Dagur - 31.08.1989, Blaðsíða 5

Dagur - 31.08.1989, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 31. ágúst 1989 - DAGUR - 5 Prestarnir sem viðstaddir voru hátíðarguðsþjónustuna. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Séra Sigmar Torfason fv. prestur á Skeggjastöðum, séra Marinó Kristinsson fv. prestur á Sauðanesi, séra Ingimar Ingimarsson á Pórshöfn, séra Sigurður Guðmundsson vígslubiskup Hólastiftis, séra Kristján Valur lngólfsson á Grenjaðarstað, séra Örn Friðriksson prófastur á Skútustöðum, séra Gunnar Sigurjónsson á Skeggjastöðum og séra Sigurvin Elíasson á Skinnastað. Sauðaneskirkja Minnst var 100 ára vígsluafmælis Sauðaneskirkju við hátíðarguðs- þjónustu 20. ágúst s.l. Viðstaddir voru 5 prestar sem þjónað hafa Sauðanesprestakalli lengri eða skemmri tíma, en þeir eru: séra Marinó Kristinsson, séra Sigmar Torfason, séra Sigurvin Elíasson, séra Kristján Valur Ingólfsson og séra Ingimar Ingimarsson. Einnig voru viöstaddir séra Sigurður Guðmundsson vígslubiskup, séra Örn Friöriksson prófastur og séra Gunnar Sigurjónsson á Skeggja- stöðum. Við upphaf guðsþjónustunnar flutti séra Ingimar ávarp og þjón- aði fyrir altari fyrir prédikun en aðkomuprestar lásu ritningar- texta og önnuðust altarisgöngu. Vígslubiskup prédikaði. Kirkju- kör Sauðaneskirkju söng undir stjórn frú Vigdísar Sigurðardótt- •ur og frú Margrét Bóasdóttir söng einsöng en hún kom tveim dögum fyrir hátíðina og aðstoð- aði kórinn við æfingar. Kirkjan var þéttsetin og meðal kirkjugesta voru margir langt að komnir. Sóknarnefnd bauð aðkomu- gestum til hádegisverðar. For- maður sóknarnefndar er Kristinn Jóhannsson. Síðdegis var öllum 100 ára kirkjugestum boðið til veglegrar kaffidrykkju í félagsheimili Þórs- hafnar. Þar llutti séra Ingimar kveðjur frá herra Ólafi Skúlasyni biskupi og séra Guðmundi Erni Ragnarssyni og rakti síðan sögu kirkjustaðarins. Mörg ávörp voru flutt og söfnuði og sóknarpresti árnað heilla i tilefni dagsins. Hinn 1. september fer séra Ingimar í eins árs námsleyfi og mun séra Sigurvin á Skinnastað annast prestverk í september en síðan mun séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir þjóna Sauðanes- prestakalli í fjarveru séra Ingi- mars. Húsnæði óskast til kaups! 4ra-5 herbergja sérhæð í tví- eða þríbýlishúsi á Brekkunni óskast til kaups. ★ Góðar greiðslur. Uppl. í síma 22431 eftir kl. 19.00 og um helgar. Opnir stjómmálafundir Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra og alþingismennirn- ir, Árni Gunnarsson og Jón Sæ- mundur Sigurjónsson, verða með stjórnmálafundi á Norðurlandi, sem hér segir: Siglufirði föstudaginn 1. septem- ber kl. 21.00 á Hótel Höfn. Sauðárkróki sunnudaginn 3. sept- ember kl. 14.00 í Safnahúsinu. Akureyri sunnudaginn 3. septem- ber kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu Skipagötu 14. Takið eftir! Fundirnir eru öllum opnir o im Nýtt, hrœrt skyr. Hin aldagamla mjólkurafurð hefur verið aðlöguð nútíma neysluvenjum og fœst tilbúin til neyslu í 200 gr. dósum. Þú bragðbœtir skyrið eftir eigin smekk og borðar það með bestu lyst. Nœringarrík, holl og góð nýjung byggð ó þjóðlegum grunni. SKEMMTILEG NYJUNG FYRIR KYRRÁMA MJÓLKURSAMLAG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.