiss

framleiðslustörf, m.a. í

Loðbandadeild á dv. og kv. við spuna

og kembingu.

Prjónadeild á kv. og nv. við prjón,

ýfingu og fleira

og svo við ýmislegt annað á öllum vöktum.

Unnið er eftir bónuskerfi

sem gefur góða tekjumöguleika.

Mötuneyti er á staðnum.

Upplýsingar hjá starfsmannastjóra.

^S IÐNAÐARDEILD

9 SAMBANDSINS

GLERÁRGÖTU 28   AKUREYRI   SÍMI (96)21900

-^~

Ertu á leið í vetrarfrí?

London — Amsterdam — Hamborg —

Luxemborg — Kaupmannahöfn — Glasgow

Helgar- og vikuferðir í allan vetur.

P.S. Konur: Örfá sæti laus í

„Kvennaferðina", S.október.

Samvinnuferdir-Landsýn

Skipagötu 14 • Símar 27200 og 21400

Vélstjóri oskast

á Særúnu frá Árskógssandi.

Upplýsingar í síma 96-61946.

Trésmiðir - Trésmiðir

Trésmiði vantar til starfa í Reykjavík. Laun ca. 150

þús. á mán. Frítt húsnæði og ferðir.

Upplýsingar gefur Guðmundur í síma 22890.

Plasteinangrun

óskar eftir að ráða starfsfólk til framtíðarstarfa.

Unnið á vöktum, góð laun í boði.

Upplýsingar hjá framleiðslustjóra eða verkstjóra á

staðnum (ekki í síma).

Plasteinangrun

Óseyri 3, Akureyri

Óskum eftir að ráða menn

til starfa sem fyrst

Mikil vinna framundan.

Umsóknum sé skilað á skrifstofu Dags fyrir 10. sept.

n.k.

VERKVAL

Blaðamaður

á Blönduósi

Dagur óskar eftir að ráða blaðamann

með aðsetri á Blönduósi.

Gert er ráð fyrir að blaðamaðurinn annist einnig

dreifingu blaðsins á Blönduósi.

Nánari upplýsingar gefur Áskell Þórisson í

síma 24222.

wrnrn

ni

ini

VISA

Kjörmarkaour KEA Hrísalundi

I helgarmatinn

Úrvals gott kálfakjöt - Hvalkjöt mjög ódýrt -

Nýtt folaldakjöt á góðu verði

og svo vestfirski hákarlinn Ijúffengi.

Komið í Hrísalund og kynnist glæsilegu kjötborði.

s

Kjörmarkaður KEA

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16