Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Dagur

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Dagur

						Akureyrí, fimmtudagur 3. september 1987

Stéttarsamband bænda:

Haukur formaður

Á aðalfundi Stéttarsambands

bænda á Eiðum í gærkvöld var

Haukur Halldórsson í Svein-

bjarnargerði kjörinn formaður

sambandsins.

Aðrir í hinni nýju stjórn eru

Böðvar Pálsson, Pórarinn Þor-

valdsson, Guðmundur Jónsson,

Þórólfur Sveinsson, Birkir Frið-

bertsson og Ari Teitsson.

Sjá viðtal við Inga Tryggvason,

fráfarandiformann, ábls2. JHB

Útgerðarfélag

N.-Þingeyinga:

Kaupir skip

frá Siglufirði

„Þetta kom fyrst til tals

snemma í ágústmánuði og við-

ræðunum lauk þannig að við

gengum frá kaupum á skipinu

um helgina," sagði Grétar

Friðriksson, framkvæmda-

stjóri Útgerðarfélags N.-Þing-

eyinga, en félagið keypti bát-

inn Skjöld af ísafold hf. á

Siglufirði.

Skjöldur er 230 tonn að

stærð, smíðaður árið 1964 en

algjörlega endurnýjaður 1984 á

Siglufirði. Skjöldur er nú á

rækjuveiðum fyrir ísafold en

verður afhentur nýjum eigendum

25. september. Kaupverðið er

125 milljónir króna en trygginga-

¦mat skipsins er 95 milljónir.

„Skjöldur er eiginlega lítíll

skuttogari, 35 m langur og IVi m

á breidd. Hann verður notaður til

ísfiskveiða og hugsanlega einnig

til rækjuveiða en skipið hentar

vel til þeirra. Á síðasta ári var

Skjöldur með 1300 tonna kvóta

þar af voru 950 tonn þorskur.

Pegar lokið var við að breyta

Stakfellinu í frystiskip lá fyrir að

fiskvinnslan í landi þurfti á auknu

hráefni að halda og við ætlum að

reka þessi tvö skip saman þótt

Skjöldur standi ekki einn sér

undir kaupverðinu. Við erum þó

vongóðir um framhaldið og vænt-

um þess að skipin beri sig sameig-

inlega," sagði Grétar Friðriks-

son, framkvæmdastjóri.      EHB

flö PIONEER   BÍLTÆKI0G HÁTALARAR

HUÓMDEILD

í gærmorgun var hafíst handa við að rífa Snorrahúsið við Strandgötu. Það er Möl og sandur seni annast verkið sem

tekur nokkra daga.                                                                                                                    Mynd: tlv.

Ráðstefna um iðnað:

„Iðnnámið þykir

ekki nógu fínt"

- segir Haraldur Sumarliðason

Á ráðstefnu um iðnað kom

Haraldur Sumarliðason forseti

Landssambands          iðnaðar-

manna inn á iðnnámið. Hann

sagði að ávallt hefði skort vel

menntað starfsfólk í iðnaði og

þessi skortur hefði verið eitt af

stærstu vandamálum iðnaðar-

ins. „Iðnnámið þykir ekki

nógu fínt í samanburði við

annað nám," sagði Haraldur.

Vatnsskarðsvegur:

Verktakinn

gafst upp

„Þeir eru farnir frá óloknu

verki. Verktakinn gafst upp

vegna ýmissa örðugleika og

staðan hefur sjálfsagt verið

orðin þannig að hann gat ekki

haldið ufrain með verkið,"

sagði Einar Gíslason hjá Vega-

gerð ríkisins á Sauðárkróki, en

framkvæmdir við veginn í

Vatnsskarði liggja niðri eftir

að verktakinn hvarf á braut.

Verktakinn, Örnólfur Guð-

mundsson úr Bolungarvík, rak

fyrirtæki í eigin nafni og hafði

tekið að sér að gera sex kíló-

metra    langan    vegarkafla    frá

Valadalsá að Gilsflóa fyrir neðan

bæinn Vatnshlíð meðfram Vatns-

hlíðarvatni. Bilanir voru tíðar í

tækjum og ýmis skakkaföll töfðu

verkið mikið.

Örnólfur Guðmundsson byggði

vegþekjuna í Óshlíð í fyrra og

var vegurinn í Vatnsskarði annað

verk hans fyrir Vegagerðina.

„Verkið í Vatnsskarði gekk mjög

illa og þegar verktakinn yfirgaf

staðinn hafði hann lokið við 30-

40 prósent af verkinu. Við erum

að vísu ekki búnir að taka þetta

út og eigum eftir að fara yfir það

hvernig staðan er," sagði Einar

Gíslason.                            EHB

„Það hlýtur að vera i verka-

hring samtaka iðnaðarins að leið-

rétta þá ímynd sem almenningur

og ekki síst ungt fólk hefur á iðn-

námi. En það þurfa fleiri að taka

þátt í því leiðréttingarstarfi, ekki

síst skólakerfið," sagði Haraldur

ennfremur.

Hann lýsti ánægju sinni með

verkmenntaskólann og iðn-

rekstrarbraut á háskólastigi á

Akureyri. Sigfús Jónsson tók

undir orð Haraldar en sagði einn-

'g-

„Mér finnst vanta inn í þessa

umræðu að iðnmenntun í landinu

tengist allt of mikið byggingar-

iðnaði. Það vantar formlegt

menntakerfi hér í framleiðsluiðn-

aði. Ég vil nefna tvær stórar iðn-

greinar í þessu landi sem hafa

nánast ekkert formlegt mennta-

kerfi fyrir sig, það er ullariðnað-

urinn og plastiðnaðurinn."

Sigfús sagði að rætt hefði verið

um það hvort verkmenntaskól-

inn gæti ekki tekið upp kennslu í

þessum greinum í framtíðinni.

Enda væri fyrir hendi á Akureyri

mikil fagþekking í ullariðnaði.

„Ég vil beina þessari hugmynd til

þeirra forsvarsmanna í iðnaði

sem hér eru," sagði Sigfús að

lokum.                                   SS

Sigfús Jóiisson bæjarstjóri segir að við einblínum of á byggingariðnað er rætt

er um iðnnám.                                                                                 Mynd: þá

Skyldu-

vinna á

slátur-

húsum?

- Róðurinn þyngist

segir Oli

Valdimarsson

sláturhússtjóri en

talsvert vantar af

fólki til starfa

Talsvert vantar af starfsfólki til

starfa við sláturhúsið á Akur-

eyri. „Ég veit ekki nákvæm-

lega hversu marga vantar, við

cruin að hringja þessa dagana í

okkar föstu menn og reyna að

pína þá til að koma," sagði ÓIi

Valdimarsson sljturhússtjóri.

„Það fer að verða spurning

hvort ekki verði að skylda fólk til

að skila ákveðnum dagsverkum

líkt og gert er í göngunum." Óli

sagði að alltaf væri erfiðara og

erfiðara að fá fólk til starfa á slát-

urhúsunum, en það er einkum

fólk úr sveitunum sem þar

starfar. „Og þar fækkar fólkinu

heldur svo róðurinn þyngist

nokkuð," sagði Óli. Fólk úr bæj-

um sækist ekki mikið eftir slátur-

húsavinnu, „það er farinn af

þessu mesti ljóminn."

Við þetta bætist svo að ekki er

enn búið að semja um laun starfs-

fólks í sláturhúsum. Sagði Óli að

semja þyrfti miklu fyrr en gert er.

„Það virðist alltaf vera dregið

fram á síðustu stundu að semja,"

sagði Óli og taldi skynsamlegra

að semja einungis fyrir sláturhús-

ið hér, en ekki vera í samfloti

með öllum sláturhúsum landsins.

Sagði Óli að aðstæður í slátur-

húsunum væru misjafnar og á

sláturhúsi KEA væru nokkur

þrengsli sem háðu starfseminni

óneitanlega. Við svokallaða slát-

urlínu þurfa minnst að starfa 42

menn, en um 100 manns hafa

unnið í húsinu yfir sláturtíð. „Ég

veit ekki í dag hversu marga ég er

búinn að fá," sagði Óli.       mþþ

Hofsós:

Skotiðásalt-

fiskverkun

Aðfaranótt sunnudagsins síð-

asta var skotið með riffli í hurð

saltfiskverkunarhúss Hrað-

frystihússins á Hofsósi. Fyrir

innan dyrnar var rafmagnslyft-

ari í hleðslu og er hætt við að

illa hefði farið ef skotið hefði

lent í honum.

„Þetta hefur verið gert ein-

hvern tímann á tímanum frá

klukkan 10 kvöldið áður til 3

aðfaranótt sunnudags, en á þeim

tíma var enginn í húsinu og sá

sem skaut hefur greinilega staðið

alveg upp við dyrnar. Þetta er

bara eins og maður sé staddur við

Persaflóann," sagði Hólmgeir

Einarsson verkstjóri Hraðfrysti-

hússins á Hofsósi, vegna þessa

máls, en það hefur verið afhent

lögreglu.                                -þá

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16