Dagur - 17.12.1987, Blaðsíða 5
17. desember 1987 - DAGUR - 5
V/ Naust
p rr>eb Kasse*
iSf gerb'f-
ö tráWjJ
lesendahornið
Erum til þjónustu reiðubúnir
Alíslensk og mjög þörf þjónusta
var ríkjandi á íslenskum sveita-<
(heimilum fyrir nokkrum áratug-
um.
Sjálfsagt þótti að hver karl-
maður til sveita, hefði sína
kvenlegu þjónustu og mun hún
oftast hafa verið veitt, hlýjum og
hæfum höndum.
Enn er þjónusta veitt hér á
íslandi og í enn ríkari mæli en
áður á svo margan og í allflest-
um tilvikum nauðsynlegan hátt
en þó í of mörgu á óþarfan hátt,
sem svo kemur niður á þeim sem
njóta og ekki síður á þeim sem
ekki njóta og ekki óska nota.
Til marks meðal annars mætti
nefna stórþjónustu steintröllið
sem risið er á mótum Drottning-
arbrautar og Leiruvegar.
Eldsneytisafgreiðslustöðvar eru
þarfar og þurfa að vera í
námunda við umferðarleiðir, en
ég held að varast beri að klína
þeim niður á viðkvæmum og
fallegum stöðum og þá enn síður
hrauka þeim upp í víðáttumiklar
turnbyggingar, sem svo skyggja á
fegurð til fleiri átta.
Manni gæti dottið í hug að ein-
hver mistök hafi átt sér stað með
staðsetningu áður nefndrar
Drottningarbrautar-Leiruvegar
þjónustustöðvar og væri þá höf-
uðástæðan sú að húsameistari
hafi ekki verið hafður með í
ráðum, eða með öllu sniðgeng-
inn, sem því miður hefur orðið
og fram kemur í viðtali við hann
sjálfan, um aðrar byggingar hér.
Hér vegur mikið, vakandi
fyrirhyggja og næmur smekkur
skipulagsyfirvalda sem trúlega
eru að mestu eða öllu ráðandi
staðsetningu og þá mat þeirra
valda á um, hvernig stærð og stíll
viðkomandi byggingar fellur inn í
umhverfið, bæði nær og fjær yfir
séð.
Fyrir mínum sjónum er þessi
umrædda stórbygging aðeins að
hluta til þörf og reist á alröngum
stað.
Hún skyggir á fegurð til suðurs
og suðausturs, séð frá norðri og
norðnorðvestri. Hún skyggir á og
er í ósamræmi við byggð og bygg-
ingar á Eyrinni, frá suðri og suð-
vestri séð.
Ekki einasta stærð hennar,
heldur líka stíll, finnst mér vera
æpandi þar sem hún stendur.
Flottrassa furstahallarstíll er tæp-
ast þarfur hjá okkur og ég hefði
haldið að fremur ætti hann að
vera þá þar, sem minnst ber á og
þar sem hann skyggir minnst á
Hallæris-
legt bingó
Pann 27. nóvember sl., var hald-
ið bingó hér í bæ á vegum knatt-
spyrnudeildar Leifturs. Þar sem
margir bæjarbúar hafa gaman af
að freista gæfunnar mættu um
150 manns. En mörgum hraus
hugur við verðinu. Aðgöngumiði
kostaði 100 kr. og bingó spjaldið
200. Þeir sem eiga 2-3 börn, eða
unglinga, geta svo reiknað út
hvað þessi saklausa fjölskyldu-
skemmtun kostar auk hefðbund-
inna nammikaupa.
Nú langar okkur að spyrja, er
svona dýrt annars staðar þar sem
bæjarbúar hafa styrkt knattsyrn-
una eins vel og við Ólafsfirðingar
höfum gert?
S.Ó.S.
það sem fallegt er. í mínum aug-
um lítur þetta líka meir út fyrir
að vera hugsað sem auraplokk-
unarmiðstöð heldur en þjónustu
og þótt ég hafi ekki kjark til
að dæma sem slíkt, þá er ekki
óhugsandi að aðrir hafi það.
Þessa miðstöð tel ég vera eina
af afleiðingum Leiruvegarins, en
af honum hefi ég haft ótta um
afleiðingar, sem koma myndu í
ljós síðar. Þótt ekki verði aft-
ur tekið og afkomendur okkar
verði að þola er vonandi að ekki
komi til þess að nokkurra hæða
gistihús, verði reist í krikanum
handan vegarins.
Hvort komið hafi til álita að
reisa umrædda þjónustustöð á
landi jarðeigenda Öngulsstaða-
hrepps, hefi ég ekkert heyrt um,
en þar til dæmis í krikanum aust-
an efnisflutningavegar tengdum
.Leiruvegi, hefði hun verið minna
æpandi og minni ljótleika valdið,
en trúlega álíka mikið hættu-
valdandi fyrir lífríki árinnar og
fjarðarins, með olíumengun
sinni.
Súkkulaðiskúrinn við íþrótta-
völlinn er talinn vera nokkuð dýr
77.200 krónur hver fermetri,
dýrari en Kringlan, hlutfallslega.
Hvað svo undrið á mótum
Leiru og Drottningar kostaði,
fáum við seint eða aldrei að vita
og ekki heldur hvort við borgum,
beint eða óbeint.
Sveinn Nikulásson.
Úrval jólagjafa
ogtöWur.belr^-
14“ kr. 27.900
16“meÆstW. 35300.
l HSóm«u«'ij2B^S’kass*iWki
"aretTákf.«-700',
ZX^00
o**rZ,íSo
Me<t> tráWjLS?-
varna"rf nn M aW'nnu"
byqandann o9
manntnn-
meö iagamtnn^
\esara
***‘»2£'**m
T„,o,asaoroavé»oe,spoti>
jólagiöh _
Verb íra kr.
Verð miðast við staðgreiðslu
Góðir greiðsluskilmálar.
RAÐGREIDSLUR
Filmumóttaka
K<omca ijósmyndafilmur,
skoðaðu verðið hjá okkur.
Það kemur þægilega á óvart.
NttUSt © 96-26088 • Glerárgata 26 • 600 Akureyri