Dagur - 17.12.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR -17. desember 1987
Þeir eru komnir í jólaskap strákarnir og voru að búa til hið fallegasta jólaskraut þegar Ijósmyndari Dags heimsótti
þá á dögunum. Mynd: TLV
Fyrir þessi jól mun Hjálparstofn-
un kirkjunnar selja friðarkerti.
Um er að ræða 12 klst. útikerti.
Þau verða til sölu í blómabúðum
og/eða kaupfélögum um allt
land. Einnig verða þau til sölu í
Kringlunni, á Eiðistorgi og á
aðfangadag við kirkjugarðana.
Nýtt hefti
með 12
frímerí(jum
Póst- og símamálastofnunin hef-
ur nýlega gefið út hefti með 12
frímerkjum að verðgildi 13 krón-
ur hvert, en það er almennt burð-
argjald innanlands og til Norður-
landa.
Þessi útgáfa er nýjung í frí-
merkjaútgáfu stofnunarinnar.
Heftin hafa mælst vel fyrir,
enda eru þau afar hentug og fara
vel í vasa eða veski. Þau eru til
sölu í öllum pósthúsum og kosta
kr. 156.
Myndefni frímerkjanna sem
prýða heftið eru landvættir í
skjaldarmerki íslands: Dreki,
gammur, griðungur og bergrisi.
Á næsta ári er ráðgert að gefa
út nýtt frímerkjahefti.
Póst- og símamálastofnunin
Reykjavík, 9. dcsember 1987.
Jóladaga-
tal SUF
Útdráttur er hafinn í Jóladagatali
SUF og hafa eftirtalin númer
komið upp:
1. desember nr. 2638
2. desember nr. 913
3. desember nr. 1781
4. desember nr. 1670
5. desember nr. 4676
6. desember nr. 2933
7. desember nr. 5726
'8. desember nr. 7505
9. desember nr. 4714
10. desember nr. 6297
11. desember nr. 5952
12. desembcr nr. 3213
13. desember nr. 3184
14. desember nr. 6371
15. desember nr. 2659
16. desember nr. 1658
17. desember nr. 3048
Allar frekari upplýsingar eru
veittar í síma 91-24480.
Afslátturinn gildir til jóla —
Munið að sýna félagskortin
SlMI
(96)21400
10%
jólaafsláttur
til félagsmanna á kápum og utanyfirjökkum
í vefnaðarvörudeild og herrafrökkum og
leðurjökkum í herradeild
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Brauð handa
hungruðum heimi
„Brauð handa hungruðum
heimi“ er yfirskrift hinnar
árlegu jólasöfnunar Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar. Söfnun-
in hófst formlega 6. desember
og stendur fram til jóla. Yerið
er að dreifa inn á öll heimili
landsins gíróseðlum ásamt
söfnunarbaukum.
í ár verður megináhersla lögð á
að verja söfnunarfénu til Eþíóp-
íu. Þar er enn vá fyrir dyrum. í
ágúst síðastliðnum skýrðu stjórn-
völd í Eþíópíu hjálparstofnunum
frá því að sumarregnið hefði
brugðist og því væri útlit fyrir
uppskerubrest í ár og því mætti
búast við hungursneyð strax í
byrjun næsta árs. Síðan hafa bor-
ist frekari upplýsingar sem benda
til að ástandið sé enn verra en
búist hafði verið við og geti jafn-
vel orðið enn alvarlegra en 1984.
Hjálparstofnun kirkjunnar
vonast til að íslenska þjóðin
bregðist jafn vel við nú og 1984
en með framlagi íslendinga gat
Hjálparstofnunin sent 3 hópa
hjúkrunarfræðinga, lækni og 3
hjálparsveitarmenn til starfa í
Eþíópíu. Þessir hópar unnu við
matvæladreifingu, heilsugæslu,
fæðingarhjálp, margvíslegar
smíðar, þjálfun heimamanna og
skipulagningu ýmiss konar. Einn-
ig starfaði íslenskur skipstjóri við
fiskveiðikennslu innfæddra.
Veiðarfæraútbúnaður var sendur
frá íslandi, einnig 90 tonn af
mjólkurdufti, 43 tonn af fatnaði
og eggjahvíturíkt kex.
Framlögum í landssöfnunina er
hægt að koma til skila í alla
banka, sparisjóði og pósthús
einnig til sóknarpresta um allt
land og á skrifstofu Hjálparstofn-
unar kirkjunnar, Suðurgötu 22,
Reykjavík. Á Þorláksmessu
verða flestar kirkjur opnar til að
taka á móti söfnunarbaukum og
verður opnunartími þeirra aug-
lýstur sérstaklega.
Friöarkerti