Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						3. september 1987 - DAGUR - 15

Jþróttir

Umsjón: Kristján Kristjánsson

¦wvmm*m mmm

f «91 flFT

¦   .

Knattspyrna 3. deild:

Úrslitaleikur

á Sauðárkróki

- „Ætlum okkur upp," segir Bjarni

Jóhannsson þjálfari Tindastóls -

„Höfum allt að vinna," segir Þorsteinn

Ólafsson þjálfari Magna

Þeir Halldór Askelsson leikmaður Þórs og Erlingur Kristjánsson KA-maður

iiimiii kljást með liðum sínuin á Akureyrarvellinum á laugardag.     Mynd: rpb

SL mótið 1. deild:

Tryggja Valsmenn

sér titilinn?

- Þór og KA leika á Akureyri og

Völsungur fær Fram í heimsókn

Valsmenn hafa svo gott sem

tryggt sér sigur í SL mótinu 1.

deiíd í knattspyrnu nú þegar

tvær umferðir eru eftir. Liðið

hefur nokkuð örugga forystu í

efsta sætinu, með 33 stig en

Skagamenn koma næstir með

29 stig. Framarar og Þórsarar

eru með 28 stig hvort félag og

KR-ingar hafa 25 sttig. í fimm

neðstu sætunum eru KA með

19 stig, ÍBK með 17, Völsung-

ur með 16, FH með 13 og Víðir

rekur lestina með 11 stig og er

nánast fallið.

Á laugardag veröur leikinn

heil umferð og þá geta Valsmenn

tryggt sér meistaratitilinn með

sigri á KR á KR-vellinum. KR-

ingar hafa átt erfitt uppdráttar að

undanförnu og tapað síðustu

þrem leikjum sínum í deildinni.

Þeim tækist þó að rétta aðeins úr

kútnum með sigri á Val. Aðrir

leikir í 17. umferð eru, Þór-KA á

Akureyri, ÍA-Víðir á Akranesi,

Völsungur-Fram á Húsavík og

ÍBK-FH í Keflavík. Allir leikirn-

ir hefjast kl. 14.

Stórleikur umferðarinnar,

a.m.k. er snýr að Akureyringum

er viðureign Þórs og KA á Akur-

eyrarvellinum. Þórsarar eiga

harma að hefna frá síðasta leik

liðanna um síðustu helgi en þá

yfirspiluðu KA-menn þá algjör-

íega og unnu mjög sannfærandi

sigur. Nói Björnsson fyrirliði

Þórs leikur ekki með liðinu gegn

KA á laugardag vegna leikbanns.

Þór vann KA bæði í fyrri leik lið-

anna í deildinni og í bikarkeppn-

inni og KA-mönnum finnst sjálf-

sagt vera kominn tími til að snúa

blaðinu við.

Á Húsavík fer fram hörkuleik-

ur er nýkrýndir Mjólkurbikar-

meistarar Fram sækja Völsunga

heim. Með sigri í þeim leik

tryggja Völsungar sér að öllum

líkindum áframhaldandi sæti í 1.

deild. Búast má við skemmtileg-

um leik en á góðum degi geta

Völsungar svo sannarlega velgt

Frömurum undir uggum.

Skagamenn berjast um

Evrópusæti en Víðismenn þurfa

að vinna báða sína leiki sem eftir

eru, til þess að halda sæti sínu í

deildinni. ÍBK og FH eru bæði í

fallhættu og það verður því hart

barist í leik liðanna í Keflavík.

Á laugardag fer fram síðasta

umferðin í B-riðli 3. deildar á

íslandsmótinu í knattspyrnu.

Sindri og Þróttur N leika á

Hornafirði, Reynir og HSÞ-b á

Árskógsströnd en aðalleikur

umferðarinnar er viðureign

Tindastóls og Magna á Sauðár-

króki. Liðið sem sigrar í [iciiii

leik tryggir sér um leið sigur í

riðlinum og sæti í 2. deild að

ári. Það má því búast við

fjörugum leik á Króknum og

víst er að áhorfendur munu

fjölmenna á völlinn, bæði

heimamenn og Grenvíkingar.

Dagur hafði samband við þjálf-

ara liðanna og spurði þá rma. um

leikinn á laugardag.

Bjarni Jóhannsson:

„Ég hlakka til að spila þennan

leik, úrslitaleikur er alltaf úrslita-

leikur og hann getur farið alla

vega. Við erum á heimavelli og

hann á vera okkur til góða. Við

ætlum okkur upp í 2. deild, það

eru alveg hreinar línur."

-  Finnst þér lið Tindastóls eiga

erindi í 2. deild?

„Já og það er mjög mikilvægt

fyrir Tindastólsliðið að komast

upp í ár. Þetta lið á alveg eins

erindi í 2. deild eins og hvað ann-

að lið í riðlinum."

-  Ert þú sáttur við árangur

liðsins í sumar?

„Já ég get ekki sagt annað en

að ég sé sáttur við hann, miðað

við það að fimm menn úr hópn-

um fóru frá félaginu í vor."

Island - A-Þýskaland 2:0:

Glæsilegur sigur

íslenska Ólympíulandsliðið í

knattspyrnu sigraði það A-

þýska með tveimur mörkum

gegn engu er liðin áttust við á

Laugardalsvelli í gærkvöld í

undankeppni Ólympíuleikana.

íslenska liðið lék mjög vel og

sigur þess var mjög sanngjarn.

Hvorugu liði tókst að skora í

fyrri hálfleik en strax á 50. mín.

skoraði Guðmundur Torfason

laglegt mark. Á 78. mín. bætti

Ólafur Þórðarson við öðru marki

með glæsilegu skoti frá vítateig

og innsiglaði íslenskan sigur.

Knattspyma 2. deild:

Enn allt opið

Þótt enn séu aðeins tvær

umferðir eftir í 2. deildinni í

knattspyrnu, eiga sjö lið mögu-

leika á því að vinna sér sæti í 1.

deild að ári. Víkingar eru í

efsta sætinu með 29 stig en

Þróttarar koma fast á hæla

þeirra með 28 stig og þá Leift-

ur og Selfoss með 26 stig. UBK

hefur 25 stig, ÍBV 24 , ÍR 22,

KS 21, Einherji 19 og ÍBÍ er

þegar fallið í 3. deild með að-

eins 6 stig.

Á laugardag fer fram heil

umferð í deildinni, ÍR og ÍBÍ

leika í Reykjavík, UBK og KS

leika í Kópavogi, Leiftur og Ein-

herji í Olafsfirði, Selfoss og

Þróttur á Selfossi og ÍBV og Vík-

ingur í Eyjum. Allir leikirnir

hefjast kl. 14. AHt eru þetta gíf-

urlega mikilvægir leikir á botni

og toppi. Takist Víkingum að

vinna hafa þeir svo gott sem

tryggt sér 1. deildarsæti á ný.

Eyjamenn eiga enn möguleika á

því að komast upp og liðið hefur

ekki enn tapað leik á heimavelli.

Leiftur þarf á sigri að halda til að

eiga möguleika á sæti í 1. deild og

Einherji þarf einnig að vinna,

enda liðið í fallsæti í dag. í Kópa-

vogi leika UBK og KS og þurfa

Blikar að vinna til að halda sér í

toppslagnum en KS er að berjast

við Einherja á botni deildarinn-

ar. Selfyssingar og Þróttarar

heyja hatramma baráttu á Selfossi

og þurfa bæði liðin á sigri að

halda til þess að eiga möguleika á

1. deildarsæti að ári. ÍR-ingar

eiga auðveldasta leikinn fyrir

höndum en þeir fá falllið ÍBÍ í

heimsókn til Reykjavíkur.

-  Verður þú áfram með liðið á

næsta keppnistímabili?

„Það er allt óljóst í dag er ekk-

ert farið að ræða enn," sagði

Bjarni Jóhannsson þjálfari Tinda-

stóls.

Þorsteinn Ólafsson:

„Það er á brattann að sækja

fyrir okkur. Þeir leika á sínum

heimavelli og nægir jafntefli í

leiknum. Sauðárkrókur er það

stór kaupstaður að hann á að eiga

lið í 2. deild og jafnvel 1. deild og

það er því mikil pressa á þeim.

Við höfum því allt að vinna og

engu að tapa og munum gera allt

sem við getum til þess að vinna

leikinn. Ef okkur tekst það ætt-

um við að vera nógu góðir til þess

að leika í 2. deild og ef ekki þá

vona ég að þeir vinni vegna þess

að þeir eru betri og eigi því skilið

að fara upp."

-  Ertu ánægður með árangur

liðsins það sem af er?

„Já ég verð að segja það. Við

settum okkur það markmið strax

í vor að vinna riðilinn og okkur

fannst það raunhæft. Strákarnir

hafa lagt sig vel fram á æfingum

og í leikjum og andinn í hópnum

er mjög góður. Þetta er mjög

jafnt lið og menn eru tilbúnir að

styðja hver við annan og það hef-

ur verið mjög gott og gaman að

vinna með þeim."

-  Hefur eitthvað komið þér

óvart í deildinni í sumar?

„Ég átti nú von á því að Þrótt-

ur myndi blanda sér af meiri

krafti í toppbaráttuna en raun

varð á. Þá er hætt við því að það

verði erfitt fyrir Austra að rífa sig

upp úr 4. deild á ný," sagði Þor-

steinn Ólafsson þjálfari Magna.

Reynir-HSÞ-b:

Reynir og HSÞ-b leika á

Árskógsströnd í fallslagnum.

Reynismenn hafa 11 stig en

Mývetningar 9 og því nægir

Reyni jafntefli í leiknum til að

halda sæti sínu í deildinni. Austri

hefur lokið leikjum sínum, hlaut

4 stig og er þegar fallið í 4. deild.

Aðeins 7 lið leika í B-riðli 3.

deildar og því gæti farið svo að

aðeins Austri félli í 4. deild og

liðin sem léku í úrslitakeppni

NA-riðilsins, Hvöt, Huginn og

HSÞ-c færðust öll í 3. deild að

ári. En Hvöt og Huginn hafa þeg-

ar unnið sér sæti í 3. deiid.

Bikarkeppni FRÍ:

Sveit

HSK

sigraði

Bikarkeppni FRÍ fyrir keppend-

ur 16 ára og yngri fór fram í Vík

í Mýrdal um síðustu helgi. Fjög-

ur ungmennafélög áttu sveit í

keppninni.

Það var sveit HSK sem sigraði,

sveit HSÞ hafnaði í öðru sæti,

UDN varð í þriðja sæti og USVS

í því fjórða.

Þröstur Guðjónsson þjálfar Þór í

vetur.

Körfuboiti:

Þröstur

þjálfar

Þór

„Þetta leggst þokkalega í mig.

Við munum stefna að því að

halda sæti okkar í deildinni,"

sagði Þröstur Guðjónsson

íþróttakennari sem hefur verið

ráðinn þjálfari úrvalsdeildar-

liðs Þórs í körfuknattleik.

Þröstur er gamall refur í íþrótt-

inni en hann lék með liði Þórs

hér á árum áður, bæði í 1.

deild og úrvalsdeild.

„Ég lék með Þórsliðinu allan

tímann sem erlendu þjálfararnir

voru hér á Akureyri og lærði

mikið af þeim en ég hef lítið

komið nálægt körfuboltanum síð-

ustu fjögur ár. Ég tel að það sé

hægt að gera ýmislegt með þann

mannskap sem er í Þór í dag og í

liðinu eru margir leikmenn með

töluverða reynslu. Við þurfum

nauðsynlega að spila eina 6-7 æf-

ingaleiki fyrir mót, til þess að sjá

hvar við stöndum," sagði

Þröstur.

Birgir Mikaelsson landsliðs-

maður úr KR var einnig inni í

myndinni sem leikmaður og

þjálfari Þórs ásamt Þresti en

hann hætti við að koma norður á

síðustu stundu.

Þórsarar hafa þó fengið

liðsstyrk, Hrafnkell Túliníus er

leikið hefur með UBK undanfar-

in ár hefur ákveðið að leika með

Þór í vetur og þá hyggst Jón Héð-

insson æfa á fullu með liðinu í

vetur.

Knattspyma 4. deild:

Hvöt og

Grótta

- leika á sunnudag

Á sunnudaginn fer Iram úr-

slitaleikurinn í 4. deild í knatt-

spyrnu. Grótta og Hvöt leika

en þessi tvö lið urðu hlutskörp-

ust í iírslifuriðlunuiu tveimur

nú l'yrir skömmu.

Leikurinn sem hefst kl. 14 fer

annað hvort fram í Mosfellssveit

eða á Sauðárkróki en dregið

verður um það í dag. Hvatar-

menn eru mjög líklegir sigurveg-

arar en liðið hefur leikið mjög vel

í sumar og tapað aðeins einum

leik. Gróttumenn hafa einnig

staðið sig vel og því má búast við

fjörugum leik.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16